Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 276. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994

Fréttir

Hækkun útsvars og fasteignagjalda á höfuðborgarsvæðinu:

Seltjarnarnes verður

skattaparadís nýs árs

- Kópavogsbúar taka á sig þyngstu byrðarnar

Allt bendir til þess að álögur á íbúa

á höfuöborgarsvæöinu aukist tals-

vert á næsta ári þó að nokkuð sé

misjafht hvernig sveitarfélögin

bregðast við þeim fjárhagsvanda sem

flest þeirra eiga við að glíma um þess-

ar mundir. Aðeins þrjú sveitarfélög

sjá sig tilneydd til hækkana til að

bregðast við sívaxandi skuldabagga.

Þaö eru Kópavogur, Hafnarfjörður

og Reykjavík.

Álögur á íbúa í Kópavogi hækka

langmest eða um tæplega 21.230

krónur á barnlaus hjón sem búa í

íbúð með sjö milljónir króna í fast-

eignamat og árstekjur að fjárhæö

2.650.000 krónur. Bæjarsrjórn Kópa-

vogs hækkar útsvarið úr 8,4 prósent-

um í 9,2 prósent, lóðarleiga hækkar

um tíu aura á hvern fermetra og 200

krónur leggjast á sorphirðuna. Aætl-

að er að hækkanirnar skili 115 millj-

ónum króna í bæjarsjóð.

Álogurnar í Hafnarfirði aukast

næstmest, um tæplega 11.200 krónur

miðað við sömu forsendur og í dæm-

inu að ofan, nái tillaga um það sam-

þykki í bæjarráði Hafnarfjarðar. Út-

svar hækkar úr 8,9 prósentum í 9,2

prósent og er talið að það skili um

40 milljónum í bæjarsjóð. Sorphirðu-

gjald hækkar um 200 krónur og regl-

ur um lóðarleigu breytast nokkuð til

hækkunar.

Reykvikingar fá á sig álagningu

holræsagjalds upp á 0,15 prósent af

afskrifuðu endurstofnverði íbúðar-

húsnæðis eða 10.500 krónur á íbúð á

nýju ári. Reiknað er með að hækkun-

in skili 550 milljónum í borgarsjóð.

Kristín A. Árnadóttir, aðstoðarmað-

ur borgarstjóra, segir að rætt sé um

að fjölga gjalddögum fasteignagjalda

í sex til átta til að auðvelda borgarbú-

um hækkunina. Gjalddagar eru nú

þrír á ári. Útsvar hækkar ekki í borg-

inni.

Mosfellingar, Garðbæingar og Sel-

tirningar sleppa alveg viö hækkanir

útsvars og fasteignagjalda.

Næstminnst skattbyrði

í Reykjavík

Skattbyrði íbúa hefur verið lægst í

Reykjavík af stóru sveitarfélögum á

höfuðborgarsvæðinu á þessu ári þó

að Reykjavík hafi haft hæsta fast-

eignaskattinn eða 0,421 prósent.

Barnlaus Tijón í Reykjavík, sem

höfðu 2.650 þúsund í tekjur á ári og

sjö milljónir í fasteignamat, greiddu

aðeins rúm 262 þúsund krónur í út-

svar og fasteignagjöld meðan Hafn-

firðingar höfðu mestu skattbyrðina

eða tæp 286 þúsund yfir árið. Fast-

eignaskatturinn nam 0,375 prósent-

18.000 kr.

Holræsagjald

18.000

*"        - í oorglnni ertirstæro íböoaog fasteignamafF

14.000-

12.000-

2 herb.

59 «i*

3 herl).

83 m2

4herb.       5herb.   Einb./raöh. Einb./raoh.

I03m2        125 m2    180 m2         210 m2

Hækkun opinberra gjalda

— samanburöur á höfuöborgarsvæöinu —

íbúö með sjö milljónir  n Fasteignagiöid '94

fasteignamat

*

H Fasteignagjöld '95

£2


Reykja-    Kópa-     Seltjarn-    Garða-     Hafnar-    Mosfells-

vík         vogur     arnes       bær        fjöröur     bær

Útsvar og f asteignagjöld

hjóna samtals

H Utsvar '94

m Útsvar '95

n Útsvarog

fasteignagjöld

samtals

Reykja-   Kópa-     Seltjarn- Garöa-   Hafnar-   Mosfells-

vfk         vogur     arnes      bær       fjörður    bær

Aætlun

wm=

NIÐURSTAÐA

Er jólaundirbúningur í versl-

unum of snemma á ferð?

,r o d d

FOLKSINS

99-16-00

Nei

Dómur Hæstaréttar:

Vítavert seínlæti

við rannsókn máls

Þú getur svaraö þessari

spurningu meö því aö

hringja í síma 99-16-00.

39,90 kr. mínútan.

Já      ±1

Nel     Í2J

,r o d d

FOLKSINS

99-16-00

Er rétt að banna reykingar

í kvikmyndahúsum?

Alllr i stafræna kerflnu me6 tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu.

Hæstiréttur dæmdi í gær dóms-

málaráöherra, fjármálaráöherra og

ríkissaksóknara til að greiða eiganda

myndbandaleigu 200 þúsund krónur

í skaðabætur eftir að rannsókn lög-

reglu, þegar hald var lagt á hátt í

þúsund myndbönd í eigu mannsins,

fór úr böndunum. Segir ennfremur

að vítavert seinlæti hafi einkennt

alla meðferð málsins.

