Dagur - 28.05.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Mánudagur 28. maí 1990
, Sauðárkrókur:
Otvíræður sigur Framsóknar
Sveitarstjórnarkosningarnar 1990 úrslit
Urslit bæjarstjórnarkosning-
anna á Sauðárkróki lágu fyrir
um eittleytið á aðfaranótt
sunnudags. Af þeim 1712 kjós-
endum sem voru á kjörskrá
greiddu 1464 atkvæði eða
85,5%. Ekki urðu breytingar á
fulltrúafjölda þeirra flokka
sem í framboði voru. Sem fyrr
hefur Framsóknarflokkurinn
þrjá menn, Sjálfstæðisflokkur-
inn einnig þrjá, K-listi óháðra
einn mann, Alþýðubandalag
einn mann og Alþýðuflokkur
einn mann.
Að kosningum loknum skipa
eftirtaldir fulltrúar bæjarstjórn
Sauðárkróks; Fulltrúar Fram-
sóknartlokks: Stefán Logi Har-
aldsson, Viggó Jónsson, Herdís
Sæmundsdóttir, fyrsti varamaður
er Gunnar Bragi Sveinsson.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks:
Knútur Aadnegard, Steinunn
Hjartardóttir, Björn Björnsson,
fyrsti varamaður er Gísli Hall-
dórsson.
Fulltrúi óháðra: Hilmir
Jóhannesson, fyrsti varamaður
Björgvin Guðmundsson.
Fulltrúi Alþýðubandalags:
Anna Kristín Gunnarsdóttir,
fyrsti varamaður Ólafur Arn-
björnsson.
Fulltrúi Alþýðuflokks: Björn
Sigurbjörnsson, fyrsti varamað-
ur, Pétur Valdimarsson.
Að kosningum loknum stendur
hinn gamli meirihluti Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Óháðra.
Framsóknarflokkurinn bætir þó
við sig fylgi á kostnað allra flokka
og verður því að teljast sigurveg-
ari í kosningunum á Sauðár-
króki. Hlýtur það að teljast
nokkuð merkilegt þegar miðað er
við að nýtt fólk skipaði efstu sæt-
in á lista Framsóknar. Ekki vant-
aði mörg atkvæði upp á að fjórði
maður á lista Framsóknar, Gunn-
ar Bragi Sveinsson, slægi út
þriðja mann á lista Sjálfstæðis-
flokks og þá hefði meirihlutinn í
núverandi bæjarstjórn fallið.
kg/SBG
Stefán Logi Haraldsson:
Skilaboð um
forustu framsóknar
„Við framsóknarmenn erum
ótvíræðir sigurvegarar í kosning-
unum hér á Sauðárkróki. Ég vil'
koma á framfæri þakklæti til
kjósenda sem veittu okkur sinn
stuðning.
Ég þakka þessi úrslit mikilli
samstöðu um framboð Fram-
sóknarflokksins. Að mínu viti
höfum við framsóknarmenn
framar öðrum flokkum verið
málefnalegir í okkar kosninga-
baráttu og ég tel að það hafi kjós-
endur kunnað að meta.
Kosningabarátta hinna flokk-
anna bar þess merki að þeir voru
hræddir við okkar framboð og
málflutningur þeirra einkenndist
af því. Úrslitin eru að mínu viti
skilaboð til okkar framsóknar-
manna um forustuhlutverk í
bæjarstjórn."
Knútur Aadnegard:
Við héldum
okkar fulltrúum
„Við sjálfstæðismenn getum ver-
ið nokkuð ánægðir með úrslitin,
við héldum okkar fulltrúum og
bættum frekar við fylgið ef
eitthvað var. Hinsvegar var okk-
ur spáð meira fylgi og við töldum
fulla ástæðu til að ætla að við
myndum bætta við okkur meira
en raunin varð. Við töldum að
við hefðum sterka málefnastöðu
og sterkan lista.
Um fylgisaukningu Framsókn-
arflokksins er það að segja að sá
áróður sem þeir ráku síðustu
dagana fyrir kosningar skilaði
þeim þeirri uppskeru sem þeir
sáðu til.
Um fylgi Sjálfstæðisflokksins á
landsvísu má segja að við séum
mjög sterkir á stöðum þar sem
við höfum verið í meirihluta á
síðasta kjörtímabili."
Anna Kristín Gunnarsdóttir:
Fólk setur ekki
málefiiin á oddinn
„Ég get ekki sagt að úrslitin legg-
ist vel í mig. Við átturri von á
meira fylgi miðað við þær undir-
tektir sem við höfðunt fengið við
málflutningi okkar. Mér sýnist
augljóst að fólk tekur ekki
afstöðu eftir málefnaumræðu
heldur einhverju öðru. Ég geri
ráð fyrir að ástand Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík og sú óvissa
sem þar ríkti hafi haft sín áhrif
hér úti á landi. Ég held að í
Reykjavík hafi verið svipað uppi
á teningnum og hér, fólk tekur
ekki afstöðu eftir málefnum og
finnst mér það mjög miður.
