Þjóðviljinn - 04.05.1950, Blaðsíða 4
g, Þ Jö ÐVILJINN Fimmtudagur .4. maí* 1950. .
Þióðviliinn
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósiálistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árna-
son, Eyjólfur Eyjólfsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skölavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Ljúgvilnunum ber ekki saman
Vonbrigði og ótti afturhaldsins vegna hátíðahald-
anna 1. maí koma fram á hlægilegan og aumkvunarverS-
an hátt, enda er sú eining sem mótaði daginn óvenjulegur
viðburður á miðju marsjallsvæðinu. Hvað skyldu þeir
segja hinir voldugu yfirboðarar fyrir vestan haf?!
Útvarpið sagði áð kvöldi hins 1. maí að í einingar-
kröfugöngunni hefðu tekið þátt á fjóröa þúsund manns,
enda er erfitt að falsa frásagnir alltof stórvægilega á sama
táma og atburðirnir gerast, þótt útvarpið hafi að sjálf-
sögðu farið eins langt og það komst.
Vísir varaðist í fyrradag að nefna nokkra tölu, játar
að kröfugangan hafi verið ,,alllöng“, en huggar sig við
að hún hafi verið ,,víða þunnskipuð“!!
Alþýðublaðið, sem mest hafði hamazt gegn ,,kröfu-
göngu kommúnista“ (en Jón Sigurðsson, Magnús Ást-
marsson og Óskar Hallgrímsson gengu meðal annarra í
broddi fylkingar!) burðast í gær við að halda því fram
að 1500 manns hafi verið í göngunni!
Vitlausi maðurinn í Morgunblaðinu, Váltýr Stefáns-
son (sá sem taldi 1300 í fyrra!) birtir nú töluna 950 og
segir að kröfugangan hafi verið „ein hin aumlegasta
ganga sem kommúnistar hafa farið um stræti Reykja-
víkur“!
Og að lokum tekur Tíminn þann viturlega kost að
nefna enga tölu og segja ekkerí um hvort gangan hafi
verið fjölmenn eða fámenn.
Það er alvarleg staðreynd aö eining verkalýðsins
.skyldi takast á miðju yfirráðasvæði marsjallstefnunnar,
en tekur hitt ekki í hnúkana, þegar hinn vellaunaði mar-
■sjalláróöur fer svo ömurlega út um þúfur að ljúgvitnin
sjálf bítast innbyrðis?
Afleiðinprnar koma í Sjés
Á laugardagskvöldið síöasta í apríl komu tveir for-
ingjar íslenzka afturhaldsins í útvarpið og fluttu þjóð-
inni minnisverð tíðindi. Fyrstur kom forsvarsmaður rík-
ustu og voldugustu ættarinnar og skýrði frá því innan
um skrúðmæli um Breta að síldarlýsi hefði nú enn falliö
í verði, síldarmjöl hrapað um 40%-, freðfiskur væri ó-
seljanlegur, ísfiskmarkaðurinn valtari en hverfihjól,
þorskalýsi verðlítið o. s. frv.
Því næst kom Jón Árnason, æðsti ráðamaöur banka-
klíkunnar, og dró saman ályktanir af hruninu: Verðmæti
útflutningsframleið'slunnar í ár getur vai't orðið meira
en 345 milljónir króna, en var á síöasta ári 504 milljónir
og 1948 725 milljónir, miðað við núverandi gengi. Hrapið
nemur því meira en helmingi á tveim árum.
Báðir lýstu ræöumennirnir þessu sem óviðráðanlegu
áfalli, líkt og Heklugosi, mannskaðaveðri - eða skriöu-
íhlaupi. En hrunið er engin sending óbuganlegra örlaga,
heldur afleiðing stefnu, kaldrifjaðrar stefnu, sem þessir
íveir herramenn hafa staðið ao flestum fremur. ísland
ihefur með marsjallstefnunni verið bundið við markaði
auðvaldskreppunnar og verið gert háð skæðustu keppí-
mautum sínum. Árið 1947 seldu islendingar um það bil
helming afurða sinna til landa sósíalismans í Austur-
evrópu. Þessir markaðir hafa vitandi vits og af pólitísku
ofstæki verið eyöilagðir — þess vegna er búizt við að út-
flutningsvérðmæti íslendinga minki utn helming á
þessu ári.
„Sjón er sögu ríkari.“
„Bíógestur skrifar: — „Sjón
er sögu ríkari.“ heita íslenzkir
kvikmyndaþættir, sem Loftur
sýnir í Gamla Bíó um þessar
mundir. Eg var að hugsa um
það á leiðinni heim, eftir að
hafa horft á myndirnar, hvað
það væri eiginlega, sem hefði
komið mönnunum til að gefa
þessum myndahrotum ofan-
greint nafn, því mér fannst á-
kaflega lítið að sjá í þeim. En
svo rann upp fyrir mér það
ljós, að framleiðendunum hafi
kannski verið ljóst, hve falsk-
ur, ósamræmdur eða gjörsam-
lega ómögulegur hljómur mynd
arinnar er og þess vegna gefið
henni þetta nafn, með það í
huga, að þótt bíógestir heyrðu
bæði illa og rangiega til lista-
mannanna, sem þarna komu
fram, þá allténd sæju þeir þá
sæmilega.
