Þjóðviljinn - 21.01.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 21. janúar 1955
■ i I dag er föstudagurlnn 21-.
jaiuSar. Agnesarraessa. — 21.
dagur ársins. — Bóndadagur. Mið.-
ur vetur. Þorri byrjar. — Tungl í
hásuðri kl. 10:33. — Árdegishá-
flæði ld. 4:04. Siðdegiháflæði kl.
16:23.
Kl. 8:00 Morgunút-
varp. 9:10 Veður-
fregnir. 12:00 Há-
degisútvarp. 15:30
Miðdegisútvarp. —
16:30 Veðurfregnir.
18:00 Islenzkukennsla II. fl. 18:25
Veðurfregnir, 18:30 Þýzkukennsla
I. fl, 18:55 Framburðarkennsla í
frönsku. 19:15 Tónleikar: Harm-
onikulög (pl). 19:40 Auglýsingar.
20:00 Fréttir. 20:30 Havíð Stefáns-
son frá Fagraskógi sextugur: a)
Kristján Eldjárn þjóðminjavörður
flytur erindi. b) Skáldið les úr
ljóðum sínum. c) Tónleikar. 21:30
Útvarpssagan. 22:00 Fréttir og
veðurfregnir. 22:10 Hsestaréttar-
mál. 22:25 Dans- og dæguriög:
Doris Day ofl. syngja og Roberto
Inglez og hljómsveit leikur (pl).
23:10 Dagskrárlok.
■ Þriðjudaginn 18. þm
"opinberuðu trúlof-1
'lun sína ungfrú
María Pálsdóttir af-
greiðs’.umær, Leifs-
götu 7, og Bene-
dikt Helgason, sjómaður Rauðar-
árstíg 24.
Leiðrétting
1 frétt í blaðinu x fyrradag um
stjórnarkosningu í verkalýðsfélag-
inu í Hveragerði féli niður nafn
eins stjórnarmeðilans, Sumarliða
Sveinssonar. Hann er f jármála-
ritari stjórnarinnar — og leið-
réttist þessi vangá hér með.
Kynning á verkum
Þórbergs Þórðarsonar
Vilum gjarnan vekja athygii á
fyrirhugaðri kynningu á verk-
um Þórbergs Þórðarson. Land-
neminn gengst fyrir kynning-
unni, sem verður í Tjarnarkaffi
á sunnudaginn. Það verður sam-
felld dagskrá, og auk þess les
Þórbergur upp, en Björn Þor-
steinsson flytur um hann rit-
gerðarkafla.
Þykkvabæingar
vestanheiðar hafa kynnikvö’.d í
Edduhúsinu við Lindargötu laug-
ardaginn 22. þessa mánaðar.
Skemmtiatriði.
Styrktarsjóður
munaðarlaúsm barna, sími 7967.
Gengisskráning:
Kaupgengi
1 sterlingspund 48,55 kr
1 Bandaríkjadollar . . 16,26 —
1 Kanadadollar . 16,26 —
100 danskar krónur ... . 235,50 —
100 norskar krónur ... . 227,75 —
100 sænskar krónur ... . 314,45 —
100 íinnskmörk . ,48,48*4
1000 franskir frankar .
100 belgískir frankár’ . . 32,65 —
100 svissneskir írankar ,. ,873,30 —
100 gyllini . ........... •... • . 429,70 —
100 tékkneskar krónur . 225,72 —
100 vestur-þýzk mörk . . 387,40 —
1000 lírur . 26,04 —
Gengisskráning (söiugengi/
1 sterlingspund .... .... 45.70
1 bandarískur dollar .... 16.32
1 Kanada-dollar .... .... 16.90
100 danskar krónur .. ... . 236.30
100 norskar krónur .. .... 228.50
100 sænskar krónur .. .... 315.50
100 finnsk mörk .... 7.09
1000 franskir frankar . .... 46.63
100 belgískir frankar .... 32.75
100 svissneskir frankar .. 374.50
100 gyllihi .... 431.10
100 tékkneskar krónur .... 226.67
100 vesturþýzk mörk . .... 388.70
1000 lírur .... 26.12
L Y F J A B Ú Ð I R
Holts Apótek | Kvöldvarzla til
ŒjtgT" | kl. 8 alla daga
Apótek Austur- | nema laugar-
bæjar dagá til kl. 4.
