Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 2
2) ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 18. janúar 1955 O 1 dafT þriðjudasurinn 18. janúar — Frisca — 18. dagur árs- Sns — Tungl fjærst jörðu; í há- suðri W. 8.03 — Árdegisháflæði bl. 0.52. Síðdegisháflæði H. 13.32. 18:00 Dönskuk. I. fl. 18:25 Veðurfr. 18:30 Enskuk. II- fl. 18:55 Fram- burðarkennsla í ensku. 19:15 Tón- leikar: Þjóðlög frá ýmsum lönd- um pl. 20:30 Erindi: Eyjan Kýpur (Högni Torfason fréttamaður). 20:55 Tónleikar pl.: Píanókonsert í d-moll eftir Mozart (Bruno Walter og Fílharmoníska hljóm- sveitin í Vinarborg' leika; ein- leikarinn stjórnar). 21:35 Upp- Jestur: Kvæði eftir Sigurð Ein- arsson (Steingerður Guðmunds- dóttir leikkona). 22:10 Úr heimi myndlistarinnar. — Björn Th. Björnsson listfræðingur sér um þáttinn. 22:30 Daglegt mál (Árni Böðvarsson cand. mag.). 22:35 Léttir tónar. — Jónas Jónasson sér um þáttinn. 23:15 Dagskrár- lok. KÍM. Happdrættismiðar í inn- anfélagshappdrætti. KlM eru afhentir daglega kl. 5—7 á ekrifstofu MÍR, Þingholtsstræti Millilandaflug: Gullfaxi er vænt- anlegur til Rvíkur frá Prestvik og London kl. 16:45 í dag, Flugvélin fer til Kaupmanna- h-afnar kl. 11 í fyrramá’ið. Hekla., miililandaflugvél Loftleiða, er væntanleg til Rvíkur kl. 7:00 í fyrramálið frá N.Y. Flugvé’.in fer kl. 8:30 til Stafangurs, Kaup- mannahafnar og Hamborgar. Innanlandsflug: 1 dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar, Sauðárkróks, Þingeyrar og Vestmannaeyja. Á morgun eru ráðgerðar fiugferðir til Akureyr- ar, Isafjarðar, Sands, Siglufjarð- ar og Vestmannaeyja. AÐVÖRUN TIL KARTÖFLU- EIGENDA Ræktunarráðunautur Rvíkur- bæjar biður fyrir eftirfarandi skilaboð: Vegna langvarandi kulda og af gefnu tilefni er fólk áminnt að gæta kartöflu- geymslna sinna vel og vand- lega, byrgja strompa og gera aðrar varúðarráðstafanir, þar i eð það hefur komið í ljós að þótt um góðar geymslur hafi verið að ræða, sem ekki hafa áður brugðizt, hafa ýmsir kartöflueigendur orðið fyrir tjóni, ef þeir hafa ekki gætt ýtrustu varúðar. Jón minn Rofnseyringur Mikið gengur það yfir mig, hvað lítið andlegt líf er hér hjá oss, og ekkert finnst mér það hafa glæðzt með þúsundáraöldinni nýju, nema ef telja skyldi þjóðhá- tíðarkvæðin í fyrra, en ekkert kver nýtilegt hefur kom- ið hér út, sem beri vott um andlegan áhuga á neinu, það er ekki góðs viti. £g veit ekki heldur von á neinu í slíka stefnu, sem lýsi andlegu fjöri. Ég hefi, síðan þjóðsögurnar voru frá hendinni, verið að búa gátu- og þulusöfnin mín undir prentun, þegar ég hefi haft frístund, og er þó ekki nærri búinn enn, enda ættu leik- irnir að fylgjast þar með; en taki nú drottinn af mér sjónina, fara þessi söfn ekki langt hjá mér, og þykir mér illa, því ekki er sagt að annar eljuskárri taki þar við, sem mig „þrýtur erindið“, eins og Þór forðum. Að vlsu veit ég, að Jón minn Sigurðsson, Rafnseyringur, sem nú er búinn að festa kaup á handritum mlnum öðrum en þessum söfnum, sem líklegt væri að prentuð gæti orðið undan minni hendi, ef forsjónin vildi lofa mér að vinna enn um stund með fullum kröftum, — vildi halda þar áfram, sem ég gæfist upp, en hver veit hvað hans'nýtur léngi við úr þessu? . . . Upp á aðra Islendinga get ég ekki talið til þeirra hluta, því ég ótt- ast fyrir, að flésta þeirra skorti áhuga og alúð við þau ritstörf, sem þeim þykja ekki merkari, ef til vill, en svo. (Jón Árnason þjóðsagnasafnari I bréfi til Maurers 1875). i _v>'V Hjónunum Mar- gréti Björnsdóttur og Sigurði Úlfars- syni, húsgagna- smíóameistara, Teigagerði 16, æddist dóttir 20. desember s. 1. Æfing í kvöld kl. 8:30 LYFJABÚÐIB