Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1995, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1994 vantar, enda hefur biðin verið löng og ströng. Platan, sem er nefnd í höfuðið á fyrsta laginu sem hljómsveitin samdi, hefur að geyma 19 tóndæmi. Hún byrjar á endurhljóðblöndunum af lögunum „Higher Ground", „Hollywood", „If you wan’t me to stay“ og „Behind the sun“. Lögin verða poppuð fyrir vikið og myndu sóma sér vel í höndum plötusnúða á danshúsum borgarinnar. Þar beint á eftir fáum við tónleikaútgáfur af lögunum „Castles made of sand“ (Hendrix), „Special Secret Song Inside" og „F.U.“ sem eru ekki beinlínis gefin út hljómgæðanna vegna. Út frá þessu tekur platan skrýtna stefiiu og gefur okkur hvert tóndæm- ið á fætur öðru (svokölluð „demo version" af ýmsum uppruna). Ekkert þessara laga hafa áður verið útgefm. Hljómurinn á þessum síðari hluta er ekkert til að hrópa húrra fyrir enda ekki gefið út með það í huga. Lögin sýna hins vegar skemmtilega þróun hjá sveitinni og geta hægilega breytt þeirri sýn sem flestir höfðu áður. Eitt er víst. Red Hot Chili Peppers urðu ekki frægir á einni nóttu frekar en aðrar hljómsveitir, þeir höfðu mikið fyrir því. Guðjón Bergmann - Unun með bestu plötu ársins 1994 Árlegur viðburður DV er að fá gagnrýnendur frá ýmsum fjölmiðl- um til að segja sína skoðun á plötuútgáfu líðandi árs. Val fyrir árið 1994 fór fram síðastliðinn mánudag og hafa sjaldan verið tilnefndir jafnmargir titlar og nú. í erlendu deildinni hreppti Neil Young efsta sætið með plötu sína Sleeps With Angels. íslenska efsta sætið hreppti hins vegar hljómsveit sem kom ný inn á markaðinn 1994. Hljómsveitin er skipuð þeim Þór Eldon, Dr. Gunna og Heiðu, heitir Unun og gaf út plötuna „æ“ á árinu sem var að líða. DV hafði samband við Þór Eldon í vikvmni og spurði hvemig þetta hefði fengið á hann. Tímamótaverk „í raun og veru kom þetta ekki á óvart,“ segir Þór. „Það hefði hins vegar komið á óvart ef við hefðum ekki lent í efstu þrem sætunum. Við bjuggumst kannski ekki alveg við fyrsta sæti en við erum mjög ánægð með útkomuna." Þór sagði ennfremur að fyrsta sætið hefði töluverða þýðingu fyrir sveitina. „Það er örugglega fjöldi manns sem veit ekkert af því að við erum til, veit ekki af því að hljómsveitin Unun var stofnuð á árinu 1994, veit ekki einu sinni að við gáfum út plötu. Þetta fólk veit Bjöm Jörundur Friðbjörnsson - ,,BJF": ★ ★ ★ Aðrir tónlistarmenn gætu tekið sér þessa plötu til fyrirmyndar hvaö varðar textasmíðar. Björn Jörundur hefur sýnt sig og sannað sem textahöfundur i sérflokki. -GB Suede - Dog Man Star: ★ ★ ★ Dog Man Star er stórgóð poppplata, stútfull af góðum melódískum lögum sem krefjast virkrar hlustunar. -SÞS The Cranberries - No Need to Argue: ★ ★ ★ Á Þessi plata verður í hópi þeirra bestu þegar árið 1994 verður gert upp. -SþS Megas-Megas: ★ ★ ★ ★ Lögin, textarnir og túlkun Megasar eru jafn stórkostleg á að hlýða á nýútgefmni geislaplötu og þegar platan kom fyrst út, fyrir tuttugu og tveimur árum. -ÁT Sugar - File under Easy Listening: ★ ★ ★ Framsækin rokktónlist eða spek- ingarokk. Platan er mjög jöfn að gæðum, hvergi veikan punkt að fmna. Það eru engin léleg lög á þessari plötu. -PJ Tweety-Brt: ★ ★ ★ Nýju lögin er flest poppað rokk og standa ágætlega sem slik. ÁheyrUegust eru Gott mál og Alein. Önnur eru hversdagslegri. -ÁT Unun-æ: ★ ★ ★ Tónlistin er poppað melódiupönk. AUur hljóðfæraleikur er tU fyrirmyndar og hljómurinn betri en maður á að venjast í þessari deUd tónlistarinnar. Unun má kaUast „óvæntasta góðverkið" fyrir þessi jól. -GB allavega af því núna. Ég hugsa líka að margir hafi ekki gert sér grein fyrir því hvemig plata þetta er. Þetta er ekki bara popp- plata, heldur tímamótaverk." Enskir textar Þór segir það eftirminnilegast á árinu 1994 vera það að hljómsveitm Unim skyldi verða til og gefa út sina fyrstu plötu. En hvaö er síðan næst á dagskrá? „Næsta skref er að fara að klambra saman enskum textum eftir beiðni sem við fengum að utan segir Þór. Þaö er hljómplötu- dreifingin One Little Indian sem setur þrýsting á enska