Næturvörður
er í læknavarðstofunni Austur-
bæjarskólanum, sími 5030.
Næturvarzla
er í Laugavegsapóteki, sími 1618.
KÍM. Happdrættismiðar í inn-
anfélagshappdrætti. KÍM eru
afhentir daglega kl. 5—7 á
skrifstofu MÍR, Þingholtsstræti
iifiakkunnn
Flokksgjöld.
Þessi voðalegi höfuðstaður
ANNARS hef ég skemmt mér ágætlega 5 þessari ferð, nema
mér er andskotalega við að reka mig alltaf á Dani, hvar sem
ég kem. Þeir eru svo hræðilega vinalegir í útlöndum hver við
annan og gjöra t.d. mig danskan og kalla mig „Landsmand" i
öðru hverju orði.... Annars hef ég verið í ,s'agtógi" með
Englendingum, [Rússum (sem ég kann mikið vel við) og þýzku:
saxnesku kvenfólki, sem ég kann bezt við, að Frökkum undan-
skildum, sem ég kann langbezt við.
Ég er nú búinn að vera i þessum voðalega höfuðstað síðan 12.
ágúst og verð hér að minnsta kosti þangað til eftir nýár. Fyrst
eftir 'að ég kom hingað, gerði ég ekki annað en ráfa um París,
og það er sannarlegt völundarhús kanntu að trúa. Nú er ég
seztur að, er heima ailan fyrirmiðdaginn til kl. 5 (þá er mat-
málstími hér), en fer svo út og oftastnær á komedíu á eftir.
Ég les einkum historíu og heimspeki og meðfram lygasögur,
en fyrirlestra hef ég ekki ennþá heyrt hér, því þeir byrja ekki
fyrr en í næsta mánuði. Við Gaimard hef ég talað; hann er um
þetta leyti í Algier, en kemur bráðum aftur, og Guðmundur
Sívertsen með honum. Þessutan hef ég kynnzt hér við fleiri
Frakka og einum kenni ég íslenzku til endurgjalds fyrir, að
hann jagfærir fyrir mig franskan stíl. Aldrei hefði ég hugsað,
að ég væri eins ónýtur í frakknesku eins og ég hef reynzt. Ég
hef nú babblað frakknesku á hverjum degi síðan ég kom
hingað og get ennþá varla gjört mig ski'janlega,-þvi Pa.rís-
ármállýzkan er svo andskoti vönd. --- (Gríinur Thomsen I bréii
1846). 'G.
Leiðréttlng
Við sögðum frá því”hér á 2. síð-
unni í gær að Þorgrímur Einars-
son leikari ]æs‘i kvæði eftir Jó-
hannes úr Kötlum í útvarpið i
gærkvöld. Þessi fræðsla um upp-
lesarann var ekki rétt: þgð var
Þorgrímur H. Einarsson sem las;
'og þótt hann hafi að vísu einnig
fengizt við leik’ist, og m.a. leik-
ið i kvikmynd, nefnir hann sig
ekki leikara. „Þorgrímur Einars-
son leikari" er sem sé annar
maður — og biður 2. síðan af-
sökunar á rangherminu.
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnið
Útlámvirka daga kl. 2-10 síðdegis.
Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl.
5-7. Lesstofan er opin virka daga
kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar-
daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga
kl. 2-7.
Landsbókasafnið
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10-12
og 13-19.
