Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 4
2Q MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 Tölvur - tækni Flugvélar nettengdar Ura 50 flugvélar í eigu banda- rísku flugfélaganna USAir, Cont- inental, America West og Carni- val eru komnar með svokallaöan FlightLink II búnað sem inni- heldur í eínu tæki m.a. síma, fax- tæki og tölvu. Fyrirtækið sem framleiðir FlightLink II stefnir að því að búnaöurinn verði kom- inn í þúsund flugvélar í Banda- ríkjunum á miðju næsta ári. FhghtLink tengist tölvunet- kerfum á jöröu niðri i gegnum gervihnött. Farþegar hafa tölv- uskjá á sætisbaki fyrir framan sig og geta dregið fram lyklaborð úr sætisbríkinni auk þess að hafa síma við höndina. Með þessum búnaði hefur upplýsingahraö- brautin (information superhigh- way) náð til háloftanna. 40 prósenta aukning áskrifenda Áskrifendum að tölvunetkerf- um (on-line services) í Bandaríkj- unum Qölgaöi um 40 prósent á síðasta ári. Samkvæmt könnun Information and Interactive Services Report í Washington voru um 6,3 milljónir manna áskrifendur að þessum netkerf- um. Alls bjóða 55 aöilar þjónustu sína í þessum eftium í Bandaríkj- unum. Þar af eru 3 aðilar lang- stærstir meö um 5,2 milljónir áskrifenda. Þetta eru Ameríca On-hne, CompuServe og Prodigy. Microsoft Forráöamenn Microsoft-tölvu- risans tilkynntu á dögunum að síðar á þessu ári kæmi á markað- inn tölvunetkeríi frá fyrirtækinu sem gæfl fullan aðgang aö Inter- netinu. í því skyni hefur Micro- • soft samið við UUNET Techno- logies um að þróa netkerfið en Spyglass hefur heimilað notkun á Mosaik-hugbúnaðinum á kerf- inu. Mosaik gefur möguleika á myndrænu viðmóti viö tengingu við Internet. Netkerfi Microsoft er tahð hafa þann stóra kost aö fylgja með Windows 95 forritinu. Þannig gefst samband við Internet með einni „músarhreyfingu“ á tölv- unni. Haft er eftir stjórnarfor- manni Microsoft, Bill Gates, að hér sé gríöarleg fiárfesting á ferö- inni sem gefi möguleika á að sam- eina kosti Intemets og hugbúnað- ar Mierosoft. Frakkar ótt- astBanda- ríkjamenn Nýlega var haft eftir menning- armálaráðherra Frakka að franskur tölvuiönaður á sviði margmiölunar (multimedia ind- ustry) yrði að fá stuðning í sam- keppni sinni við Bandaríkja- menn, annars myndi fara illa. í því skyni hafa Frakkar haft frumkvæði að stofnun vinnuhóps sem ætlað er að skila skýrslu á fundi sjö helstu iönrikja heims um upplýsingaiðnaðinn sem halda á í Brússel í lok febrúar nk. Menningarmálaráðherra Frakka sagðist ekkert hafa á móti samvinnu evrópskra og bandarískra fyrirtækja í tölvu- iðnaði en slikt samstarf mætti ekki snúast upp í einokun Banda- ríkjamanna. -Reuter Nýherji kominn með nýtt stýrikerfi til sölu: OS/2 Warp frá IBM fær goð viðbrogð - leysir MS-DOS af hólmi diskhnginn eða afritað hann. Þetta er alfarið myndrænt forrit,“ segir Bald- ur. Unnið aö næstu Eins og áður segir hefur OS/2 Warp verið vel tekið, bæði hér og í útlönd- um. Nafnið Warp er vinnuheiti sem hefur fylgt þessari tegund OS/2 stýri- kerfis og er tekið úr Star Trek kvik- myndunum. Að sögn Baldurs er þeg- ar farið að vinna viö næstu útgáfu á OS/2 og verður hún sennilega komin á markað í lok þessa árs. „Með OS/2 stýrikerfinu fylgir tals- vert af hugbúnaði. Þar á meðal ein- hverjir bestu fylgihlutir fyrir Internet sem fáanlegir eru. Kerfið sér um fiöl- vinnsluna en ekki eins og í Windows þar sem forritið þarf að hugsa um