Málmhljóð í leik píanó-
sniilingsins!
,,Ég hef hins vegar vanizt
því, að þegar um tónlistarmenn
er að ræða, þá fari menn á
skemmtanir þeirra til þess að
heyra þá leika eða syngja, en
síður til að skoða þá. Þessir
myndaþættir, sem langsamlega
flestir eru af tóniistarmönnum,
hljóta ‘að standa eða falla með
tónupptökunni. — Þarna komu
fram t. d. 6 píanóleikarar og
snillingar, tveir efnilegir söngv-
arar og raunar þegar vinsælir,
sem ég hef heyrt „njóta sín“
mjög vel í útvarpi. Allt þetta
fólk kolfelldi hljómurinn í mynd
inni. Tökum t. d. Rögnvaid Sig-
urjónsson, píanósnilling; það
var engu líkara en lagður hefði
verið aukastrengur þvert yfir
alla hina í hljóðfærinu, sem
hoppaði þar og skoppaði laus
til og frá og myndaði miður
þægileg málmhljóð.
■ • ,
Fögur tónlist eyðiiögð.
„Þórunn litla, sem allir dást
að, spilaði þarna tvö verk, en
þau voru eyðilögð fyrir henni
lika. — Baldur Kristjánsson
spilar tvö lög á píanó, en hljóm
urinn er þannig, að það er einá
og hann sé 'með lélegt barna-
leikfang í höndum — og svo
er einnig um aðra. — Þuríður
Pálsdóttir syn'gui' þarna, og er
ýmist sem öskur fylli salinn
eða hún bregði tómu vatnsglasi
fyrir munn sér. — svo gjörsam
lega er hennar raunverulegi
fagri söngur eyðilagður. —
Magnús Jónsson, sem ég hef
heyrt í útvarpi og líkaði söng-
ur hans þar mjög vel, syngur
þarna einnig og fær sízt betri
útreið en aðrir, því stundum
ætlar hann alveg að æra mann
með hávaða, en svo fer hann
langt, langt í burtu og við heyr
um í honum eins og smala inni
á heiðum, í fjarska. —
Spillir fyrir ísl. kvik-
myndagerð.
„Ég veit ekki af hverju þessi
gífurlegu mistök með hljóminn
stafa, — hvort það er vegna
lélegra tækja, vankunnáttu eða
óvandvirkni, — en hitt þykist
ég vita, að á meðan framleiðend
ur þessara mynda sýna þá
smekkleysu að bjóða fólki upp
á þetta sem „eitthvað fyrir
alia“ geta þeir ekki vænzt mik-
illar aðsóknar að íslenzkum
kvikmyndum. Og hugsunarhátt
urinn, sem felst á bak við þessi
tilvitnuðu orð úr auglýsingu
þeirra fyrir þessari íslenzku
kvikmynd, sem er ekki neitt fyr
ir neinn.gefur í skyn að þeir
séu harla ánægðir með verk
sitt, -— og sé svo, þá getum við
ekki búizt við betra í næstu
myndum þeirra. M. ö. o.: ég
álít að svona frágangur á ís-
lenzkri kvikmynd spilli fyrir ís-
lenzkri kvikmyndagerð. A. m.
k. læt ég þetta verða mér víti
til varnaðar, þarnig að sækja
ekki ísl. kvikmyndir, fyrr en ég
hef sannar fregnir um að þær
séu vel á horfandi og hlustandi.
m
Fólk streymir út af
miðri sýningu.
„Islendingar eru yfirleitt
býsna þaulsætnir á hinum lé-
legustu kvikmyndum og fara
ekki út í miðri mynd, nema
fram úr hófi keyri. — Á þeirri
sýningu, sem ég sá umrædda
mynd, var áberandi, hve margt
fólk fór út meðan á sýningu
stóð, — og gremjustunur stigu
frá brjóstum margra, sem eftir
sátu. Og ég segi það satt, að
ég kenndi í brjósti um leikend-
urna, svo afkáralegur sem tón-
leikur þeirra var gerður með
hljómupptökunni. — Um sjálfa
myndatökuna mætti sjálfsagt
margt gott segja, — og þáttur-
inn sem listdansmærin dansaði
í, fannst mér bera af þessu
öllu saman — en eins og áður
getur, byggist þessi mynd, eins
cg allar tónlistarmyndir, á því
að tónlistin sé góð og hljómur-
inn sem réttastur og beztur,
og þar sem hér var hvorugu
Framhald á 7. síðu.
v ★
Höfnin.
