Dagur - 01.08.1996, Blaðsíða 4

Dagur - 01.08.1996, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 1. ágúst 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1600 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 150 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), BLAÐAMAÐUR HÚSAVÍK - GUÐRÚN K. JÓHANNSDÓTTIR SÍMI Á SKRIFSTOFU 464 1585, FAX 464 2285. HEIMASÍMI BLAÐAMANNS Á HÚSAVÍK 464 1547 UÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 LEIÐARI-------------------- Embættistaka forseta Ólafur Ragnar Grímsson veröur í dag settur inn í embætti forseta íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu. Ólafur Ragnar er fimmti forseti lýðveldisins, en forverar hans eru Sveinn Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Kristján Eldjárn og Vigdís Finnbogadóttir. Allir hafa þeir fjórir forsetar sem hafa setið á Bessastöðum mótað embættið á sinn hátt og aflað sér vinsælda og virðingar þjóðar- innar. Mikilvægt er að góð sátt takist einnig um Ólaf Ragnar Grímsson. Ekki þarf að fara mörgum orðum um kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarn- ar fyrir rúmum mánuði. Hennar verður minnst fyrir einkar prúðmannlega og drengilega baráttu forsetaframbjóðendanna en að sama skapi nokkurn óróa stuðnings- manna frambjóðenda sem ekki bar tilætlað- an árangur, en hafði þvert á móti öfug áhrif. Sigur Ólafs Ragnars Grímssonar var af- gerandi og það er bæði mikilvægt fyrir hann og þjóðina. Því verður trúað að með svo ör- uggum sigri verði frekar almenn sátt meðal þjóðarinnar um nýkjörinn forseta en ella. Ólafur Ragnar mun væntanlega marka forsetaembættinu annan farveg en fráfar- andi forseti. Slíkt er eðlilegt innan þeirra laga sem embættinu eru sett. Sumir hafa sagt að hinn nýkjörni forseti muni leggja meiri áherslu en forverarnir á kynningu á framleiðsluvörum íslendinga á erlendri grundu og afla íslensku hugviti verkefna eins og kostur er. Allt á þetta eftir að koma í ljós. Við upphaf forsetatíðar Ólafs Ragnars Grímssonar og eiginkonu hans, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur, er þeim óskað far- sældar í starfi og þess vænst að þeim auðn- ist að bera hróður þjóðarinnar allrar sem víðast. Reynsla Ólafs Ragnars til fjölda ára af stjórnmálum mun reynast honum gott vegarnesti í embætti forseta. Hátíðisdagar hesta- fólks víð Eyjafjörð Dagana 26.-28. júlí sl. voru haldnir árlegir hátíðis- Þátttaka í kappreiðum var frekar dræm. Mótið dagar hestafólks við Eyjafjörð og er þetta uppskeru- hátíð hestamanna og nokkurskonar punktur yfir vetr- ar- og sumarstarfið. Þama mættu margir keppendur með hesta sína og fór mótið hið besta fram. Keppt var í tölti í öllum flokkum og einnig var gæðingakeppni og var hart barist um hvert sæti. Þá voru kappreiðar og var keppt í 300 metra brokki þar sem knapinn Gunnar Frímannsson og Ljúfur stóðu uppi sem sigurvegari. I 150 metra skeiði hafði Ragn- ar Ingólfsson sigur og Ema Sigurgeirsdóttir á Nagla í víðavangshlaupi. þótti eftirminnilegast fyrir frábært veður og einnig var mjög mikið af gæðingum. Þetta er í fyrsta skipti sem hátíðisdagar eru haldnir á Akureyri. Þeir hafa verið haldnir á Melgerðismelum undanfarin ár og þar skapast meiri stemmning, en nú er eins og kunnugt er verið að byggja þar upp móts- svæði fyrir komandi landsmót. Þess er vænst að á næsta ári verið hægt að halda hátíðisdaga hestamanna á Melgerðismelum. Stjómir Léttis og Funa þakka þeim sem stóðu að framkvæmd leikanna og einnig keppendum fyrir þeirra framlag. Tölt barna: 1. Dagný Björg Gunn- arsdóttir á Væng, 2. Erna Sigur- geirsdóttir á Nagla. . Tölt ungmenna. Elsa Þorvaldsdóttir á Ölver A-flokkur gæðinga. 1. Birgir Árnason á Þór, 2. Erlendur Ari Óskarsson á Ör, 3. Stefán Friðgeirsson á Hljómi, 4. Stefán B. Stefánsson Árvakri og 5. Reynir Hjartarson á Kolbeini. B-flokkur gæðinga. 1. Höskuldur Jónsson Þyt, 2. Erlendur Ari Óskarsson á Eydal, 3. Jóhannes Ottósson á Frigg, 4. Stefán Friðgeirsson á Hlekk og 5. Guðlaug Reynisdóttir á Neista. Tölt B: 1. Sigfús Helgason á Þrá, 2. Þráinn Hjálmarsson á Dreyra, 3. Guð- laug Reynisdóttir á Neista. Mótstjóri, Reynir Björgvinsson, stendur hjá. Þau unnu tvöfalt, bæði tölt og B-flokk gæðinga. Dagný Björg í barnaflokki, Þorsteinn Björnsson í unglingaflokki, Iílsa Þorvaldsdóttir í ungmennaflokki og Höskuldur Jónsson í fullorðinsflokki. Barnaflokkur - B-flokkur gæðinga. 1. Dagný Björg Gunnarsdóttir á Væng, 2. Erna Sigurgeirsdóttir á Sleggju, 3. Silja Valdemarsdóttir á Gunnu, 4. fsak Fannar Sigurðsson á Tvisti. Tölt A: 1. Höskuldur Jónsson á Þyt, 2, Erlendur Ari Óskarsson á Eydal, 3. Stefán Friðgeirsson á Hlekk, 4. Jóhannes Ottósson á Frigg, 5. Birgir Árna- son á Söru.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.