fiöl- vinnsluna," segir Baldur. Nýherji er um þessar mundir að fá í sölu nýja tegund af OS/2 stýri- kerfinu fyrir PC-tölvur frá IBM sem nefnist OS/2 Warp. OS/2 Warp er 32- bita og er þriðja tegundin af þessu stýrikerfi á undanförnum 10 árum. IBM kynnti kerfiö í október sl. og kom með það á markað erlendis í nóv- ember. Að sögn Baldurs Johnsen hjá Nýherja kom kerfið til íslands í des- ember og hefur fyrirtækið varla haft undan að afgreiða það til tölvunotenda. „Fyrir hefðbundinn PC-notanda er þetta geysilega mikil framför. Þú ert laus við MS-DOS og alla annmarka sem því fylgir. Þú hefur samt sem áður möguleika á aö keyra öh þín DOS- og Windows-forrit undir OS/2 Warp. Kerfið hefur hlutbundin not- endaskil sem þýðir það að aht sem þú sérð á skjánum eru hlutir sem þú getur framkvæmt á einhverjar að- gerðir. Sem dæmi þá sérðu mynd af disklingi. Þar getur þú t.d. forsniðið 33 CemjwSotv# Motanlim Mmtager Flle Edit Servlces Mall Sgeclal Wlndow Help Qanpccbeá 152 :°j. itá Whafs New This Week | : Accoss Irrtemet Ncwígtoups via CIS ' : Act Now for CompuSeivoCD Specid 0fí«w ] i Get N©we$( Version of DOSOM ! ! Downlo«d MdcOM 2.4 Oniino j | Pðftkypalo in 1AST CALL* TV Show i | Gum N' Rottt Guitartri in Confwooce j j New Uwgos in Reuteis Faum ; Ouvertue du Forum WindowShoíi France j Get Fuel-£ conomy Advtco in Forum j Detroit Free Press Videos AveíaWe 'i IBM PC Product Forums Onfine Q5JÍEV/-1 CencW H QSQFouœ £.sac Sor yrcös m IB&Orine % a £crspútetí ito m Qnance 9 jjeofth r gd&ation Smwi ■Hfl B pB líl V • ;öa»el«su» £un t Senkæ \ Skjámynd af stýrikerfinu OS/Warp frá IBM. ÓpusAllt fyrirWindows frá íslenskri forritaþróun hf.: Verkfæri stjómenda í daglegum rekstri - í notkun hjá 1400 fyrirtækjum í landinu Um 450 manns komu á tilþrifam- ikla kynningu hjá íslenskri forrita- þróun hf. á nýrri tegund af viðskipta- hugbúnaðinum ÓpusAllt sem haldin var í Þjóðleikhúsinu í lok nóvember sl. Að sögn Vilhjálms Þorsteinssonar hjá íslenskri forritaþróun er Ópus- Allt kominn í notkun hjá 1400 fyrir- tækjum í landinu og næsta skref er aö markaðssetja búnaðinn erlendis. „Undanfarin fiögur ár höfum við varið miklúm tíma í að skrifa Ópus- Allt frá grunni fyrir myndrænt um- hverfi í Windows. í raun er þetta varla lengur bara bókhaldshugbún- aður heldur verkfæri stjórnenda til að nota í daglegum rekstri, tæki til að fylgjast með rekstrinum um leið og hlutirnir gerast, ekki bara eftir á. Við erum í harðri samkeppni við erlendan viðskiptahugbúnaö sem seldur er á íslandi og reynum að skjóta honum ref fyrir rass,“ segir Vilhjálmur. Nýja útgáfan af ÓpusAllt fyrir Windows sýnir kennitölur úr rekstri, s.s. lausafiárstöðu fyrirtækisins, stöðu bankareikninga, stöðu við- Mímir Reynisson, upphafsmaður að Louis-forritinu, hefur hannað nýtt forritunarumhverfi fyrir Macintosh tölvur sem nefnist Visual EzC. For- ritiö er talið öflugra en t.d. HyperCard og SuperCard en jafn auðvelt í notkun. Það er hlutbundið, atburðadrifið og með innbyggðan „relational database" eins og 4ðu kynslóðar forritunarmálið. Forritin sem búin eru til með EzC eru u.