Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						MIDVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995

Fréttir

Stuttarfréttir

Systkini höföa mál gegn föður sínum fyrir ofbeldi og vanrækslu:

Vilja bætur fyrir

barsmíðar og sult

- stakk tekjum sínum undan í tvö ár og sendi til Filippseyja

Þrjú systkini hafa höfðað mál g'egn

föður sínum, sem er með óþekktan

dvalarstað en lögheimili á Filippseyj-

um, fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

Systkinin og móðursystir þeirra

krefjast þess að faðir systkinanna

greiði hverju systkinanna eina millj-

ón króna eða samtals þrjár milljónir

króna í skaðabætur fyrir andlegt og

líkamlegt ofbeldi í allt að einn og

hálfan áratug auk málskostnaðar. í

stefnunni, sem birtist nýlega í Lög-

birtingablaðinu, segir meðal annars

að systkinin hafi mátt þola barsmíð-

ar frá því þau voru lítil, með hnefum,

leöurbelti, brauðbretti og herðatré

og eitt sinn hafi faðirinn brotið disk

á höfði dóttur sinnar.

í Lögbirtingablaðinu kemur fram

að systkinin hafi allt frá unga aldri

og fram á vormánuði 1991, er faðir

þeirra hvarf af heimilinu, mátt þola

líkamlegt harðræði, barsmíðar,

spörk og andlega kúgun af grófasta

tagi á nánast hverjum degi auk þess

sem faðirinn hafi vanrækt með öllu

uppeldis- og framfærsluskyldur sín-

ar. Þessi háttsemi hafi valdið börn-

unum varanlegum andlegum skaða.

Líf barnanna hafi verið samfelld

martröð og ótti við föðurinn gengið

svo langt að þau hafi tekið með sér

barefli eða eggvopn í rúmið á kvöldin

ef til þess kæmi að faðir þeirra réðist

að þeim um miðja nótt.

Faðirinn hélt mat vísvitandi frá

fjölskyldu sinni eða einstökum með-

limum   hennar   í   refsingarskyni.

Stundum var fjárhagur heimihsins

svo bágborinn að móðir barnanna

varð að hafa mat heim með sér af

vinnustað sínum. Árin 1989-1991

lagði faðirinn enga fjármuni til rekst-

urs heimilisins, greiddi ekki lán eða

reikninga og sinnti ekki þörfum

barna sinna. I staðinn yfirfærði hann

í heimildarleysi og án vitneskju ann-

árra fjölskyldumeðhma megnið af

tekjum sínum til Filippseyja.

Móðir barnanna veiktist vorið 1991

og lést haustið 1992. Meðan á veikind-

um hennar stóö sá systurdóttir henn-

ar um heimilið og kostaði fjölskylda

móðurinnar framfærslu barnanna.

Skömmu eftir andlát móðurinnar

haustið 1992 setti faðirinn fram þá

kröfu að frænka barnanna yrði borin

út af heimilinu og hann fengi umráð

hússins. Þetta jafngilti því að bera

börnin sjálf út og þau þar með svipt

heimili sínu, segir í stefnunni, en

börnin sjálf lögðu mikla áherslu á

að vera áfram í húsnæðinu og hafa

frænkuna hjá sér.

í Lögbirtingablaðinu kemur fram

að Barnaverndarráð hefur staðfest

að faðirinn hafi misþyrmt börnum

sínum með barsmíðum. Þau hafi

mátt þola andlegt ofbeldi af hans

hálfu og hann hafi vanrækt uppeldis-

og framfærsluskyldur sínar við þau.

Málið verður tekið fyrir í héraðs-

dómi Reykjavíkur innan nokkurra

vikna.

ITR:

Samningur

viðFákum

Reiðhöllina

íþrótta- og tómstundaráð og

íþróttadeild Faks hafa gert með

sér samstarfssammng um Reið-

hölljna í Víðidal. Sett hefur verið

á fót rekstrarstjórn sem hefur

yfirumsión meö rekstri ReiðhaH-

arinnar og er gert ráð fyrir aö

unnið verði að endurskoðun á

rekstrarfyrirkomulaginu fram til

l. ágúst l996þegar samningurihh

rennurút

SamiðíGarði

Ægir Már Kárasan, DV, Suðurna^vtm:

Samiúngar tókust hjá ríkis-

sáttasemjara aðfaranótt jnánu-

dags á rnilli sjö ófaglærðra fostra

við leikskolann Gefharborg í

Garði og rekstraraðila.

Verkfalhð stóð yfir í tæpa viku,

Orlofsdagar og desemberuppbót

veröa hækkaðar. Verða samfcæri-

leg og þeirra sem yinna sömu

störf á leikskólum namlausa

sveitarfélagsins. Orlofsdagar fara

eftir starfsaldri og verða allt að

27 dögum, Desemberuppbót verð-

ur 28 þúsund en var 13 þúsund.

Launin verða þausömu en þón-

okkrar starfsaldurshækkanir.

Aðsögn Guöjóns Arrigrímsson-

ar, formanns Verkalýðs- og sjó-

mannafelags Gerðahrepps, leyst-

ist verkfallið farsællega. Hann

gerði ráð fyrir að allir væru sátt-

ir viö niðurstððuna.

Geysilegt fannfergi er nú á Vestfjörðum. Allir vegir eru meira og minna ófærir. Nú spáir vel og þá verður tekið til

vlð að hreinsa helstu leiðir. Með batnandi veðri linnir jafnframt snjóflóðahœttunni sem varð til að hundruð urðu

að flýja heimili sín. Myndin er tekin i ófæróinni á ísafirði í gær.                            DV-simamynd Halldór Sveinbjörnsson

Hafnar sæti

Kristín Á. Guðmundsdöttir,

formaður Sjúkralíðafelags %

lands, hefur hafhað boði um að

taka 3. sæti á lista Aiþýöuflokks-

ins í Reykjavík f>Tir komandí al-

þingiskosningar.

