Þjóðviljinn - 14.04.1949, Blaðsíða 7
ÞJÓÐVIWINN
7
Fimmtudagnr 14. apríl 1949.
Forseti í höndum sér
verri manna
Það vakti athygli við atkvæða
greiðsluna um 2. umr. fjárlag-
anna í fyrrad., hve henni var
flaustrað af. Hvað eftir annað
skellti forseti saman í eitt til-
lögum um hin f jarskyldustu
mál til að flýta afgreiðslunni.
Þegar kom fram á kvöldverðar
tíma tóku þingmenn að ympra
á hléi eins og venja er til. En
forseti, Jón Pálmason sem virð-
ist hafa beðið tjón á sálu sinni
við ofbeldið sem ríkisstjórnin
beitti hann í afgreiðslu landráð-
anna 30. marz, harðneitaði öllu
slíku, atkvæðagreiðslu skyldi
haldið áfram þar til henni væri
lokið!
Fínir menn þurftu
í vezzlu!
Þegar nær var gengið for-
seta, kom ástæðan í ljós: Fínir
menn þurftu í veizlu og máttu
ekki vera að því að sinna þing-
störfum. Thórsarafíflið Ólafur
óð um þingsalinn eins og grenj-
andi ljön, hann þurfti í veizlu.
Bjarni Ben., (,,Laval“) lýsti
því líka yfir að hann þyrfti í
veizlu. En Björn Ölafsson hafði
þann hátt á, að hann skrapp
heim og fór í sparifötin, án þess
hlé væri gefið. Hann hlýtur að
hafá átt' að fá að vera í veizl-
unni. Og áfram var haldið, og
ruslað af aðalatkvæðagreiðsl-
unni um f járlögin 1949. Um tíu
leytið komust finu mennirnir
í veizluna, byrði þingstarfanna
af þeim létt.
SparnaSaivilji
stjórnarliðsins
Fjárveitinganefnd hafði gert
allmargar tillögur um nokkurn
sparnað á embættisbákninu.
Þegar til kom reyndist sparn-
aðarvilji stjórnarinnar ekki
meiri en svo að það felldi marg-
ar þessar tillögur sinna eigin
fulltrúa, og voru ráðuneytin
og stjórnarflokkarnir þar í
hinum skoplegasta skæruhern
aði innbyrðis. Sparnaðartillög-
ur um embættisbáknið hefðu
flestar verið felldar ef stjórn-
arandstaðan, Sósíalistaflokkur-
inn, hefði ekki sýnt þann raun-
verulega sparnaðarvilja og
þegnskap að greiða þessum
sparnáði atkvæði. Séet þar af
því að margar þessar tillögur
voru samþykktar með 26—30
atkvæðum , þó sósíalistarnir
greiddu þeifn atkvæði.
Lögreglan og saka-
dómari á hægra
bnóstirm
En þegar kom að sakadóm
araembættinu og lögreglustjóra
éihbætfihiit£!'&em stjórnarflokk-
apjffcjk fjárveitinganefnd höfðu'
samhljóða lagt til að yrði nokk-
uð sparað við, kom Bjarni Ben.
(,,Laval“) til skjalanna. Hafði
hann sýnilega myndað þar fylk
ingu sem nægði til að hindra
allan ,,sparnað“ í sambandi við
þessi tvö uppáhaldsembætti
leppstjórnarinnar. Felldu stjórn
arflokkarnir allar sparnaðartil-
lögur sinna eigin flokksmanna
varðandi þessi embætti. Sig-
urður Kristjánsson tók fram
að þeir atburðir hefðu gerzt, að
lögreglustjóra og sakadómara
veitti ekki af sínu; hreinskilin
játning um ótta og ofsóknarfyr
irætlanir leppstjórnarinnar.
