2 - DAGUR - Miðvikudagur 20. september 1995 ^ FRETTIR AKUREYRARBÆR SANNIR KARLMENN KOMASTAF ÁN OFBELDIS! Fundur í Deiglunni fimmtudags- kvöldið 21. september, húsið opnað kl. 20.30, dagskrá hefst kl. 21.00. Dagskrá: Karl Petersen leikur einleik á slagverk. Kristján Magnússon sálfræðingur flytur erindið: Karlar og ofbeldi. Leiklestur: Leikararnir Valdimar Öm Flygering og Skúli Gautason lesa úr verkum sem sýna ofbeldi sem karlar beita konur, börn, sjálfa sig og aðra karla. Allir velkomnir - konur jafnt sem karlar - meðan húsrúm leyfir. Jafnréttisnefnd Akureyrar. XAUTTL.ÓS ¥*** RAUTT L.OS Tónlist: Fræðsla: *r" ¦ . ... ,... -,,:¦ ¦.-:¦¦¦¦¦:.:¦ ;í-¥í-«;íí::--:;,"í^í;:;":í I$MM:.. tete ¦¦:¦¦¦¦ § i^i^^m^' .':. . ¦**** ^h. -. ¦ ¦" " ¦-. - ¦ V-X. ¦ , Þessi mynd var tekin sl. laugardag. Eins og sjá má er verið að undirbúa steypuvinnu. Fjær er Hríseyjarferjan Sæv- ar. Mynd: óþh Þekja steypt í Hríseyjarhöfn Þessa dagana er unnið að því að steypa þekju í höfninni í Hrísey og var meðfylgjandi mynd tekin um síðustu helgi. Þetta er síðari hluti hafnarframkvæmda í eynni, en í fyrra var rekið niður stálþil. Að sögn Jónasar Vigfússonar, sveitarstjóra, var fyllt að stálþilinu í fyrra og efnið látið þjappast. Nú er síðan komið að því að steypa þekjuna og í henni verður snjó- bræðsla. Jónas segir að þessar fram- kvæmdir bæti hafnaraðstöðu í í6EBHfiR A ¥1IHÍB DÆMI: JUUEL RÚGMJÖL KR. 72, PK. KORNAX RÚGMJÖL KR. 82, PK. NEMLI HAFRA6RJÓN 1 KG KR. 71,- eynni verulega. Hann segir að ekki hafi fengist fjármagn á fjár- lögum til þessara framkvæmda í ár, en lánsfé hafi fengist úr Hafna- bótasjóði fyrir 60% af kostnaðar- áætlun, en áætlað er að kostnaður við þennan síðari áfanga sé sem næst 11 milljónir króna. Jónas segist vænta þess að Hríseyjar- höfn fái á fjárlögum næsta árs fjárveitingu sem nemur láni Hafnabótasjóðs. Jöklar hf. 50 ára Á föstudaginn var, 15. septem- ber, var liðin hálf öld frá því að skipafélagið Jöklar hf. var stofn- að. Aðilar að félaginu voru í upphafi að mestu leyti frystihús innan Sölumiðstövar hraðfrysti- húsanna (SH) og á SH rúmlega 95% hlutafjár í Jöklum. Starfs- menn SH, bæði sunnan og norð- an heiða, gerðu sér glaðan dag á afmælinu eins og sjá má að meðfylgjandi mynd. Á þeim fimmtíu árum sem Jöklar hafa starfað hefur félagið komið víða við í sögu íslenskrar kaupskipaútgerðar og er saga þess jafnframt samofin sögu SH. Jöklar hf. eru nú með eitt skip í rekstri, frystiskipið Hofsjökul, sem flytur fiskafurðir frá íslandi til Norður- Ameríku og margvíslegan varning til íslands aftur. AI Starfsfólk SH á Akureyri gerði sér dagamun á föstudaginn á afmæli Jökla en um 95% hlutafjár Jökla er í eigu SH. Á myndinni eru Guðmundur Jón- mundsson (t.v.), Guðni Eyjólfsson, Gylfi Þór Magnússon (stendur) og Björn Halldórsson. Mynd: AI Ferð Sigmundar Þórissonar til USA: íþróttamál í Banda ríkjunum krufin í bæjarmálapunktum frá Akur- eyri í Degi í gær var m.a. greint frá því að íþrótta- og tóm- stundaráð hafi samþykkt að styrkja Sigmund Þórisson, for- niann KA, í kynnisferð á vegum ÍSÍ til Bandaríkjanna. Sigmundur hafði samband við blaðið og sagði gæta ónákvæmni í frásögn af því hvað felist í þessari ferð. f dagskrá ferðarinnar kemur fram að fjallað verður um íþrótta- mál í Bandaríkjunum frá mörgum hliðum. Meðal annars verður sjón- um beint að markaðssetningu íþrótta, t.d. verður í því sambandi fjallað um heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu á síðasta árí, borin er saman uppbygging íþróttahreyf- ingarinnar í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu, fjallað verður um skipulagningu New York maraþonsins, stærsta maraþons heims, tengls íþrótta og auglýs- inga, íþróttir og sjónvarp og al- mennt um kynningarmál íþrótta. Ferðin verður farin dagana 26. október til 2. nóvember nk. óþh