Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 Afmæli Fridrik Frederiksen Friðfik Frederiksen meðferðarfull- trúi, Þverbrekku 4, Kópavogi, er flmmtugurídag. 1 Starfsferiil Friðrik er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám í Verslunarskóla íslands og fram- haldsnám í ensku og viðskiptum á Englandi. Friðrik hóf störf hjá Loftleiöum í New York 1967 og starfaði þar við flugafgreiðslu og sölustörf um ára- bil. Hann var kennari við Grunn- skóla Suðureyrar í eitt ár og annað við Grunnskóla Hofsóss. Friðrik var fulltrúi í meginlandsdeild Eim- skipafélagsins á íslandi um tveggja ára skeið og fulltrúi á skrifstofu borgarstjóra um tíma. Hann hefur starfað sem meðferðarfulltrúi á unglingageðdeild Ríkisspítalanna frá 1989. Fjölskylda Synir Friðriks: Björgvin, f. 29.8. 1968, heimspekingur og kennari; Friðrik, f. 21.12.1973, stjórnmála- fræðinemi við HÍ; Björn, f. 26.7.1988, nemi. Systkini Friðriks: Hilmar Krist- ján, f. 5.7.1939, lögfræðingur hjá Tryggingastofnun ríkisins, kvæntur Rannveigu Haraldsdóttur, þau eru búsett í Kópavogi; Birna, f. 6.7.1941, húsmóðir, gift Bjarna Stefánssyni, forstjóra Hljómbæjar, þau eru bú- sett í Reykjavík; Sigurbjörg, f. 9.1. 1951, flugfreyja, gift Sigurði Björg- vinssyni tannlækni. Þau eru búsett íReykjavik. SystirFriðriks, sam- mæðra: María Bergmann, f. 12.9. 1935, skriftarfræðingur, gift Einari Árnasyni, fyrrverandi flugstjóra og útgerðarmanni. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Friðriks: Björgvin Frederiksen, f. 22.9.1914, vélvirkja- meistari ogfyrrv. bæjarfulltrúi í Reykjavík, og kona hans, Hallfríður Bjömsdóttir, f. 24.3.1916, d. 21.9. 1994, húsmóðir. Þau bjuggu að Lind- argötu 50 og þar býr Björgvin enn. Ætt Björgvin er sonur Aage Martins Christians Frederiksens, sem kom til íslands 1906, vélstjóra í Rvík, Martinssonar maskinmester Fred- eriksens, vélstjóra í Kaupmanna- höfn. Móðir Aage var Ida Sophie Elling Frederiksen frá Horsens á Jótlandi. Ida Sophie var dóttir Jens Peters Ellings fangelsisstjóra og Jensine Rostgaard, systur Theodors Rostgaards sem setti upp vélar í timburverksmiðju Völundar og sá um byggingu Völundartumsins. Móðir Björgvins var Margrét, dóttir Halldórs, b. á Botnastöðum, bróður Nikulásar, afa Sigurbjöms Þorbjömssonar ríkisskattstjóra, föður Markúsar lagaprófessors. Halldór var sonur Guðmundar Guð- mundssonar. Móðir Margrétar var Sigurbjörg Sölvadóttir, b. í Reinhól- um, bróður Margrétar, móður Jó- hannesar Nordals íshússtjóra, föður Sigurðar prófessors, föður Jóhann- esar, fyrrv. seðlabankastjóra. Bræð- ur Sölva voru Gísli, faðir Odds, prests á Stað í Grindavík, afa Odds Ólafssonar alþm. og Pétur, faðir Benedikts, afa Jóns Eyþórssonar veðurfræðings. Hallfríöur var dóttir Bjöms, toll- varðar í Rvík, Friðrikssonar, al- þingismanns á Skálá, Stefánssonar. Móðir Friðriks var Hólmfríður Skúladóttir, b. á Neðri-Mýri, Björns- sonar og konu hans, Svanhildar Þorgrímsdóttur, b. á Bolagrund, Jónssonar, bróður Ólafs, föður Ingi- bjargar, konu Björns Jónssonar, prests í Bólstaðarhlíð, langömmu Elísabetar, móður Sveins Bjöms- sonar forseta. Ingibjörg var einnig langamma