Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994
Fréttir
Gýmismálið hefur verið fjóra mánuði í meðförum lögregluyfirvalda:
Nauðsynlegt að taka
á lyfjamálum í tíma
- segir Jón Albert Sigurbjömsson, formaður Hestaíþróttasambands Islands
„Gýmismálið er mjög bagalegt og
setur menn í vanda. Þetta mál átti
aö afgreiða í hestamannafélögunum.
Til aö það sé hægt verðum við hins
vegar að fá einhverjar upplýsingar
um málið frá lögreglu. Samtökin
hafa engar skriflegar yíirlýsingar
fengið. Mér skilst að á meðan fái það
engan framgang. Ég man ekki eftir
neinu máli líku þessu,“ sagði Jón
Albert Sigurbjörnsson, formaður
Hestaíþróttasambands íslands, við
DV aðspurður um langan afgreiðslu-
tíma svokallaðs Gýmismáls - fjórir
mánuðir eru liðnir frá því að gæöing-
urinn var aflífaður á landsmótinu á
Hellu og ákveðið var að senda máliö
í lögreglurannsókn. Á þessum tíma
hefur málið taflst í höndum RLR og
Rannsóknarstofu háskólans í lyíja-
fræði og er þessa dagana á leið frá
RLR til ríkissaksóknara.
Aðspurður hvort félögin ættu ekki
allajafna aö geta tekið á lyfjamálum
tafarlaust sjálf sagði Jón Albert:
„Jú, það er nauðsynlegt að taka á
svona máli í tíma. Þetta mál hefur
þreytt menn, það hefur skaðað okkur
og ímynd hestamennsku í landinu.
En almennt held ég að mál fari ekki
þessa leið. Ef félagasamtök taka á
lyfjamálum kemur úrskurður um
það hvort viðkomandi hefur fallið
eða ekki. í Gýmismálinu er hins veg-
ar spurning um brot á dýravemdun-
arlögum, þau ná lengra og em víð-
tækari. Það er greinilega eitthvað
erfitt að afgreiða þetta mál.
Við tókum lyfjapróf á íslandsmóti
í sumar, það var sent til Svíþjóðar
og niðurstaöa kom 2 vikum síðar og
málið var afgreitt. Gýmismálið virö-
ist vera mun þyngra og á meðan sitj-
um við hestamenn undir því að mega
ekki taka á málinu,“ sagði Jón Al-
bert Sigurbjörnsson.
Akureyri:
Miklar breytingar
á gatnakerfinu?
- könnun hefur staðið yíir
Könnun á mikilvægi þess að hefja
umfangsmiklar breytingar á gatna-
kerfinu á Akureyri hefur staðið yfir
að undanfómu og hefur sérstaklega
veriö horft til þess að hefja fram-
kvæmdir við Dalsbraut og Borgar-
braut. í málefnasamingi meirihluta-
flokkanna í bæjarstjóm er ákvæði
þess efnis að hefja framkvæmdir við
þessar götur á kjörtímabilinu og er
útlit fyrir aö þær framkvæmdir hefj-
ist jafnvel strax á næsta ári.
Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins, segir að í
könnuninni hafi komið fram mikil-
vægi þess að ráöast i þessar fram-
kvæmdir, ekki síst með tilliti til þess
að þær muni létta mjög á umferð á
Þórunnarstræti og Þingvallastræti.
Dalsbraut á að koma frá gatnamót-
um Glerárgötu og Tryggvabrautar,
upp með Glerá norðan verksmiðju-
húsanna, suður giliö þar fyrir ofan,
yfir Þingvallastræti skammt frá KA-
svæðinu og þaöan í suður inn fyrir
bæinn. Borgarbrautin tengist hins
vegar þjóðveginum nyrst í bænum
og á að liggja fyrir ofan bæinn og
suður fyrir hann þar sem hún mun
tengjast Dalsbraut.
