Dagur - 13.01.1993, Blaðsíða 1

Dagur - 13.01.1993, Blaðsíða 1
76. árgangur Akureyri, miðvikudagur 13. janúar 1993 7. tölublað ÚTSALA hefst á fimmtudaginn n rru ni Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708. Aðild að GES samþykkt á Alþingi í gær með 33 atkvæðum gegn 23 - sex þingmenn Framsóknarflokks og einn þingmaður Kvennalista greiddu ekki atkvæði Aðild íslands að samningnum um hið Evrópska efnahags- svæði var samþykkt á Alþingi í gær með 33 atkvæðum gegn 23. Sex þingmenn Framsókn- arflokksins greiddu ekki atkvæði og sömuleiðis Kvennalistakonan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Aður en gengið var til atkvæða um samninginn var felld með 33 atkvæðum gegn 30 tillaga Jóns Helgasonar (B-Su), Ragnars Arnalds (G-Nv) og Kristínar Einarsdóttur (Kv-Rvík) um að vísa staðfestingarfrumvarpi um EES til ríkisstjórnarinnar. Fylkingar stjórnar og stjórnar- andstöðu riðluðust í atkvæða- greiðslunni í gær. Allir þingmenn Alþýðuflokksins greiddu samn- ingnum atkvæði en hins vegar reyndust þrír þingmenn hins stjórnarflokksins, Sjálfstæðis- flokks, vera á móti honum, þeir Eggert Haukdal (Su), Ingi Björn Albertsson (Rvík) og Eyjólfur Konráð Jónsson (Rvík). Alþýðubandalagsþingmennirnir greiddu allir samningnum mótat- kvæði en þingmenn Framsóknar- flokksins skipuðu sér í tvær fylk- Framhaldsskólarnir á Akureyri: Skólahald féll niður Stjórnendur Menntaskólans og Verkmenntaskólans á Akur- eyri urðu að fella niður kennslu í gær vegna ófærðar og óveðurs í bænum, en til þess hefur ekki þurft að koma mörg undanfarin ár. Tryggvi Gíslason, skólameist- ari Menntaskólans, segir afar sjaldgæft að kennsla sé felld nið- ur vegna ófærðar og veðurs, en á það beri meðal annars að líta að nú búi allstór hópur nemenda fyrir utan Glerá og þar hafi ófærðin verið hvað mest í gær. Tryggvi sagði að á síðustu tuttugu árum hafi kennsla í Mennta- skólanum á Akureyri ekki oft verið felld niður. „Eg man varla eftir því áð skóla hafi verið aflýst nema rafmagnsleysi hafi fylgt með. En það er hugsanlegt að á síðustu tuttugu árum hafi kennsla í Menntaskólanum verið felld niður einu sinni eða tvisvar vegna veðurs eða ófærðar," sagði Tryggvi Gíslason. Norðausturland: Víða annríki hjá lögreglu - vitlaust veður á Dalvík Kolvitlaust veöur var á Dalvík í gær. Að sögn lögregluþjóns gekk umferð óhappalaust fyrir sig enda fáir á ferli því lítið var hægt að keyra vegna hríðar- kófs og blindu. Lögreglan á Dalvík þurfti að sinna nokkrum hjálparbeiðnum en fólk fór þó yfirleitt fótgang- andi milli húsa. Aðalgötur bæjar- ins voru þokkalega færar. í Ólafsfirði var ástandið svipað. Þar hafði kyngt niður miklum snjó en ekki bárust nein tíðindi af óhöppum eða þrek- raunum. Lögreglan á Húsavík var á þönum í gær við að draga bíla úr snjósköflum en umferð þar gekk án teljandi óhappa. SS Bernharð Haraldsson, skóla- meistari Verkmenntaskólans, sagði að einu sinni áður í sögu skólans, annaðhvort 1984 eða 1985, hafi kennsla verið felld nið- ur vegna óveðurs. Bernharð sagði að þá hafi sést til sólar upp úr hádegi og hann hafi látið þau orð falla að hann myndi aldrei framar fella niður kennslu vegna óveðurs eða ófærðar. En svo bregðast krosstré sem önnur tré! óþh ingar gagnvart samningnum. Sjö þingmenn flokksins greiddu samningnum mótatkvæði en sex þeirra, Halldór Ásgrímsson (Au), Jón Kristjánsson (Au), Valgerður Sverrisdóttir (Ne), Jóhannes Geir Sigurgeirsson (Ne), Ingibjörg Pálmadóttir (VI) og Finnur Ingólfsson (Rvík) greiddu ekki atkvæði. Kvenna- listakonur greiddu samningnum mótatkvæði að Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur (Kv-Rvík) undanskilinni, en hún greiddi ekki atkvæði. Margir þingmenn gerðu grein fyrir atkvæðum sínum við atkvæðagreiðsluna í gær, eða hvorki fleiri né færri en 37, sem stóð vel á aðra klukkustund, þar af tóku nokkrir af þingmönnum Norðurlands til máls. Páll Pétursson (B-Nv) sagði samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið vondan og jafnframt hættulegan samning. Hann sagði samninginn stórt skref inn í Evr- ópubandalagið og brjóta í bága við íslensku stjórnarskrána. Sigbjörn Gunnarsson (A-Ne) sagðist telja EES-samninginn gefa íslensku atvinnulífi ný tæki- færi til bættra lífskjara. Stefán Guðmundsson (B-Nv) sagði að með aðild að Evrópsku efnahagssvæði væri ísland að opna landhelgina fyrir flota