Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 12
Landssmiðjan átti 25 ára starfsafmœli í gœr. Sjö af járnsmiðum smiðjunnar hafa starfað þar frá því hún tók til starfá'og áttu því einnig 25 ára starfsafmœli hjá henni í gœr. Myndin hér að ofan var tekin af þeim í gær, og er Jóhannes 'Loega forstjóri Landssmiðjunnar með þeim, en eitt afmælisbarnið, Gunnar Helgason vélsmið vantar á myndina. Á myndinni eru, taldir frá vinstri: Edvald Stefánsson skipasmiðvr, Björn Jónsson verkstjóri, Guðjón Sigurðsson eldsmiður, Jóhannes Zoega forstjóri, Þorvaldur Brynjólfsson yfirverkstjóri, Páll Pálsson yfirverkstjóri, Gísli Gíslason bókari. Sjómenn ræða innheimiu bálagjaldeyrisins Deilunni vísað til sáttasemjara Landssamband ísl. útvegsmanna hefur nú til- nefnt samninganefnd við sjómenn í Vestmanna- eyjum. Eru 3 þeirra úr Reykjavík, en 2 úr Vest- mannaeyjum. Formaöur L.Í.Ú. hringdi í fyrradag til Siguröar Stefánssonar formanns Jötuns og baö hann ræöa viö nefndarmenn L.Í.Ú. í Eyjum um þaö aö vísa málinu til sáttasemjara. Hefur sátta- semjari nú fengið máliö til meöferöar. Stjórnir sjómannafélaganna voru í gær á fundi meö lögfræöingi sínum til aö ræöa viö hann inn- heimtu bátagjaldeyrisins, sem Hæstiréttur dæmdi útgerðarmenn í Eyjum nýlega til að greiða sjó- mönnum. Islenzk saga í víð- lesnu rússnesku tímariti Eitt útbreiddasta tímarit Sov- étríkjanna Ogonjok birti í 51. hefti árgangsins 1954 Sögu úr síldinni eftir Halldór Kiljan Lax- ness. Þrjár teikningar eftir rúss- neskan listamann fylgja. Þýðing- in er gerð af V. Morosoff, úr ís- lenzku. Ritstjóri Ogonjok er rússneska skáldið A. V. Sofronoff sem hingað hefur komið á vegum MÍR, og hafa áður birzt í þessu tímariti hans þýðingar á sögum og greinum eftir Halldór. Skákþing Norð- lendinga hafið Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Skákþing Norðlendinga var sett hér í fyrrakvöld. Þátttak- endur eru 30 í fjórum flokk- um. í meistaraflokki eru 9, í I. flokki 5, í II. fl. 6 og 9 í ungl- ingaflokki. í meistaraflokki er keppt um titilinn skákmeistari Norðurlands. Guðjón M. Sigurðsson, skák- meistari Reykjavíkur keppir sem gestur á mótinu. MeirihlHti íbúanna innan við Elliða- ár býr enn við vatnsskort Búið að leggja vatnsleiðslu um Selásinn en engar vatnsveituíramkvæmdir enn í Árbæjarblettum Enda þótt nokkuð hafi verið unnið að lagningu vatns- leiðslu um byggöina austan við Elliðaár í haust og vetur er verkið ekki lengra komið en svo, aö meirihluti íbú- anna býr enn við algjöran vatnsskort. Enn sem komið er hafa > farafélag íbúanna, sem nær framkvæmdir við vatnsleiðslu j bæði yfir Selás og Árbæjar- þarna takmarkast við byggðina | bletti snúið sér til bæjarráðs í Se'ásnum en ekkert verið unn- með áskorun um að vatn verði ið að því að koma vatninu um Árbæjarblettina. Hefur Fram- Herðubreið með bilað stýri í Hornaf j arðarós einnig lagt um Árbæjarbletti, þar sem meirihluti íbúanna sé búsettur. Bæjarráð ræddi erindi fram- farafélagsins á fundi sínum 14. þ.m. en ákvað áður en ákvörð- un væri tekin að fá 'umsögn vatnsveitustjóra um málið. í gær laskaöist stýri strandferöaiskipsins Herðubreiöar í ís í Hornafjaröarósi og mun þurfa aö aöstoöa skipiö á leiö hingað til viðgerðar. Herðubreið var á leið inn I Hornafjarðarós í gærmorgun, I um rennuna er grafin var þar s.l. sumar. I frostunum hefur töluverður is komið á Horna- fjörð, en bátarnir hafa haldið opinni leið út. Herðubreið varð föst i rennunni og var þá lát- in fara aftur á bak en við það rakst stýrið í isjaka og laskaðist svo að það varð ó- hreyfanlegt. Lá slripið í csnum í gær. Herðubreið var á leið til Austf.jarða rneð vörur og verð- ur einhverju af vörum skipað upp í Höfn í Hornafirði. Fiski- bátar munu aðstoða Herðu- breið út úr ósnum, en taiið er að liún muni einnig þurfa á aðstoð að halda hingað til Reykjavíkur. Vestmannaeyjum. Frá fréttaritara Þjcðviljans. Einn bátur fór á sjó liér í gær með síldarnet og fékk 36 tunnur í hafnarmynninu. 