Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
Neytendur
Fólk er þegar farið að senda matarpakka til vina og ættingja i útlöndum. Hér er Björn Christensen i Kjöthöllinni með einn slíkan en algengasta innihaldið
er hangikjöt, lax, flatkökur og harðfiskur. DV-mynd ÞÖK
Matvöruverslanir taka að sér matarsendingar til útlanda:
íslenskur matur til vina
og ættingja erlendis
- mest um að fólk sendi hangikjöt, þótt fjölbreytnin sé mikil
annast þessar matarsendingar er á taka 300 kr. og Kjöthöllin tekur 400
bilinu 0-400 krónur. Nóatún tekur kr., þar af 100 kr. fyrir umbúöirnar.
ekkert fyrir að annast þjónustuna, Ofan á þetta leggst 300 kr. gjald fyrir
Austurver tekur 100-150 kr. (eftir heilbrigðisvottorð ef senda á kjöt til
stærð umbúðanna), Hagkaup tekur annarra landa en Danmerkur.
200 kr., Miðvangur og Kjötbúr Péturs
jjyihi íE|^r ujiJjr jóJuþuisiijjjjj
UJJJ-JJjJUJJíJiJj' H Almennir bögglar
r^j Rúmfrekir eöa
brothættir böggiar
<o & £ <0
<o m
15 20
Kílógrömm
Afgreiðslutími verslana
í jólamánuðinum
Þeir eru ófáir íslendingamir í út-
löndum sem láta senda sér íslenskan
mat fyrir jóhn og gildir þá oft einu
hvort fólk hefur búið erlendis í lengri
eða skemmri tíma. Neytendasíðunni
er kunnugt um sex matvöruverslanir
á höfuðborgarsvæðinu sem taka að
sér matarsendingar til útlanda, þ.e.
að fylla út tilskiUn skjöl, útvega heil-
brigðisvottorð, pakka matnum inn
og senda með pósti. Þær eru: Kjötbúr
Péturs, KjöthölUn, Matvöruverslun-
in Austúrveri, Miðvangur í Hafnar-
firði, Hagkaup í Kringlunni og Nóa-
Leiðrétting
á uppskrift
Þau leiðu mistök urðu á bls. 24
í matar- og kökublaði DV, sem
kom út á miðvikudaginn, að í
uppskrift Jórunnar Karlsdóttur á
Selfiarnarnesi var geflð upp
rangt magn af hveiti.
Jórxmn var ein af þeim sem
vann til verölauna í uppskrifta-
samkeppni Nýrra eftirlætisrétta,
DV og fleiri aðila fyrir uppskrift
aö döðlu-möndlukökum. I upp-
skriftinni var geflnn upp 4 bolU
af hveiti en á að sögn Jórunnar
að vera 1 !4 boUi, Skiptir þetta að
hennar sögn miklu máh ef kök-
urnar eiga aö heppnast. Leiðrétt-
ið þetta endilega í blaðinu ykkar.
9 9*17*00
99*17•00
Verö aðeins 39,90 mín.
1\ Vikutilboö
stórmarkaðanna
J2j Uppskriftir
tún. Fyrir þetta taka flestar verslan-
irnar ákveðna þóknun og svo leggst
300 kr. gjald fyrir heilbrigðisvottorð
ofan á kjötsendingar til annarra
landa en Danmerkur.
Kaupmönnunum bar flestum sam-
an um að fólk væri þegar byrjað aö
senda matarpakkana út en þeir áttu
þó von á því að sendingunum fjölg-
aði eftir því sem nær dregur mánaða-
mótum. Meðalpakki kostar á bUinu
fimm til sjö þúsund en getur þó kost-
að allt frá tvö og upp í tíu þúsund.
Mest um hangikjöt
Pétur Pétursson í Kjötbúri Péturs
áætlaði að hann myndi senda út 8-9
tonn af mat á tímabilinu 15. nóvemb-
er til 15. desember. „Hangikjötið er
langvinsælast. Ætli það fari ekki 5-6
tonn af því og svona 2-300 kíló af
harðfiski. Svo hefur reyktur, villtur
lax verið vinsæll og ég geri ráð fyrir
að senda 800 til þúsund kUó af honum
út,“ sagði Pétur. Annar vinsæll mat-
ur samkvæmt því sem kaupmenn
segja er t.d. síld, grænar baunir, flat-
kökur, sviðasulta í dós, london lamb,
Cheerios, Prins póló, Opal, íslenskt
sælgæti og jafnvel malt og appelsín.
Mishá þóknun
Þóknun til verslunarinnar fyrir að
Eins og venjan hefur verið undan-
farin ár verða verslanir opnar lengur
þegar nær dregur jólum svo enginn
þurfl nú að fara í jólaköttinn. Hér á
eftir fara upplýsingar um afgreiðslu-
tíma verslana viö Laugaveg, í Kringl-
unni og í Borgarkringlunni í desemb-
er en svo skemmtUega vUl til að af-
greiðslutíminn er sá sami hjá þeim
öUum. Þá daga sem ekki eru til-
greindir hér er opið samkvæmt
venju fyrir utan að Borgarkringlan
býður upp á sérstakt kúnnakvöld í
kvöld á miUi kl. 20 og 24. Á laugar-
daginn verður Borgarkringlan svo
opin frá kl. 10 til 16 en á sunnudaginn
er lokað.