Um eina af þessum tillögum
stjórnarliðsins sjálfs varðandi
lögregluna var nafnakall og
hindruðu þessir þingmenn að
sparnaður næði fram að
ganga: Ásgeir Ásgeirsson,
Barði Guðmundsson, Bjarni Ás-
geirsson, Bjarni Ben., Björn
Ólafsson, Eiríkur Einarsson,
Emil Jónsson, Finnur Jónsson,
Guðmundur í. Guðmundsson,
Gunnar Thoroddsen, Gylfi Þ.
Gislason, Hallgrímur Benedikts-
son, Ingólfur Jónsson, Jóhann
skráveifa, Jón Sigurðsson, Jón-
as Jónsson, Jörundur Brynjólfs
son, Lárus Jóhannesson, Ólafur
Thórs, Sigurður Hlíðar, Sigurð-
ur Kristjánsson, Stefán Jóh.
. Stefánsson, Stefán Stefáns-
son. Þorsteinn Þorsteins-
son, Sigurjón Á. Ólafsson, Jón
Pálmasoh — 26. Hinar sparnað
artillögurnar um sakadómara-
og lögreglustjóraembættin voru
allar felldar með 26 eða 27
atkv. svo ljóst er hvernig blökk
Bjarna Ben. er smíðuð: Það
er landsölublökk Alþýðuflokks
ins og íhaldsins, að viðbættum
Framsóknarráðherrum, Jörundi
óðalsbónda í Kaldaðarnesi og
Hriflu Jónasi! Með tillögunum
voru 19—21 atkv.
Æsiir sparnaðarmenn
þegar kom að heil-
brigðis- og menning-
armálum
En þó illa gengi að fá sam-
þykktar tillögur stjórnarflokk-
anna í fjárveitingarnefnd um
smávegis sparnað á embættis-
bákninu og Emil og Alþýðufl.
ætluðu vitlaus að verða þegar
minnzt var á að klípa örlítið í
skömmtunar- og verðlagsvitleys
una, stóð ekki á sparnaðarhetj-
unum þegar að heilbrigðismál-
um kom. Þegar Katrín Thorodd
sen krafðist nafnakalls um nið-
urskurð launa á Landspítalan-
um, gugnuðu kempurnar og
felldu þá tillögu, með þeirri
smekklégu athugasemd Stefáns
Jóhanns(sem Alþýðubl. japlar
á) að áhugi Katrínar á spítala-
málum væri vegna fjölskyldu
hennar! Hins vegar samþykkfu
stjórnarflokkarnir að hækka
d&ggjöid'sjúklinga á Lændspítal
anum og fæðingardeildinni nýju.
Afturhaldið sker niður
framlag fil berkla-
varna
Ein af þessum skemmdartil-
lögum sem stjórnarliðið sam-
þykkti var framlag til berkla-
varna, af því var klipið 19100
krónum! Þessir þingmenn
unnu það frægðarverk: Ásgeir
Ásgeirsson, Bernharð Stefáns-
son, Bjarni Ásgeirsson, Björn
Kristjánsson, Björn Ólafsson,
Eysteinn Jónsson, Gísli Jóns-
son, Guðm. I. Guðm., Halldór
Ásgrímsson, Hallgrímur Bene-
diktsson, Hannibal Valdimars-
son, Helgi Jónasson, Ingólfur
Jónsson, Jóhann Þ. Jósefsson,
Jón Gíslason, Jón Sigurðsson,
Jónas Jónsson, Jörundur Bryn-
jólfsson, Páll Zóphóníasson,
Páll Þorsteinsson, Pétur Otte-
sen, Jón Pálmason, Sigurður
Hlíðar, Sigurður Kristjánsson,
Sigurjón Á. Ólafsson, Skúli Guð
mundsson, Stefán Stefánsson,
Steingrímur Steinþórsson, Þor-
steinn Þorsteinsson. — Stoltir
mega þeir vera, 29 alþingis-
menn, höfðu sparað 19100 krón
ur! Móti voru allir þingmenn
sósíalista og fjórir að auki.
