Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 Fréttir___________________________________________________________________________x>v Bæjarstjóri Egilsstaða um boð Grænlandsflugs á björgunarþyrlu fyrir Austfirði: Verður einungis unnið í samvinnu við Gæsluna - viðræður við hagsmunaaðila og svar verður að berast flugfélaginu á morgun „Þeir bjóöast til að staðsetja þyrlu á Egilsstööum í 3 mánuði - frá 15. janúar til 15. apríl. Þetta er Bell 412 - 15 sæta þyrla sem á að vera búin öllum tækjum til björgunaraðgerða. Þessu fylgir það skilyröi að við getum tryggt 11 milljónir íslenskra króna - við erum að vinna að fjármögnun- inni en verðum að gefa svar á föstu- dag (á morgun). Við munum leita til aðila sem eiga hagsmuna að gæta, sjómannasamtaka, útgerðaraðila og við höfum einnig leitað til íjárlaga- nefndar. Við höfum ekki leitað til bæjarfélaga enn þá en munum heyra afstöðu þeirra. Egilsstaðabær mun leggja til eitthvert íjármagn, við vilj- um ekki gefa það upp enn þá hve mikið það verður," sagði Helgi Hall- dórsson, bæjarstjóri á Egilsstöðum, í samtali við DV. Grænlandsflug hefur lagt fram drög að samningi um leigu á Bell björgunarþyrlu sem staðsett yrði á Egilsstöðum. Helgi sagði að kveikjan að málinu heföi verið umræða „um að önnur þyrla Landhelgisgæslunn- ar yröi staðsett úti á landsbyggð- inni“. „Meirihluti bæjarstjórnar hefur lýst því yfir að þyrla skuli staðsett á Egilsstöðum," sagði Helgi. „Ég held að Grænlandsflug hafi þannig séð sér leik á borði og haft samband. Frá fimmtudegi og fram til þriðjudags höfum við skoðað þetta dæmi. Á þriðjudagskvöld var málið tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi og þar var ákveðið að leita leiða til fjármögnun- ar. Grænlandsflug telur sig þurfa 22 milljónir til að dæmið gangi upp en við myndum sjá um 11 milljónir. Helgi sagði að Grænlandsflug væri þyrluþjónustufyrirtæki með 15 þyrl- ur í sinni þjónustu. „Þetta kemur til vegna þess að Grænlandsflug er að fá umrædda vél afhenta núna en ætlunin var ekki að taka hana í notk- un fyrr en í maí,“ sagði Helgi. Bæjarstjóri sagði að forstjóra Landhelgisgæslunnar hefði verið kynnt hugmyndin síðastliðinn fostu- dag. Hann vildi ekki tjá sig um við- brögð hans að svo stöddu. „Það liggur ljóst fyrir að ef Land- helgisgæslan metur það svo að þessi þyrla nýtist henni veröur verkefnið unnið í samvinnu við hana. Það er hennar að kalla út þyrlu hvort sem það yrði héðan eða frá varnarliðinu. Það hefur engan tilgang að fá vél hingað sem nýtist henni ekki,“ sagði Helgi. Bæjarstjórinn sagði jafnframt að næsta skref í málinu yrði að ræða við þá aðila sem væntanlega myndu íjármagna komu þyrlunnar hingað til lands. Rækjuviðræður: Krafaum frjálsar veiðareða stóraukinn kvóta „Niðurstaða fundarins var sú að við gerum kröfu um að veiðar á rækju verði gefnar frjálsar. Fáist það ekki í gegn viljum við að kvótinn verði aukinn um 20 til 25 þúsund tonn,“ segir Einar Kristinn Guðf- innsson alþingismaður um fund sem hann og aðrir þingmenn Vestfjarða áttu með fulltrúum rækjuvinnslunn- ar í kjördæminu vegna þess vanda sem steðjar að rækjuvinnslunni sem fær hvergi keyptan kvóta. Einar Kristinn segir það hafa verið rætt að kvóti rynni til Þróunarsjóðs og yrði síðan seldur en það hefði ekki orðið ein af niðurstöðum fund- arins. „Mér líst illa á þá hugmynd og ég óttast að það gæti orðið upphafið að víðtæku veiðileyfagjaldi þar §em aðr- ar tegundir myndu fylgja á eftir. Það er aftur á móti ástæða til að afnema Frá fundi þingmanna Vestfjarða og forsvarsmanna í rækjuiðnaði. Ágústa Gísladóttir, varaþingmaður Kvennalist- ans, Einar K. Guðfinnsson alþingismaður, Aðalbjörn Jóakimsson, framkvæmdastjóri Bakka hf. Hnífsdal, Eiríkur Böðvarsson, framkvæmdastjóri Básafells hf., Halldór Hermannsson frá Rit hf., Guðjón A. Kristjánsson, varaþing- maður Sjálfstæðisflokks, Sigurður Hafberg, framkvæmdastjóri