Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1995, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1995 Fréttir Steingrímur Njálsson, sem nú afplánar fangelsisdóm, enn á ný fyrir dóm: Akærður fyrir að svipta þroskaheftan mann frelsi einnig ákærður fyrir að gera tilraun til að hafa við hann kynmök Ákæra var þingfest á hendur Steingrími Njálssyni, dæmdum kyn- ferðisafbrotamanni, í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag. Steingrímur er ákærður fyrir að svipta þroska- heftan mann frelsi sínu og gera til- raun til að hafa viö hann kynmök. Atvikið átti sér stað föstudaginn 6. júní að heimiii Steingríms, gömlum sumarbústað við Elliðavatn. Að sögn móður mannsins hittust Steingrímur og maðurinn fyrir utan heimili þess fyrrnefnda um kvöldið umræddan dag. Maðurinn fór upp í bíl með Steingrími enda hélt hann sig þekkja hann frá vinnu sinni, og héldu þeir í sumarbústað Steingríms en kveikt var í bústaðnum nýlega. „Steingrímur bauð syni mínum mat og kók og spurði hvort hann vildi ekki koma inn. Þegar inn var komið segir sonur minn að Stein- grímur hafi farið að ræða við sig og spurt hvort þeir ættu ekki að klæða sig úr - þeir væru jú báðir menn og hefðu ekkert að skammast sín fyrir, og hóf að fækka fotum. Þá vissi sonur minn að það var ekki allt með felldu og varð hræddur. Steingrímur tók að bjóða honum áfengi og setti dóna- spólur í myndbandstækið og það eitt jók á hræðslu sonar mins sem varð enn betur Ijóst hvað var um að vera og hann reyndi að komast út. Hann reyndi að ná í kuldagalla sinn en Steingrímur neitaði honum um hann svo hann lokaði sig inni á salerni. Hann sagðist hafa verið orðinn ofsa- hræddur og verið farinn að skjálfa eins og hrísla og gráta,“ sagði móðir- in í samtali við DV eftir að atvikið átti sér stað. Maðurinn komst út eftir að hafa verið í haldi á þriðja tíma inni í hús- inu en móðir mannsins segir að áður hefði Steingrímur hótað honum öllu illu ef honum dytti í hug að kæra atburðinn til lögreglu. Steingrímur er nú ákærður fyrir að hafa gert tilraun til að notfæra sér andlega annmarka mannsins til þess að hafa við hann kynferðismök. Heimilt er að dæma hann til allt að sex ára fangelsisvistar fyrir slíkt brot. Einnig er hann ákærður fyrir að halda manninum fóngnum. Allt að sex ára fangelsisvist hggur við broti af slíku tagi. Til vara er hann ákærður fyrir að hóta manninum frelsissviptingu og líkamsmeiðing- um en allt að tveggja ára fangejsi hggur við því broti. Brotaferhl Steingríms nær allt aft- ur til ársins 1959. Hann hefur hlotið fjölmarga dóma fyrir kynferðisbrot, auðgunarbrot, skjalafals, líkamsá- rásir, brot gegn umferðarlögum og að hafa svipt menn frelsi sínu. Aðalmeðferð málsins fer fram 2. júní fyrir luktum dyrum og er fjöl- skipaður dómur í máhnu. Steingrím- ur situr nú af sér fangelsisdóm fyrir umferðarlagabrot og þjófnað. Auk þess er annað mál á hendur honum tilmeðferðarhjáHæstarétti. -pp Lögreglumenn á Suður- og Suðvesturlandl hafa undanfarna daga sektað á þriðja hundrað ökumenn fyrir of hrað- an akstur en nú stendur yfir umferðarátak þar sem fylgst er með ökuhraða. Hér er lögreglumaður aö kanna öku- skirteini ökumanns. DV-mynd S Akureyri: Snjókoma íefri byggðum Snjókoma var í efri byggðum