Þjóðviljinn - 24.06.1945, Blaðsíða 1
Algert samkomulag orðið um mynd-
un pðlskrar lýðræðisstjórnar
! Thor Thors seiidi-
i
herra kominn
heim með fjöl-
skyldu sína
í gærmorgun kom Thor Thors
sendfherra íslands í Washington,
til Keflavíkur með flúgvél frá
Bandaríkjunum. Með sendiherr-
anum var kona hans og þrjú börn.
Flugvélin hélt áfram til Stokk-
hólrns og fóru þessir farþegar með
henni héðan: Bjarni Jónsson, Hörð
ur Bjarnason, Björn Jóhannesson,
Kristján G. Gíslason. Sig Þorsteins
son, Sigurður Guðmundsson arki-
tekt, Reinhardt Lárusson, Karl
Kristinsson, Ragna Sigurðardóttir,
Helga Sigurðardóttir og Robert
Efteland, er verið hefur starfs-
maður hjá sendisveit Bandaríkj-
anna hér.
Sovétríkín, Bretland og Bandarikin munu
fafarlaust vídurkenna hína nýju sfjórn. —
Póllandí boðín þátifaka í öryggíssfofunínni
Samkvæmt fregnum frá London og Moskva hefur
náðst algert samkomulag um endurskipulagningu pólsku
bráðabirgðastjórnarinnar á ráðstefnu þeirri, sem boðað
var til í Moskva að tilhlutun nefndarinnar sem Krím-
ráðstefnan fól að fjalla um þau mál.
Verða í hinni nýju stjórn Póllands fjórir meðlimir
bráðabirgðastjórnarinnar í Varsjá, fimm fulltrúar ým-
issa lýðræðissamtaka í Póllandi og þrír fulltrúar fyrir
Pólverja erlendis, þar á meðal Mikolajzyk, fyrrverandi
forsætisráðherra pólsku stjórnarinnar í London.
Þegar nýja stjórnin hefur ________________________________
verið fullmynduð, munu stjórn-
ir Sovétríkjanna, Bandaríkj-
anna og Bretlands viðurkenn?.
hana, og er talið líklegt að fuli-
trúar hinnar nýju pólsku stjóru
ar muni undirrita sáttmála sam.
einuðu þjóðanna í San Francis-
co á morgun.
I nefnd þeirri sem stóð fyrir
ráðstefnu pólsku stjórnmálaleið
toganna í Moskva áttu sæti
Molotoff utanríkisþjóðfulltrúi
Sovétríkjanna, Averell Harri-
man, sendi'herra Bandaríkjanna
í Moskva, og Sir Archibaki
Clark-Kerr, sendiherra Bret
lands í Moskva.
í fregn frá Moskva segir að
samkomulaginu um endurskipu
lagningu pólsku stjómarinnar
sé tekið með miklum fögnuði
heima í Póllandi.
Chr. Möller og Molo-
tof f skiptast á skeyt-
um
Christmas Möller, utanríkis-
ráðherra Darnnerkur, hejur sent
M olo toff, utanríkisþjóðfidltrúa
Sovétríkjanna, skeyti með óskum
um að stjórmnála- og viðskiptaleg
samvinna- Danmerkur og Sovét-
rikjanna megi haldast sem lengst.
ReinbBiiai - ríssoesh mmd etllr
Mnnl bilnslræii sbðldsnii Htanda Ulassl
Ha siad I liarnarMi i »H
Dr. Björn Jóhanns-
son fer til Norð-
urlanda á vegum
nýbyggingaráðs
Nýbyggingarráð hefur í sam
ráði við ríkisstjórnina ráðið dr.
Björn Jóhannesson, efnafræðiug
til þess að fara til Norðurlanda
og Englands til frekari athug-
unar á möguleikum til að reisa
hér verksmiðju til framleiðslu
köfnunarefnisáburðar og mun
hann nú á förum.
