Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1995, Blaðsíða 8
28 ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1995 Iþróttir Snóker: varði titilinn Skotinn Colin Hendry varð um helgina heimsmeistari í snóker. Þetta var íjórði titill Hendrys í röð og í fimmta skipti á síöustu sex árum sem hann verður heimsmeistari í snóker. Hendry lék til úrslita gegn Eng- Iendingnum Nigel Bond. AIls áttu þeir að leika 35 ramma en þegar staðan var orðin 18-9 var ljóst að Bond gat ektó náð Hendry og Hendry sigraði því, 18-9. Bond náði hæsta stuðinu í úrshtaleikn- um, 135, en Hendry náði mest 124 í stuði. Hendry fékk 22 milljónir króna fyrir sigurinn. Hann náði hæsta stuði mótsins, 147, og fékk fyrir það 19 milJjónir króna. Samtals fékk hann því 41 miJljón króna i verðlaunafé. Tennis kvenna: Monica Seles leikur aftur Karolj Seles, faðir bandarísku teimiskonunnar Monicu Seles, sagði um helgina að hún myndi leika tennis á nýjan leik. Liðin eru tvö ár frá því Seles var stung- in meö hnífi í bakið á móti i Þýskalandi. „Þegar einhver er jafn hrifinn af tennisíþróttinni og Seles má ijóst vera að sá hinn sami kemur aftur. Við höfum ekki tilkynnt endurkomu hennar áður. Það hafa hins vegar veríð vangavelt- ur um þessa hluti í fjölmiðlum,“ sagöi Karolj Seles í gær. Monica á enn við sálfræðileg vandamál að stríða eftir árásina en er óðum að ná sér. Knattspyma: Cantona samdi viðMan.Utd Frakkinn Eric Cantona skrifaði á fóstudag undir nýjan þriggja áia samning við ensku meistar- ana Manchester United og mun þvi leika meö hðinu þar til árið 1998. Vangaveltur voru uppi um hugsanlega sölu Cantona til ít- alska hðsins Inter Milan en hann valdi frekar að gera nýjan samn- ing við United þrátt fyrir hærra tilboö Irá Milan. Cantona er al- mennt talinn einn albesti leik- maöur ensku knattspymunnar og stuðningsmenn Man. Utd geta nú andað léttar. Michael Jordan hefur farið á kostum í liði Chicago i tveimur fyrstu leikjunum gegn Charlotte Hornets og skorað í þeim 80 stig. Jordan með 80 stig 1 tveimur fyrstu leikjum Chicago gegn Charlotte. Boston vann Orlando Michael Jordan lék á als oddi þegar Chicago BuUs sigraði Charlotte í fyrsta leik hðanna í úrshtakeppninni í NBA um helgina. Jordan skoraði 48 stig og voru menn á einu máh um að þetta væri besti leikur hans síðan hann ákvað að byija að leika aftur í síðasta mánuði. Phil Jackson, þjálfari Chicago, sagði eftir leikinn að Jordan hefði lagt grunninn aö sigrinum. „Hann var engum hkur og sýndi gömul og góð tilþrif sem glöddu svo sannarlega augað,“ sagði Jackson. Alonzo Mo- uming skoraði 32 stig fyrir Charlotte. • Orlando vann stórsigur á Boston í fyrsta leik hðanna og var þetta stærsti ósigur Boston í sögu félagsins í úrslitakeppni. Shaquille. O’Neal skoraði 23 stig fyrir Orlando. • San Antonio vann léttan sigur á Denver. Sean Elhott gerði 21 stig fyr- ir San Antonio. • Charles Barkley átti stórleik þegar Phoenix lagði Portland, skor- aði 29 stig og hirti 16 fráköst. Dan Maijele skoraði 25 stig. • Cleveland jafnaði metin, 1-1, með frábæmm sigri á New York Knicks. Chris Mulhn skoraði 21 stig fyrir Cleveland. Patrick Ewing og John Starks skomðu 21 stig hvor fyrir Knicks. • LA Lakers lék stórvel þegar hðið lagði Seattle á útívelh og standa leik- ar nú jafnir, 1-1. Cedric CebaUos skoraði 25 stig fyrir Lakers. • Reggie MUler átti stórleik með Indiana gegn Atlanta og skoraði 39 stig. Rik Smits skoraði 27 stig og hirti 11 fráköst. Steve Smith skoraði 27 stig fyrir Atlanta. • Kenny Smith skoraði 32 stig fyr- ir Houston og Clyde Drexler 30 stig. Karl Malone skoraði 28 stig fyrir Utah. • Boston vann Orlando í öðmm leik liðanna. Dominique Wilkins skoraöi 24 stig fyrir Boston og Dee Brown 21. Anfemee Hardaway skor- aði 26 stig fyrir Orlando og ShaquiUe O’Neal 22. • Larry Johnson skoraði 25 stig fyrir Charlotte gegn Chicago og Al- onzo Mourning var með 23 stig og 20 fráköst. Michael Jordan skoraði 32 stig fyrir Chicago og skoraði því 80 stig í fyrstu tveimur leikjunum gegn Charlotte. • Kevin Johnson skoraði 28 stig fyrir Phoenix gegn Portland og Char- les Barkley 25. Rod Strickland skor- aði 26 stig fyrir Portland. • Dennis Rodman var í aðaihlut-. verkinu hjá SA Spurs gegn Denver í öðrum leik hðanna. Rodman skoraði 19 stig og tók 16 fráköst og hefur Rodman ekki skorað meira í leik með Spurs. David Robinson skoraði einn- ig 19 stig. Austurdeild-úrslit Chicago - Charlotte.........108-100 Charlotte-Chicago............106-89 (Staðan er jöfn, 1-1.) Orlando - Boston.............124-77 Orlando-Boston................92-99 (Staðan er jöfn, 1-1.) Cleveland - New York.........90-84 (Staöan er jöfn, 1-1.) Indiana - Atlanta...........105-97 (Indiana hefur yfirhöndina, 2-0.) Vesturdeild- úrsUt: LA Lakers - Seattle..........84-82 (Staðan er jöfn, 1-1.) Houston - Utah Jazz........140-126 (Staðan er jöfn, 1-1.) San Antonio - Denver........104-88 San Antonio-Denver..........122-96 (San Antonio hefur yfir 2-0.) Phoenix - Portland.........129-102 Phoenix-Portland............103-94 (Phoenix hefur yfir 2-0.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.