Framsóknarmenn komu ekki
vel út úr framboðsfundinum hér
og raunar ekki heldur útvarps-
umræðum. Skýringar á fylgis-
aukningu þeirra er því að finna
annars staðar."
Björn Sigurbjörnsson:
Urðum fyrir
vonbrigðum
„Ég verð að segja að við urðum
fyrir vonbrigðum með úrslitin.
Það er mín skoðun að Alþýðu-
flokkurinn hafi verið að vinna að
góðum málum í bæjarstjórn síð-
astliðið kjörtímabil. Við áttum
alls ekki von á þessum niðurstöð-
um í kosningunum núna.
Þegar litið er á fylgi Alþýðu-
flokksins á landsvísu getum við
hér á Sauðárkróki verið tiltölu-
lega ánægðir. Engu að síður átt-
um við von á meira fylgi, því við
álitum kosningarnar dóm kjós-
enda á unnin störf bæjarfulltrúa.
Meirihluti bæjarstjórnar hefur
þó haldið fulltrúafjölda sínum og
að því leyti getum við vel við
unað.“
Hilmir Jóhannesson:
Ánægðir með
okkar hlut
„Við K-listamenn erum nokkuð
ánægðir með úrslit kosninganna.
Aðstæður voru okkur nokkuð
erfiðar margra hluta vegna.
Framsóknarflokkurinn verður að
teljast ótvíræður sigurvegari
kosninganna. Þeir ná þó ekki að
bæta við sig manni. Okkur taldist
til að þá vantaði um þrjátíu
atkvæði til að fella þriðja mann
Sjálfstæðisflokks.
Ég tel rétt að það komi fram að
K-listinn hér á Sauðárkróki er
elsta óháða framboðið í landinu.
Við höfum haft mann í bæjar-
stjórn síðast liðin þrjú kjörtíma-
bil. Það var mikil óvissa ríkjandi
fyrir þessar kosningar nú og við
stuðningsmenn K-listans erum
mjög ánægðir með að halda okk-
ar hlut.“
Blönduós:
Óvíssa um áframhaldandi
meirihlutasamstarf
Þeir listar sem mynduðu meiri-
hluta í bæjarstjórn á Blönduósi
á liðnu kjörtímabili fengu aftur
meirihluta atkvæða í kosning-
unum í fyrradag. Ágreiningur
er hins vegar uppi milli þessara
tveggja afla og getur vel farið
svo að næstu daga verði mynd-
aður nýr meirihluti í bæjar-
stjórn. Breyting varð ekki á
fulltrúatölu listanna í stjórn
sveitarfélagsins frá kosningun-
um 1986.
Samkvæmt upplýsingum frá
kjörstjórn á Blönduósi voru 697
manns á kjörskrá og kusu 644
eða 92,4%. Þessi kjörsókn er all
miklu betri en í síðustu kosning-
um á Blönduósi en þá voru 720
manns á kjörskrá í hreppnum en
sem kunnugt er fékk Blönduós
kaupstaðarréttindi á kjörtímabil-
inu.
Úrslit kosninganna urðu sem
hér segir: D-listi Sjálfstæðis-
flokks fékk 178 atkvæði, H-listi
vinstri manna og óháðra fékk 277
atkvæði og K-listi félagshyggju-
fólks fékk 165 atkvæði. Auðir og
ógildir seðlar voru 24.
Samkvæmt þessu fékk D-listi
27,65% greiddra atkvæða og tvo
fulltrúa, H-listinn fékk 43,01%
atkvæða og þrjá menn kjörna og
K-listinn fékk 25,62% atkvæða
og tvo menn kjörna. Samkvæmt
þessu töpuðu D-listi og H-listi
fylgi frá síðustu kosningum en K-
listi bætti við sig.
Fulltrúar í bæjarstjórn Blöndu-
óss eru Óskar Húnfjörð og Páll
Sveinbjörn Elíasson af D-lista,
Vilhjálmur Pálmason, Sigrún
Zophoníasdóttir og Pétur A. Pét-
ursson af H-lista og Guðmundur
Theódórsson og Unnur Krist-
jánsdóttir af K-Iista.
Varamenn í bæjarstjórn eru:
Einar Flygenring og Svanfríður
H. Blöndal fyrir D-lista, Guð-
mundur Ingþórsson, Hilmar
Kristjánsson og Zophonías
Zophoníasson fyrir H-lista og
Grétar Guðmundsson og Stefán
Þ. Berndsen fyrir K-lista. JÓH