5 bátar lögðu þar síldarnet síð- degis í gær. Verðv um einhverja veru- lega veiði að ræða kemur hún sér vel því hér er fremur beitulítið. — Síldin er liafsíld, stór eii mögur. þlÖÐVHJINN Þriðjudagur 18. janúar 1955 — 20. árgangur — 13. tölublað Fannfergi bannar Orkneying- um og Suðureyingum alla björg Samgönguöngþveiti í Kaupmannahöfn og Málmey Úrkoma hefur verið geysimikil um vestanverða Evrópu undanfarna daga og hefur nú víða valdið stórvand- ræðum. Norðan til á meginlandinu og í Bretlandseyjum hefur hlaðið niður snjó en sunnar hefur rignt ákaflega. 100 þorp elnangruð Verst er ástandið á eyjunum umhverfis Skotland og í Skot- landi norðanverðu. Á Orkneyjum er enginn vegur fær vegna fann- kyngis. Víða er matur handa mönnum og fóður handa skepn- um að þrjóta. Á Suðureyjum eru 100 þorp og þau eru öll með tölu algerlega einangruð. Geta eyjarskeggjar enga björg sér veitt. Bæði frá Orkneyjum og Suður- eyjum hafa borizt beiðnir um að skip eða helikopterflugvélar verði send með matvæli. Borgir lamaðar í fyrrinótt og frameftir degi í gær var sótsvartur bylur í Dan- mörku og á Skáni í Svíþjóð. f borgunum Kaupmannahöfn og Mólmey fennti svo að samgöngur um þær tepptust. Sporvagnar og strætisvagnar komust ekki leið- ar sinnar og tugþúsundir manna komust ekki í- vinnu í gærmorg- un. Flóð í Rín og Signu í Frakklandi og Vestur-Þýzka- landi hefur verið hléka og vöxtur hlaupið í ár. Signa og Marne eru þegar teknar að flæða yfir bakka sína og í París hefur verið gripið til neyðarráð- stafana vegna flóðahættu. í Vestur-Þýzkalandi er hætta á flóðum í dölum ánna Rín, Dónár, Mosel, Neckar og Saar. Vöxtur er svo mikill í Rin að tekið er að flæða inn í hús í lægstu hverfum borganna Köln, Kob- lenz, Bonn, Duisburg og Dússel- dorf. Tvei ferezkir sjómenn brutust inn í \m verzlanir í fyrrinótt Stálu leikföngum, úrum og skartgripum, en lögreglan hafði hendur í hári þeirra Tveir sjomenn af brezku veðurathuganaskipi, sem ligg- ur hér í Reykjavíkurhöfn, brutust í fyrrinótt inn í veral- unina Liverpool í Hafnarstræti og þvínæst inn í úra- og skartgripaverzlun SigurÖar Tómassonar viö Skólavöröu- stíg. Götulögreglan komst þó brátt á slóö þeirra, og hef- ur þýfiö aftur fundizt. ^ ' Það var rétt fyrir kl. 3 í fyrrinótt, sem götulögreglunni barst tilkynning um að brotinn hefði verið sýningargluggi í verziun Sigurðar Tómassonar við Skólavörðustíg. Brá lög- reglan skjótt við, og komst á slóð manns er hljóp niður Klapparstíg og síðan inn Hverfisgötu. Dró hún manninn þar uppi, og fannst á honum nokkuð af úrum, klukkum og skartgripum. Litlu síðan fann lögreglan félaga mannsins, er tekið hafði þátt í innbrotinu með honum. Hafði hann á leið sinni frá verzluninni slætt Ffamhald á 3. síðu. Jón Axel Pétursson forstjóri Bæj- j arútgerðar Reykjavíkur og meðlimur í F LB. j kaus í Sjómannafélagi Rftykja\íkur í fyrradag. Sjó- menn, fellið stjórn forstjóra, hreppstjóra, skósmiða, j sútara, skífuiagningameistara o. fl. Kjósið B-lista, lista starfandi sjótnanna. Kosning fer fram daglega í skrifstofu Sjómannafélags Reykjavikur : frá klukkan 10 til 12 og 3 til 6. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.