Þjóðviljinn - 24.05.1944, Blaðsíða 8
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030.
Næturakstur: Litla bílstöðin sími
1380.
Útvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Óperusöngvar.
20.30 Útvarpssagan: Smásaga eftir
Johan Falkberget (Helgi
Hjörvar).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.15 Erindi (Thorolf Smith blaða-
maður).
21.35 Hljómplötur: Stenka Rasin
eftir Glasunow.
Dregið var í happdrætti Húsbygg
ingarsjóðs Verkalýðsfélags Dalvíkur
10. apr. s. 1. Þessi númer hlutu vinn
inga: Nr. 1366: Gólfteppi, 2010:
ljósakróna, 1415: armbandsúr 19087:
málverk, 19306: Kartöflur, 4537:
peningar 300,00 kr., 12687: pening-
ar kr. 300.00, 9511: peningar kr.
200.00, 6248: peningar kr. 200.00,
11069: peningar kr. 100.00, 9520:
peningar kr. 100.00.
Handbækur alþýðu. Fulltrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík hef
ur gefi'ð út tvær handbækur, sem
allri alþýðu eru mjög nauðsynlegar.
Fyrri bókin heitir Orlof, og hefur
hún að geyma lög og reglugerð um
orlof ásamt skýringum. Verð kr.
2.00.
Seinni. bókin er Vinnubók, sem
ætluð er til þess að færa í vinnu-
stundafjölda og kaupgjald. Mjög
auðsynleg bók fyrir þá, sem tíma-
vinnu stunda. Bókin kostar 3 krón-
ur, og er henni æílað að duga eitt
ár.
Bækur þessar fást í skrifstofu
Fulltrúaráðsins, Hverfisgötu 21,
skrifstofum verkalýðsfélaganna og í
bókaverzlunum.
Niels Ebbesen, hið fræga leikrit
Kai Munks, er komið út á íslenzku
í þýðingu Jóns Eyþórssonar. Útgef-
andi er félagið „Frie Danske í Is-
land“.
Úrval, 3. árg. nr. 2., er nýkomið
út, og flytur að vanda margar
skemmtilegar og fróðlegar greinar.
Meðal þeirra eru Heimkoman, Með
steinskipi yfir Atlanzthaf, Fr'æðsla
í kynferðismálum, Tito marskálkur
(áreiðanlegri heimildir um Tito er
hægt að fá í bók Júgóslavans Louis
Adamic: My native land; þessi grein
er tekin úr enska íhaldsblaðinu
Observer), Villiminnkurinn, Ævin-
týri með olíulitum, Fjárglæfrar
sænska eldspýtnakóngsins, Blóðrann
sóknir, Indó-evrópsk tungumál. Nýj-
ungar í vísindum, Hellisbúar,
„Skipbrot" á Grænlandsjökli, Ævin-
týri læknisins, Bölvunin sem fylgdi
Bátsöngnum, þróun skynfæranna,
Frjósemi jarðvegsins, Rússnesk veðr
átta, Hara-kiri. Heftið flytur auk
þess útdrátt úr bók um Edgar Wall-
ace, eftir Margaret Lane.
Nemendur Handíðaskólans. Allir
sem verið hafa nemendur skólans
og ekki hafa sótt muni sína eða
t teikningar, eru beðnir að vitja
þessa í skólann í dag eða á morg-
un kl. 5—6 síðd.
FSofefesjrlrsii
HVÍTASUNNUFERÐ
Enn er tækifæri að kaupa far-
miða íil Geysis. Þeir eru seldir á
Skólavörðustíg 19. Lagt verður af
stað stundvíslega kl. 5 frá Skóla-
vörðustíg 19, og komið aftur í bæ-
inn á annan í livítasuimu.
Búið verður í leikfimihúsi íþrótta
skólans í Haukadal, upphituðum
með hveravatni. Við húsvegginn er
þægilega heit sundlaug. Geysir gýs
og á kvöldisi verður dans og annar
gleðskapur.
Fcrðanefndin.
Kvikmynd af EýðveEdiskosnirigyRum
Tæknin og hraðinn eykst alls staðar í heiminum, einnig hér
á íslandi.
Lýðveldiskosningarnar hafa staðið yfir í 4 daga. í' gær sýndi
Óskar Gíslason ljósmyndari blaðamönnum kvikmynd af lýðveld-
iskosningunum, sem hann hafði
öðrum degi kosninganna.