Þuríðar hf., og Ingimar Halldórsson, framkvæmda- stjóri Frosta hf. DV-mynd GVA 15 prósent regluna sem takmarkar nú á bilinu 30 til 35 krónur í skiptum og við munum að sjálfsögðu fylgja framsalsréttinn. fyrir aðrar tegundir. þessu máli eftir,“ segir Einar Krist- Hann segir að það hafi komið fram „Ég hef gert sjávarútvegsráðherra inn. á fundinum að verö á rækjukvóta sé grein fyrir niðurstöðum fundarins Ný og bætt þjónusta við áskrifendur: DV á mánudögum með morgunkaffinu - helgarblað D V borið út fyrr en verið hefur Áskrifendur DV verða varir viö nýja og bætta þjónustu blaðsins frá og með næsta mánudegi, 7. nóvemb- er. Þá verður DV komið í hendur áskrifenda á suðvesturhorninu um klukkan 7 að morgni mánudags og aðrir áskrifendur fá blaðið í hendur með fyrstu ferðum frá Reykjavík út á land. Samningar hafa tekist við prentsmiðju Árvakurs um að prenta DV aöfaranótt mánudags í stað mánudagsmorgna áður. Þannig ætti Qöldi áskrifenda DV að geta lesið glóðvolgar fréttir um atburði helgar- innar með morgunkafíinu. Aðra út- gáfudaga kemur DV út á hefðbundn- um tíma. Áskrifendur DV frá Stokkseyri, vestur með Suðumesjum og til Borg- arness, auk Hveragerðis, Selfoss, Hellu og Hvolsvallar, munu fram- vegis fá mánudagsblaðið í hendur um sjö að morgni. Til annarra staða á landinu fer DV af staö með fyrstu áætlunarferðum frá Reykjavik á mánudögum sem til þessa hefur ekki tekist'í mörgum tilfellum. Það sama gildir um dreifingu mánudagsblaðs DV og helgarblaðs- ins. Til þessa hefur blaöberum á suð- vesturhorninu verið gert að bera út helgarblaðið fyrir klukkan 10 á laug- ardagsmorgnum. Framvegis eiga áskrifendur á suðvesturhominu að fá helgarblaðið í hús um sjöleytið á laugardagsmorgnum. Með þessu er verið að koma til móts við óskir áskrifenda um að fá helgarblaðið fyrr í hendur. Már Halldórsson, dreifingarstjóri DV, segir að forráðamenn nokkurra blaðbera hafi haft samband og lýst efasemdum sínum um þessar breyt- ingar á dreifmgu laugardags- og mánudagsblaðsins en flestir ætli að leysa málið í samstarfi við börn sín. Már efast því ekki um að samstarf DV við blaðbera verði gott hér eftir sem hingað til. Már biður áskrifendur að sýna blaðbemm skilning meöan þessar breytingar eiga sér stað. Stuttarfréttir Feröirhækka Formaður Félags íslenskra ferðaskrifstofa telur að utan- landsferðir muni hækka í verði vegna nýrra laga um svokallaðar pakkaferöír sem ætlað er að auka neytendavemd. Samningisagtupp Tryggingastofnun rfkisíns hef- ur sagt upp samningum við sjúkraþjálfara og hjúkrunar- fræðinga sem starfa við heima- hjúkrun. Með þessu ætlar ríkið að spara 50 milljónir. Gerumgottbetur Iðntæknistofnun kynnti í gær ráðgjafarverkefhið Gerum gott betur sem er styrkt af Evrópu- sambandinu og ætlað fyrir ís- lensk framleiöslufyrirtæki. Bandarísk stjómvöld hafa ósk- að eftir viðræðum við níu Evr- ópulönd, þ.á m. ísland, um að flugfélög þessara landa fái aukin réttindi til flugs í Bandaríkjunum og bandarísk flugfélög fljúgi meira til þessara ianda. Rætt hef- ur verið við Flugleiðir vegna þessa. Jafnvægi á Landakoti Allar líkur eru á að rekstur Landakotsspitala verði imian ramma fjárlaga á þessu ári. Rekstrarkostnaður hefur iækkað um 86 milljónir milii ára. Lentu í bankaráni Tvær konur frá Akureyri lentu í bankaráni á írlandi á dögunum. Samkvæmt RÚV urðu þær hræddar en varð að öðru leyti ekki meint af. Húsbréf avextir hækka Ávöxtunarkrafa hækkaði í 5,95% í gærmorgun. Frá septemb- erbyrjun hafa afFóll við sölu bréf- anna aukist um 5 prósentustig. Vestmannaeyjar hefur gjörbreyst til hins betra og fer vaxandi eftir umdeilda lokun veiðisvæða. Stöð 2 skýrði frá þessu. Þórslax gjaldþrota Fyrirtækið Þórslax á Tálkna- firði var úrskurðað gjaldþrota í gær. Jón Sigfús Sigurðsson var skipaður skiptastjóri. Skuldir Þórslax nema 211 milljónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.