í könnuninni kom í ljós að um
Dalsbraut myndu fara um 9 þúsund
bílar á sólarhring og á sjötta þúsund
um Borgarbraut og umferð um Hlíð-
arbraut myndi minnka en mest yrðu
áhrifin á Þórunnarstræti og Þing-
vallastræti. Einnig myndi umferðin
um Glerárgötu frá Þórunnarstræti
að Tryggvabraut minnka mjög, en
um þá götu fara um 17 þúsund bílar
á sólarhring í dag.
Nýjar tengibrautir á Akureyri
Dalsbraut:
Ný tengibraut
á milli Glerárgötu
og Þingvallastr.
Sidur
Hlíðar
Gérði -
pingmallastbæti
Lundir
Byggðir
Borgarbraut:
Ný tengibraut á
milli Hlíðarbrautar
og Dalsbrautar.
Samviniiulífeyrissjóður:
Skoða tilboð
Kaupgarðs
Margeir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnulifeyris-
sjóðsins, segir að forráðamenn
sjóðsins séu einnig aö skoöa til-
boð Kaupgarðs hf„ sem rekur
Hótel Reykjavik, í Hohday Inn
hóteliö. Aðallega hefur verið tal-
aö um tilboð Þróunarfélagsins í
hótelið en félagið áformar að
leigja reksturinn Flugleiðum.
Eins og kom fram í DV í gær hef-
ur þriðja tilboðið í hótehð verið
dregið til baka. Að sögn Margeirs
hafa fleiri tilboð ekki komiö fram.
Þaö er taUð nánast öruggt að
makaskiptasamningar lífeyris-
sjóðsins og íslandsbanka gangi
upp. Margeir sagðist vera sam-
mála Ásmundi Stefánssyni sem
sagði í DV í gær aö mðurstaða
fengist að öllum líkindum í næstu
viku. Svo var að heyra á Mar-
geiri að enthverjir óvæntir hlutir
hefðu komið upp í viðræðunum
við íslandsbanka en hann vfidi
ekki viðurkenna það.
Alþingi:
Lögregluvanda-
mál í Kópavogi
utandagskrár
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
þingkona Kvennalistans, hóf
umræðu utan dagskrár á Alþingi
í gær um átök og deilur sem eru
innan lögregluUösins í KópavogL
Ástæðuna sagði hún vera endur-
komu aðstoðaryfirlögregluþjóns
sem hefur verið í löngu fríi.
Anna sagði að ekki væri hægt
að sætta sig við aö lögreglustarf
í Kópavogi sé lamað vegna deilna
innan Uösins. Hún spúrði dóms-
málaráöherra hvort hann ætlaði
að beita sér fyrir lausn málsins.
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra sagði að samstarfsörð-
ugleikar hefðu veriö hjá lögregl-
unni i Kópavogi síðan 1988.
Ástæðumar væru margþættar.
Hann sagði sýslumann bera
ábyrgð á liði sínu og samskiptum
lögreglunnar við ráðuneytið.
Þorsteinn sagði að rætt hefði ver-
ið um í dómsmálaráðuneytinu
hvernig hægt væri að leysa þetta
mál og lausnar væri leitaö.
í dag mælir Dagfari
Milli hnés og kviðar
Frá því hefur verið skýrt í fréttum
að ökukennari á sextugsaldri hafi
verið ákærður af nemanda sínum
fyrir meinta kynferðislega áreitni.
Nemandinn, sem var stúlka, held-
ur því fram að ökukennarinn hafi
látiö hana aka upp í Heiðmörk. Þar
hafi hann slakað bílstjórasætinu í
hvíldarstellingu og farið síðan að
strjúka henni um lærin.
Morgunpósturinn náði tali af
ökukennaranum og þar gefst hon-
um kostur á að lýsa kennsluaðferð-
um sínum með þessum hætti:
„Ég nota sérstakar aöferðir til að
nemendur verði fyrr góðir bílstjór-
ar. Þær felast í slökunaræfingum
og léttri snertingu við olnboga, hné
og axlir sem fær nemandann til að
slaka betur á.“
Þetta segir ökukennarinn og bæt-
ir við:
„Til dæmis ef nemandi frýs á inn-
gjöf þá snerti ég á honum hnéð en
það er náttúrlega álitamál hversu
langt eftir lærinu hnéð nær!“
Ökukennarinn segist hafa kynnst
þessum aðferðum í íþróttunum í
gamla daga sem hafi gefið góða
raun og þaö eina sem hái honum
við þessar slökimaræfingar sé aö
hann sé stirður í handleggnum.