Afgreiðslutíminn:
Laugardagur 3. desember frá kl. 10
til 18.
Sunnudagur 4. desember frá kl. 13
til 17.
Laugardagur 10. desember frá kl. 10
tíl 18.
Sunnudagur 11. desember frá kl. 13
til 17.
Laugardagur 17. desember frá kl. 10
tU 22.
Sunnudagur 18. desember frá kl. 13
tU 17.
Þriðjudagur 20. desember frá kl. 10
til 22.
Miðvikudagur 21. desember frá kl.
10 tíl 22.
Fimmtudagur 22. desember frá kl. 10
til 22.
Þorláksmessa 23. desember frá kl. 10
til 23.
Aðfangadagur frá kl. 9 tU 12.
Þriðjudagur 27. désember LOKAÐ.
Gamlársdagur 31. desember frá kl. 9
til 12.
DV
Vegnaverð-
könnunar
Aðalsteinn Árnason, deUdar-
stjóri í versluninni Matbæ á
Húsavík, hafði samband við okk-
ur og vildi gera athugasemdir við
verðkönnun Verkalýðsfélags
Þórshafnar sem birt var í DV sl.
þriðjudag.
Verðkönnunin náði til átta
verslana á Norðurlandi eystra og
var greint frá því í fyrirsögn að
verslunin Þingey væri með
lægsta meðalverðið, eins og raun-
in var, en að Matbær hefði fylgt
fast á eftir. Aðalsteinn sagöist
vera ósáttur viö að ekki hefði
komið fram i umíjöllun okkar að
Matbær hefði boðið lægsta verðið
á 25 vörutegundum af þeim 36
sem teknar voru i könnuninni en
Þingeyeinungisá 11 vörutegund-
um. Þrátt fyrir þetta reyndist
meðalverð Þingeyjar lægra þar
sem sumar vörurnar voru langt
undir meðalverði. Við komum
athugasemd Aðalsteins hér með
áframfæri.
Látið kertin
endast lengur
Hún hringdi til okkar hún Hall-
dóra Gunnarsdóttir og var með
gott húsráð fyrir þá sem eru mik-
ið fyrir kertaljós í jólamánuðin-
um. Hún sagðist hafa keypt fjóra
pakka af kertum til að styrkja
gott málefhi en þegar hún kveikti
á því fyrsta brann það upp á svip-
stundu og eyðilagði hjá henni
dúk. Hún brá þvi á þaö ráð að
frysta pokann i 2-3 klst. og eftir
það entist sama kertið frá hádegi
til klukkan níu um kvöldið! Hall-
dóra sagði nauðsynlegt að opna
pokann áður en hann er settur í
frysti til aö loftið leiki um kertin
og best væri að hafa kertin í frysti
í u.þ.b. sólarhring.
Er þetta að hennar sögn varan-
leg lausn, engu máli skipti hversu
langur tími liði þar til kertin eru
notuð því þau endist alltaf betur.
Aðspurð hvort kertin yrðu brot-
hættari við þetta sagði hún svo
ekki vera, hún hefði misst eitt í
gólfið og það brotnaði ekki.
Verðlaunaterta
Við birtum hér upskrift að
möndlu- og súkkulaðikonfekt-
tertu sem varð í fyrsta sæti í
tertusamkeppni sem sænska
blaðið Vár bostad efndi nýlega til
1 Svíþjóð. Tertan ber heitið
„Trompið mitt“ og er að sögn
dómnefndarmanna alveg ótrú-
lega góð.
Möndlubotn:
1 Vi dl möndlur
3 eggjahvítur
2'4 dl sykur
1 dl brauörasp
Súkkulaðikonfektfylling:
225 g smjör
3'4 dl flórsykur
3 eggjarauöur
4 msk. kakó
2 tsk. neskaSiduft
1 msk. vanillusykur
100 g dökkt blokksúkkulaði
(lauf af sítrónu)
Tertubotninn: Hitið ofninn í 175°
C og malið möndlumar. Stífþeytið
eggjahvíturnar. Blandið sykrin-
um smátt og smátt út í og þeytið
þar til blandan verður gljáandi og
stíf. Bætið möndlunum og raspinu
saman við. Setjið bökunarpappir
í botninn á 25 sm lausbotna hring-
formi og hellið deiginu i. Bakið í
neðri hluta ofnsins í u.þ.b. 25 mín.
Látið kólna.
Konfektfyllingin: Hrærið saman
smjöri og flórsykri, Hrærið eggja-
rauðunum saman við, einni í
einu. Bætið kakói, kafíidufti og
vanillusykri saman við og hrærið
vel saman. Dreiflð konfektfyll-
ingunni yfir kökubotninn. Látið
kólna þar fil harðnar. Bræðið
súkkulaðið i vatnsbaði og dreifið
úr því yfir fyllinguna. Látið kólna
svo súkkulaðið harðni. Skreyfið
með sítrónulaufum ef vill.