Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995

Stuttarfréttir

Uflönd

Framlögtakmörkuð

MeMhluti alþjóöanefhdar

Bandaríkjaþings ákvaö að tak-

marka framlög öl friðargæslu á

vegum SÞ.

Hrun yf irvof andí

Hrun á fiskistofnum Kanada í

Kyrrahafinu er yfirvofandi.

HetíanClinton

Bill  Cluiton,

forseö  Banda-

ríkjanna, varð,

hetja í augum:

Mexíkómanna

á svipstundu í

gærþegarhann

sniðgekk   þing;

sitt   og   lagði

fram áætlun um aðstoö við Mex-

íkó.

Verðbréfupp

Verðbréf í Mexikó hækkuðu

verulega í verði viö fréttir af að-

stoð Clintons.

SÞfordæma

Öryggisráð SÞ fordæmdi akall

um að steypa samsteypustjórn

Búrúndí af stoli vegna ótta við

þjóðarmorð.

Viðræðumfrestað

Sáttasemjarar í innanlandsá-

tökunum í Láberíu hafa frestað

friðarviðræðum um óákveðinn

tíma.

Gröf Alexanders

Fundnar eru þrjár steintöfiur

sem kunna að geta leyst deilur

manna um gröf Aiexanders

mikla.

Garyíútvarpið

Gary    Hart, j

fyrruni      öld-:;

ungadeildar-     j

þingmaður   ogl

forsetafram-     |

bjððandi

véstra, byrjar í

nýrri vinnu á

sunnudag þeg-

ar fyrsta samtaisþætö hans verð-

ur útvarpað til 38 fyJkja.

Konaundirstýri

Eileen Collins veröur fyrsta

konan til að stýra bandarískri

geimskutlu.

Kanarskammaðir

Bandaríkjamenn sæta gagn-

rýhi mannréttmdasamtaka fyrir

theðferð sína á kúbverskum

flóttaráönnum.

Alnæmidrepurogdrepur

AÍnæmi ér nú algengasta bana-

mein Bandaríkjamanna á aldrín-

um 25 til 44 ára og breiðist smit

hraðast út meöal kvenna og

minnihlutahópa.

Sossarívanda

Franskh sósialistar þurftu að

veðsetja höfuðstöðvar sínar til að

geta fengið bahkalání

Utillöndmikilvæg

Roraan

Herzog, forseti

Þýskalands,

telur að mikil-

vægi       Mlia

landa í ESB sé

mikið og muni

aukast á næst-

unnienhanner'

í             heira

sókn í Danmörku.

Olíubornirfuglar

Sjófuglar eru útataðir í olíu ogí

margir dauðír í sjónum fyrir utah

yupghusen við Malraa í Svíþjoö.

övfater hvaðan olían kemur.

Hjálpræðisutnefning

H|álpraaðisherinn hefur aftur

verið útnefhdur tii friðarverð-:

launa Nóbels. Fulltrui kristilega:;

þjóðarfiokksins í Noregi sá til

bess.        8«ttter,TT,NTB,Rit!au

Verdens Gang býður Jóni Baldvin til „eldhúsviðræðna" um Smuguna:

Sagðíst semja um allt

yf ir f lösku af ákavíti

- samningar tókust þó ekki og Jón kvað Norðmennina í kútinn

Gisli Kristjáiisson, DV, Ósló:

„Þegar Norðmenn koma með slíkar

gjafir er ég til í að semja um hvað

sem er. Líka Smuguna," sagði Jón

Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-

herra í léttum tón þegar útsendarar

norska blaðsins Verdens Gang heim-

sóttu hann um síöustu helgi vopnað-

ir flösku af ákavíti og buðu til samn-

ingaviðræðna um deilur íslendinga

og Norðmanna í eldhúsi Jóns Bald-

vins á Vesturgötunni.

Viðræðum lauk svo að blaðamaður

ráfaði út í nóttina með ljósmyndara

sínum og varð að viðurkenna að

samkomulag var jafnfjarri og áður.

Norðmönnunum þótti hins vegar lík-

legt að íbúar Norður-Noregs hefðu

sagt já í þjóðaratkvæðagreiðslunni

um ESB-aðild ef Norðmenn hefðu

haft Jón Baldvin sem sjávarútvegs-

ráðherra.

Jón lofar Norðmönnum því að

Smuguveiðar haldi áfram í vor.

Hann sendir og Gro Harlem Brundt-

land kveðju og vitnar til orða hennar

um að rödd íslands sé nú bara eins

og músartíst úti í hafsauga. „Músin

er búin að éta 50 þúsund tonn af

Smugufiski og hún er ekki södd

enn," sagði Jón.

Greinin í Verdens Gang er öll á

léttu nótunum. Jóm' er lýst sem bráð-

skörpum manni og fyndnum. Hann

reytir af sér brandarana og hefur auk

Norðmönnum þykir líklegt að íbúar

Norður-Noregs hefðu sagt já við

ESB-aðild ef Jón Baldvin hefði verið

sjávarútvegsráðherra þeirra.