textagerð á þessu ári. Fastlega má búast við smáskífu- útgáfu í Bretlandi á þessu ári. Hvort það verður í sumar eða haust á enn eftir að koma í ljós en mikill áhugi er fyrir hendi. „Síðan má búast við því að við forum að vinna nýja plötu jafnhliða því að tónleikahald verður mjög stíft á næstunni,” segir Þór Eldon. DV óskar meðlimum hljómsveit- arinnar til hamingju með þessa bestu plötu ársins 1994 jafnframt því að óska þeim árs og friðar. Eitt er víst, að ef þetta ár verður eins gott hjá hljómsveitinni og það síðasta má heimsbyggðin fara að vara sig. GBG Hljómsveitin Unun var með bestu plötu ársins að áliti gagnrýnenda. plt^tugagnrýni Walter Becker -11 Tracks of Whack ★ ★★ Næstum því Steely Dan Walter Becker var annar helmingurinn af þeirri rómuðu hljómsveit Steely Dan. Eftir að sú ágæta sveit hætti fóru þeir félagar Becker og Donald Fagen í sína áttina hvor og hefur mest lítið til þeirra spurst í fjöldamörg ár. Fagen gaf þó út prýðisgóða sólóplötu, The Nightfly 1982 og plötuna Karmakiriad 1993 en sú plata sem hér er til umfjöllunar er fyrsta plata Walters Beckers síðan Gaucho, síðasta plata Steely Dan kom út 1981. Og þessi plata er eins nálægt því að vera ný Steely Dan plata án þess að bera nafn sveitarinnar því Donald Fagen er helsti aðstoðarmaður Beckers á plötunni leikur á hljóm- borð, aðstoðar við útsetningar og stjómar upptökum ásamt Becker. Og vissulega minnir margt á þessari plötu um Steely Dan, annaðhvort væri nú en það er líka nokkuð ljóst að Becker er dálítið stirt um stef í lagasmíðunum eftir langt hlé. Þetta eru mestanpart lög í rólegri kant- inum og víða er stutt í djassinn. Lögin em nokkuð misjöfii að gæðum, sum allt að því í Steely Dan klassa en önnur langt því frá. En guð láti gott á vita og hver veit nema þessi plata sé fyrirboði um að þeir félagar Becker og Fagen taki upp þráðinn að nýju. Sigurður Þór Salvarsson Ýmsir flytjendur -The Unplugged Collection, Vol 1 r ★ ★ ★ Otengd stórmenni Á þessari geislaplötu em sextán lög með jafiimörgum flytjendum. Af þeim era tólf að koma út á plötu í - fyrsta skipti. Listamenn hafa verið misviljugir að gefa út efni Unplugged sjónvarpsþáttanna sinna þrátt fyrir dæmi um að slíkar plötur renni út. 'Unpliiggecj Segja má að ferill Erics Claptons hafi fengið vítaminsprautu þegar hann samþykkti hálfnauðugur að leyfa útgáfu á Unplugged plötunni sinni 1992. Af henni er tekið lagið Before You Accuse Me og sett á safhdiskinn þar sem það sómir sér vel. Önnur eftirminnileg lög á The Unplugged Collection era Pride And Joy með Stevie Ray Vaughan og Like A Hurricane með Neil Young. Þá má ekki gleyma Lenny Kravitz og Are You Gonna Go My Way sem er gjörsamlega ójxikkjanlegt í ótengdu útgáfunni og er síst verra en í sinni upphaflegu mynd. Tónlistarmenn- imir eru auðheyrilega misstressaðir í upptökunum. Paul McCartney hefur auðheyrilega ekki áhyggjur af sjónvarpsvélum í kringum sig þegar hann gleymir textanum í We Can Work It Out og byijar bara aftur á laginu þegar hann er búinn að rifja hann upp! Gasoline Ailey með Rod Stewart er fremur leiðinlegt áheymar á plötunni og einhvem veginn finnst mér að Elton John sé búinn að senda Don’t Let the Sun Go Down on Me frá sér í ótal konsertútgáfum. Sú ótengda bætir að minnsta kosti engu nýju við og hefði að skaðlausu mátt sleppa því. Að öðru leyti er platan hin áheyrilegasta og góð auglýsing fyrir Unplugged sjónvarpsþættína hjá MTV sem hefur nú verið haldið úti í fimm ár við sívaxandi vinsældir. Ásgeir Tómasson Red Hot Chili Peppers - Out in L.A. ★ ★ ★ Safnara- eintak Red Hot Chili Peppers aðdáendur hafa þurft að bíta í það súra epli, að hafa ekki heyrt neitt nýtt frá hljómsveitinni síðan platan Blood Sugar Sex Magic kom út árið 1991. Aðdáendur geta hins vegar huggað sig á þeirri staðreynd að plata með nýju eftii er væntanleg á þessu ári. Meðan á biðinni stendur getur platan Out In L.A. hins vegar veitt aðdáendum þá fróun sem þeim 'J&nlist dv * ► * ★ ------------------------------------------------------------ Kom ek á óvart

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.