46 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 Sviðsljós Jessica Lange: Fyrrverandi hippi og flakkaði víða Jessica Lange, sem hlaut óskars- verölaunin sem besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Blue Sky, er 45 ára og þriggja barna móöir. Jessica er gift leikritahöfundinum og leikaranum Sam Shepard sem er 51 árs. Hún segist aldrei hafa hitt manneskju með jafn spennandi hugsanagang og Sam. Hann sé einnig meö mjög óvenjulegan húmor og hafi verið henni hrein ráðgáta þegar þau hittust. Hún kveðst verða hrifn- ari og hrifnari af eiginmanninum eftir því sem árin líða. Jessica ólst upp í Minnesota í Bandaríkjunum og voru foreldrar hennar af flnnskum og pólskum ætt- um. Hún flutti að heiman 1968 og gerðist hippi og flakkaði víða, til Suð- ur-Ameríku, Evrópu, New York, Ka- liforníu og Mexíkó. Núna hefur hún búið í Virginíu í m'u ár og finnst það undarlegt að hafa verið svo lengi á sama stað. Hún segir það ekki bein- línis eiga við sig og hefur loksins fengið Sam og börnin til að sam- þykkja að flytja aftur til Minnesota. Hún bjó um skeið í Evrópu og ætl- aði aldrei að koma aftur til Banda- ríkjanna af pólítiskum ástæðum. Þegar farið var að þjarma að Nixon kom hún aftur því hana langaði til að fylgjast með. Það var þegar Water- gatemálið stóð sem hæst. Jessica sagði nýlega í blaðaviðtali að það kæmi fyrir sig stöku sinnum þegar hún gengi eftir götu og sæi spegilmynd af sjálfri sér í verslunar- glugga að sér fyndist hún orðin göm- ul. Henni þykir erfitt að eldast og hefur verið að velta því fyrir sér hvort hún eigi að fara í andlitslyft- ingu. Sam er hins vegar algjörlega mótfallinn því að því er Jessica greinir frá. Hún þykir alvarleg og jafnvel stundum döpur. Hún telur sig dapra að eðlisfari og það sé ef tíl vill þess vegna sem hún sækist eftir hlutverk- um þar sem persónurnar syrgi eitt- hvað sem þær vita jafnvel ekki hvað er. Jessica með Baryshnikov og dóttur þeirra, Alexöndru, sem nú er 14 ára. Yngri börn Jessicu eru Hannah, 9 ára, og Walker, 7 ára. Jessica Lange er af finnskum og pólskum ættum. Jessica ásamt eiginmanni sínum, Sam Shepard. Systurnar Jackie og Lee: Börðust um hylli skipakóngsins ^juíJf***^:-- -Jfl "* ' \ wu ^^HHP^HP' \\m H Mfcnií WBEjáfí ' "^ílff1'''í P-llfc ^''^íéÉH'' r^^Bi Jackie Onassis. Lee Radziwill. Jackie Kennedy, fyrrverandi for- setafrú Bandaríkjanna, og systir hennar, Lee Radziwill, háðu harða baráttu um hylli skipakóngsins Ar- istotelesar Onassis. Þetta fullyrðir rithöfundurinn Diana DuBois í nýú- kqminni bók sinni um líf Lee. í bókinni kemur fram að Lee hafi átt í ástarsambandi við gríska skipa- kónginn á undan Jackie. Lee var þá gift pólska prinsinum Stanislaw Radziwill en ætlaði að skilja við hann. Áætlanir hennar fóru hins vegar út um þúfur þegar Jackie kom til skjalanna. Reyndar var það Lee sjálf sem kynnti Jackie og Onassis á lysti- snekkju hans. Lee á seinna að hafa hringt til rit- höfundarins Trumans Capotes og öskrað í símann þegar Jackie og Onassis voru farin að draga sig sam- an: Hvernig gat hún gert mér þetta? Hvernig gat þetta gerst?" Lee hélt að hún væri búin að negla Onassis. Hún var ekki ástfangin af honum en hún hafði áhuga á öllum skipunum hans," sagði Capote seinna. Jackie, sem lést í maí síöastliðnum, giftist Onassis 1968. Hjónabandið olli vonbrigðum margra Bandaríkja- manna sem höfðu dýrkaö hana og dáð. Þeir töldu að hún hefði einungis gifst Onassis peninganna vegna. Ólyginn sagði . ... að kvikmyndaleikkonan Glenn Close ætlaói að gifta sig í þriöja sinn. Hún kynntist hinum heittelskaða, Steve Beers, við uppsetn ingu á söngteiknum Sun- setBouievard á Brpadway. Glenn leikur þar stórt hlutverk en Steve gerði lelkmyndlna. ; ... að súperfyrirsætan og lesb- ian Rachel Williams tti von á barni meó kærasta Naomi Campbells, Eric Goode, sem er veitingahússeigandi i New York. Ekki eru nema nokkrar vikur sið- an Rachel lýsti yfir ást sinni á pönksöngkonunni Alice Temple. ... að Tiffany Trump, 16 mánaóa dóttir Mörlu og Donalds Trump, væri þegar farin að taka þátt i samkvæmislifinu. Sú stutta mætti á tískusýningu á dögunum með móður sinni og gættu henn- ar fjórir lifverðir. ..,,að leikkonan Pam Ferris væri orðin leið á þvl að leika húsmóður f sjónvarpsmynda- flokknum Mrs. Hartley and the Growth Centre. Hún dansar nú hálfnakin í sjónvarpsþætti með ástfanginn ungling við hlið sér. ... að Viktoria Sviaprinsessa hefði leikið á Ijósmyndara sem elta hana hvert sem hún fer. Hún gerði sér svo dætt við bekkjar- bróður sinn á skíðaferðalagi að Ijósmyndarar héldu að hann væri nýi kærastinn hennar. Stráksi, sem tók þátt í leik prins- ossunnar, er hins vegar kærasti vinkonu hennar.