MIDVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995 Fréttir Ágreiningur meirihluta bæjarstjórnar í ÚA-málinu: Verður stjórn Ú A notuð sem bjarghringur? - mikill ágreiningur einnig innan Alþýðubandalagsins Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Sölumál Útgerðarfélags Akur- eyringa hf. og það hvort flytja skuli afurðaviðskipti ÚA frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna til íslenskra sjáv- arafurða hf. skýrðust ekkert effcir mikil fundahöld í gærdag og fram á nótt og eru í harðari hnút en áður. Meirihlutinn í bæjarsrjórn riðar til falls og mikill ágreiningur er innan Alþýðubandalagsins sem er í lykil- stöðu í málinu. Það nýjasta er að svo gæti farið að ákvarðanatöku verði vísað til stjórnar ÚA þar sem SH- viðskiptin hafa meirihlutafylgi, en það gæti mikið gengið á áður en til slíks kæmi. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði í samtali við DV seint í gærkvöldi að meirihlutinn í bæjarsrjórn verði að geta verið samstiga í því að verja þá ákvörðun sem tekin verður í sölu- málum Útgerðarfélagsins. Það er ljóst að hvort sem SH heldur við- skiptum sínum með afurðir ÚA eða þau viðskipti verða flutt til íslenskra sjávarafurða hf. er málið svo mikið hitamál á Akureyri að samhentan meirihluta þarf í bæjarstjórn til að verja þá ákvörðun sem tekin verður. Erfitt fyrir meirihlutann" Það verður erfitt fyrir meirihlut- ann," var svar Jakobs við þeirri spurningu hvort Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur, sem eru í meiri- hluta í bæjarstjórn, geti varið endan- lega ákvörðun, standi þessir flokkar ekki sameiginlega að henni. En við framsóknarmenn höfum ekki gefið út afstöðu okkar í málinu og ég get ekki rætt framhaldið án þess að ræða við bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins og fá botn í málið," sagði bæjarstjórinn í gærkvöldi. Kratarnir ákveðnir Þótt Ijóst sé að meirihlutaflokkarn- ir í bæjarstjórn hafi skýra stöðu í málinu, Framsóknarflokkurinn með viðskiptum ÚA við íslenskar sjávar- afurðir hf. og Alþýðuflokkurinn með áframhaldandi viðskiptum við Sölu- miðstöðina, fást oddvitar flokkanna alls ekki til að tjá hana berum orðum. Afstaða okkar hefur ekkert breyst. Hagsmunir Útgerðarfélagsins skipta öllu máli í þessu sambandi og við gerum ekkert upp á milli atvinnutil- boða SH og ÍS. Það eru hagsmunir ÚA sem ráða en ég gef ekkert upp hvorum megin þeir liggja," sagði Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Alþýðuílokksins, eftir fjölmennan kratafund í gærkvöldi þar sem menn Fréttaljós rvoru samstiga um að styðja áfram- haldandi viðskipti við SH. Ég er ekkert farinn að sjá að meirihlutinn í bæjarstjórn falli vegna þessa máls. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu þótt meirihlutaflokk- arnir taki misvísandi afstöðu til sölu- mála ÚA að það verði skoðað hvort þeir géti ekki áfram myndaö meiri- hluta í bæjarsrjóminni. Menn geta haft á því mismunandi skoðanir hvar hagsmunir ÚA liggja," sagði Gísli Bragi. Alþýðubandalag í vanda Alþýðubandalagið hélt fjölmennan fund í gærkvöldi þar sem taka átti ákvörðun i málinu og þar kom í ljós mikill ágreiningur. Sigríður Stefáns- dóttir, oddviti flokksins í bæjar- stjórn, sagði eftir fundinn að vegna þess hversu seint skýrsla Nýsis hf. um málið hafi borist hafi fundurinn fyrst og fremst verið kynningarfund- ur fyrir bæjarmálaráð fiokksins. Það var fjörug umræða á fundinum og alls kyns skoðanir og spurningar komu fram. Við skipuðum hóp til að Oddvitar meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akureyrar voru brosmildir í gær meö skýrslur ráogjafa sinna i ÚA-málinu í höndunum. Jakob Björnsson bæjarstjóri og Gisli Bragi Hjartarson eru hins vegar á öndverðum meiði í ÚA-málinu og meirihlutasamstarf þeirra er í hættu. DV-simamynd gk vinna í málinu og höldum