Dagur - 19.06.1996, Blaðsíða 16

Dagur - 19.06.1996, Blaðsíða 16
Akureyri, miðvikudagur 19. júní 1996 4 Garðyrkjnslöðin Grísará, Eyjafjarðarsveit Síini 463 1129 • Fax 463 1322 Opið alla daga kl. 9-20 • Im hclgar kl. 10-18 Fiskeldi Eyjafjarðar hf.: Rekið með tæp- lega 3 milljóna króna hagnaði - fyrsta slátrun um næstu áramót Knútur Ottersted, formaður bygginganefndar, leggur hornstein að Hólum, nýbyggingu MA. Honum til aðstoðar er Magnús Garðarsson, eftirlitsmaður með byggingunni, og bakvið hann má sjá Gísla Kristinsson, annan af arkitekt- um hennar. Mynd: BG Nýbygging Menntaskólans á Akureyri: Hornsteinn lagður að Hólum Aðalfundur Fiskeldis Eyja- fjarðar hf. var haldinn 14. júní sl. Björgólfur Jóhannsson, Skeiökappreiöar í Grímsey: Verður íslands- metið í 150 m skeiði slegið? Eins og fram hefur komið mun Hestamannafélagið Léttir standa fyrir all sérstæðum skeiðkappreiðum þann 22. júní nk. Það sem gerir þær sérstakar er mótsstaðurinn, þ.e. flugvöll- urinn í Grímsey og er þetta án efa í fyrsta sinn sem kappreiðar fara fram við þessra aðstæður. Farið verður með 8 hesta frá Dalvík að morgni 22. júní með ferjunni Sæfara. Úrtaka fyrir kappreiðamar var 2. júní sl. og var barist um 6 laus sæti, en 6 skeiðhestar fara í þessa ferð ásamt tveimur glæsilegum klárhestum með tölti. Frábærir tímar náðust í áðurnefndri úrtöku og var höggvið nærri íslandsmeti í 150 m skeiði. Það gerði Sindri 12 vetra frá Kirkjubæ er hann rann sprettinn á 13,9 sek en íslands- metið er 13,6. Verði aðstæður góðar á flugvellinum j Grímsey er aldrei að vita nema Islandsmetið falli. Endamarkið verður heim- skautsbaugur og er talið nokkuð víst að þetta hafi aldrei verið gert áður. Kaffihlaðborð verður við kom- una til Grímseyjar og kl. 14.00 hefjast kappreiðamar. Síðan verð- ur slegið upp stórkostlegri grill- veislu kl. 17 og áætlað að fara aft- ur frá Grfmsey kl. 20. Það getur reyndar breyst ef miðnætursólin gerir sig líklega til að skarta sínu fegursta. Þegar er orðið uppselt í ævin- týraferð þessa með Sæfara en skipuleggjendur leita með logandi ljósi að öðrum farkosti til að geta flutt fólk því tugir manna eru á biðlista. Allar nánari upplýsingar veita Sigfús í símum 462-6163 og 897-3250 og Stefán í símum 461- 2611 og 897-0226. HA O VEÐRIÐ Veðurstofan spáir suðvestan golu á Norðurlandi vestra og að létta eigi til. Á Norðurlandi eystra verður vestan kaldi, síðan suðvestan gola og létt- ir smám saman til. Hiti verð- ur svipaður á báðum svæð- um, á Norðurlandi vestra 14- 18 stig og á Norðurlandi eystra 12-18 stig. framkvæmdastjóri ÚA og stjórnarformaður Fiskeldis Eyjaíjarðar hf., segir að rekstur- inn á árinu 1995 hafí gengið að mestu samkvæmt áætlunum, rekstrarhagnaður hafi numið 2,8 milljónum króna. Reksturinn er enn á rannsókn- arstigi og því trauðla hægt að tala um veltu, reksturinn sé enn fjár- magnaður af rannsóknarstyrkjum og hlutafé. Hlutafé er nú 225 milljónir króna og á aðalfundinum var sam- þykkt heimild til að auka það upp í 300 milljónir króna og sam- kvæmt lögum hafa núverandi hluthafar forkaupsrétt. Nú styttist í að fyrstu lúðumar frá Fiskeldi Eyjafjarðar hf. komi á markaðinn en stefnt er að fyrstu slátrun í lok þessa árs eða í byrjun ársins 1997. Ekki yrði um mikið mikið magn að ræða í fyrstu en eldisstöðin yrði í Þorlákshöfn en auk þess rekur fyrirtækið seiðaeldisstöðvar á Hjalteyri og á Dalvík. Enn er unnið markvisst að því takmarki að koma seiðunum í fjöldafram- leiðslu og fara tilraunir að mestu fram á Hjalteyri en seiðaeldi á Dalvík. GG Tveir togarar Fiskiðjunnar- Skagfírðings hf., Málmey SK og Skagfírðingur SK, hafa í vor og sumar verið á úthafs- karfaveiðum á Reykjaneshrygg og aflað vel. Veiðum lauk sl. laugardag en þá hafði umsömd- um 45 þúsund tonna heildar- kvóta verið náð og var afli Málmeyjar SK þá orðinn um 2.000 tonn og 1.500 tonn hjá Samkvæmt venju var braut- skráning stúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri á 17. júní. Síðar þann dag var lagður hornsteinn að nýbygg- ingu skólans, sem hefur