Holts Apótek | Kvöldvarzla til Mr | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar- bæjar daga til kl. 4. Næturvörður er í læknavarðstofunni Austur- bæjarskólanum, sími 5030. Næturvarzla er í Laugavegsapóteki, sími 1618. fiokkunnni fírj FLOKKSGJÖLD Greiðið flolcksgjöld ykkar skilvís- lega. 1. ársfjórðungur 1955 er fall- inn í gjalddaga. Skrifstofan er op- in daglega frá kl. 10-12 fh. og 1-7 eh. Moggiun og Tím- inn hafa sér það nú helzt til dægra- dvaiar að skamma hver annan. — Heimskur, ósvíf- inn, óhlutvandur, hlutdrægur, vit- laus — þetta eru helztu málblóm- in sem skrýða nú síður þessara blaða. Eg minnist af þessu tilefni vísunnar hans Páls: Satt og log- ið sitt er hvað, sönnu er bezt að trúa. En hvernig á að þekkja það, þegar flestir Ijúga. Hér ætti að standa „báðir“ fyrir flest- ir, og auðvitað á vísan ekki við nema þegar téð blöð tala um sjálf sig. En einhvernveginn sýn- ist mér að skammaryrðin eigi við rök að styðjast — og er fátt svo með öllu illt, o. s. frv. Farsóttir í Reykjavík vikuna 19. til 25. desember 1954 samkvæmt skýrslum 20 (20) starfandi lækna. Kverkabólga 29 (52). Kvefsótt 192 (125). Iðrakvef 10 (1Ó). Mislingar 18 (65). Hvotsótt 2 (0). Hettusótt 113 (19). Kveflungnabólga 17 (9). Taksótt 2 (0). Rauðir hundar 79 (55). Munnangur 11 (0). Kikhósti 4 (1). HJaupabóla 10 (4). Farsóttir í Reykjavík vikuna 26. des. til 1. 'janúar 1955, samkv. skýrslum 18 (20) starfandi lækna. Kverkabólga 50 (29). Kvefsótt 163 (192). Gigtsótt 1 (0). Iðrakvef 20 (10). Mislingar 16 (18). Hettusótt 107 (113). Kveflungnabólga 16 (17). Taksótt 1 (2). Rauðir hund- ar 71 (79). Munnangur 6 (11). Kik- hósti 2 (4). Hlaupabóla 6 (10). (Frá skrifstofu borgarlæknis). Austfirðingafélagið í Reykjavík heldur skemmtifund í Þórskaffi næstkomándi fimmtu- dag klukkan 8:30 síðdegis. Bólusetning gegn bamaveiki Pöntunum veitt móttaka í dag, þriðjudaginn 18. janúar, kl. 10-12 árdegis í síma 2781. Bólusett verð- ur i Kirkjustræti 12. Gregory Peck og Audry Hep- burn í kvikmyndinni Gleði- dagar í Róm, sem Tjarnarbíó hefur sýnt allan þennan mán- uð — og sýnist ekkert lát á vinsældum myndarinnar. SKlPAUTGCRÐ RIKISIN S Esja vestur um land I hringferð hinn 22. þ.m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Ak- ureyrar í dag og á morgun. Farseðlar seldir á fimmtudag. F ermingarbörn Rétt tll að fermast 1955, vor eða haust, hafa öU böm sem fædd eru árið 1941 eða fyrr. Dómklrkjan Þau börn, sem eiga að fermast 1955, vor eða haust, hjá séra Jóni Auðuns, komi til viðtals í Dóm- klrkjunni fimmtudaginn kl. 6; og þau börn, sem fermast hjá séra Óskari J. Þorlákssyni. komi í Dómkirkjuna föstudaginn klukk- an 6 síðdegis. Laugamessókn Fermingarbörn í Laugarnessókn, sem fermast eiga í vor eða næsta haust, eru beðin að koma til við- tals S Laugarneskirkju (austurdyr) næstkomandi fimmtudag kl. 6 síð- degis. — Séra Garðar Svavarsson. BústaðaprestakaU Fermingarbörn í Bústaðasókn komi til viðtals í Gagnfræðaskóla Austurbæjar, stofu 20, á morgun, miðvikudaginn 19. janúar, ki. 6 siðdegis. Fejmingarbörn í Kópa- vogssókn komi til viðtals i Kópa- vogsskóla fimmtudaginn 20. jan- úar kl. 6 síðdegis. — Gunnar- Árnason, sóknarprestur. i öáií- NesprestakaU Börn, sem fermast eiga á þessu ári, bæði i vór og að hausti komi til viðta's í Melaskólann fimmtu- daginn 20..”jan. kl. 5 síðdegis. — Séra Jón Thorarensen. HáteigsprestakaU Fermingarbörn í Háteigspresta- kalli. sem eiga að fermast á þessu ári, eru beðin að koma i hátíða- sal Sjómannaskólans fimmtudag- inn 20. þm. kl. 6.30 síðdegis. — Jón Þorvarðsson. HaUgrímsprestakall Fermingarbörn séra Jakobs Jóns- sonar eru beðin að koma til við- tals í Hallgrímskirkju fimmtu- daginn 20. þm. kl. 6.15 síðdegis. — Fermingarbörn séra Sigurjóns Árnasonar eru beðin að koma til viðtals í Hallgrímskirkju föstud. 