Dagur - 28.06.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 28.06.1994, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. júní 1994 - DAGUR - 7 l FJOLNIR VI0SKIPTAHUC8ÚNA0UR Trópídeildin í knattspyrnu: Sl. föstudagskvöld héldu Þórs- arar til Kópavogs og léku við Breiðablik í Trópídeildinni í knattspyrnu. Liðin skoruðu sitt hvort markið í miklum baráttu- leik og máttu Þórsarar leika ein- um manni færri bróðurpartinn af síðari hálfleik. Þeir áttu þó engu minna í leiknum eftir það en náðu ekki að nýta færi sín. Þórsarar voru heppnir að lenda ckki undir strax á fyrstu mínútu því Blikar áttu skot í markslána. Heimamenn voru heldur sprækari í byrjun og sóknarlotur þeirra báru árangur á 13. mín. þegar Jón Stcf- ánsson skoraói af stuttu færi eftir fyrirgjöf Arnars Grétarssonar. Þórsarar hresstust vió markið og á 19. mín. náóu þeir aö jafna metin. Markið kom eftir glæsilega send- ingu Guðmundar Bcnediktssonar á Bjarna Sveinbjörnsson sem afgreiddi boltann snyrtilega í net- ið. Síðari hálfleikur hófst með sömu baráttunni og þeim fyrri lauk og fyrr en varði dró til tíð- inda. A 12. mín. kom sending inn fyrir vörn Þórs en Olafur Péturs- son markvörður varð á undan Arnari Grétarssyni í boltann. Arn- ar hélt hins vegar áfram og braut illa á Olafi. Birgir Þór Karlsson, leikmaður Þórs, sló í framhaldi af þessu til Arnars og fékk að líta rauða spjaldið fyrir, en hann hafði áður fengið gult spjald. Þaó sem eftir lifði leiks léku Þórsarar því einum færri. Þó var ekki að sjá á leik liðanna að svo væri því þeir voru síst lakari aðil- Bjarni Sveinbjörnsson, sem hér berst við Skagamanninn Olaf Adolfsson, skoraði fyrir Þói gegn UBK og er nú annar markahæsti maður deildarinar með 5 mörk en Mihajlo Bibercic hjá í A hefur skorað 6. Mynd: Robyn. inn og hefðu með smá meiri heppni getaó gert út um leikinn. Fleiri mörk voru þó ekki skoruð og 1:1 jafnteli því lokatölur. Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs, sagði vissulega hafa verió erfitt að spila manni færri svo stóran hluta af leiknum. „Maður þorir ekki að taka neina áhættu þegar svona mikið er eftir. Við sköpuöum okkur samt færi eftir þetta og vorum ekki lakari aðilinn. Við vorum að mínu mati búnir að ná tökum á leiknum þegar þetta gerðist. Annars var þetta baráttu- leikur og þeir gáfu okkur aldrei frið til þess að spila fótbolta. En vió áttum að klára þetta dæmi." Næsti leikur Þórs í deildinni cr heimaleikur við KR 7. júlí. Lið UBK: Guómundur Hreidarsson, Úlfar Ótt- arsson. Einar Páll Tómasson. Hákon Sverris- son. Jón S ánsson, Arnar Grétarsson. Gústaf Ómarsson. lunnlaugur Einarsson, Kristófer Sigurgeirs i. Rastislav Lasorik og Grétar Steindórss ■. LM) Þórs: ()lafur Pétursson, Þórir Áskelsson. Júlíus Tr\ggvason, Birgir Þór Karlsson. Or- marr Örlygsson, Dragan Vitorovic, Lárus Orri Sigurósson. Páll Gíslason, Öm V. Amarson, Guómundur Benediktsson og Bjami Svein- björnsson. Dómari: Ólafur Ragnarsson. Línuverðir: Gudmundur Stefán Maríasson og Emil Bjömsson. Knattspyrna, 3. deild: Jón Þórir til Dalvíkur Dalvíkingum er að bætast góður liðsstyrkur í fótboltanum því Jón Þórir Jónsson, leikmaður UBK, hefur gengið frá félagaskiptum til Dalvíkur og verður löglegur í næsta leik. Mun hann án efa ffíska mjög upp á leik liðsins. Jón Þórir, sem reyndar er kunn- ari sem handknattleiksmaður meó Selfyssingum, á að baki ríflega 40 leiki í 1. deild með UBK og sl. sumar var hann næst markahæsti maður liðsins með 6 mörk. Hann hefur hins vcgar ekki náó að