Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 32
I
I
I
r
t
r
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 63 27 00
BLAÐAAFGREiÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokaö
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 63 27 77
KL. &S LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA
Frjalst,óhaö dagblaÖ
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994.
Kennarafélögin:
Vilja viðræður
fyrir áramót
Fulltrúar Hins íslenska kennarafé-
lags og Kennarasambands íslands
afhenda fulltrúum samninganefndar
ríkisins kröfugerð sína fyrir næsta
ár á fundi í menntamálaráðuneytinu
í dag. Fulltrúar félaganna hittust í
morgun til að ganga formlega frá
kröfugerð sinni.
„Menn eru oft seinir að koma sér
af stað í samningaviðræður. Okkar
reynsla af undangengnum samning-
um hefur verið sú að samningar séu
lausir í marga mánuði áður en nýr
samningur tekur gildi. Þetta er okkar
innlegg í það og við vonumst til þess
að viðræður hefjist strax,“ segir Ei-
ríkur Jónsson, formaður Kennara-
sambands íslands.
Ráðhúsið:
Breytingar
eftir áramót
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri hefur ráðið Hagvang til að
skipuleggja breytingar á stjórnsýsl-
unni á skrifstofu borgarstjóra í Ráð-
húsinu í Reykjavík. Miðað er við að
starfi Hagvangs ljúki um áramót og
eiga breytingarnar að taka gildi fljót-
lega eftir það. Engum starfsmanni
verður þó sagt upp störfum.
- sjá bls. 4
Auglýsingar í R-lista blaði:
Hafa birst í
öðrum blööum
Vegna fréttar í DV í gær um auglýs-
ingar Reykjavíkurborgar í blaði
Reykjavíkurlistans, Regnboganum,
skal það leiörétt að þær hafa birst í
öðrum blöðum. Annars vegar er um
að ræða auglýsingu um fundi borgar-
stjórnar og hins vegar um upplýs-
ingaþjónustuna í Ráðhúsinu.
ðlafur Jónsson, upplýsingafulltrúi
borgarinnar, sagði í samtali við DV
að auglýsing um fundi borgarstjórn-
ar hefði birst í flestum fjölmiölum í
byrjun nóvember og búið væri að
gera auglýsingaplan vegna þeirra til
áramóta í nokkrum fjölmiðlum.
Um auglýsingu á upplýsingaþjón-
ustunni sagði Ólafur að hún hefði
nokkur undanfarin ár birst í hverfa-
blöðum og sumum tímaritum og til
stæði að birta hana í fleiri slíkum
blöðum á næstunni. Ólafur sagðist
hafa litið svo á að blaö Reykjavíkur-
hstans, sem borið var í öll hús í borg-
inni, hefði verið góður vettvangur til
að auglýsa í sökum mikillar út-
breiðslu.
LOKI
Gýmismálið ætlar sýnilega að
fara fetið gegnum kerfið!
Vill reka banda-
rískan varafor
stjóra úr landi
Ægir Már Kárason, DV, Suðomesjum;
„Hann hótaði að segja henni upp
og gerði lítið úr henni sem starfs-
krafti. Hreinlega hellti sér yfir
hana með skömmum en konan hef-
ur gegnt þarna stöðu yfirmanns til
margra ára. Maðurinn beitir hót-
unum gagnvart íslenska starfsfólk-
inu og er dónalegur. Ég vil að þessí
maður fari úr landi sem fyrst," seg-
ir Jóhann Geirdal, formaður Versl-
unarmannafélags Suöurnesja, í
samtali viö DV.
Starfsfólk verslunar varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli hefur
skrifað undir áskorun um að um-
ræddur maður verði látinn víkja
úr starfi og áskorunin verður síðan
send til varnarmálaskrifstofu.
Maðurinn er Bandaríkjamaður,
aðstoðarforstjóri fyrirtækisins og á
mest samskipti við starfsmenn.
Hann er borgaralegur starfsmaður
og tilheyrir ekki varnarliðinu.
Hann hóf störf hjá fyrirtækinu
fyrir rúmu ári. Eftir þennan síðasta
atburð hefur starfsfólkið endan-
lega gefist upp á honum en það
hefur orðið að þola margt undan-
farna mánuði. Áður en hann hóf
störf hafði fyrirtækið unniö til
margra verölauna fyrir frábær
störf og verið kosið besta verslun
varnarliðsins í heiminum.
„Þegar hann byrjaöi hjá fyrirtæk-
inu sauð upp úr svo um munaði.
