Þjóðviljinn - 22.01.1955, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.01.1955, Blaðsíða 11
Laugardagur 22. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (11 Blóðsunnudagurinn 22. janúar 1905 Framhald af 7. síðu. offs í Suður-Rússlandi lentu í miklum kaupdeilum árið 1903 og um stund mátti lita það kostulega sjónarspil, að lögregluyfirvöld Hans Iiátign- ar urðu að draga taum þeirra gegn atvinnurekendum. I þess- ari verkfallsbaráttu missti lögreglan öll tök á verka- mannafélögunum og hún varð sem skjótast að afklæðast gerfi verkalýðsleiðtogans. En árið 1904 reyndi keisara- stjórnin að ná tangarhaldi á verkamannasamtökum Péturs- borgar, en þar var að rísa upp miðstöð rússneskrar stór- iðju — Pútíloffverksmiðjurn- ar. Sár.sem nú gerðist handbendi lögreglunnar í verkalýðsmál- um Pétursborgar, hét Gapon, og var prestur að atvinnu. 1 byrjun árs 1904’ stófnáði hann „Hið rússneska félag verk- smiðjufólk's í Pétursborg*' dg varð það’ brátt mjög fjöl-' mennt og starfaði í 11 deild- um. Um áramótin 1904/05 lagði verkalýður Pétursborg- ar niður vinnu og tóku 150 þúsund verkamanna þátt í verkfallinu. Gapon prestur og lögregluspæjari leitaðist. við að sveigja verkfallið inn á „rétta“ braut og glæða keis- arahollustuna í hugum Pét- ursborgarverkamanna. Gapon var málsnjall maður í alþýð- legum stíl og hafði sérstakt lag á að tala við verkamenn með þeirra. eigin tungutaki. Hann naut því mikils trausts og fyrir haps áeggjan fóru verkamenn Pétursborgar til Vetrarhallarinnar á fund keis- arans. Þegar för þeirra lauk með blóðsúthellingu varð Gap- on skelfingu lostinn og hróp- aði: „Við eigum engan keis- ara lengur. Blóðflaumur skil- ur keisarann og fólkið. Lifi frelsið!“ Það kom nú í ljós sem oft- ar, að hinar sundurleitu stjórnardeildir keisaradómsins kunnu lítt að samhæfa stjórn- arstefnuna. I sama mund og lögregluyfirvöldin og forsæt- isráðherrann, Witte greifi, vildu vinna ástir verkalýðsins, hugðust háttsettir menn við hirðina gefa skrílnum ráðn- ingu. Keisarastjórninni yar vel kunnugt um, að verka- mannaförin var í undirbún- ingi, og ekkert hefði verið auðveldara en að afstýra henni. En stjórnin stofnaði til blóðbaðs. af ráðnum hug. Keis- arinn hafði horfið frá Pét- ursborg til Tsarskoje Seló, en Vladímir stórfursti, frændi hans, stjórnaði atlögunni á hendur hinum varnarlausa lýð. En sjaldan hefur glæpur kom- ið tilræðismönnunum svo í koll sem atlagan gegn kröfu- göngu 'verkamanna í Péturs- borg. Það var engu líkara en verkalýður Rússaveldis hefði tekið hamskiptum á einni nóttu. Verkamenn Póllands lýstu þegar yfir allsherjarverkfalli, og nú flæddi verkfallsaldan yfir öll helztu iðjuhéruð keis- araveldisins: í janúarmánuði 1905 einum saman lögðu 500, 000 verkamenn niður vinnu. Én þessi verkföll voru með öðrum hætti en títl var um verkföll annars staðar í Evr- ópu um þessar mundir. Þau hefjast venjulega með kröfum um bætt kjör og kaup, en áð- ur en varði hafa þau breytzt í pólitísk verkföll þar sem bornar eru fram kröfur- um almbnnan kosningarétt og allsherjar stjórnlagaþing. Á hiokkrum mánuðum stofnuðu rússneskir verkamenn alls- herjarsamtök, og verkfalls- hreyfingunni var stjórnað af öflugri miðstjórnarnefnd. Á vormánuðum ársins 1905 taka rússneskir bændur að bæra