festa sig í sessi í sumar. „Við ætlum að freista þess aó bæta stöðuna því það er nú eða aldrci aó gera citthvað í ntálun- um,“ sagði Bjöm Friðþjófsson hjá Dalvík. Fótbolti, KA: 6. flokkur rakti boita Hið árlega SHELL mót í Vest- mannaeyjum sem er knatt- spymumót fyrir 6. aldursflokk, hefst á morgun. Frá KA fer að sjálfsögðu vösk sveit og strák- amir unnu að söfnum áheita í síðustu viku til að afla farar- eyris. Þeir skiptust á um að rekja bolta vegalengd sem svarar til leiðarinnar milli Akureyrar og Dalvíkur eóa um 45 km. Að sögn þjálfarans, Áma Stefánssonar, gekk söfnun áheita vel og ekki vafðist fyrir þeim að rekja boltann umrædda vegalengd. Aó lokum vildi 6. flokkur KA koma á fram- færi þakklæti til þcirra fjölmörgu scm studdu við bakið á þeim í þessari söfnun. Jafntefli Þórsara og Blika Einn besti handknattleiksmaður landsins tii Akureyrar: Patrekur í KA Ásinundur Arnarson og félagar hans í Völsungi lcika í Mjólkurbikarnum í kvöld. Hér er hann th. í leik mcð Þór sl. sumar. Mjólkurbikarinn, 32 liða úrslit: Byrjar í kvöld Á sunnudaginn gekk hand- knattleiksdeild KA frá samningi við Patrek Jóhannesson um að hann ieiki með félaginu næsta vetur. Patreki er ætlað að fylla skarð Alfreðs Gíslasonar sem hyggst einbeita sér að þjálfun liðsins þó ekki sé loku fyrir það skotið að hann spili eitthvað með. Þorvaldur Þorvaldsson, formaður handknattleiksdeildar KA, kvaðst afar ánægður með komu Patreks til KA og í fyrsta skipti í mörg ár væri útlit fyrir afar Iitlar mannabreytingar milli tímabila. Patrekur, sem leikió hcfur með Stjörnunni í Garðabæ undanfarin ár, er í hópi bestu handknattleiks- manna landsins og á fast sæti í landsliðinu. Hann sagði hafa verið kominn tíma á að breyta til og eins og flestum væri eflaust kunn- ugt hefði það staðið til áöur. „Þetta er mjög spennandi. Það var ofan á núna aö korna noróur og síðan er mitt að standa mig og sýna öllum að þessi ákvörðun hafi verió rétt. Mér líst vel á liðið. Mér skilst að Valdi [Valdimar Gríms- son] og Simmi [Sigmar Þröstur Oskarsson] verði áfram og ég tala nú ekki um ef Alfreð spilar með. Eg er bara bjartsýnn á veturinn og það cr kominn tími á að KA vinni titil.“ Þorvaldur Þorvaldsson, for- maður handknattleiksdeildar KA, var ekki síður ánægður. „I fyrsta skipti í mörg ár er útlit fyrir litlar mannabreytingar milli tímabila. Erlingur Kristjánsson hefur gefið svar um að vera með og þeir einu sem fara eru Oskar Oskarsson og Ármann Sigurvinsson. Síðan bæt- ist Patrekur við og þá vonandi er- um viö mcð mannskap til að gera góða hluti. Við ætlum samt að vera sparir á allar yfirlýsingar." í kvöld hefjast 32 liða úrslit Mjólkurbikarkeppni karla í knattspyrnu með þremur leik- um. Annað kvöld verða 7 leikir en umferðinni lýkur á fimmtu- dagskvöldið. Tvö lið af Norðurlandi veróa í cldlínunni í kvöld. Þá taka Völs- ungar á móti Grindvíkingum á Húsavíkurvclli og Leiftursmenn leika í Borgarnesi vió Skallagrím. Annað kvöld mætast síðan KS og ÍBV á Siglufirði, Hvöt og KA á Blönduósi og Tindastóll tekur á móti Þrótti Reykjavík á Sauðár- króki. Fyrstu deildar lið Þórs verður í eldlínunni á fimmtudags- kvöldið en þeir þurfa að halda til Sandgerðis og leika vió 3. deildar lið Reynis. Allir umræddir leikir hetjast kl. 20.00. Aö lokinni undirskrift fclagaskipta á sunnudaginn. Frá vinstri: Alfreð Gísia- son þjálfari, Patrckur Jóhanncsson og Þorvaldur Þorvaldsson, formaður handknattlciksdcildar KA. Mynd: Halldór.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.