21. þm. klukkan 6.15 síðdegis. LangholtsprestakaU Væntanleg fermingarbörn séra Árelíusar Níelssonar mæti i Lang holtsskóla á föstudagskvöldið kl. 6 síðdegis. Frikirkjan Fermingarbörn eru beðin um að koma til viðtals í Fríkirkjuna á fimmtudag kl. 6.30 síðdegis. Fermingarbörn séra Emils Björns- sonar eru beðin að koma til við- tals í Austurbæjarskólanum kl. 9 fimmtudagskvöldið 20. þm., bæði börn sem fermast eiga í vor og að hausti. Maður sem ekki vill láta nafns síns getið hefur gefið Óháða frí- kirkjusöfnuðinum 30 fermingar- kirtla, og verður fermt í þeim í fyrsta skipti á næsta vori. Kvöldskóli alþýðu I kvöld eru Félagsmál á dagskrá, og hefjast kl. 8.30, kennari Ingi R. Helgason. 1 -'a-ý' »Trá hóíninni Rikissklp Hekla fer frá Rvik kl. 23 í kvöld austur um land í hringferð. Esja er á Austfjörðum á suðurleið. Herðubreið var á Hornafirði síð- degis í gær. Skjaldbreið fer frá Rvík á fimmíudaginn vóátur um land til Akureyrar. Þyrill er í Rvík. Skaftfellingur fer frá Rvík síðdegis ;í dag til Vestm.- eyja. Sambandsskip Hvassafell fer frá Tuborg í dag til Grangemouth. ArnarfeH fór frá Rvík 10. þm. áleiðis til Brazil- íu. Jökulfell er í Rvik. Dísarfell er í Rvík. Litlafell er á leið frá Norðurlandi til Faxaflóahafna. Helgafell er í N.Y. Bæjaptogararnir Hallveig Fróðadóttir og Skúli Magnússon voru að landa afla hér í höfninni í gær. Allir hinir bæjartogararnir eru á veiðum, nema Þorkell máni sem mun vera um það bil að korina, til Esbjerg í Danmörku með salt- fiskfarm — og verði Dönum gott af. Krossgáta nr. 556. Gengisskráning: Kaupgengl 1 sterlingspund ..... 1 Bandaríkjadollar .. 1 Kanadadollar .. 100 danskar krónur 100 norskar krónur 100 sænskar krónur 100 finnsk mörk 1000 franskir frankar 100 belgískir frankar . 100 svissneskir frankar 100 gyllini ......... 100 tékkneskar krónur 100 vestur-þýzk mörk . 1000 lírur .......... 45,55 kr 16,26 — 10,26 — 235,50 — 227,75 — 314,45 — 46,48 — 32,65 — 373,30 — 429,70 — 225,72 — 387,40 — 26,04 — (l'Humanitt’ Uiinanehc) Vísan Litfari minn lúinn er, liggur hann út af flatur, hann verður, þá héðan fer, hrafna og tóu matur, en skinnið skafið og hert; um öndina veit ég ekki par, hvað af henni verður gert, eg get þar ekki gefið svar greitt né opinbert. Vísa Stefáns Ólafssonar um hest- inn Litfara. Lárétt: 1 eftirgrennslanir 7 fanga- mark 8 kvennafn 9 uppblástur 11 svar 12 keyrði 14 skst. 15 boði 17 sérhljóðar 18 skst. 20 áttavita. Lóðrétt: 1 dorma 2 í bókhaldi 3 guð 4 skst. 5 atviksorð 6 eyði- leggja 10 söngflokkur 13 pott 15 kvikmyndahús 16 auðsýna 17 fór 19 háspil. Lausn á nr. 555. Lárétt: 1 stara 4 há 5 rá 7 lit 9 sól 10 arf 11 iýk 13 af 15 er 16 ókunn. Lóðrétt: 1 sá 2 Ari 3 ar 2 hasla 6 álfur 7 111 8 tak 12 ýsu 14 ró 15 en. Gátan Hver er sá strákur, sem stendur í jörðu, innan í honum ólmast stelpa, á höfðinu alltíð gengur, þá hún sig hrærir hljóðar hann stórum og hrekkur upp úr hráki mikill, skellir upp rassi, skvettir úr munni gusu stórri? Gott er að ráða. Ráðning síðustu gátu: — VÖNDUR. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnið Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis. Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl. 5-7. Lesstofan er opin virka daga kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 og 13-19. Náttúrugripasafnið kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnið á virkum dögum kl. 10-12 og 14-19.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.