Evr- Skólahaldi var aflýst á Akureyri í gær vegna illviðris og ófærðar. Bömin létu veðrið ekki á sig fá og skemmtu sér vel I snjónum. Mynd: Robin ópubandalagsins. Hann sagði samninginn slæman og illa unn- inn og færa ísland skrefi nær aðild að Evrópubandalaginu. Svanhildur Árnadóttir (D-Ne) sagði að í ljósi þeirra erfiðleika sem íslenskt atvinnulíf hafi átt við stríða að undanförnu ættu íslendingar að stökkva en ekki hrökkva. Hún sagðist telja að EES-samningurinn myndi örva atvinnu á fslandi og jafnframt sagðist hún ekki óttast að þjóðin glutraði niður menningu eða sjálfstæði með aðild að hinu Evr- ópska efnahagssvæði. Jóhannes Geir Sigurgeirsson (B-Ne) var einn þeirra sex þingmanna Framsóknarflokksins sem greiddu ekki atkvæði í gær. Hann sagðist telja brýnt að ná pólitískri sátt um þetta mikilvæga mál, en það hafi ekki verið gert. Jóhannes lagði áherslu á nauðsyn þess að ísland óski nú þegar eftir tvíhliða viðræðum við fram- kvæmdastjórn Efnahagsbanda- lagsins og þannig verði best tekið tillit til sjónarmiða íslendinga. Vilhjálmur Egilsson (D-Nv) sagði að með aðild að EES fái ísland aðgang að innri markaði Evrópubandalagsins. Aðild að Evrópsku efnahagssvæði veíti íslendingum víðtæk réttindi og styrki fullveldi og sjálfstæði þjóð- arinnar. Ragnar Arnalds (G-Nv) sagði að Evrópskt efnahagssvæði væri tilraun sem hefði mistekist. Aðild að EES væri afdrifaríkt skref í átt að fullgiidri aðild íslands að Evr- ópubandalaginu. Steingrímur J. Sigfússon (G- Ne) sagði það dapurleg örlög að afsala fullveldi íslensku þjóðar- innar áður en þjóðin héldi upp á 50 ára afmæli lýðveldisins. Hann sagði að Evrópska efnahagssvæð- ið ætti ennþá langt í land og átaldi hvernig núsitjandi ríkis- stjórn hefði haldið á þessu máli. óþh Skemmdarvargur á Siglufirði: Lödueigandi sætir ofsóknum - dekk skorin og tilraun til íkveikju Lögreglan á Siglufirði hefur nú til rannsóknar óvenjulegt mál, sem líkist helst ofsókn- um á hendur ákveðnum bifreiðareiganda þar í bæ. Bíllinn hefur ítrekað verið skemmdur og í gærmorgun eða fyrrinótt var reynt að kveikja í honum. Bfllinn sem hér um ræðir er af Lada Sport gerð og tekur lögregl- an öllum vísbendingum feg- ins hendi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru málsatvik þau að 20. desember sl. voru skor- in sundur tvö dekk á umrædd- um Lödu jeppa. Var þetta álit- inn tilviljanakenndur hrckkur en annað átti eftir að koma á daginn. Næst var átt við bílinn 9. janúar sl. Þá voru öll fjögur dekk bílsins skorin í gegn og enn var látið til skarar skríða aðfaranótt þriðjudags eða snemma á þriðjudagsmorgun. Þá voru skorin tvö dekk og annað nánast fláð í sundur með um 40 cm skurði. Ódæðismaðurinn hefur greini- lega haft beitt eggvopn. Ekki voru skemmdirnar bundnar við hjólbarðana að þessu sinni. Bökin á báðum framsætum bílsins voru sund- urskorin og eldur borinn að fóðrinu. Inni í bílnum mátti sjá leifar af tusku sem hafði verið kveikt í og hafði tuskan verið leidd í bensínstútinn. Að sögn lögreglunnar á Siglufirði hefur tilgangurinn með þessum verknaði greini- lega verið sá að kveikja í bíln- um og lítur hún þetta mál mjög alvarlegum augum. Vegna rannsóknar málsins óskar lögreglan eftir vísbend- ingum sem hraðað gætu lausn þess. SS Ófærð á Akureyri: Mikið álag hjá lögregliuini Lögreglan á Akureyri stóð í ströngu í gær, líkt og á mánu- daginn, við að losa bfla úr snjósköflum á götum bæjarins. Tveir bflar frá lögreglunni voru á stöðugri ferð um bæinn til að sinna hjálparbeiðnum. Ekki var vitað um nein óhöpp nema hvað tvær tiikynningar bárust um að keyrt hefði verið á kyrr- stæða bfla. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni voru götur bæjarins orðnar mjög erfiðar yfirferðar í gær. Margir bílar sátu fastir á slæmum stöðum og var brýnt að fjarlægja þá svo strætisvagnar kæmust leið- ar sinnar og snjómoksturstæki gætu athafnað sig. Aðfaranótt þriðjudags voru lögreglumenn í nær stöðugum flutningum með starfsfólk heil- brigðisstofnana og síminn var rauðglóandi í gær. Menn þurftu að bíða allt upp í eina og hálfa klukkustund eftir aðstoð frá lög- reglunni svo mikið var álagið. Ekki var þó talið nauðsynlegt að kalla út hjálparsveitir. Skólahaldi var aflýst á Akur- eyri í gær og mjög víða á Norðurlandi og fer nú skólavikan að verða býsna snubbótt. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.