Kvikmynd þessi, sem er tekin á
mjófilmu, mun á sínum tíma þykja
merkilegt plagg í íslandssögunni.
Þessi mynd er ekki löng — sýning
hennar tekur ekki nema örfáar
mínútur, en hún varðveitir frá
gleymsku nokkrar augnabliks-
myndir úr lífi þjóðarinnar þegar
borgarar Reykjavíkur greiddu at-
kvæði um helgasta mál þjóðarinn-
ar: — lýðveldisstofnun á íslandi.
Þessi mynd er aðeins einn kafli
úr heildarmynd sem Óskar Gísla-
son ljósmyndari hefur í hvggju að
taka í sambandi við lýðveldis-
stofnunina. Þegar þar að kemur
mun hann ætla sér að taka kvik-
mynd á Þingvöllum 17. júní og
S
tekið fyrir tveim dögum, eða á
, þegar hátíðahöldin 17. og 18. júní
I eru afstaðin mun hann væntan-
lega gefa almenningi kost á að sjá
þá mynd er hann hefur tekið áf
því sem fram fór.
Á undan myndinni af lýðveldis-
kosningunum sýndi Óskar aðra
mynd, sem hann hafði tekið af
útifundinum sem æskulýðsfélögin
héldu við Austurvöll um lýðveldis-
'málið.
Það er alveg nýtt hér á landi,
að kvikmynd, sem tekin er af at-
burðum er gerast að morgni dags,
sé tilbúin til sýningar að kvöldi
þess sama dags eða daginn eftir
— en þannig verður það í fram-
tíðinni.
(Hello Beautiful).
Amerísk gaman- og músík-
tnynd.
GEORGE MURPHY, •
ANN SHIRLEY,
CAROLE LANDIS,
BENNNY GOODMAN
og hljómsveit hans.
DENNIS DAY útvarps-
;öngvari.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafiiarstræíi 16
(„Watch on the Rhine“)
Mikilfengleg stórmynd.
ÍAðalhlutverk:
Bette Davies,
Paul Lukas.
Bönnuð bömum yngri en
12 ára.
Sýnd kl. 6,30 og 9.
Rithöfundur sem leyni-
lögreglumaður
(Over my Dead Body).
MILTON BERLE
MARY HUGES
Sýnd kl. 5
Bönnuð börnum yngri en 12.
Öllum þeim mörgu vinum, ættingjum og kunningjum
nær og fjær, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum
og heillaóskum á sextugsafmæli mínu, þ. 14. maí s. L, votta
ég mitt innilegasta þakklæti.
Guð blessi ykkur öll!
Sigdór V. Brekkan
Norðfirði.
Kappreiðar Fáks á annan í hvítasunnu i
i
i
KappreiÖar IIestamannafélagsins Fáks /ara /ram á annan í Ilvíta- j
sunnu. Félagið var stofnað 1922 og hefur haldið 50—60 kappreiðar og \
greitt um lfi þús. kr. í verðlaun.
Félagið hefur nú ákveðið að gangast fyrir stofnun lahdssambands !
hestamannafélaga á landinu, en þau eru nú 12.
Hestamannafélagið Fákur bauð
blaðamönnum í gær að skoða hest-
hús sem íélagið hefur í Tungu fyr-
ir hesta félagsmanna sinna. Var
húsið fyrst tekið í notkun á s.l.
hausti, en áður voru Fáksmenn
margir í vandræðum með hús fyrir
hesta sína. Bærinn keypti útihúsin
í Tungu á s.l. ári og leigði Fák
þau til 5 ára, en félagið lét endur-
bæta þau og er þar nú rúm fyrir
36 hesta, en alls munu vera í bæn-
um um 250 hestar. Iiafa Fáks-
menn í hyggju að koma upp húsi
yfir 150 hesta, auk þeirra sem nú er
rúm fyrir í Tungu. — Stjórnendur
Fáks luku miklu lofsorði á Ingólf
Guðmundsson ráðsmann sinn fyrir
góða hirðingu á hestum félags-
manna, enda hefur þessi hesthus-
rekstur félagsins orðið vjnsæll.
Núverandi skéiðvöllur félagsins
er gamall óg úr sér genginn og er
félaginu ætlaður nýr skeiðvöllur
í sambandi við íþróttásvæðið í
Láugadalnum.
Fáksmenn hafa í hyggju að fara
ríðandi til Þingvalla 17. júní n.k.
