Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 - Eru íslendingar að hætta að borða kjöt? í samkeppni við hrísgrjón og pasta Við erum í samkeppni við hrís- gijón og pasta og verðum að haga okkur samkvæmt því.“ Hörður Sigurgrimsson kúabóndi í DV. Óábyrgt sprengiboð „Svona óábyrgt sprengiboð eins og þetta í Norðurá hleypir öllu upp í loft.“ Jón G. Baldvinsson i DV. Öruggasta heimildin Morgunblaöið er spegill íslensks Ummæli þjóðfélags og öruggasta heimild sögunnar á þessarri öld. Árni Johnsen í Tímanum. Ekki að argast í gagnrýnendur „Mér hefur alltaf fundist að lista- mennimir eigi ekkert að vera að argast í gagnrýnendum." Thor Vilhjálmsson i Alþýóublaðinu. Viljum ekki gapandi sætaraðir „Sjónvarpsvélarnar eiga álltaf að vera með fólk í mynd og viö vilj- um ekki lenda í gapandi sætaröð- um.“ Hákon Guðmundsson i DV. Losna úr kvótakerfinu „Ég hef aldrei farið dult með þá skoðun mína að menn eigi að setja markið á að losna út úr þessu kvótakerfi.“ Sigurgeir Þorgeirsson hjá Bænda- samtökunum í Alþýðublaðinu. Vietnamstríðið gerði Willson að friðarsinna. Fómardýrið ákært S. Brian Willson var í leyni- þjónustu bandaríska hersins í Víetnamstríðinu. Reynsla hans af stríðinu gerði hann að áköfum friðarsinna. í september 1987 ákvað hann ásamt tveimur öör- um friðarsinnum að mótmæla sölu á hergögnum til kontra í Nicaragua með því að setjast á jámbrautarteina og stöðva þann- Blessuð veröldin ig lest sem flutti vopnin. Þeir sem stjórnuðu jámbrautarlestinni voru ekkert aö hafa fyrir því að stöðva og keyrðu áfram með þeim afleiðingum að Willson náði ekki að fleygja sér almennilega af tein- unum og dróst með lestinni nokk- urn spöl. Hinir tveir komust ómeiddir af teinunum. WiUson meiddist á höfuðkúpu og hægri fótur hans var illa farinn eftir áreksturinn. Fjórum mánuðum síðar fór sá sem stýrði lestínni og tveir aðrir starfsmenn lestarinnar í mál við Willson og kröfðust skaðabóta þar sem þeir höfðu orðið fyrir til- finningalegu áfalli við atburðinn. Willson svaraöi með því að fara í mál við sjóherinn. Honum vom dæmdir 940 þúsund dollarar í skaðabætur en máli járbrautar- stjórans var vísað frá. Léttir til vestanlands í dag verður norðvestangola og víða þokusúld norðan- og vestanlands fram eftir degi, léttir svo heldur til Veðrið í dag vestanlands síödegis, en norðan- lands verða skúrir. Á Suðaustur- landi verður skýjað með köflurn en þurrt. Hiti 1 til 5 stig norðanlands en 5 tíl 10 stig sunnanlands. Á höfuð- borgarsvæðinu verður suðvestan- og síöar norðvestangola. Skýjaö með köflum og þokusúld öðm hveiju í fyrstu en léttir svo heldur tíl. Hití 5 tíl 10 stig. Sólarlag í Reykjavík: 22.04 Sólarupprás á morgun: 4.44 Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.00 Árdegisflóð á morgun: 10.25 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri þoka 3 Akurnes þokumóða 4 Bergsstaðir súld 1 Bolungarvík alskýjað 1 Keflavikurílugvöllur rign./súld 3 Kirkjubæjarklaustur hálfskýjað 6 Raufarhöfn alskýjað 1 Reykjavík rign./súld 4 Stórhöfði rign./súld 5 Bergen þokumóða 8 Helsinki léttskýjað 11 Ka upmannahöfn þokumóða 12 Ósló skýjað 7 Stokkhólmur skýjað 10 Þórshöfn rigning 7 Amsterdam þokumóða 13 Barcelona heiðskirt 12 Chicago alskýjað 9 Feneyjar þokumóða 12 Frankfurt léttskýjað 11 Glasgow skýjað 6 Hamborg þoka 9 London mistur 12 LosAngeles léttskýjað 13 Lúxemborg léttskýjað 14 Madrid skýjað 13 Malaga mistur 16 Mallorca heiðskírt 9 Montreal heiðskírt 10 New York alskýjað 14 Nuuk léttskýjað -2 Orlando alskýjað 21 París skýjað 16 Róm þokumóða 11 Vín léttskýjað 14 Winnipeg heiðskirt -1 Stefán Konráðsson, mótsstjóri HM '95 i. „Nú er verið að hnýta alla lausa enda fyrir keppnina. Allur undir- búningur hefur verið unninn á miklum hraða þar sem keppnin var svo lengi í lausu Iofti og það má segja að skipulagningin hafi farið að miklum hluta til síðastliðið hálft ár. Við höfum heldur aldrei haldiö svona stórt íþróttamót áöur. Hér er ekki um að ræða nokkra leiki heldur 88 leiki og allt þarf aö stand- Maður dagsins ast upp á minútu,“ segir Stefán Konráðsson sem er mótsstjóri heimsmeistarakeppninnar í hand- bolta sem hefst á sunnudaginn. Stefán er aðstoðarframkvæmda- stjóri íþróttasambands íslands en hefur unnið nær eingöngu við HM-mótið að undanförnu. Aðspurður sagði Stefán að við- horf almennings til keppninnar hefði breyst mikið að undanfömu. „Það er eins og þjóðin hafi áttað sig á því að þetta er mikíll viöburður Stefán Konráösson. og sýnir hún velvilja í kjölfarið. Þá er þessa dagana mikil gróska i miðasölunni.