Þorvalds, afa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Bjöms var Sigurbjörg, systir Jóns, langafa Sverris, föður Valgerðar alþingis- manns. Sigurbjörg var dóttir Jóns Reykjalíns, prests í Ríp, bróður Friðriks, langafa Ólafs, afa Ólafs Friðrik Frederiksen. Ragnars Grímssonar. Móðir Bjöms var Hallfríður Björnsdóttir, dbrm. á Skálá í Sléttuhlíð, Þórðarsonar. Móðir Hallfríðar var Ólöf María Sigurvaldadóttir, b. á Gauksmýri í V-Húnavatnssýslu, Þorsteinssonar, bróður Sigurlaugar, móður Valdi- mars Eydal, prests í Winnepeg. Móðir Ólafar var Ólöf Sigurðardótt- ir, b. á Bjarghóh í Miðfirði, Halldórs- sonar, bróður Þorkels, föður Sigur- bjamaríVísi. Til hamingju með afmælið 5. maí 75ára Guðrún Jónsdóttir, Hólavegi 42, Sauðárkróki. Þórdís Rögnvaldsdóttir, Skíðabraut 13, Dalvík. 70 ára Sólveig Sigurðardóttir, Skúlagötu20,Stykkishólmsbæ.. Ilona Stefánsson, Keilusíðu 6e, Akureyri. 60 ára Jón Þór Jónasson, Hjarðarholti, Borgarbyggð. Guðmundur Ebbi Pétursson, Leirutanga 43a, Mosfellsbæ. Gyða Þorsteinsdóttir, Sæviðarsundi 11, Reykjavik. Nanna Jónsdóttir, Sunnubraut 41, Kópavogi. 50ára Sveinn Þ. Gústafsson, Laugarnesvegi 86, Reykjavík. Eyjólfur Þ. Georgsson, Stelkshólum 12, Reykjavík. Guðrún Vilborg Karlsdóttir, Sigtúni, Mosfellsbæ. Brynhildur Sigurjónsdóttir, Kistuholti9, Biskupstungnahreppi. Unnsteinn Guðmundsson, Fiskhóli 9, Homafjarðarbæ. Bjarni Már Ragnarsson, Birtingakvísl 32, Reykjavík. Ágúst Sigurðsson, Geitaskarði, Engihlíðarhreppi. 40 ára Jóna Finnsdóttir, Tómasarhaga 47, Reykjavík. Sigmar Þór Óttarsson, Laufásvegi 58, Reykjavík. Jóna Vilborg Guðmundsdóttir, Karfavogi60, Reykjavík. Pólmi Guðmundsson, Keilusíðu 4i, Akureyri. Helga Tryggvadóttir, Reykjafold 22, Reykjavík. Orri Stefánsson, Lönguhlíð 11, Reykjavik. Guðrún Ólöf Pálsdóttir, Fossvegi 14, Siglufirði. Sigurrós K. Indriðadóttir, Eíra-Núpi, Fremri-Torfustaða- hreppi. Ástríður Einarsdóttir, Sunnubraut 13, Vík i Mýrdal. Birgir Hermann Sigmundsson, Dalbakka 11, Seyðisfirði. Halldór Ingi Ólafsson, Lágumýri 6, Mosfellsbæ. Pétur Þorsteinsson, Hömrum, Reykholtsdalshreppi. GulLbmðkaup___________________________ Ólöf Guðmundsdóttir og Andrés Bjamason Hjónin Andrés Bjamason gull- föstudaginn 5. maí. Þau era stödd á smiður og Ólöf Guðmundsdóttir heimili dóttur sinnar að Skólavegi húsmóðir, Heiðarbrún 45, Hvéra- 80a á Fáskrúðsfirði. gerði, eiga gullbrúðkaup í dag, Einar Hjaltason Einar Hjaltason, löggiltur bifreiða- sali og skipstjóri, Súlunesi 20, Garðabæ, er fertugur í dag. Starfsferill Einar er fæddur í Reykjavík. Hann stundaði nám við Stýrimannaskól- ann í Reykjavík og lauk fiskimanna- prófi þar 1976 og farmannaprófi tveimur árum síðar. Frá 1972 starfaði Einar við sjó- mennsku og síðar um árabil sem stýrimaður á flutningaskipum hjá Sambandinu. Hann hefur starfað við bílasölu frá 1985 en síðustu fimm árin hefur Einar rekið Höfðahöllina í Reykjavík. Fjölskylda Sonur Einars og Kristínar Hilm- arsdóttur er Viktor Hrafn, f. 22.7. 