hlotið nafnið Hólar. Nafnið vísar til þess að Menntaskólinn á Akur- eyri rekur sögu sína til hins forna stólskóla á Hólum í Hjaltadal, sem stofnsettur var Skagfírðingi SK. Bæði Málmey SK og Skagfirð- ingur SK lönduðu á Sauðkróki í gær, sá síðamefndi 350 tonnum, sem fara til vinnslu hjá frystihús- um FISK, en sá fyrrnefndi með 206 tonnum af frystum afurðum en eittthvað af B-karfa var með sem fer til vinnslu hérlendis. Tog- aramir fara á skrapveiðar í lögsög- unni þar til opnast til veiða í árið 1106. „Nýtt skólahús veldur því að upp rís nýr skóli á gömlum grunni. En eins og ávallt mun Menntaskólinn á Akureyri sam- eina virðingu fyrir gömlum mann- gildum en jafnframt fylgjast með í straumróti lífsins til þess að geta búið nemendur sína undir að tak- ast á við framtíðina," sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari Smugunni um miðjan júlímánuð. Hegranes og Skafti hafa verið á grálúðuveiðum á Látragmnni en Klakkur SH landaði í gær um 90 tonnum í Grundarfirði. Ekki hefur verið ráðið í eða auglýstar stöður framkvæmda- stjóra eða fjármálastjóra Fiskiðj- unnar-Skagafirðings hf„ en bæði Einar Svansson, framkvæmda- stjóri, og Ingimar Jónsson, fjár- MA, meðal annars í ræðu sinni við brautskráningu stúdenta á 17. júní. Þess má geta að kennsluhús- næði MA tvöfaldast þegar ný- byggingin verður tekin í notkun í haust. Síðast var nýtt kennsluhús- næði tekið í notkun árið 1969 og kallast það Möðruvellir, en skóla- hald í MA á einnig rætur að Möðruvöllum í Hörgárdal. málastjóri, hverfa til annaira starfa á þessu sumri. Starf viðhaldsstjóra hefur hins vegar verið auglýst laust til umsóknar en núverandi viðhaldsstjóri, Ólafur Guðmunds- son, er að flytja frá Sauðárkróki. GG Ekkert táragas fyrir norðan Þjóðhátíðargleðskapur fór friðsamlega fram á Akureyri og að sögn lögreglu fór fólk til síns heima eftir að kvöld- skemmtunum lauk. Talsverð ölvun var í bænum aðfaranótt hátíðarinnar þó ekki kæmi til átaka. Lögreglan á Sauð- árkróki sagði að helgin hefði verið mjög róleg og jafnvel friðsamari en aðrar helgar. Á Blönduósi fóru gleðilæti einnig vel fram að því undanskildu að aðfaranótt laugar- dagsins stal drukkinn maður bíl og hafnaði eftir stuttan akstur utan vegar við Blöndubrú. Á Húsavík og Dalvík fór allt fram með sóma en lögregla staðanna gómaði sjö ökumenn þjóðvegarins fyrir of hraðan akstur og mældist hraðinn mestur 130 km/klst. mgh Hátíðarfundur Lýðveldissjóðs: Gísli Jónsson hlaut heiðursviðurkenningu Gísli Jónsson, fyrrverandi menntaskólakennari, hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveld- issjóðs, fyrir störf að eflingu ís- lenskrar tungu, sem veitt var 17. júní. Gísli er fæddur 14. september 1925 að Hofi í Svarfaðardal. Hann varð stúdent frá MA vorið 1946 og lauk prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla íslands árið 1953, og sama ár var hann skipaður menntaskólakennari á Akureyri. Gísli er fyrir löngu orðinn þjóðkunnur fyrir ritstörf sín, m.a. þætti um íslenskt mál í Morgun- blaðinu, sem hann hefur séð um síðan í maí 1979. Rannveig Rist er formaður Lýðveldissjóðs og í ræðu sinni í Alþingishúsinu 17. júní sagði hún meðal annars: „I þáttum sínum lætur Gísli sér ekkert óviðkom- andi er varðar rétta málbeitingu og þar eggjar hann menn lögeggj- an að vanda mál sitt. Umtjöllun hans nær til allra þátta íslensks máls. ... Gísla hefur tekist með aðdáunarverðum hætti að fjalla um íslenska tungu frá sjónarhóli fræðimannsins án þess að umfjöll- unin verði einstrengingsleg." Lýðveldissjóður var stofnaður á Lögbergi 17. júní 1994, og hefur liann 100 milljónir kr. til ráðstöf- unar á fjárlögum árlega til ársins 1999. Helmingi fjárins er varið til ellingar íslenskri tungu, en hinum helmingnum til átaks í vistfræði- rannsóknum á lífríki sjávar, og er heiðursviðurkenning veitt fyrir hvort svið. shv Úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg lokið: Tveir togarar FiskiðjunnaÞSkagfirð- ings með alls 3.500 tonna veiði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.