Akur- eyrar í morgun. Þótt einungis hafi verið um srýófol að ræða eru menn orðnir þreyttir á langri viðdvöl vetr- ar norðan heiða Hitamæhr á lög- reglustöðinni á Akureyri sýndi ein- ungis rúmlega 1 stig í morgun. -pp Lambakjötskynningin í New York: Bændasamtökin eiga heiðurinn Vegna fréttar DV sl. roíðvikudag Sömuleiöis mátti skijja á fréttinní um kynningu á lífrænt ræktuöu að starfsmenn fyrirtækisins Cook- íslensku lambakjöti í New York ing Excellence í New York, sem er skal þaö leiðrétt að hun fer ekki í eigu íslendinga, væru 230 talsins. fram með stuðningi Útflutnings- Hið rétta er aö um lausráöna ráðs eða Flugleiða heldur eíngöngu starfsmenn er að ræða sem flestír Bændasamtaka íslands og mark- hafa verið 123 en fæstir 10. Fastir aðsnefndar þeirra á sölu lamba- starfsmenn eru aðeins 2. Einnig er kjöts. Eru viðkomandi beðnir vel- beðist velvirðingar á þessura mis- virðingar áþessum mistökum sem tökum. alfarið eru blaðsins. -bjb Kleifarvatn: Mokveiði síð- ustu dagana - 8 punda fiskur veiddist „Það hefur verið mokveiði í Kleif- arvatni síðustu vikuna enda hafa veiðst kringum 300 fiskar. Sá stærsti er 8 pund,“ sagði Guðmundur Sigur- jónsson, formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, í samtah við DV. Feiknaveiði hefur verið í vötnunum í kringum Reykjavík, EOiðvatni, Víf- ilsstaðavatni, Kleifarvatni og Hiíðar- vatni í Selvogi síðustu dagana. „Þessi veiði í Kleifarvatninu hefur mest veriö syðst í vatninu þar sem vatnið er mjög grunnt. Veiðimenn hafa verið að veiða hlið við hlið und- anfarið í vatninu. Stærsti fiskurinn sem komið hefur á land er 8 pund og svo veiddist 6 punda líka,“ sagði Guðmundur Sigurjónsson enn frem- ur. M)ög góð veiði hefur verið í Hlíðar- vatni í Selvogi, félagar úr Armönn- um voru við veiðar fyrir skömmu og veiddu 100 fiska. Stærsti fiskurinn úr Hlíðarvatni er 5 pund. Félagar í stangaveiðifélaginu voru að koma frá Djúpavatni og var ljót aðkoman í veiðihúsinu. Ýmsum hlut- • Frímann Ólafsson með tveggja og fjögura punda bleikjur fyrir fáum dögum. DV-myndir Guðmundur um hafði verið stolið úr veiðihúsinu og var illa gengið um það. Formaður Kristilegra demókrata í Noregi: Skil vel aðstöðu íslendinga í f isk- veiðideilunni - allt of mikil harka hlaupin í máhð Reynir Traustason, DV, Ósló: „Ég skil þá aðstöðu sem íslending- ar eru í. Fiskveiðar skipta þá mjög miklu máh og þetta er aðalatvinnu- greinin,“ segir Valgerd Svarstad Haugland, nýkjörinn formaður Kristilega demókrataflokksins í Nor- egi, í samtali við DV, vegna deilu ís- lendinga og Norðmanna um fisk- veiðimál í Síldarsmugunni og Smug- unni. Valgerd, sem er þingmaður á Stór- þinginu og stýrir flokki sem hefur um 7 prósenta fylgi, segir að of mikil harka sé hlaupin í deiluna og það sé ekki leiðin til lausnar. „Það er allt of mikh harka í þessu máh og það er í mínum huga ekki rétta leiðin til lausnar þessa máls. Það eru til aðrar leiðir að lausn, það er auðveldara að leysa málin með viðræðum. „Við verðum með einum eða öðrum hættii að leysa þessa deilu milh þjóðanna. Ég vonast til að lönd in komist að samkomulagi sem báðir aðilar eru reiðubúnir að standa við. Við erum öh sanngjamt fólk svo það ætti að takast.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.