1989. Systkini Einars: Ásgeir, fram- kvæmdastjóri í Kópavogi, hann á þrjú börn; Steinþór, verktaki í Reykjavík, hann á þrjú börn; Karl Gauti, lögfræðingur í Kópavogi, hann á eitt barn; Ingibjörg, sjúkra- liði í Reykjavík, hún á eitt bam. Foreldrar Einars: Hjalti Karlsson, f. 18.11.1925 á Reyðarfirði, fyrram verktaki, og Kolbrún Steinþórsdótt- ir, f. 29.5.1933 í Gottorp í V-Húna- vatnssýslu. Ætt Hjalti er sonur Karls Björnssonar, f. 12.9.1889, d. 17.3.1985, frá Stuðlum við Norðfjörð, útgerðarmanns á Reyðarfirði og síðar lagermanns í Reykjavík, en hann var hálibróðir, samfeðra, Guðrúnar, móður Hall- gríms, föður Geirs forsætisráð- herra. Móðir Hjalta var Lilja, f. 23.8.1894, d. 7.10.1980, Einarsdóttir, prests á Hofteigi í Jökuldal og síðar á Desjar- mýri, Borgarfirði eystra, Þórðar- sonar, frá Vallanesi, Einarssonar. Móðir Einars prests var Þóra Jóns- dóttir, Þorsteinssonar, vefara á Arn- heiðarstöðum. Móðir Lilju var Ing- unn Loftsdóttir, b. á Kleppi í Reykja- vík, Þorkelssonar, og seinni konu hans, Önnu Jónsdóttur frá Króki í Hrunamannahreppi. Kolbrún er dóttir Steinþórs frá Gottorp, f. 19.7.1912, d. 8.2.1993, Ásgeirssonar, Jónssonar, Ásgeirs- sonar, Einarssonar en sá síðasttaldi var þingmaður Strandamanna í 20 ár og var m.a. á Þjóðfundinum 1851. Móðir Steinþórs var Hólmfríður R. Þorgilsdóttir frá Kambi í Deildardal Einar Hjaltason. í Skagafirði. Móðir Kolbrúnar var Þorgerður, f. 30.12.1918, d. 30.8.1992, Þórarins- dóttir, hagyrðings frá Skúfi, Þor- leifssonar en hann var bróðir Ingi- bjargar Kristmundsdóttur, móður Halldóru, ömmu Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur borgarstjóra. Móðir Þórarins var Steinvör Gísla- dóttir. Móðir Þorgerðar var Sigur- björg Jóhannsdóttir. Guðrún Ósk Sæmundsdóttir Guðrún Ósk Sæmundsdóttir hús- móðir, Álfhólsvegi 125, Kópavogi, er fertugídag. Starfsferill Guðrún fæddist á Eyri í Gufudals- sveit og ólst þar upp til 16 ára aldurs. Hún starfaði í fiskvinnslu í Sand- gerði 1971, stundaði nám viö Hús- mæðraskólann á Staðarfelli 1972- 1973. Guðrún fluttist til Bolungar- víkur og vann við fiskvinnslu þar. Til Reykjavíkur flutti hún 1977 og starfaði í Seglagerðinni Ægi 1977- 1982. Hún hefur síðan lengst af stundað framreiðslustörf auk hús- móðurstarfa. Fjölskylda Guðrún giftist 27.12.1980 Valdimar Halli Sigþórssyni, f. 22.1.1955, sjó- manni. Hann er sonur Auðar Ant- onsdóttur og Sigþórs Valdimarsson- ar sem er látinn. Valdimar varð fer- tugur22.1.sl. Börn Guðrúnar era Haraldur Birgir Þorkelsson, f. 21.12.1974, starfsmaður í Seglagerðinni Ægi; Sigþór Már Vcddimarsson, f. 11.8. 1983; Auður Ösp Valdimarsdóttir, f. 11.8.1983; Elín Rós Valdimarsdóttir, f. 1.9.1993. Systkini Guðrúnar era Guðmund- ur Á. Sæmundsson, f. 30.12.1944, húsvörður í Kópavogi; Inga Þ. Sæ- mundsdóttir, f. 17.11.1946, starfs- maður sýslumannsins í Kópavogi; Kristín U. Sæmundsdóttir, f. 8.10. 1953, fiskvinnslumaður í Bolungar- vík; Sigþrúður I. Sæmundsdóttir, f. 2.5.1959, verslunarmaður í Svíþjóð. Foreldrar Guðrúnar vora Sæ- mundur Magnús Óskarsson, f. 6.12. 1915, d. 11.8.1989, ogElínGuðrún Ingibjörglngimundardóttir, f. 16.8. 1914, d. 25.10.1984, Eyri í Gufudals- Guðrún Ósk Sæmundsdóttir. sveit. Guðrún og Valdimar taka á móti gestum að heimili sínu eftir kl. 20 fóstudaginn5.maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.