Nýr tvð þúsund krána seðill

: veröur fljótlega gefinn út. Á hon-

um verður mynd af Jóhannesi

Kjarval listmálara og verkum

hans.

íslantlsbanki hagnast

íslandsbanki hagnaðist um

184,5 miUjðnir króna á síðasta

ári. Það er 839 milljóna króna

uppsveifla frá árinu 1993 þegar

654 milljóna króna tap varð á

Tekstrinum.

Starfsmaður i Briissel

Ný staða sameiginlegs fulltrúa

iðnaðar- og viðskiptaráöuneytis

ög umhverfisráðuneytis; hefur

: verið stofnuð við sendiráð íslands

í Brussel vegna breyttra að-

stæðna í EFTA,

Skýrr kaupirFerðavaka

Skýrr og FJarhönnuh hafa gert

samningum að Skýrr taki að sér

rekstur Ferðavakans, upplýs-

ingakerfisins sem Fjarhónnun

hefur hannað, sem hér eftir mun

iheita Spurðu Ask.

Magnúsfæf verðlaun

Magnús Guðmundsson kvik-

myndagerðarmaður fékk afhenta

viðurkenningu frá Samtökum

japahskra fréttamanna í Tokyo í

fyrrakvöld. Viðurkenninguna

fékk Magnús fyrir starf sitt að

kyrmíngu á mikilvægi sjálfbærr-

ar hagnýtingar sjávarauðlihda.

Aldrei fleiri skip voru afskráð

én á síðasta ári, alls 183. Sam-

kvæmt Morgunblaðlnu voru á

árinu veittar 811 milhónir króna

í úreldingarstyrki vegna 90 skipa.

Vextirlaíkkaðir

Landsbankinn lækkar í dag

vexti af gengisbundnum afurða-

lánum til sjávarútvegsfyrirtækja

um 1,5 prósentustig aö meöaltali.

Þetta kom fram 1 Mbl.

HættaiKringlunni

Tvær verslanir eru að hætta í

Kringlunni. Samkvæmt Timan-

um eru það Ostabúðin í eigu Osta-

og srajörsölunnar og Heima-

smiðjan í eigu Húsasmiðjunnar.

Viðskipti Reykjavíkurborgar og Skógræktarfélagsins:

Borgin sögð haf a tapað mílljónatugum

í niðurstöðu skýrslu um könnun á

fyrirkomulagi innkaupa Reykjavík-

urborgar á garð- og skógarplöntum,

sem lögð var fram í borgarráði í

gær, kemur fram að borgin hafi tap-

að tugum milljóna króna á því að

kaupa plöntur af Skógræktarfélagi

Reykjavjkur, SR, frá árinu 1950 þar

sem félagið hafi selt borgaryfirvöld-

um plöntur á of háu verði. Þetta hafi

komið í ljós árið 1993 þegar borgin

bauð út innkaup á plöntum. Þá hafi

SR lækkað verð á sínum plöntum.

í skýrslunni, sem unnin er af Ráði

hf. lögfræði- og rekstrarráðgjöf, er

bent á að starfsmenn Skógræktarfé-

lags Reykjavíkur hafi unnið verk

fyrir borgina þar sem félagið hafi

sjálft skipulagt verkin, lagt til allar

plöntur úr eigin gróðrarstöð á verði

sem það hafi sjálft ákveðið. Félagið

hafi ekki greitt eðlilega lóðaleigu fyr-

ir ræktarland á góðum stað í borg-

inni. EftirUti af hálfu borgarinnar

með viðskiptunum við SR hafi verið

áfátt og því enginn á vegum borgar-

innar fylgst með gæðúm og fjölda

þeirra plantna sem greitt hafi verið

fyrir.

Skýrsluhöfundar benda á aö borg-

aryfirvöld hafi um tvennt að velja:

að bjóða út þá þjónustu sem keypt

hafi verið af SR eða leita eftir að

rekstur og eignir Skógræktarfélags-

ins/Fossvogsstöðvarinnar hf. verði

gerð að borgarfyrirtæki. Skýrsluhöf-

undar mæla með fyrri kostinum og

Ingihjörg Sólrún Gísladóttir borgar-

stjóri hefur lýst yfir að hún telji síð-

ari kostinn ekki fýsilegan.

Þú getur svaraö þessari

spurningu meO því aö

hringja í síma 99-16-00.

39,90 kr. minútan.

Nel    ^2j

r o d ú

FOLKSINS

99-16-00

Á Akureyrarbær að selja

hlutabréf sín í ÚA?

¦

Alllr i ttafrana kerflnu meft ténvalnínr geta nýtt »éf þota þJ6nu»tu

Borgarstjóri og borgarfulltrúar:

Lækka laun sín um 5 prósent

Borgarráð hefur ákveðið að

lækka þóknun borgarfulltrúa og

laun borgarsrjóra um fimm prósent

til að leggja sitt af mörkum til að

ná 260 milljóna króna sparnaði í

rekstri borgarinnar. Þetta var sam-

þykkt samhljóða á borgarráðsfundi

í gær og þýðir að kjörnir fulltrúar

leggja eina milljón af mörkum í

sparnað á vegum borgarinnar.

Þriggja manna nefnd hefur verið

skipuð til að vinna tillögur að auk-

inni hagkvæmni í rekstri borgar-

innar og móta reglur um það

hvernig staðið skuli að útboöum

og samskiptum fyrirtækja og stofh-

ana borgarinnar. í nefndinni sitja:

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Gunn-

ar Gissurarson og Alfreð Þor-

steinsson borgarfulltrúar.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32