Ihaldið og sjúkra-
húsbygging í
Reykjavík
1 heilbrigðismálakaflanum
vakti athygli afgreiðsla á till.
sósíalista í fjárveitinganefnd
um eina milljón króna til
sjúkrahúsbyggingar í Reykja-
vík. Engir nema þingmenn sós-
íalista tíu greiddu þeirri tillögu
atkvæði. Á móti var stjórnar-
liðið nærri með tölu, 37 alls,
þar á meðal Sigurður Kristjáns
son, Stefán Jóh. Stefánsson,
Bjarni Ben., Björn Ólafsson,
Emil Jónsson, Eysteinn, Hallgr;
Ben., Jóhann skráveifa, Ólafur
Thors.
Borgarstjórinn Gunnar Thor-
oddsen átti undur bágt við af-
greiðslu þessarar tillögu og
sat loks hjá. Hann hafði sjálf-
ur borið fram breytingartillögu
um 1300 000 til heilbrigðisstofn
ana í Reyltjavík. En alvara í-
haldsins með þá tillögu sást á
því, að einungis fjórir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins
greiddu henni atkv. en 28
stjórnarkempur drápu hana.
Samþykkt var tillaga meiri-
hluta fjárveitinganefndar um
V2 milljón í þessu skyni.
Meirihluti Alþýðu-
flokksins fylgjandi
heilsuspillandi
íbúðum
Fróðlegt var einnig að sjá
meirihluta þingflokks Alþýðu-
flokkshis fella með afturhalds-
bræðrum sínum tillögu Sigfúsar
SigurhjartaTsonar og Áka Jak-
obssonar um tveggja og vara-
till. um einnar milljóna kr.
framlag til framkvæmdar laga-
ákvæðum um útrýmingu heilsu
spillandi íbuða, en samþykkt
þeirra hefði þýtt að hægt hefði
verið að byggja 100—200 íbúð-
ir til að tæma verstu'kjallara-
og braggaíbúðirnar.
Móti því að þessi viðleitni
væri höfð Vöru alþýðuléiðtog •
arnir Sigurj. Á. Ólafss., Stefán
Jóh. Stefánsson, Ásgeir Ás-
geirsson, Barði Guðmundsson,
GuðmuncTur I. Guðmundsson
og Emil Jónssonr Aðaltillagan
var felld með 34:1Í5 atkv., og
varatillagan með 29:13 atkv.
!
Sparnaðarhefjur í
menningarmálum
Framlög til menningarmála
skáru stjórnarflokkarnir óhik-
að niður, þó tækist að hindra
að samþykktar væru ýmsar
tillögur þeirra, þar á meðal um
afnám framlags til rannsókna
á þroskastígi skólabarna, af-
nám smástyrks til menningar-
sjóðs Blaðamannafélagsins, af-
nám fjárveitingar til Vísinda-
félags Islendinga, lækkun launa
til vísindamanna og fræði-
manna.
Hins vegar tókst að lækka
laun skálda, rithöfunda og lista
manna um 75 þús. kr., og réð
Alþýðuflokksmaðurinn Sigur-
jón Á Ölafsson þar úrslitum,
tillagan um niðurskurðinn var
samþykkt með 25 gegn 24 at-
kvæðum.
Með þessari hneykslanlegu
afgreiðslu greiddu þessir þing-
menn atkv.: Bernharð Stefáns-
son, Bjarni Ásgeirsson, Bjarni
Benediktsson, Björn Kristjáns-
son, Gísli Jónsson, Halldór Ás-
grimsson, Hallgr. Benediktsson,
son, Helgi Jónasson, Ingólfur
Jónsson, Jóhann Þ. Jósefsson,
Jón Gíslason, Jón Sigurðsson,
Jónas Jónsson, Jörundur Bryn-
jólfsson, Lárus Jóhannesson,
Jón Pálmason Páll Zóphónías-
son, Páll Þórsteinsson, Pétur
Ottesen, Sigurður Hlíðar, Sig-
urður Kristjánsson, Sigurjón Á.