í stjórn Fáks eru nú Björn
Gunnlaugsosn form., Olgeir Vil-
hjálmsson ritari, Óli M. ísaksson
gjaldkeri og meðstjórnendur Sig-
urður Gíslason og-Birgir Kristjáns-
son. í nefndinni, scm aðalfundur
félagsins, 5. maí s.l., lcaus til þess i
að undirbúa stofnun landssam-
bands hestamannafélaganna, eru
þessir menn: Bjarni Eggertssön,
Einar E. Sæmundsen og Gunnar i
Bjamason.
Auðvitað var drukkin hestaskál
og Einar E. Sæmundsen lét heyra
margar af sinum snjöllu hestavís-
um, sem því miður er ekki rúm
fyrir hér, þó skulu tvær teknar
með, sú fyrri ort á skírdag s.l.:
Eftir vetrar veðrin stinn,
vorsins fann ég blæinn.
Góður er hann Gráni þinn,
guðsást fyrir daginn.
Hin síðari, ort á stundinni fyrir
tilmæli blaðamannanna er þannig:
Þó að Olgeir veiti vel
völdum hestaglönnum,
vísuna ég sjálfur sel
svona blaðamönnum.
Lýðveldiskssningar
Framh. af 1. síðu.
S-Múlasýsla: 99.1%.
N.-Múlasýsla 98.8%.
Austur Skaftafellssýsla 98.0%
Vestur-Skaftafellssýsla 100%.
Vestmannaeyjakaupstaður:
1965 af 1985, 99.0%.
RangárvaRasýsla: 99.9%.
Ámessýsla: 2988 af 3002
99.5%.
Gullbringu- og Kjósarsýsla:
3294 af 3312 99,5%.
Hafnarfjarðarkaupstaður:
2285 af 2318, 98.7%.
Reykjavík: 96%.
Allt landið: 97.3%.
Aoglýsiiigar
þurfa að vera komnar {
afgreiðslu Þjóðviljans fyr
ir kl. 7 deginum áður era
þær eiga að birtast t blað
Snu
MÓÐVILTINN.
E F
rúða brotnar
hjá yður þurfið þér aðeins að
hringja i síma 4160. Höfúm
rúðugler af öllum gerðum og
menn til að annast ísetningu.
VERZLUNIN BRYNJA
Sími 4160.
TIL
tlBSUIJSilii
Sfyrbiir
tii íslenilinga í lioreoi
Eins og áður hefur verið
skýrt -frá gaf norskur maður,
Gunnar Frederiksen konsúll í
Noregi fyrir nokkru 2000 krón-
ur (norskar) til styrktar íslend
ingum í Noregi.
Upphæð þessari hefur nú
verið skipt jafnt á milli 10 ís-
lendinga og eru þeir þessir:
Stúdentarnir Trvggvi Jó-
hannsson, Jón Jónsson, Rögn-
valdur Þorláksson, Hallgrímur
Björnsson, Baldur Bjarnason,
Hólmfríður Jónsdóttir Sæhle,
I ennfremur Óskar Sveinsson
garðyrkjumaður, Sigurlaug Jón
asdóttir matreiðslukona, Jó-
hann Guðjónsson og Þóroddur
Þóroddsson.
Gunnar Frederiksen konsúll
hefur tvisvar áður gefið jafn-
háa upphæð til styrktar íslend
ingum í Noregi.
Áki Jakobsson
héraðsdóms lögmaður
og
Jakob J. Jakobsson
Skrifstofa Lækjargötu 10 B.
Málíærsla — Innheimta
Reikningshald — Endurskoðtm
#9 ® M
Jri
£$
Hverfisgötu 74.
Sími 1447.
Allskonar húsgagnamálim
og skiltagerð.
VINNU- OG SKEMMTII ERÐ
sjálfboðaliða verður farin um
hvítasunnuna austur í land fé-
lagsins til að vinna að lagn
ingu ca. 150 metra langs vegar.
Lagt verður af stað á laugar-
dag. Ferðir fríar.
Þátttakendur hafi með sér
mat, svefnpoka eða teppi og
tjöld, ef hægt er, ennfremur
vinnuföt.
Félagsmenn eru beðnir að
hafa með sér skóflu og haka og
hjólbörur, ef þess er kostur
Þeir félagsmenn, sem vilja
taka þátt í ferðinni, eru beðn-
ir að tilkynna þátttökú sína á
skrifstofu félagsins eigi síðar
en n. k. fimmtudagskvöld.
Nefndin.