Askur lcom af veiðum í gær og
Fylkir fór á veiðar.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn í gær 3.5. til Gautaborgar.
Dettifoss er í Reykjavík. Fjallfoss
kom til Halifax, N. S. 27.4. Goða-
foss kom til Hull 2.5., fer þaðan
til Rotterdam og Antverpen. Lag-
arfoss er í Reykjavík. Selfoss er
í Reykjavík, fer í kvöld 4.5. vest-
ur og norður. Tröllafoss kom til
Reykjavíkur 1.5. frá N; Y. Vatna-
jökull er á Spáni. Dido væntan-
legur til Reykjavíkur síðdegis i
gær 3.5. frá Noregi.
Skipadelld S.I.S.
Arnarfell er væntanlegt til Oran
á föstudag. Hvassafell er á Akur-
eyri.
Ríkissklp
Hekla fór frá Reykjavík kl.
21.00 í gærkvöld vestur um land
til Akureyrar. Esja er á leið frá
Austfjörðum til Akureyrar. Herðu
breið var á Bakkafirði í gærmorg
un. Skjaldbreið fer frá Reykja-
vík kl. 12 á hádegi í dag til Snæ-
fellsnesshafna, Gilsfjarðar og Flat
eyjar. Þyrill var í Hvalfirði í gær.
flVÍlt- Samæfing í kvöld
S ▼ 111 kl 8.30 i Sýningar-
sal Ásmundar Sveinssonar, Freyju-
götu 41.
Náttúrulækningafélag Reykja-
víkur heldur fun3 í Guðsspekifér
lagshúsinu, Ingólfsstr. 22. Kl. 8.30 í
kvöld. Sigurður Sveinsson garð-
yrkjuráðunautur flytur erindi um
vorstörfin x matjurtagörðunum.
Næturlæknir er í læknavarðstof
unni, Austurbæjarskólanum. ------
Sími 5030.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunn. — Sími 7911.
Næturakstur annast Hreyfill.
— Sími 6633.
1 fjarveru minni, um stundar-
sakir, munu aðrir prestar góð-
fúslega gegna störfum i minn
stað.
Vottorð úr kirkjubókum verða
afgreidd í Fríkirkjunni alla virka
daga nema laugardaga kl. 5—6
e. h. — Séra Þorsteinn Björns-
son, fríkirkjuprestur.
, 1. maí voru
gáfín saman i,
hjónaband af
sr. Bjarna Jóns
syni, ungfrú
Lea Rakel Lár
usdóttir og Agnar Möller, verzlun-
armaður frá Stykkishólmi.
Nýlega hafa opin
berað trúlofuii
sina, ungfrú Vil-
fríður Jónsdóttir
frá Ölafsfirði og
Kristinn Bjarna-
son, Sörlaskjóli 15. — Nýlega hafa
opinberað trúlofun, ungfrú Sol-
veig Guðbjartsdóttir, Lækjarg. 12,
Hafnarfirði og Guðmundur Guð-
mundsson, Bræðraparti, Vogum.
Félagið Berklavöi-n heldur sum-
arfagnað í Breiðfirðingabúð i
kvöld. Sjá auglýsingu i blaðinu.
12.15—13.15 Há-
degisútvarp. 18.30
Dönskukennsla;
II. fl. — 19.25
Veðurfi-egnir. 20.25
Dagskrá lista-
mannaþingsins: 1) Tónleikar:
Þrjú lög fyrir fiðlu og píanó eftir
Helga Pálsson (Björn Ólafsson og
Árni Kristjánsson leika). 2) 20.40
Erindi: Fáein orð um listdans
(frú Sif Þórz). 3) 20.55 Upplestur
skálda, rithöfunda og leikara. 4)
21.30 Sönglög eftir Áskel Snorra-
son (Guðrún Þorsteinsdóttir syng-
ur). 5) 21.40 Upplestur. 22.10 Dag-
skrá listamannaþingsins: Isl. tón-
leikar (plötur)i 23.00 Dagskrár-
lok.
LEIÐKÉTTING.
1 kvæðinu Meðan einn af Islands
niðjum, sem birtist i Þjóðviljan-
um 1. maí, eru tvær prentvillur.
1 1. erindi, sjöundu linu stendur
„striðið," á að vera- stríð. I 4. er-
indi, fjórðu línu stendur „manns,“
á. að vera mans (sem þýðir þræll)
og leiðréttist þetta hér með.
Samtíðin, 4.
hefti þessa ár-
gangs er komið
Út. Efni: Ónytj-v
uð gjaldeyrislind.
Perlan falda, kvæði
eftir Gunnar Dal. Islendingur
nemur keltnesk frœði, samtal ,við
Hermann Pálsson cand. mag. Stór
kostlegar heilaaðgerðír. Morðingj
— r —. .