Ölafsson, Skúli Guðmundsson,
Stefán Stefánskötl, Steingrímur
Steinþórsson'.
Mjög nærri lá að stjórnar-
flokkunum tækist að skera nið-
ur fjárveitingu til byggingu
iðnskóla i Reykjavík úr 250
þús. kr. í 200 þús. kr. Sú till.
var felld með 24 atkv. gegn
24! Með því að skera niður
iðnskólaféð voru m. a.: Sigur-
jón Á. Ólafsson, Eysteinn
m,enntamálaráðherra, Jóhann
Jósefsson, Sigurður Kristjáns-
son. Allir sósíalistar greiddu
að sjálfsögðu atkv. gegn þessu
skemmdarverki.
Níðsi á börnum
„Hver mótmælir
nú?"
.tveggja,;átkv. meirihluta
tókst afturhaldinu að lækka um
helming, úr 200 þús. kr., fjár-
veitingu til sumardvalarheimila,
dagheimila og vistarheimila
fyrir börn úr bæjum og kaup-
stöðum (gegn jöfnu framlagi
annarsstaoar frá).
,,Sparnaðarhetjurnar“ sem
þetta afrek unnu eiga skilið að
nöfn þeirra geymist. Þeir voru:
Bjarni Benediktsson, Ólafur
Thors, Eysteinn Jónsson, Jó-
hann Þ. Jósefsson, Bjarni Ás-
geirsson, Bernharð Stefánsson,
Björn Kristjánsson, Gísli Jóns-
son, Halldór Ásgrímsson, Helgi
Jónasson, Ingólfur Jónsson,
Jón Gíslason Jón Sigurðsson,
Jörundur Brynjólfsson, Lárus
Jóhannesson, Páll Þorsteinsson
Páll Zóphóníasson, Jóhann Haf-
stein, Skúli Guðmundsson, Sig-
urður Kristjánsson, Stefán Stef
ánsson, Steingrímur Steinþórs-
son, Þorsteinn Þorsteinsson,
Pétur Ottesen, Sigurður Hlíðar,
Jón Pálmason, 26 spamaðar-
hetjur, — 23 voru á móti.
Vafi var talinn leika á um
atkvæðagreiðslu sem fyrst fór
fram með handaupprc.ttingu, og
var hún endurtekin með nafna-
kalli. Þegar tekizt hafði að fá
fram fleiri atkv. móti börnun-
um með nafnakallinu, kallaði
Bjarni Ásgeirsson sigri hrós-
andi yfir þingsalinn: „Hver
mótmælir nú?“
Þjóðin mótmælis
Hver mótmælir nú?
Alþýða íslands mun
festa sér í huga þessi sig-
urorð Framsóknarráð-
herrans, er tekizt hafði
að svipta sumardvalar-
heimili kaupstaðabarna
helmingi fjárveitingar-
innar.
Hver mótmælir nú?
Hér hafa aðeins verið
tekin nokkur dæmi um
þá hneykslanlegu af-
greiðslu, sem Alþýðu-
flokkurinn, Framsókn og
íhaldsflokkurinn ætlar
að viðhafa á fjárlögum.
Þeir hrósa sigri, land-
sölumennirnir á alþmgi,
þykjast hafa ráðin af því
þeir hafa svikizt til
valda. En skuldadagur-
inn nálgast. Næst þegar
þjóðin fær að sýna hug
sinn til þessara fínu
herra, sem ekki mega
vera að því að sinna
þingstörfum fyrir veizlu-
brölti, til afturhalds-
durganna, sem níðast á
framfara- og menning-
armálum, en hlaða und-
ir lögregluvald og saka-
dómara, skal Framsókn-
arráðherrann Bjami Ás-
geirsson og félagar hans
fá svar við spuming-
unni: Hver mótmælir
nú?