Náttúrugrfpasafnlð
kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þjóðminjasafnið
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15
á þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Þjóðskjalasafnið
á virkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Vísan
Fór eg til berja
fyrra sunnudag,
fann eg fyrir mér stúlkukorn,
í bláu pilsi hún var;
léði eg henni liijublað
að leika sér að.
Eiti eg hana í öll hús
og aJlt upp í lambhús,
upp í sel
og ofan á mei.
Alla daga fari hún vel.
(Úr þxxlum og þjóðvísum).
Millilandaflug:
Sólfaki fer til
Kaupmannah. kl.
8.30 í fyrramálið.
— Hekia., milii-
landaflugvél Loft-
leiða, er væntan-
leg til Rvikur n.k. sunnudag kl.
7 árdegis frá N.Y. Plugvélin held-
ur áfram til meginlands Evrópu
kl. 8:30. Edda, minilandaflugvél
Loftleiða er væntanleg til Rvíkur
kl. 19:00 sama da.g frá Hamborg,
Gautaborg og Osló. Áætlað er, að
flugvé’.in fari til N.Y. kl. 21:00.
Innanlandsf lug:
1 dag er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar, Fagurhólsm., Hornafja.rð-
ar, Hólmavíkur, Isafj., Kirkjubæj-
arklausturs og Véstmannaeyja. —
Á morgun eru ráðgerðar flugferð-
ir til Akureyrar, Blönduóss, Eg-
i'sstaða, Isafjarðar, Patreksfj.,
Sauðárkróks og Vestmannaeyja
Kvöldskéli alþýðo
Leiklistin og upplesturinn hefst
kl. 5 í dag eins og venju’ega. Kl.
8:30 hefst þýzkan, en að henni
lokinni hinn nýi upplestrarflokk-
ur Karls Guðmundssonar leikara
0Morgimblaðið hefst
í gær með þessari
fi-ásögn: „Samtím-
is því, sem Hamm-
arskjöld, aðairitari
Sameinuðu þjóð-
anna, heldur áfram
að viniia að því að ná sáttum út
af fangclsxm amerísku flug-
mannanna ellefu, sem hafðir eru
i haldi í Kína, hafa kínversku
kommúnlstamir byrjað ákafar
hernaðaraðgerðir við Kínastrend-
ur, en hætt er við að hemaðar-
aðgerðir þessar leiðl til vaxandi
sundrungar miili Bandaríkjanna
og KinastjóiTiar“. Hvernig hugsar
Moggiim sér „vaxandi sundi-ung"
inilli auovaldsins í Bandaríkjun-
um og alþýðunnar í Kína? Er
kannski verið að spá nýju heims-
stríði?
Orðaskýringar
Sumir kynnu kannski að halda
að grenjabítur væri elnhvers-
konar skepna, til dæmis ref-
ur, en það er nú ekki aldeil-
is tilfellið. Blöndal segir að
grenjabítur sé leikur og s.pyr;
innan sviga hvort það sé sama !
og s.kolialeikur, sem allir
þekkja. Greppur þýddi í fomu j
máli skáld, en hinsvegar þýðir 1
greppleitur feitur og tútinii j
í andliti, enda þýðir greppur 1
síðar Ijótur maður — og væri j
fróðlegt að vita hverskonar j
samband nurni vera á milli
þessara merkinga. Voru fom-
skáldin okkar kannski tiltak-
anlega ljótir menn?!!
Krossgáta nr. 559.
hóíninnl
Lárétt: 1 drykkur 4 kaðall 5 tólf
mánuðir 7 kopar 9 fita 10 æst
11 skst. 13 ryk 15 ekki 16 bónin.
Lóðrétt: 1 e’-dsneyti 2 karlmanns-
nafn 3 stafur 4 þumlungur 6
spil 7 r 8 blóm 12 togara 14
kyrrð 15 tenging.
Lausn á nr. 558.
Lárétt: 1 faðmana 7 á! 8 ómar 9
kló 11 ISG 12 SF 14 ia 15 akur
17 óp 18 lón 20 fallinn.
