Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995 3 Dagvist bama stendur 1 stórframkvæmdum á þessu ári: Framkvæmdir haf nar við þrjá leikskóla - og undirbúningur við þann flórða þegar haíinn Framkvæmdir eru hafnar við þrjá nýja fjögurra deilda leikskóla í Reykjavík á þessu ári og undirbún- ingur að byggingu þessa fjórða er þegar hafinn. Þá er verið að undirbúa viðbyggingu við fimm gamla leik- skóla og endurbætur á tveimur göml- um leikskólum ýmist þegar hafnar eða eru í bígerð. Stefnt er að því aö öll þriggja, fjögurra og flmm ára börn hafi fengið leikskólapláss í lok ársins eða snemma á næsta ári. Framkvæmdir eru hafnar við fjög- urra deilda leikskóla við Laufrima í Grafarvogi og er þegar búið að grafa grunninn. Leikskólinn rúmar 80 börn samtímis og er stefnt að því að opna hann fyrir næstu áramót. Aug- lýst hefur verið samkeppni um nafn á skólann meðal íbúa. Útboð er að fara í gang vegna bygg- ingar fjögurra deilda leikskóla við Gullteig og er stefnt að því að opna skólann fyrri hluta næsta árs. Þá eru framkvæmdir að hefjast við leik- skóla stúdenta við Eggertsgötu. Leik- skólinn verður þriggja deilda skóli og rúmast þar 60 börn samtimis þeg- ar hann tekur til starfa næsta sumar. Grenndarkynning er í gangi vegna byggingar fjögurra deilda leikskóla við Hólmgarð í Bústaðahverfi. Stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist þar síöla ársins. Þá hefur verið ákveðiö að byggja eina deild við fimm gamla leikskóla í borginni og er stefnt að því að þeim verði lokið í lok ársins. Leikskólarn- ir sem um ræðir eru: Gullborg, Brekkuborg, Heiðarborg, Sæborg og Sólborg. Verið er að ljúka við viðbyggingu við Árborg og endurbætur verða unnar á Kvistaborg og Drafnarborg þannig að þessir tveir leikskólar geti tekið við börnum i heilsdagsvistun. Bergur Felixson, forstöðumaður Dagvistar barna, segir að endurbæt- urnar felist einkum í bættri eldhús- aðstöðu, aukinni vinnuaöstöðu fyrir börnin og fundaherbergi fyrir starfs- fólkið. Samkvæmt fjárhagsáætiun er gert ráð fyrir því að 453 milljónir króna fari í framkvæmdir við leikskóla á vegum Dagvistar barna á þessu ári. 229 milljónir fara í nýbyggingarnar og um 200 milljónir fara í viðbygging- ar og endurbætur. Fljótlega verður auglýst meðal arkitekta samkeppni um hönnun á viðbyggingunum og verður valið í lokaða samkeppni út frá því. -GHS Fréttir Héraðsdómur: Kúabóndi vinnur mál gegn ríkinu Héraðsdómur Reykjavíkur felldi nýverið dóm í máli sem Þórður M. Sigurjónsson, bóndi í Holtahreppi, höföaði gegn land- búnaðarráðherra og fjármálaráð- herra. Talið er aö dómurinn geti haft fordæmisgildi fyrir bændur sem seldu fullviröisrétt i mjókur- framleiðslu á því tímabili sem dómurinn tekur til. Tildrög málsins voru þau aö haustið 1991 seldi Þórður 85 þús- und lítra mjókurkvóta en varð síðar að sæta bótalausri skerð- ingu á fimmtur.gi kvótans. Niður- staða Héraðsdóms var sú að skerðing kvótans hefði ekki átt sér stoð í lögum. í dómsorðum er ríkissjóði gert að greiða Þórði ríf- lega 1,4 miUjónir, auk dráttar- vaxta, og málskostnað. -kaa Allt er nú á fullu við endurnýjun hafskipabryggjunnar í Stykkishólmi. DV-mynd Arnheiður Sjúklingur fékk ekki að kjósa á spítala: Fylgdum settum reglum - segir Rúnar Guðjónsson sýslumaður „Við vorum að fylgja þeim reglum sem okkur eru settar og byggðar eru á kosningalögum. Það er svo spum- ing hvort þetta sé gat í kerfmu og lögin þurfi endurskoðunar við,“ seg- ir Rúnar Guðjónsson, sýslumaður