Dr. Björn' Jóhannesson lauK
prófi við polyt-tekniska skólann
í Kaupmannahöfn árið 1940
Hann stundaði síðan framhalds
nám í Bandaríkjunum í 3V2 ár
og varði doktorsritgerð sína við
Cornellháskólann þar.
Hin heimsfræga skáldsaga pólska
rit'höfundarins Wanda Wassil-
ewska „Regnfyogi“, hefur verið
kvikmynduð, og verður myndin
sýnd á Tjarnarbíó á næstunni.
Leikstjóri er einn frægasti leik-
stjóri Rússa, Mark Donskoj, og
meðal leikara eru tvær kunnar
leikkonur, N. Újivi og N. Alizova.
„Regnibogi“ hefur verið þýdd-
ur á íslenzku af Helga Sæmunds-
syni blaðamanni við Alþýðuhlað-
ið.
Myndin gerist í úkraínsku þorpi
sem Þjóðverjar hafa hernumið.
Þýzkir hermenn þramma um göt-
urnar og merki um stjórn Þjóð-
verja ber fyrir augu — gálgar,
þar sem ættjarðarvinirnir hafa
verið hengdir.
Áð'ur en rauði herinn fór úr
þessu þorpi voru háðir þar harð-
ir bardagar. Sovétherinn hafði
ekki tíjna til að grafa lík þeirra
sem féllu. Þegar Þjóðverjar tóku
þorpið, bönnuðu þeir }x>rpsbúum
að grafa líkin og lögðu við dauða-
refsingu, líkin áttu að minna í-
búanna á að engrar hjálpar væri
að vænta frá rauða hernúm, hann
væri gersigraður.
Meðal þeirra sem féllu í barátt-
unni um heimili sín var sonur
Fedosiu. Á hverjum morgni fer
Fedosía með leynd að sjá lík son-
ar sins, þurrka snjóinn af andliti
þess og gráta yfir því.
I húsi Fedosía býr þýzki hers-
höfðinginn Kurt Warmer með
Fúsjú frillu sinni, sem er rússnesk.
Maður hennar er fyrirliði í rauða
hernum, en hún hefur selt sig Þjóð
verjum til að geta lifað lúxuslífi.
Þorpsbúar hata hana meira en
Þjóðverjanna.
Fedosía vinnur eins og ambátt
í húsi sínu. En ekki einungis hún
heldur allir þorpsbúar hafa verið
rændir eigum sínum og meira
að segja nöfnum. Þjóðvérjar fengu
þeim númer, og skipuðu þeim að
bera þau á sér. í þorpinu eru engir
eftir nema konur, börn og gamal-
menni. Þetta fólk getur ekki bar-
izt við Þjóðverja, en það hefur
ekki gefizt upp. Það heldur sam-
bandi við skæruliðana.' Stórbónd-
inn Gaplik, sem Þjóðverjar hafa
sett yfir þorpið, er fvrirlitinn af
öllum.
'k
Olena Kostjúk, kona úr skæru-
liða'hóp, kemur til þorpsins til að
fæða barn. Þjóðverjar komast að
því og handtaka hana. Þeir reyna
að neyða hana til sagna um skæru
liðana og berta hana verstu pynd-
ingum. en hún neitar að gefa
nokkrar upplýsingar.
Fólkið í þorpinu verður að horfa
á þetta án þess að fá aðgert. Lítill
drengur fær leyfi móður sinuar til
að reyna að smygla matatfbita til
Framhald á 4. síðu.
Quisling sýnd merki um hryðjuverk
nazista í Noregi
Grafir með líkum fjölda manna hafa fundizt í Trandumskógi við
Gardermoen í Noregi. Ilafa til þessa fundizt 15 grafir, og í þeim 7,
sem opnaðar hafa verið, voru lík 90 Norðmanna, sem Þjóðverjar hafa
tekið af lífi áin dóms og laga.
Fyrir nokkrum dögum var
Quisling tekinn úr fangelsinu og
fluttur til Trandumskógar. Var
hans stranglega gætt á leiðinni.
