Þjóðviljinn - 01.04.1949, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.04.1949, Blaðsíða 1
fr'vc'ífr 14- árp;angnr. Föstudasur apríl 1949. 73. tölublað. Þmgmenn SósíalistafEokksins lýsa sök á sem Einar Olgeirsson skorar á landráSaliSiS aS r]ufa þing og ganga tafarlausf fil kosninga -— ef það þorirí l í þriggja klukkutíma umræðum sem tóku allan þingtíma Alþingis í gær deildu þingmenn sósíalista cg Hannibal Valdimarsson fast á skrílsframferði hinna vopnuðu Heimdellinga og nazistasveitar dag- inn áður, og fékk lögreglustjóri þungt ámæli fyrir framkomu sína. Ríkisstjórnin og aðrir landsölumenn voru stöðugt í vörn og fórst hún mjög óhönduglega. „Skýringar” þeirra á atburðunum voru jafnmargvíslegar og ræð- ur þeirra, þa reyndu þeir flestir að halda því fram öð „kommúnistar'' hefðu undirbúið árás á Alþingi til að meina því að samþykkja Atlanzhafssáttmál- ann — og meira að segja Sigurður Bjarnason reyndi að benda með dramatískum tilburðum á tréhlerana sem voru fyrir tveimur svalargluggunum. Einu ,,sannanir" fyrir þessu voru þó þær, að Þjóðviljinn og Þjóðvörn hefðu hvatt menn til að krefjast þjóðar- atkvæðagreiðslu um málið! Ráðherrarnir hver af öðrum, Eysteinn, Stefán Jó- hann, Jóhann Þorkell, og smærri spámenn Banda- ríkjaliðsins gátu vart með orðum lýst „aðdáun" sinni og virðingu á framferði Heimdallarskrílsins og lögreglustjóra, og tóku algerlega á sig samsekt af þeim óþokkastrikum sem lið þetta hafði í frammi við saklaust, varnarlaust fólk á Austurvelli meðan verið var að samþykkja landráðin á Alþingi. Það kom skýrt fram í umræðunum að það var rík- isstjórnin, en alveg sérstaklega Stefán Jóhann, Ey- steinn, Ólafur Thors og lögreglustjórinn,.sem bera alla ábyrgð á því að til átaka kom. Það voru þessir menn sem æstu til átaka með því að siga lögreglu og Heimdallarskrílnum á fólkið, er komið var sem „heiðursgestir stjórnarflokkanna" eins og Hannibal Valdimarsson tók til orða. úr þinghúsiim, að þingfundi loknum. 2. Lögreglustjóri vopnaði með kylfum menn úr póli- tískum félagsskap „F. U. S. Heimdalli“ og hleypti ]peim til þess í skjóli laga að berja á saklausu fólki. 3. Lögreglustjóri fyrirskipaði fyrst lögregluárás, síðan árás hins kylfubúna félagsskapar og loks táragasárásir, allt án þess að aðvara fólkið áður eða biðja það að víkja frá húsinu, sem honum bar þó tvímælalaus skylda til. 4. Loks gaf lögreglustjóri vís vitandi ranga skýrslu, þar sem hann heldur því fram að hann hafi aðvarað fólk áður en hann hóf gasárásina. Þúsundir manna eru til vitnis um það, að þetta eru ósannindi. Nýi dómsmálaráðherr- ann dettur út úr lýð- ræðisrullunni Nýi dómsmálaráðherrann Jó- hann Þorkell datt snöggvast út úr lýðræðisrullunni, og talaði „Kmihesturiim'* rædd- ur" á Alþingi „Saga og bok- ^ • ■» menntir íslend- inga eru langmina m á síík atvik“ Á þingfundi í gær gerði ÁKI •lakobsson fyrirspurn um það byort forsætisráðherra liefði; daginn áður látið handtaka unga stúlku, sem gaf ráðherr- anum utanundir, er hann liom frá því að berja í gegn land- ráðasamninginn, og að stúlka þessi hefði \erið höfð í varð- haldi í sólarhring. Stetán Jóhann svaraði: Eg hef ekki látið fangelsa