Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Blaðsíða 32
40 LAUCAKDAC.UK 5. NÓVIÍMBHIÍ 1994 Sviðsljós Nicole Simpson um fyrrum eiginmann sinn: Hann sagðist ætla að drepa mig - hún gat aldrei verið hún sjálf . Sophie vill verða eins Nokkrum vikum eftir að Nicole Simpson skilaði aftur 15 milljóna króna nælu. sem hiin hafði fengið að gjöf frá fyrrverandi eiginmanni sínum. fannst hiin myrt. Næluna hafði O.J. Simpson geflð henni til að leita sátta. Við rannsókn á morðinu á Nicole. sem Simpson er grunaður um. hefur komið í ljós að hún átti ekki sjö dagana sæla í hjónabandinu. Nicole var 18 ára og gengilbeina í næturklúbbi í Beverly Hills þegar luin kynntist Orenthal James Simp- son sem þá var þrítugur. Það leið ekki langur tími þar til Simpson lét hana flytja út frá meöleigjanda sín- um sern var karlkyns og inn í íbúð sem hann útvegaði henni. ..Þetta var mjög ástríðufullt og eig- ingjarnt samband af beggja hálfu," er haft eftir dóttur Bing Crosbys, leikkonunni Cathy Lee Crosby sem þekkt hefur Simpson í 15 ár. Undir þetta taka margir sem þekktu parið náið. Stríðiö hófst fyrir hjónaband Stríðið milli skötuhjúanna hófst jafnvel áður en þau höfðu gifst. í einu rifrildanna á Nicole að hafa læst að sér á baðherberginu og hringt í móð- ur sína til að biðja um hjálp. Stundum flutti Nicole út úr 350 milljóna króna villunni þeirra í Los Angeles. Það kom einnig fyrir að Simpson fleygði konu sinni út úr húsinu og fatnaði hennar út um gluggann á eftir henni. Hjónakomin voru vel efnuð. Fyrir utan villuna í Los Angeles áttu þau 100 milljóna króna hús á Laguna- ströndinni í Kaliforníu og húsnæði á Manhattan í New York. Bæði átti þau Ferraribíl. Og vasapeningur Nicole var 350 þúsund krónur á mánuði. Fyrrum húshjálp hjónanna segir að hún hafi oft heyrt þau rífast. Það vakti einnig athygli vinafólks hversu Nicole var oft fjarverandi þegar boð voru haldin, jafnvel á hennar eigin heimfli. Simpson er sagður hafa átt það til að skipa konu sinni að skipta um föt. Hann heimtaði einnig aö fá Sophie Rhys-Jones, vinkona Ját- varðs prins. og Díana Vinkona Játvarðs prins, Sophie Rhys-Jones, er ekki ánægð með vaxtarlag sitt, að því er fullyrt er. Hún er sögð sérstaklega óánægð með lærin sem henni þykir of kraftaleg. Einnig þykir henni hún of feit um hnén. Sophie hefur séð hvað Díana hef- ur orðið glæsileg í vextinum á því að gera stöðugt líkamsæfingar. Þess vegna hefur hún keypt sér tíma á sömu líkamsræktarstöð og prinsessan þar sem árgjaldið er í kringum 400 þúsund krónur. Borgi maður slíka upphæð vonast maður sennilega eftir að sjá árangur. Hann næst samt varla nema tekið sé almennilega á. O.J. Simpson og Nicole Simpson. Þau kynntust var myrt. hún var 18 og hann 30 ára. Nicole var 35 ára þegar hún að vita um allar hennar ferðir. Simp- son hélt framhjá konu sinni og oft snerust rifrildi þeirra um framhjá- höldin, bæði raunveruleg og þau sem Nicole ímyndaði sér. Bað um aðstoð lögreglu Um áramótin 1989 hringdi'Nicole í lögregluna og baö um aðstoð þar sem maðurinn hennar hefði ráðist á hana. „Hann ætlar að drepa mig,“ grét hún. „Þið gerið aldrei neitt. Þið talið bara við hann og farið svo.