þess sögu íslands og Noregs í 1000

ár á reiðum höndum. Þá á hann það

til að bregða fyrir sig háði í ummæl-

um um Norðmenn.

Frásögnin af „eldhúsviðræðunum"

yið Jón Baldvin tekur yfir heila opnu

í blaðinu. Bryndís Schram var einnig

viðstödd og „minmr mann sinn á

ártól og nöfn" þegar á þarf að halda.

Greinin er hluti af röð greina um

framtíð Noregs eftir ESB-nehð og Jón

Baldvin er heimsóttur sem helsti

bandamaður Norðmanna. í hhðar-

grein er vitnað til Thorvalds Stolten-

bergs og Snorra Sturlusonar unr

sambúð þjóðanna.

Rússneskur hermaður leitar vars undan skothríð leyniskyttna Tsjetsjena í rústum eins hússins i höfuðborginni Grosní. Borgin er nú nánast rústir einar.

Rússnesku hersveitirnar gerðu harðar árásir á lykilstaði Tsjetsjena í gær en vígstaða þeirra virðist samt í engu batna við það.                            Simamynd Reuter

Friðrik, krónprins Danmerkur, til fyrirmyndar:

Fyrsti háskólaborgarí

konungsfjölskyldunnar

Friðrik, krónprins Danmerkur, út-

skrifast í næstu viku sem stjórn-

málafræðingur frá Háskólanum í

Árósum eftir fimm ára nám. Prins-

inn, sem er orðinn 26 ára gamall, ber

þá gráðuna cand. scient. pol. og verð-

ur þar með sá fyrsti í sinni fjölskyldu

sem lýkur háskólaprófi. í upphafi var

hugmyndin sú að Friðrik tæki eitt

og eitt fag við hinar ýmsu deildir

Árósaháskóla en síðan fékk hann svo

mikinn áhuga á stjórnmálafræðinni

að hann ákvað að einbeita sér aö

henni. JMámið á að taka fimm ár og

lauk Friðrik því á tílsettum tíma.

Það þykir vel af sér vikið hjá prins-

inum því hann hefur meðfram nám-

inu þurft aö sinna ýmsum skyldu-

störfum krónprinsins. Hann naut

engra forréttinda í skólanum og

vakti það strax mikla athygh hversu

alþýðlegur hann var og eignaðist

hann fjöldann ahan af vinum í Árós-

um. Nokkrir íslendingar hafa sótt

tíma með prinsinum og bera þeh

honum söguna vel,

Friðrik útskrifaðist með góðar

einkunnir en hann var einnig skipti-

Friðrik, krónprins Danmerkur.

nemi við Harvard-háskóla á náms-

tímanum. Móðir hans, Margrét Þór-

hilduí Danadrottning, var einnig við

nám í Árósum á sínum tíma en hún

lauk ekki prófi. Hún mun verða við-

stödd útskrift sonarins í næstu viku

ásamt Hinrik prins, manni sínum.

Ritzau

Réttarhöldin yflr O. J. Simpson:

Svaf hjá þjónustupíuniti

og lúbarði eiginkonuna

Iþróttahetjan, kvikmyndaleikar-

inn og fjölmiðlungurinn O.J. Simp-

son lúbarði fyrrum eiginkonu sína,

Nicole, og hótaði að drepa hana

þegar þau rifust heiftarlega, einu

sinni sem oftar, á árinu 1989. Nic-

ole var mjóg hrædd um líf sitt. Rifr-

ildið upphófst vegna þess aö O.J.

hafði sofið hjá einni af þjónustu-

stúlkum þeirra hjóna á heimih

þeirra. Þetta kom fram þegar lög-

reglumaður bar vitm' í réttarhöld-

unum í gær.

Lögreglumaður þessi, John Edw-

ards, var kvaddur á vetrvang á

heimih hjónanna 1. janúar 1989 eft-

ir að Nicole haföi hringt á hjálp.

Þegar lögreglumennirnir komu var

Nicole á barmi taugaáfalls og hróp-

aði stöðugt: „Hann ætlar að drepa

mig". Nicole sagði lögreglumann-

inum að ástæða rifrildisins væri sú

að 0. J. hefði haft samfarir við þjón-

ustustúlkuna rétt áður en hiann

skreið svo upp í hjá Nicole.

Einn af lógmönnunum í stjörnu-

hði verjenda Simpsons fór hins

O.J. Simpson hótaði margsinnis

að drepa Nicole, eiginkonu sína. I

/

vegar Ula með Edwards þegar hann

loks fékk aö spyrja. Edwards varð

þá tvísaga um sumt og lögmaöur-

inn hafði mikið út á það að setja

að Edwards skyldi aðeins hafa yfir-

heyrt O.J. og Nicole vegna málsins

en ekkert af starfsfólki hússins.

Reuter

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32