Ökukennarinn viðurkennir að
hann hafi áður veriö ákærður fyrir
svipuð atvik, sem meðal annars
enduðu meö því aö hann hafi átt
að leggjast ofan á nemendur sína
þegar búið var að slaka bílstjóra-
sætinu alla leið aftur á bak. Hann
hafi hins vegar verið sýknaður af
þeim ákærum, enda engin sýnileg
sönnunargögn um áreitni.
Ökukennarinn segist hafa notað
þessar aðferðir sínar í þijátíu og
sex ár og veit hvað hann syngur.
Þetta hafi alltaf gefið góða raun og
nemendur hans hafi reynst hinir
bestu bílstjórar.
Miöað við reynslu ökukennarans
og viöurkennt ágæti slökunarinn-
ar, þegar bílstjórar frjósa við stýr-
ið, verður ekki annað sagt en hér
sé verið að veitast aö manni sem
hefur fullkomlega lögmætar ástæö-
ur til að strjúka nemendur sína,
enda er það liður í kennslunni.
Eina spurningin er sú hvar hann
megi strjúka þeim og þá er það
þessi líffræðilega spuming: hvað
er læri og hvað er hné?
Ökukennarinn er vel að sér í öku-
réttindum og ökufærni en hann
veit auðvitað ekki með neinni vissu
hversu langt eftir lærinu hnéð nær
og hné getur þess vegna náð alveg
upp í klof ef lærið er stutt eða hnéð
langt. Hvemig á einn saklaus og
heiðarlegur ökukennari að vita það
hvar mörkin eru á milli hnés og
læris þegar hann er upptekinn við
það aö leiðbeina ungum stúlkum
við akstur?
Svo er líka hitt að slökunin getur
ekki síður verið fólgin í því aö
strjúka lærið rétt eins og hnéð og
getur eftir atvikum haft meiri og
betri áhrif á nemandann. Þetta var
gert í íþróttunum í gamla daga og
nuddarar strjúka læri upp og niöur
án þess að þeir séu ákæröir fyrir
kynferðislega áreitni.
Sú var tíðin að menn deildu um
síddina á pilsum sem stúlkur
klæddust og þá orti K.N.:
„mér finnst síddin mátuleg
milh hnés og kviðar."
Fyrir ökukennara, sem kann
ekki líffræðilega skilgreiningu á
hné eða læri, má allt eins segja að
snertipunkturinn sé einhvers staö-
ar á milli hnés og kviðar og hann
er ekki verri maður og alls ekki
verri ökukennari fyrir þá skoðun.
Ef nemendur eða dómstólar ætla
að fara að gera athugasemdir út af
kennsluaðferðum ökukennara með
því aö ákæra þá og dæma þá fyrir
eðlilegar og nauðsynlegar snert-
ingar í ökukennslunni þá verða
þessir sömu aðilar líka að bera
ábyrgð á því ef eitthvað kemur fyr-
ir þessa bílstjóra þegar þeir lenda
í árekstrum. Ef ökukennnarinn má
ekki snerta lærið eða hnéð á nem-
andanum, ef hann er stúlka, þegar
nemandinn frýs á inngjöfinni
lengst uppi í Heiömörk þá ber
kennslan ekki árangur. Þá veröur
nemandinn sjálfur að taka afleið-
ingunum en ekki ökukennarinn
sem hefur gert sitt besta en fær
ekki að gert þegar stúlkan frýs á
inngjöfinni uppi í Heiðmörk.
Þetta má öllum ljóst vera og öku-
kennarar verða þess vegna að hafa
fullt leyfi til þess að snerta kven-
kyns nemendur sína einhvers staö-
ar milli hnés og kviðar ef mikið
liggur við í Heiðmörkinni.
Dagfari