Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 14.12.1990, Blaðsíða 4
4 B - DAGUR - Föstudagur 14. desember 1990 Gleðileg jól farsœlt komandi ár Mjólkursamlag K.Þ. Húsavík, sími 96-41444 Óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu. ISPAN HF. Norðurgötu 55, sími 22333 og 22688. Gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Þökkum viðskiptin á liðnu ári. jrej) I laralciur o£ Guctlaugur b>8gingaverktakar Gránufélagsgötu 4, símar: Har. 25131. Guðl. 22351. Sími 27398. Gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár FQœhcwerslun Sigmtar Gubtmmksomrhf. HAFNARSTRÆTI96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI Óskum viðskiptamönnum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og gleðilegs nýárs Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Gleðileg jól farsœlt komandi ár Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Stjörnu-Apótek Hafnarstræti 93-95, sími 30451 og 30452 Aldarafinæli Garðskirkju í Kelduliverfi Pann 18. nóvember síðastliðinn var þess minnst að 100 ár eru liðin frá því Garðskirkja í Kelduhverfi var vígð. Að lokinni hátíðarmessu þann dag var boðið til kaífr- samsætis í Skúlagarði í tilefni afmælisins. Við það tækifæri flutti Porfinnur Jónsson frá Ingveldarstöðum erindi þar sem hann stiklaði á stóru um sögu þessa merka guðshúss. Porfinnur gaf Degi góðfúslega leyfi til að birta erindið og fer það hér á eftir. Okkur þótti við hæfi á 100 ára afmæli Garðskirkju í Keldu- hverfi, að rifja upp og stikla á nokkrum atriðum er tengjast kirkjunni á einn eða annan hátt, byggingu hennar og fleira þar að lútandi. Að öllum líkindum hefur kirkja verið í Garði frá kristnitöku í landinu, hún var helguð Maríu guðsmóður, Jóhannesi postula og Tómasi postula, og síðar með guði Þorláki biskupi í katólskum sið. Bænhús voru í Keldunesi, Víkingavatni og Fjöllum, sem öll voru aflögð fyrir 1703, sum kannski löngu áður. í Ási var kirkja sem Garðs- prestar þjónuðu að nokkru eða mestu leyti. Ássókn er að fullu sameinuð Garðsskókn 1816, en Garður var prestssetur að minnsta kosti frá 1370-1880, en frá þeim tíma hefur Garðssókn verið þjónað af Skinnastaðaprest- um, þó sat Halldór Bjarnason í Presthólum frá 1911-1926, en aðstoðarprestur hans séra Sveinn Víkingur sat í Garði frá 1922-24. Margir nafnkunnir prestar hafa setið í Garði, og sumir verið þar þaulsætnir. Má þar nefna séra Bjarna Gíslason er sat Garð frá 1617-1657. Séra Einar Skúlason og syni hans, sem héldu Garð frá 1669-1733. Séra Vigfús Björns- son er var þar frá 1797-1809, og séra Björn Halldórsson frá 1810- 1840. Sá prestur sem lengst hefur þjónað Garði en setið á Skinna- stað er séra Páll Þorleifsson, hann þjónaði frá 1926-1966 eða 40 ár. Séra Sigurvin Elíasson tók við af Páli og þjónaði til 1989 að núverandi prestur séra Eiríkur Jóhannsson tók við. Það kirkjuhús sem nú er í Garði, er að stofni til byggt 1890 úr timbri á steyptu eða stein- límdu fótstykki. Stærð þess er 10,5x6 m, að grunnfleti og söng- loft er í einum þriðja þess. Yfirsmiður byggingarinnar var Stefán Erlendsson bóndi í Ólafs- gerði. Fróðlegt er að líta til baka og skoða aðeins árferði og að- stæður til framkvæmda á þessum tímum. Áratugurinn milli 1880-1890 var mjög erfiður veðurfarslega séð, hvert árið öðru verra ef svo mætti segja, því finnur maður greinilega hvað Keldhverfingar hafa metið kirkju sína mikils, að leggja í nýbyggingu á svo erfiðum tímum, grasbrests, skepnufellis, bjargarleysis og fólksflótta úr landi, því 1887 flytjast 2000 manns af landinu og var stór hluti þess af Norður- og Norðaustur- landi. Athyglisvert er, að einmitt á því ári 1887 stofna Keldhverfing- ar búnaðar- og framfarafélag, sem síðar var breytt í búnaðarfé- lag Keldhverfinga, og þetta félag er aðeins 3 árum síðar, í stakk búið til að lána all verulega upp- hæð til kirkjubyggingar. Árið eftir 1888 liggur hafís fyr- ir öllu Norðurlandi fram í júlílok með kuldum og gróðurleysi, og jafnvel bjargarleysi þar sem skip komust ekki á hafnir vegna ísa- laga. 1889 er aðeins bjartara yfir, þá fer verð hækkandi á útfluttu sauðfé, svo veturgömul ær fer á 12-15 kr., en sauðir og fullorðnar ær á 18-20 kr. Svona var í stórum dráttum ástandið þegar hafist var handa við kirkjubygginguna. Þó tekin væru lán til byggingar- innar var gert eins lítið af því eins og mögulegt var, en tekjurn- ar voru tíund af fasteignum og lausafé og var sú upphæð sirka 60-70 kr. á ári, fram til 1908, en þá er því breytt í nefskatt 75 aur- ar á nef, og árið 1940 er gjaldið ekki nema ein króna og tuttugu og fimm aurar á mann. Einnig tók kirkjan sérstakt leg- gjald fyrir greftrun og var svo fram til 1910. Fermingarbörn við Garðskirkju árið 1963. Mynd: 1M Fermingarbörn við Garðskirkju árið 1965. Mynd: im

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.