“ Simpson öskraði: „Ég vil ekki hafa þessa konu í rúminu mínu. Ég á tvær konur og ég vil þessa ekki lengur í rúminu mínu.“ Nicole var þá með glóðarauga og sprungna vör og sjá mátti merki eftir fingur Simpsons á hálsi hennar, að því er fram kemur í lögregluskýrsl- um. Þrátt fyrir þetta skildu Nicole og Simpson ekki, að miklu leyti vegna barnanna tveggja. Það var ekki fyrr en 1992 sem Nic- ole sótti um skilnað. Hún leitaði til læknis sem vanur var að meðhöndla Simpsonhjónin ásamt börnum sín- um. konur sem orðið höfðu fyrir ofbeldi. Læknirinn segir að af lýsingum Nic- ole að dæma hafi hún orðið fyrir al- varlegu ofbeldi. Nicole sagði læknin- um frá því að Simpson hafi hótað að drepa hana ef hann fengi hana ekki. Þegar Nicole var loks laus úr hjónabandinu naut hún þess að gera það sem henni hafði verið bannað. Eiginmaðurinn hafði meðal annars heimtað að hún gengi í fötum finustu tískuhönnuðanna og sokkabuxum sem kostuðu 4 þúsund krónur. Eftir skilnaðinn átti Nicole það til að koma berfætt í fínar veislur. Hún kynntist öðrum mönnum og meðal þeirra var þjónninn sem var myrtur um leið og hún. Að sögn náinna vina íhugaði Nicole þrátt fyrir allt sættir við eiginmann- inn. Allt fór þó í sama farveg og áður og í október í fyrra hringdi Nicole í lögregluna og tilkynnti að Simpson væri að brjótast inn til hennar. Sama dag og Nicole var myrt í júní síðastliðnum voru hún og fyrrum eiginmaður hennar viðstödd skóla- skemmtun hjá dóttur sinni sem sýndi dansatriði. Nicole hafnaði til- lögu eiginmannsins um sameiginleg- an kvöldverð fjölskyldunnar eftir skemmtunina og ræddi í staðinn framtíð sína við kunningjana. Um kvöldið var hún skorin á háls fyrir utan heimili sitt. Ólyginn sagði... .. .að leikkonan Whoopi Gold- berg, 44 ára, heföi ættleitt litla þýska stúlku, 4ra mánaða gamla, en Whoopi eignaðist sitt eigið barn þegar hún var fimmtán ára. En Whoopi gekk einmitt í það heilaga fyrir nokkrum dögum með Lyle nokkrum Trachten- berg. .. .að Mimi Rogers, sem áður var gift leikaranum Tom Cruise, ætti von á bami en sagt er að barn- leysi hafi einmitt valdið skilnaði þeirra Mimi og Cruise. Sjálfur hefur Tom Cruise ættleitt barn ásamt núverandi eiginkonu, Nic- ole Kidman. .. ,að hið fræga par, Ryan O’Neal og Farrah Fawcett, væru líkleg- ast loksins að skilja eftir mjög svo stormasama sambúö. Það kemur reyndar fáum á óvart en bæði hafa þau sést í fylgd annarra upp á síökastið. Ryan O’Neal var t.d. á leið á tónleika í New York ásamt blondínu nokkurri. .. .að dóttir Clints Eastwoods, Alison, heföi nýlega heimsótt hann þar sem hann var við upp- tökur á nýjustu mynd sinni, Brýrnar í Madisonsýslu, sem gerð er eftir samnefndri metsölu- bók. Alison er dóttir Clints frá fyrsta hjónabandi hans meö Maggie Johnson en sagt er að Clint hafi alla tíð haldið miklum og góðum samskiptum við börn sin. .. .að fræga fólkið í Hollywood hikaði ekki við að sýna sig og sjá aðra á samkomum sem baldnar eru til að berjast gegn eyðniveir- unni. Fyrir stuttu mátti til dæmis sjá Michael Douglas, ásamt konu sinni, Ðiöndru, og leikaranum Danny Devito á einni slíkri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.