“ Stefán sagði að starf hans sem mótsstjóra væri viðamikið en hann væri bara einn hlekkurinn í keðj- unni. „Það koma margir við sögu, enda er skipulagningin þannig að hver dagur er skipulagður fyrir keppendur upp á mínútu, æfingar, leikir, skoðunarferðir og fleira. Þetta era tuttugu og fjögur lið þannig að það er mikið sem þarf að huga að. Stefán var inntur eftir miðasöl- unni; „Það hefur eins og við var að búast selst mest á leikina með íslendingum. Við gerðum okkur aldrei vonir um aö mikið seldist á aðra leiki en salan hefúr samt ver- ið með besta móti og jáfnvel meiri en við vorum að vonast eftir.“ Stef- án sagði að nú færi aðalannatíminn 1 hönd við undirbúningin. „Liðin streyma til landsins í dag og á morgun en aðeins íjögur lið voru komin í gær." Stefán Konráðsson er giftur Val- gerði Gunnarsdóttur og eiga þau þrjú börn. Stefán sagði að áhuga- mál hans snerust um íþróttir. Núna væri þaö handboltinn en uppá- haldsíþróttir hans eru knattspyrna og borðtennis. Myndgátan Mælir frá hjartanu Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði Úrslitaleikir í litlu bikar- keppninm Nú fer senn að líða að stóru stundinni þegar HM í handbolt- anum byijar og verður sjálfsagt um fátt annað rætt meðan á þeirri orrahríð stendur. Reykjavíkur- mótið í knattspymu og litla bik- arkeppnin halda þó áfram og er nú farið að leika í átta liða úrslit- um í litlu bikarkeppninni. í kvöld fara fram tveir leikir. í Hafnarfirði leika FH-ingar gegn Grindvíkingum sem eru nýliðar í 1. deildinni í ár og hefst sá leikur kl. 18.00 og í Keflavík leika heimamenn gegn Breiða- bliki. Sá leikur hefst kl. 19.00. Skák Jens Kristiansen varð skákmeistari Danmerkur í ár. Hann sigraði á meistara- mótinu, sem fram fór fyrir skömmu, með 6,5 vinninga af 9 mögulegum. Henrik Danielsen varð í 2. sæti með 6 v., Lars Schandorff hlaut 5,5 v., Carsten Höi 5 og Erling Mortensen 4,5 v. Úrslitaskákin í síðustu umferð var milh Jens Kristiansen og Carsten Höi. Þannig lauk Jens (með svart) taflinu og tryggði sér meistaratitilinn: 60. - Dgl + 61. Rdl Dfl! og hvítur gafst upp. Ef 62. axb3 c3 63. Dxc3 (eða 63. Dc2 Rb4) Dxdl + og vinnur létt. Jón L. Árnason Bridge Þú tekur upp geysisterka hendi í austur og heyrir spilafélaga þinn opna á tveimur spöðum, veikir tveir í litnum. Hve langt á að teygja sig í sögnum? ♦ ÁK4 ¥ ÁK932 ♦ ÁG2 + KD Þú gefur spumarsögnina tvö grönd og spilafélagi þinn segir þijú lauf sem lofa punktastyrk í Utnum. Ljóst er að sú sögn lofar ásnum og er þá eftir nokkru að bíða? Góðir möguleikar virðast á því að 7 spað- ar standi, tólf slagir sjást beint og sá þrett- ándi hlýtur að koma með því að fría hjartalitinn. En það leynist hætta í spil- inu, en hún er sú að vestur haldi á þrem- ur hjörtum. Þeir voru nokkrir sem létu vaða f alslemmuna í spaða á íslandsmót- inu í tvímenningi en urðu ekki feitir af því. AUt spihð var svona, vestur gjafari og allir á hættu: ♦ 9 V G64 ♦ D9864 + G983 ♦ DG7532 V 1075 ♦ 10 + Á62 ♦ 1086 V D8 ♦ K753 + 10754 Vestur Norður Austur Suður 2+ Pass 2 G Pass 3+ Pass 7+ p/h Úr því að vestur á þrílit í hjarta er eini möguleikinn sá aö enginn tapslagur sé á litinn (DG blönk eða stakt háspU í suö- ur). Þvmgunarmöguleikar eru engir í spUinu nema sami maður sé með lengd í hjarta og bæði háspilin í tígli og fyrir því eru heldar litlar líkur. Að segja 7 spaða og fara einn niður gaf 7 stig af 30 mögulegum, en besti samningurinn er 6 grönd á spilin. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.