í Reykjavík, vegna fréttar DV af sjúkl- ingi á Borgarspítalanum sem ekki fékk að kjósa innan spítalans vegna þess að kjörstofu þar var lokað rúmri viku fyrir kosningar. Rúnar segir að leiðbeiningarreglur dómsmálaráðuneytisins varðandi utankjörstaðakosningar, byggðar á 63. grein kosningalaganna, séu alveg skýrar hvað þetta atriði varðar. „í þeim segir m.a. að ákvörðun um utankjörstaðarkosningu skub tekin eigi síðar en sjö dögum fyrir kjördag og auglýsing um þaö birt innan hlut- aðeigandi stofnunnar. Það var farið eftir þessum reglum og kosningar innan sjúkrastofnana fóru fram um og innan við viku fyrir kjördag," seg- ir Rúnar. Hann segir erfitt aö komast hjá því við kosningar að einhverjir verði fyr- ir barðinu á reglunum. „Ef á að sjá við því að hver sjúklingur sem leggsN inn á spítala fram á kjördag fái aö kjósa verður að breyta kerfinu. Það getur stundum veriö erfitt að full- nægja öllu réttlæti en við fórum eftir lögunum og gerðum okkar besta í því að allir fengju að kjósa sem óskuðu eftirþví." -rt Sjöundi hver nemandi hætti Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii; Tuttugu og fimm nemendur af 175 nemendum við Framhaldsskólann á Húsavík hafa ekki snúið aftur til náms að loknu verkfalb kennara. Sömu sögu er að segja um nokkra aðra framhaldsskóla á landinu og af um 700 nemendum Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi munu um 100 nemendur af um 700 hafa hætt námi vegna verkfabsins. Birkir Þorkelsson, skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík, segir að semúlega séu meginástæður þessa „mannfabs“ í hans skóla tvær. Ann- ars vegar sé um það að ræða að nem- endur hafi ráðið sig í vinnu meðan verkfalhð stóð yfir og hafi tabð þá vinnu trygga tb haustsins. Hins veg- ar sé um að ræða nemendur sem hafi tabð sig standa tæpt varðandi námið og hafi ekki mátt við því áfalh sem verkfalbð var þeim. „Þetta horfir öðruvísi við nemend- um í þeim skólum sem hafa áfanga- kerfi en þeim skólum þar sem bekkjakerfið er. í áfangaskólunum tapa nemendur ekki nema einni önn eða hálfum vetri með því að haétta námi en hjá hinum er veturinn allur ónýtur. Það er því áberandi að í skól- unum sem notast við áfangakerfið hafa mun íleiri hætt en í hinum skól- unum. Það er hins vegar áberandi að nemendur sem hafa hætt námi vegna verkfallsins virðast langflestir ætla að taka upp þráöinn að nýju í haust," segir Birkir Þorkelsson. Stykkishólmur: Hafskipabryggjan endurnýjuö Amheiöor Ólafedóttir, DV, Stykldshólmi: Hafskipabryggjan hér í Stykkis- hólmi er komin til ára sinna og því ákveðið að endurnýja hana. Verkið var boðið út og buðu sjö aðilar í það. Byggingarfélagiö Stapar í Mos- fellsbæ hlaut verkið fyrir 15 millj. króna. Framkvæmdir eru þegar hafnar og er áætlað að ljúka verkinu um mánaðamótin júlí-ágúst í sumar. Þetta eru ekki einu framkvæmd- irnar í höfninni því bæjarstarfsmenn voru aö setja niður flotbryggju i fjór- um einingum fyrir smábáta. Smá- bátaeigendur voru orðnir langeygir eftir þessari bryggju því þrengsb voru orðin mbdl í smábátahöfninni. FULLKOMIN SURROUND-HUÓMTÆKI TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: • Digital FM/MW/LW útvarp með 19 minnum • 100 watta magnari • Forstilltur tónjafnari með 5 stillingum • Geislaspilari • Tvöfalt Dolby segulband • Innstunga fyrir heyrnartól og hljóðnema • Fullkomin fjarstýring • Surround-hljóðkerfi • 10Ow hátalarar ÓNUUtPSMlBSTÖB SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.