Quisling vissi ekki hvert ferðinni
var heitið og var mjög taugaó-
styrkur. Honum voru sýnd lík-
in og fékk þannig að sjá eina af-
ieiðinguna af sam\ inuu sinni við
Þjóðverja. Hann fékk einnig að
sjá flokksmenn sína grafa upp
líkin og bera þau á bílana sem
fluttu þau til Osló.
■ Þessi ógnarstjórn virtist fá
mjög á Quisling, en hann sagði
ekki neitt. Þegar hann var síðar
spurður, hvað honum fyndist um
þetta, svaraði hann: „Þetta er
auðvitað mjög alvarlegt fvrir sam
bönd okkar við Þýzkaland. Þetta
verður varanlegt sár i þjóðarsál
okkar“. Hann var spurður hvort
hann hefði ritað um þetta, en
hann svaraði þunglega: „Enginn
hefði búizt við að sjá slíka sjón“.
Fréttakvikmynd
Oskars Gíslasonar
Óskar Gíslason ljósmyndari sýndi
fréttakvikmynd í Gamla bíó í
fyrrakvö'ld.
Lengsti hluti myndarinnar var
frá þjóðhátíðinni 17. júní hér og
í Hafnarfirði. En auk þess voru
myndir frá ýmsum atburðum öðr-
um: liátíðahöldum sjómannadags-
ins, aldarártíð Jónasar Hallgríms-
sonar, sýningu á björgun úr sjávar
háska, firmakeppni í gólfi og
fyrstu stúdentar . Verzlunarskól-
ans. i
Fréttamynd þessi var allmis-
jöfn t.d. var margt gott frá 17.
júní mótinu og þannig fyrir kom-
ið, að áhorfendur veltust um af
hlátri. Aftur voru . aðrir kaflar
verri, t.d. er hæpið að það borgi
Framhald á 4. síðu.
Fjöldi heimsþekktra vísindamanna sækja
220 ára afmæli Vísindaakademís
Sovétríkjanna
Sendinefndir vísindamanna úr mörgum löndum eru nú komn-
ar til Sovétríkjanna til þess að sitja 220. afmæli vísindaakadem-
ísins rússneska, en það var sett
Sir Robert Robinsson, vara-
förseti Konunglega vísindafe
lagsins brezka lét svo um mælt
við þetta tækifæri, að brezkir
vísindamenn hefðu farið til Sov
étríkjanna til þess að tjá Sovét-
þjóðunum og vísindamönnum
þeirra vináttu sína, en rússnesk
ir vísindamenn nytu nú mikih:
álits í Bretlandi fyrir störf
þeirra. Hann sagði ennfremur
að mikill áhugi væri í Bretlandi
fyrir rússnesku og rússneskun
bókmenntum, sem sjá mætti
af því að deildum fyrir þessar
greinir hefði verið komið upp
við flesta háskóla í Bretlandi.
Hann kvað þessa samfundi
verða til þess að auka ogtrevsta
kynni og samstarf vísinda-
manna í Sovétríkjunum og Bret
landi.
15. þ. m.
Prófessor Kelthoff, einn af
fulltrúum amerískra vísinda-
manna sagði við setningu at-
mælishátíðarinnar, að þetta
væri fyrsta alþjóðaþing vísinda
manna eftir að Evrópustyrjöld-
inni lauk og hefði það verið
kvatt saman fyrir frumkvæði
Sovétríkjanna, sem hefðu lagt
fram hinn mikla þátt í barátt-
unni fyrir sigrinum yfir Þýzka-
landi Hitlers. Amerísku vísinda
mennirnir létu svo um mælt í
ávörpum sínum að þetta afmæl-
isþing myndi verða til þess að
efla meir en nokkru sinni fyrr
vinsamlega samvinnu milli vís-
indastofnana í Sovétríkjunun’
og Bandaríkjunum og væri það
ávinningur báðum þessum ríkj-
um.