Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1994, Blaðsíða 16
KRAKKAR! MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1994 Menning Samsýning í Nýlistasafninu: Olíkir listamenn sýna saman í hringiöu helgarinnar Sigurbjörn Jónsson listamaöur opnaði á laugardaginn sýningu á verkum sínum í Gallerí Borg. Sigurbjöm nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1978-82. Parsons School of Design, New York 1984-86. Master of Fine Art Program, New York Studio School of painting 1986-87. Hann hefur haldið einkasýningar hér heima og erlendis og sýnir að þessu sinni 20 ný olíumálverk. Á myndinni er Sigurbjörn ásamt bömum sínum. að ef þessir listamenn hafa verið að drekka í sig áhrif frá listum í námslandinu þá leyfist mönnum allt í Hollandi nú til dags. Þessir átta listamenn hafa afar ólíkan stíl og vinna hver að sínu marki og Myndlist Jón Proppé þótt auðveldlega megi finna for- dæmi og fyrirmyndir að ýmsu því sem birtist á sýningunni þá eru verkin frískleg og engan veginn khsjukennd. Helsta verk Sólveigar á sýning- unni er „Land einmanaleikans", leirbúkar í fullri stærð sem mynda litla veröld í horni gryfjunnar svo- kölluðu í safninum. Þessir líkamir eru grófmótaðir og bera engin ein- staklingseinkenni. Stemningin liggur í samspih þeirra og í því aö þeir nái að draga áhorfendur inn í þessa stemningu. Þess vegna verð- ur frekar lítið úr verkinu á sam- sýningu þar sem öllu ægir saman; þaö þarf meiri kyrrð ef það á að njóta sín til fulls. Rob Hoekstra sýnir mjög óhk verk, annars vegar málverk af gengnum stjómmálahetjum og ' hins vegar risavaxinn skúlptúr úr fiskiköram. Titill skúlptúrsins er fenginn úr laginu „Hvað er eldi manneskjunnar“ sem Makki og Jenný syngja saman í Túskildings- óperunni: „Erst kommt das Fress- en, dann kommt die Moral“. Þetta er auðvitað af hálfu Brechts tilvís- un í speki Engels og tengir verkið því aftur við póhtík. Það er hins vegar alls ekki gott aö sjá hvað Rob vih segja með þessum póhtisku verkum sínum og fyrir vikið eru þau frekar máttlítil. Pétur Öm Friðriksson fiktar með rafmagn og tæki og verk hans eru hreyfihst byggð á segulsviðum og tilviljanakenndu samspih ófyrir- sjáanlegra náttúrukrafta. Skemmtilegustu verkin eru þó þau tvö sem sýna veður: veöurkort og sjókort ásamt viftum og vatni þar sem aöstæðurnar sem kortin lýsa Sviðsljós eru endurskapaðar í smækkaðri mynd. Jón Bergmann er málari og vinn- ur út frá einfoldum en hlýlegum mimmahsma. Myndir hans eru at- hyghsverðar en líklega þyrfti að skoða þær í stærra samhengi - á heilsteyptri einkasýningu - til að meta þau. Jón er ennþá við nám og hefur víst ekki áður sýnt hér á landi. Verk Helga Hjaltalín Eyjólfsson- ar eru án titils, öll nema eitt. Helgi einbeitir sér að hugmyndalist og eitt besta verkið minnir óneitan- lega mikið á Sigurð Guðmundsson, þótt það rýri auðvitað ekki gildi þess. Verkið „Dagbók" er svo aftur hreinræktaðara flúxusverk þar sem dagsettar tómar pennafylling- ar eru til vitnis um annars ókunn ritstörf listamannsins. Gunnar J. Straumland málar óhlutbundið með ohu á striga en verk hans eru engu að síður ansi nýstárleg. í stað þess að leita inn á við og mynda þannig einhveija sjálfstæða merkingarheild eru málverkin eins og tilviljanaform þar sem einn htur leggst ofan á annan og myndir koma fram eins og af hendingu. Guðrúnu Hjartardóttur virðist allt verða að efniviði og hún vinnur smellin verk þar sem áhorfandinn er virkjaður í húmorískan viðburð. Leirmynd hennar af sofandi mann- eskju með hljóöbandi er skemmti- leg hugleiðing um drauma og vit- undarlíf okkar. Að hinum ólöstuðum verður að segjast að framlag Elsu til sýning- arinnar er athygliverðast. Elsa vinnur eins og hún hefur sjálf sagt úr „því líffræðilega í hstinni". Helsta verk hennar á sýningunni er eins konar tilraunakassi þar sem hún hefur komið alls kyns mat fyr- ir í hvítum kúlum svo að rotnunin inni í kúlunni kemur fram á yfir- borðinu í lífrænni ummyndun. Þetta verk á eftir að breytast mikið meðan á sýningunni stendur og á endanum verður líklega að henda því, en þarna hefur Elsa beislað frumkraft umbreytingarinnar í listina. í Nýhstasafninu sýna nú saman átta ungir listamenn sem allir hafa verið við nám í Hollandi, flestir vdð Myndhstainstitútið í Enschede. Sjö þeirra eru islendingar en einn Hol- lendingur er með í hópnum, Rob Hoekstra. íslendingamir eru Elsa Dóróthea Gísladóttir, Guðrún Hjartardóttir, Gunnar J. Straum- land, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Jón Bergmann Kjartansson, Pétur Örn Friðriksson og Sólveig Þor- bergsdóttir. Öll hafa þau áður sýnt hér heima, en mest á samsýningum og því ekki víst að áhorfendur kannist vdð verk þeirra. Það er mjög athyglisvert að sjá svo stóra samsýningu frá fólki sem er að ljúka framhaldsnámi - ekki vegna þess að hér birtist einhver ný stefna eða stíltilhneiging, heldur bara af því að hér er saman komið fólk sem hefur verið að vinna úr listhugmyndum sínum við það frelsi sem akademískt umhverfi veitir. Það er engin heildarsvipur á sýningunni og það er greinilegt fimmtudaginn 1. desember, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Kór íslensku Óperunnar Kórstjóri: Peter Locke Gradualekór Langholtskirkju Kórstjóri: Jón Stefánsson Efnisskrá Jón Leifs: Hinsta kveðja Gustav Mahler: Adagio úr Sinfóníu nr. 10 Jón Leifs: Minni íslands Jón Leifs: ^ Þjóðhvöt á/m/ 6BBBSS B 1 o m s 4 randi hljómsveit MUNIÐ EFTIR OKKUR JOS TANNIOGTÚPA 011 Lionsdagatöl eru merkt: Þeim íylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstupa Allur hagnaður rennur til líknarmála. UONS eru komin á alla útsölustaði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.