Lóðrétt: 1 Fáks 2 a.ll 3 mó 4
ami 5 Nasi 6 argar 10 Ósk 13
full 15 apa 16 rói 17 óf 19 NN.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
vill minna konur á 20. ára afmæli
félagsins, sem ha’dið verður há-
tiðlegt í Þjóðleikhúskjallaranum
næstkomandi mánudag.
Ríkisskip
Hek’a er á Austfjörðum á norður-
leið. Esja er væntanleg til Rvik-
ur árdegis í dag að austan úr
hringferð. Herðubreið er í Rvík.
Skjaldbreið er í Rvík. Þyrill verð-
ur væntanlega í Hvalfirði í dag.
Baldur fór frá Rvík í gærkvöldi
til Ólafsvíkur, Gmndarfjarðar og
Stykkishólms.
Sambandsskip
Hvassafell er í Grangemouth.
Arnarfell fór frá Rvík 10. þm.
áleiðis til Brazilíu. JökuTell fór
frá Rvík 18. þm. áleiðis til Ham-
borgar. Dísarfe’l losar á Húna-
flóahöfnum. Litlafell er í oliu-
flutningum á Suðurlandshöfnum.
Helgafell er í N.Y.
EIMSKIP:
Brúarfpss. fór frá Isafirði í gær
til Patreksfjarðor- og ÍBreiðafjarð-
ar. Dettifoss kom til Kotka 18.
þm. frá Ventspils. ■ Fjallfoss fór
frá Hamborg ,i gær til Antverp-.
en, Rotterdam, Hu!l og Rvíkur.
Goðafoss fór fiá Rvik í fyrradag
til N.Y. Gullfoss fór frá IRvík í
fyrrad. til Leith og Kaupmanna-
hafnar. Lagarfoss fór frá Rvík
15. þm. til N.Y. Reykjafoss kom
til Rvíkur í gær frá Hull. Selfoss
fór frá Kaupmannahöfn í fyrra-
dag til Rotterdam og íslands.
Tröllafoss kemur til Rvikur um
kl. 10 í dag frá N.Y. Tungufoss
fór frá N.Y. 13. þm. til Rvíkur.
Kat’a. fer frá Danzig í dag til
Rostock, Gautaborgar og Krist-
iansand.
Togaraniir
Allir togarar Bæja.rútgerðarinnar
eni á veiðum, nema Pétur Hall-
dórsson sem kom af veiðum kl.
10 í fyrrakvö’d óg Þorkell máni
sem mun nú langt kominn að
landa saitfiski í Esbjerg í Dan-
mörku. — Neptúnus kom af veið-
um á mánudaginn. Vilborg liggur
við Ægisgarð. Gyl'ir og Egill
rauði eru til viðgerðar í Reykja-
vík.
Handavinmmámskeið
Handavinnudei’d Kennaraskólans
efnir til 3ja mánaða námskeiðs í
handavinnu á næstunni. Kenndur
verður einfa’dur fatasaumur og
útsaumur. Kennslugjald verður
kr. 50. —. — Úpplýsingar gefnar
í sima 80807 næstu daga milli kl.
9 og 15:00 e.h.
Gátan
Gátu vil ég greina
glöggt, fyrir utan stanz,
ekki nema um eina
unnustuna manns;.
síns frá herra síðu
sú ei kæra fer,
með hauka, brikar hlíðum,
við hana minnumst vér;
einn er hringur ærið mjór
allt í kringum laufin stór.
Ef úr fór þingi illa fór,
á henni glæpumst vér.
Ráðning gátunnar í gær: Köttur.
Æfing
í kvöld
kl. 8:30
1. ársfjórðungur féll í gjald-
daga við áramót. Komið og
greiðið flokksgjöld ykkar skil-
víslega. Skrifstofan er opin alla
virka daga frá klukkan 10—
12 og 1—7 eftir hádegi.
Snjórinn er kominn