Hann var með hótanir við starfs-
menn um uppsagnir og var rudda-
legur. Þá var þess krafist að varnar-
málaskrifstofan tæki í taumana.
Maðurinn fékk tiltal, sem virðist þó
ekki hafa dugað, og ástandið mun
ekki lagast meðan hann vinnur
þarna. Hann hefrn- engan áhuga á
íslenska starfsfólkinu og við höfum
ekki áhuga á svona manni hér á
landi." sagöi Jóhann.
Það var mjög bandarísk stemning á Hótel Loftleiðum I gær þar sem fjöldi Bandarikjamanna var að halda þakkar-
gjörðarhátíð. Samkvæmt gamalli hefð er kaikúnn snæddur við þetta tækifæri en gestirnir fengu einnig sýnishorn
af íslenskum krásum og virtist vel líka. DV-mynd Brynjar Gauti
Veðrið á morgun:
Rigning
um mestallt
land
A morgun verður mjög hvöss
suðaustan- og sunnanátt, einkum
um landið vestanvert. Rigning
um mestallt land, þó úrkomulítið
norðaustan- og austanlands þeg-
ar líða tekur á daginn. Hiti 3-7
stig.
Veðrið 1 dag er á bls. 36
Gýmismálið
afturtil RLR
„Málinu hefur verið vísað til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins á ný til ítar-
legri rannsóknar. Ég vona að það líði
ekki langur tími þar til henni lýkur
en það verður að koma í ljós,“ sagði
Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari um meðferð Gýmismálsins
svokallaða sem hefur nú verið hjá
lögregluyfirvöldum frá því í byrjun .;
júlí eftir að grunur kom upp um að
gæðingnum, sem þurfti að fella,
hefðu verið gefin lyf með ólöglegum
hætti á landsmóti hestamanna á
Hellu í sumar.
Hallvarður vildi ekki upplýsa
hvers vegna embættið hefði óskað
eftir ítarlegri rannsókn - hvort farið
væri fram á frekari yfirheyrslur eða
nákvæmari rannsóknir á sýnum úr
hrossinu.
„Ríkissaksóknari er í raun að biðja
um ítarlegri rannsókn á ákveðnum
atriðum í málinu. Þetta eru ekki ný
atriði sem beðið er um rannsókn á
en málið er komið aftur í okkar hend-
ur,“ sagði Hörður Jóhannesson, yfir-
lögregluþjónn hjá RLR við DV.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Neskaupstaður:
Sjúkraliðarskipta
umstéttarfélag
Allir sjúkraliðarnir á sjúkrahúsinu
í Neskaupstað, utan einn, hafa sagt
sig úr stéttarfélagi bæjarins og sótt
um aðild að stéttarfélagi Sjúkraliða-
félags íslands. Sjúkraliðarnir verða
fullgildir félagar í Sjúkraliðafélaginu
um áramót og fara í verkfall verði
verkfalli sjúkraliða ekki lokið þá.
„Við teljum að sjúkraliðar eigi að
standa saman og séu sterkari í einu
félagi. Við erum tæplega 30 sem höf-
um sótt um inngöngu í Sjúkraliðafé-
lagiö, þar af 21 starfandi á sjúkrahús-
inu, og ákváðum allar að skipta um
félag,“ segir Þorbjörg Sigurðardóttir.
i
i
i
i
f
i
Félagsmálaráð Reykjavíkur hefur
samþykkt samhljóða að segja upp frá
áramótum samningum við hár-
greiðslumeistara, fótaaðgerðafræð-
inga og fótsnyrtisérfræðinga sem
starfað hafa í þjónustumiðstöðvum
aldraðra í borginni. Þjónusta þessara
aðila hefur eingöngu verið veitt öldr-
uðum en eftir breytinguna verður
hún veitt öllum. Borgarráð á eftir að
leggja blessun sína yfir samþykkt
félagsmálaráðs.
Þessir aðilar, um 30 manns, munu
fá forleigurétt á þeirri aðstöðu sem
þeir hafa haft í þjónustumiðstöðvun-
um. Samþykkt félagsmálaráðs er
einkum til komin vegna athuga-
semda Samkeppnisstofnunar um að
þjónustan samrýmist ekki sam-
keppnislögum.
íbaksturinn
Á morgunmatinn
í heita og kalda drykki
Brjóstsykur
Skemmir ekki tennur
bragötegundir og
náttúruleg efni
ÞREFALDUR1. VINNINGUR
/