neinn. En mér er sagt að ung stúlka hafi verið handtekin og yfir- heyrð fyrir VISSA ÁRÁS sem hún gerði á mig fyrir utan Al-> þingishúsið! Áki átaldi harðlega að for- sætisráðherra hefði vitað um að ung stúlka hefði verið höfð í fangelsi í sólarhring fyrir svo litlar sakir að ekki gæti varð- að nema sekt. (Brynjólfnr Bjarnason skaut inn í: Hún ætti að íá verðlaun). Kvaðst Áki liefði talið forsætisráð- herrann meiri mann ef hann hefði hlutazt til um að stúlkan hefði ekki verið handtekinn. En hver yrði að breyta samkvæmt innræti sínu. Sigurður Bjarnason las frá- sögn Þjóðviljans af þessu at- viki og taldi óræka sönnum þess að „kommúnistar“ hefðu ætlað að gera árás á Alþingi! Einar Olgeirsson tók undir þau orð Þjóðviljans að kinn- hests þessa, er Stefán digri með bandaríska gullsjóðinn vísait hefði hlotið mundi lengi minnzt. Islenzk saga og bókmenntir væru Iangminnug á slík atvik, sem segðu í rauninni meira um Framhald á 6 síðu.! hug lolksins en flest annað. nú líkt og Hitlerskonsúllinn væri endurborinn, enda sjaldn- ast djúpt á honum. Reyndi hann ekki (og heldur ekki aðrir ráð- herrár) að svara kæruatriðum í spurningum Áka, sem hann nefndi „lagajúrista frá Siglu- firði“! Birýnjólfur Bjarnason lýsti í fáum en skýrum dráttum gangi málsins á miðvikudag- inn og hvernig framkoma Ölafs Thórs, lögreglustjóra og Heimdallarskrílsins hefði egnt til grjótkastsins og ó- eirðanna. Benti Brynjólfur á hvernig Eysteinn væri sér- staklega að æfa sig í Göbbels lygum um þessa atburði, Bandaríkjalepparnir væru sýnilega farnir að hafa þörf fyrir pólitískar próvókasjón- ir í stíl við þinghúsíkveikju Görings, til að geta fram kvæmt þá skipun banda- rísku húsbændanna að reyna að berja niður íslenzka verka lýðshreyfingu. Strax á mið vikudag hefði Bjarni Ben Umræðurnar hófust með því að Einar Olgeirsson kvaddi sér hljóðs utan dag- skrár'og Jýsti' sök á hendur ríkisstjórninni, formönnum stjórnarþingflokkanna og lögreglustjóra fyrir ofbeldis- beitingar, kylfubarsmíð og táragasárásir á saklaust fólk, sem sumt hafði komið þangað vegna margcndurtek innar beiðni formanna þing- flokkanna. Aðalleppnuin var svo brátt að fljúga westur að landið varð dómsmála- ráðherralaust! Áki Jakobsson kvaðst ætla að bera fram nokkrar spurningar til dómsmálaráðherra, og spurði hver gegndi því starfi síðan Bjarni Ben. flaug Vöflur komu á Jóhann Þor- kel sem kominn var í sæti sitt og sagði að bezt væri að spyrja forsætisráðherra! Lét Áki þá ná í Stefán Jó- hann, og þinguðu ráðherranafn- arnir augnablik í hliðarher- bergi, komu inn og Stefán lýsti yfir því að Jóhann Þorkell væri dómsmálaráðherra íslands. (Ekki er að efa að nú kemst skriður á viss sakamál, sem sorglega lengi hafa beðið!). Benti Áki nú á að í sambandi við atburðina á miðvikudaginn væru brot lögreglustjórans þessi: 1. Hann bannaði þingmönnumj að fara frjálsir ferða sinna útj Jón SigurSsson sneri fil yeggjar Þcgar lamlráðin iiöfðu verið samþykkt á að styítan af Jóni Sigurðssyni hafði snúizt burt frá landráðaniönnunam. þinginu í fyrradag tóku alþingismenn eftir því í hálfhring og horí'ð; hann nú til veggjar —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.