Það var í desember 1986 sem lög-

reglan lagði hald á myndböndin.

Skömmu seinna reyndi lögreglan að

skila nokkrum myndbandanna til

mannsins en hann neitaði að taka

við þeim. Lögmaður mannsins skrif-

aði daginn eftir bréf til dómsmála-

ráðuneytisins, en aðgerðirnar voru

framkvæmdar að frumkvæði þess,

þar sem þess var krafist aö mynd-

böndunum yrði skilað ásamt lista

yfór þau svo maðurinn gæti krafist

skaðabóta fyrir dómstólum. Því bréfi

var ekki svarað.

í apríl 1989 ritaði lögmaður manns-

in rannsóknarlögreglustjóra bréf þar

sem hann sagði þolinmæði skjól-

stæöings síns á þrotum og vildi fá á

hreint hver réttarstaða hans væri.

Þessu bréfi var ekki svarað en mað-

urinn kvaddur til skýrslutöku í júní

sama ár, þeirrar fyrstu og einu í

málinu.

Lögmaðurinn ritaði á ný bréf til

RLR mánuði seinna þar sem hann

vísaði til þess að sáttaumleitanir

hefðu farið fram milh samtaka rétt-

hafa myndbanda og samtaka mynd-

bandaleigueigenda og óskaði eftir því

að fá haldlögð myndbönd afhent og

hann myndi þá falla frá öllum hugs-

anlegum kröfum á hendur ríkisvald-

inu. Svara var óskað innan 10 daga

en ekkert svar barst.

Tæplega ári eftir seinustu bréfa-

skipti og á fjórða ár eftir aðgerðir

lögreglu fékk maðurinn myndböndin

afhent.

Hæstiréttur telur að meðferð máls-

ins hafi verið mjög andstæð rétti sak-

aðra manna og mannréttindi hafi

verið brotin á manhinum.

um í Hafnarfirði á þessu ári.

Á nýju ári bregður svo við að Kópa-

vogsbúar fá þyngstu skattbyrðina

eða rífiega 300 þúsund á barnlaus

hjón eins og í dæminu að ofan og

Hafnfirðingar halda sig skammt und-

an. Þx-átt fyrir 0,15 prósenta álagn-

ingu holræsagjalds í Reykjavík verða

Reykvikingar með næstminnstu

skattbyrðina eða rúm 273 þúsund.

Seltjarnarnes verður skattaparadís-

in á höfuðborgarsvæðinu á nýju ári

með aðeins rúm 266 þúsund í útsvar

og fasteignagjöld á hjón samkvæmt

forsendunum að ofan enda hækka

þar líklegast engin gjöld á næsta ári.

Stuttar fréttir

Fjármál krata opinberuð

Alþýðuflokkurinn hefur fyrst-

ur stiórnmálaflokka hér á landi

opinberað fjárreiður sínar.

Flokkurinn skuldar um 11 millj-

ónir en á móti köma eignir upp á

2 milljónir og ójamað eigið fé upp

á 8,2 mDljónir. Alþýðublaðið

greindi frá þessu.

Nýrríkissáttasemjari

Þórir Einarsson, prófessor við

HÍ, hefur verið skipaður nýr rík-

issáttasemjari frá og með áramót-

um. Þórir tekur við embættinu

af Guðlaugj Þorvaldssyni.

Deilurumsendiherra

Deilur eru í ríkisstjórninni um

hver eigi að vera næsti sendi-

herra íslands í Bonn. Davíð Odds-

sonvUlað IngimundurSigfússon,

fyrrum forstjóri Heklu, veröi

skipaður en Jón Baldvin Hanni-

balsson vill að Þróstur Ólafsson

fái stöðuna. Timinn greindi frá.

Fjárstreymitilútlanda

Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna

er 5 milljörðum króna nteira en

í fyrra, eða 44,6 miUjarðar. Skv.

Mbl. má gera ráð fyrir að sjóðirn-

ir verji um 1,7 milljörðum til

kaupa á erlendum verðbréfum.

Desemberuppbót launafólks í

ár nær frá 13 þúsund krónum hjá

íASHölki upp í fleiri hundruö

þúsundir hjá bankasrjórum. AI-

mennir bankastarfsmenn fá 13.

mánuðinn greiddan en opinberir

starfsmenn fá ríflega 25 þúsund

kronur. Stöð tvöskýrðifrá þessu.

Miðstöðumeitranir

Upplýsingamiðstöð um eitranir

var opnuð í Borgarsþítalanum í

gær.

SÞstjómlausstofnun

Jón Baldvin Hannibalsson ut-

anríkisráðherra er óánægður

með þá stefhu sem málefhi Bosn-

íu hafa tekið og segir að SÞ séu

stjórnlaus stofhun. RÚV hafði

þetta eftir ráðherranum.

Spara130millj6nir

Sþarnaður Tryggingastofounar

yegna aðgerða sem til skarams

tíma hafa verið gerðar erlendis,

en eru nú gerðar á íslandi, er um

130 milljónir. Mbl. greindi frá

þessu.                              Jjaa

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48