þ.b. jafn hraðvirk og lítil eins og þau hefðu verið samin frá grunni í MPW eða með Think C. EzC var í raun tilbúið sl. haust og demó-útgáfa af því sett á Internetið til að kanna áhuga og viðbrögð not- enda. í stuttu máli sagt voru við- brögðin mjög góð. Öll forritunarumhverfi fyrir Mac- intosh til þessa hafa verið einhverj- um annmörkum háð. Flest þeirra hafa krafist mikillar forvinnu í formi lestrar og æfinga og þekkingar á C skiptamanna og sölu vörutegunda, á myndrænan hátt. Hægt er að sækja gögn úr ýmsum gagnagrunnum og sameina þau í ÓpusAllt, auk þess sem möguleikar gefast á pappírslaus- um viðskiptum. eða Pascal áður en unnt var að búa til nokkur forrit svo heitið geti. Önn- ur forritunarumhverfi, 4ðu kynslóð- ar málin, hafa veriö auðveldari í meðförum en skilað stórum eða hæg- virkum forritum sem stundum hafa líka verið minnisfrek. Forritunarmáhð í Visual EzC er C, eða ofurlítið einfaldað afhrigði af því. Það er ekki lengra frá venjulegu C en svo að menn geta lært að nota það aö mestu meö því að kynna sér venjulega kennslubók í C málinu. EzC er með grafískan útlitsteiknara þar sem notendaumhverfið, þ.e. hnappar, textasvæði og aðrar eining- ar í gluggunum, eru teiknaðar upp. Frá því EzC var kynnt á Intemet- inu í haust hefur verið lokið við handbækurnar fyrir forritið og ýms- um nýjungum bætt við. Um þessar mundir er verið að leita eftir fiárfest- um erlendis sem hafa áhuga á og bolmagn til að markaðssetja forritið. Útflutningur kannaður Aöspurður segir Vilhjálmur að út- flutningur á ÓpusAllt sé á byrjunar- stigi, aöeins sé farið að kanna mark- aðinn í Skotlandi og viðbrögðin þar Ný demó-útgáfa af EzC verður sett út á Internetið á næstu vikum. Það forrit verður m.a. upprunaleg Pow- erMac útgáfa sem gerir kleift að skrifa forrit sem nýta sér til fulls hraða og sveigjanleika hinnar nýju PowerMac tölvu. Næsta verkefni Mímis Reynissonar er að búa til Windows-útgáfu af EzC. Fyrsta skrefið í þá átt hefur verið stigið, þ.e. að gera það kleift aö hanna forrit á Macintosh sem síðan geta keyrt undir Windows. Næsta skref yrði að smíða hönnunarumhverfi fyrir Windows. Það verk mun taka upp undir 3 mánuði. Námskeið í EzC í ráði er að kennt verði á EzC forrit- unarumhverfið á námskeiði á vegum Endurmenntunar Háskólans í febrú- ar nk. Námskeiðið hentar öllum þeim sem áhuga hafa á að læra að lofi góðu um framhaldiö. „Við höfum ekki viljað segja of mikið frá því fyrr en málið er komið á stöðugan rekspöl. Það er einfald- lega búiö að vera alltof algengt að menn þykist hafa sigrað heiminn eft- ir að hafa átt nokkur símtöl við út- lendinga. Þaö er ýmislegt skemmti- legt í farvatninu hjá okkur sem er of snemmt að tala um í dag. Það verð- ur kynnt á komandi mánuðum," seg- ir Vilhjálmur. 900-fyrirtæki með þjónustusamning íslensk forritaþróun hf. var stofnuð árið 1983. Bókhaldshugbúnaður á borð við ÓpusAllt hefur verið aöal- framleiðsla fyrirtækisins frá upp- hafi. Af þeim 1400 fyrirtækjum sem nota ÓpusAllt eru um 900 þeirra með þjónustusamning við íslenska for- ritaþróun. Slíkur samningur þýðir í raun áskrift að endurbótum hugbún- aðarins. Um 30 manns starfa hjá fyr- irtækinu sem veltir um 100 milljón- um króna árlega. Mímir Reynisson. búa til nytsamleg forrit með Macin- tosh tölvunni. Nemendur fá eintak af EzC ásamt handbókum til eignar í lok námskeiðsins. Þeir geta því haldiö áfram sköpunarverkinu eftir að námskeiðinu lýkur. Námið miðar að því að nemendur komist að jafnaði það vel af staö með forritun Macintosh á þessu 20 tíma námskeiði að þeir verði sjálfbjarga og einfærir um að halda áfram. Mímir Reynisson með nýtt forritunarumhverfi: Visual EzC fyrir Macintosh tölvur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.