síðan ann- an fund annað kvöld," sagði Sigríður í gærkvöldi. Þeir sem DV ræddi við eftir fund Alþýöubandalagsins sögðu að skoö- un Sigríðar væri nokkuð skýr, hún styddi áframhaldandi viðskipti ÚA við Sölumiðstöðina. Það stangast á við yfirlýsingu Heimis Ingimarsson- ar, hins bæjarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins sem hann setti fram í DV í síðustu viku að ef ÍS flytti alla starf- semi sína til Akureyrar væri tilboð ÍS miklu betra en tilboð SH. Skoðanir oftúlkaðar! Þessar skoðanir Heimis hafa verið oftúlkaðar vegna þess að þegar hann setti sitt mat fram var hann að meta tilboðin en ekki málið þegar hags- munir ÚA eru komnir inn," sagði Sigríður. Þegar DV hafði samband við Heimi í gærkvöldi og spurði hann hvort afstaða hans hefði breyst, var svarið stutt: Ég gef ekkert com- ment" á það núna," og sleit samtal- inu. Ég býst við því en það er ekki komið á hreint," sagði Sigríður þegar hún var spurð hvort hún og Heimir myndu ná saman í málinu, en sagði að áhersla yrði lögð á að ná sameigin- legri niðurstööu í flokknum. Sigríður í framboði Ahrifamaður í Alþýðubandalaginu sagði fyrir funuinn í gær_að það væri hið versta mál ef Sigríður hallaðist að SH í þessu máli, flokkurinn gæti bara ekki fariðví kosningabaráttu með haha í 3. sæti framboðslistans vegna alþingiskosninganna ef hún greiddi SH atkvæði sitt. Ekki hefur verið rætt við Sigríði um að gefa eft- ir sæti sitt á framboðslistanum standi hún fóst á að styöja viöskipti ÚA við Sölumiðstöðina, en undirald- an í flokknum er mikil pessa dagana. Stjórn ÚA bjarghringurinn? Það er ekki erfitt að sjá að allt er málið hið flóknasta og virðist flækj- ast meira og meira með hverjum deginum sem líður án þess að ákvörðun sé tekin. Eitt af því sem rætt hefur verið er að vísa ákvarð- anatöku í því til stjórnar ÚA og það gæti reyndar orðið bjarghringur meirihlutans í bæjarstjórn. Stjórn ÚA sem kjörin var fyrir síðustu kosningar til bæjarstjórnar skipa fimm menn og þykir afstaða þeirra ljós. Sverrir Leósson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, hefur lýst yfir stuðningi við IS-viðskipti ÚA, Sig- urður Jóhannesson, fulltrúi Fram- sóknarflokks, myndi greiða atkvæði með ÍS. Halldór Jónsson, fyrrum bæjarstjóri og fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjórn, myndi greiða atkvæði með SH-viðskiptum, einnig kratinn Pétur Bjarnason og fullvíst þykir að alþýðubandalagsfulltrúinn Erlingur Sigurðarson, sem reyndar er eiginmaður Sigríðar Stefánsdótt- ur, geri það einnig. Sú hugsanlega lausn að vísa mál- inu til stjórnar ÚA getur ekki bara leyst ~vanda meirihlutans í bæjar- stjórn, hún gæti einnig komið í veg fyrir að til uppgjörs þurfi að koma í Alþýðubandalaginu vegna þessa stórmáls. Það er hins vegar trúlegt að eftir að hafa velt þessu máli á undan sér myndi bæjarstjórn Akur- eyrar setja niður yrði sú leið farin. Engin tímaáætlun Bæjaryfirvöld virðast reka málið frá degi til dags. Áform sem uppi voru um að halda fund í bæjarráði í dag hafa verið sett til hliðar og bæjar- ráðsfundur verður á venjulegum tíma á morgun. Þá hefur ekki veriö boðað til aukafundar í bæjarstjórn eins og gera þarf með tveggja daga fyrirvara. Það virðist því sem menn ætli sér að leika hægt í þessu máli og sennilega verður það ekki fyrr en á þriðjudag á reglulegum fundi bæj- arstjórnar sem eitthvað stórt gerist, hvort sem þar verður tekin ákvörðun um afurðasölumál ÚA eða ákvarð- anatöku verður vísað til stjórnar ÚA. I dag mælir Dagfari Skrattinn les Biblíuna Vestfirskir frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins hafa lagt fram nýja stefnu í sjávarútvegsmálum. Hún, hefur ekki falliö í kramið hjá Þór-, steini Pálssyni sjávarútvegsráð- herra. Vestfirðingarnir segja að Þorsteinn lesi tillögur þeirra eins og skrattinn lesi Bibliuna. Sömu sögu er að segja af Krisrjáni Ragn- arssyni. Hann heldur að Vestfirð- ingarnir séu bilaðir. Halldór Ásgrimsson hefur látið þau orð falla að Sjálfstæðisflokkur- inn dæmi sjálfan sig úr leik, hafi menn slíkar skoðanir á oddinum. Halldór segist ekki vflja mynda rík- isstjórn með svona mönnum. (Ekki er þó vitað til þess að þeir hafi beð- ið Halldór um að mynda ríkisstjórn meö sér.) Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, hafði ekki lesið til- lögur Vestfirðinganna, síðast þegar til hans náðist. Davíö hefur ekki tíma til að lesa allt og hefur alls ekki tíma til að lesa það sem menn vUja segja um stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Það mætir afgangi, enda segir Davíð að menn séu hvort sem er alltaf að hafa margvíslegar skoð-. anir og þeir hafi rétt á því. Umburð- arlyndur maður, Dávíð, og telur það skaðlaust fyrir sig að ræða við Vestfirðingana um skoðanir þeirra. Davíð hefur sem sagt ákveðið að hálda uppi stjórnmálasambandi við Vestfiröi með því að spjalla við Vestfirðingana - um stefnu Sjálf- stæðisflókksins þegar hann má vera að. Vestfirsku sjálfstæðismennirnir vilja sóknarmark í veiðarnar. Þeir nefna ekki hámarksaflamark en taka fram í opnu bréfi til Sjálfstæð- isflokksins og fulltrúa skrartans í flokknum að það gefi augaleið að þeir vilji aflahámark, þótt þeir nefni það ekki í tillögum sínum. Menn geti varla verið svo vitlausir að halda að þeir vilji ekki aflahá- mark þótt þeir stingi ekki upp á því. Menn verða að lesa það út úr tillögunum sem ekki stendur í þeim og það er kannski þess vegna sem Davíð hefur ekki enn unnist tími til að lesa tillögurnar því það stend- ur svo margt í þeim sem ekki stend- ur í þeim. Þorsteinn Pálsson flaskar á þessu. Hann les tillögurnar án þess að lesa það sem ekki stendur í þeim og skilur þess vegna ekki tillögurn- ar því hann heldur að það sem stendur í þeim sé það eina sem standi í þeim. Þetta er að lesa Bibl- íuna eins og skrattinn, segja Vest- firðingarnir um Þorstein, því hann á vitaskuld að skflja tillögurnar eins og þær eru lagðar fram meö þeim texta sem ekki er í tillögunum því það er einmitt það sem Vestfirð- ingarnir eru að tala um. Enginn þarf að halda að Vestfirð- ingar vilji ekki aflahámark. Þeir. fagna því reyndar mjög að and- stæöingar þeirra benda á að það vanti aflahamark, vegna þess að það er akkúrat það sem þeir vilja og þess vegna sleppa þeir að tala um það í tillögum sínum. Þeir segja að með kvótakerfinu náist ekki aflahámark því umfram fiskinum sé fleygt. Þorsteinn Pálsson segir að meö sóknarstýringu verði fisk- inum lika fleygt en þessu fagna Vestfirðingarnir mjög vegna þess að með sóknarstýringu er flskinum fleygt með öðrum hætti heldur en í kvótakerfinu. Það fæst meiri stýr- ing á því hvernig fiskinum er fleygt. Það segja þeir að sjáist í gegnum gervihnetti. Um þetta munu sjálfstæðismenn deila á næstunni, enda eykur þetta frekar á ósætti innan flokksins, segir Þorsteinn, og það er skað- laust, segir Davíð, og Vestfirðing- arnir fagna þessari umræðu því í rauninni beri ekkert í milli nema þetta með hámarksaflann og þar sem enginn ágreiningur er um há- marksafla, ættu menn að geta náð sáttum áöur en yfir lýkur. Það er satt að segja ánægjulegt að fylgjast með því hvað sjálfstæð- ismenn eru sammála um að vera ósammála um það sem er ekki einkamál þeirra og alls ekki einka- mál Vestfirðinga, hvað þá Sjálf- stæðisflokksins, og einmitt af því að Sjálfstæðisflokkurinn er að fara í kosningar og hefur mismunandi stefnu í hverju kjördæmi fyrir sig, eru líkur á því að flokkurinn nái langt í skaðlausum deilum inn- byrðis sem skapar honum há- marksafla í atkvæðum. Hámarks- afli er í rauninni það sem allir vilja, eftir því hvernig skrattinn les Bibl- íuna og í samræmi við þær mis- munandi stefnur sem flokkurinn hefur. Dagfari