á sér. Bændauppreisn- irnar samfléttast verkfalls- hreyfingu borganna. Stúdent- ar um allt Rússland opna há- ■ skólasalina fyrir alþýðunni, þúsundir ólæsra og óskrifandi verkamanna þyrpast þangað til að hlýða á stjórnmálaer- indi verkalýðsleiðtoga af sundúrleitúm ' ffokkum. Og loks brást m'egiriás keisara- vaídsiriS: rússneski'. . hetínn. Éloti ng landher Rússakeigara höfðu beðið fullan ósigur fyr- ir Japönum austur í Gulahafi og í Mandsjúríu, og í júní- mánuði gerðu sjóliðar á Svartahafi, flestir af bænda- ættum úr Volguhéruðunum, uppreisn gegn keisaranum og leituðu bandalags yið verk- fallsmenn Ódessuborgar. Hið heilaga, biðjandi og grátandi Rússland hafði á örskammri stund breytzt í ungt ljón, er öskraði svo hátt, að undir tók um allan heim. Þegar leið að haustnóttum varð plógfar hinnar rússnesku byltingar æ dýpra. Er bændur höfðu komið komi sínu og heyi í hlöðu hófu þeir nýjan samblástur og sneru vopnum sínum gegn aðalsmönnum sveitanna. 3000 bændaupp- reisnir voru skráðar í vestur- og suðurhéruðum Rússlands og 2000 gósseigandahallir voru bremidar til ösku. I lok októbermánaðar skellur á allsherjarverkfall er lamar allt samgöngu- og járnbraut- arkerfi rússneska ríkisins. Um sama leyti skapa rússneskir verkamenn fyrstu sovét sög- unnar — fulltrúaráð verka- manna í Pétursborg, Ivanavo- Vpssnesensk, Kostrómu, Moskvu og víðar. Uppruna- lega eru þessi ráð. . aðeins verkfallsnefndir, en innan stundar eru þau orðin vísir að nýju ríkisvaldi, er skipar sér við hliðina á ríkisvaldi keisaradómsins. Fulltrúaráð verkamanna í Pétursborg stjórnaði allsherjarverkfallinu og gaf út tilskipanir eins og fullvalda þing: það lýsti yfir prentfrelsi og framkvæmdi 8 stunda vinnudag. I lok árs- ins 1905 breyttist byltingar- hreyfingin í vopnaða uppreisn, er stóð í níu daga í hinni fornu höfuðborg ríkisins, Moskvu. Hún varð ekki brot- in á bak aftur fyrr en keis- arahollar úrvalshersveitir voru sendar á vettvang. Það vantaði ekki nema herzlu- muninn, að keisarastjórninni yrði steypt af stóli í hinum ferlegu sviptingum ársins 1905. í ágústmánuði neyddist keisarastjómin til undanhalds. Þá gefur hún út .tilskipun um stofnun ríkisþings með ráð- gefandi valdi og takmörkuð- um kosningarétti verkamanna og bænda. En fólkið hafði að engu slíkar hundsbætur, og þegar allsherjarverkfallið stóð sem hæst, varð keisarastjórn- in að slaka til á nýjan leik. Hinn 30. október birti hún á- varp keisarans til þjóðarinn- ar. Þar var henni lofað ýms- um frelsisréttindum, svo sem persónulegri friðhelgi manna, málfrelsi og fundafrelsi, og ríkisþingi með löggjafarvaldi. Ennfremur var því lofað, að kosningaréttur hinna afskiptu ,þjóðfélagsstétta‘ skyldi rýmk- aður síðar meir eftir því sem kostur væri á. Þessi loðnu loforð keisarans, sem síðar voru flest. .svikin, sættu hina rússnesku borg- arastétt og stjórnmálaflokka hennar við keisaradóminn, og mátti þá þegar sjá það fyrir, hvernig þessi nýja yfirstétt mundi snúast við vandamálum hinnar rússnesku byltingar. En keisarastjórnin hafði einn- ig á öðrum sviðum aflað sér nokkurra setugriða. I sept- embermánuði samdi hún frið við Japani og gat endurskipu- lagt hinar sigruðu fylkingar liers síns svo, að hún gat notað hann til þess að drekkja byltingunni heima fyrir í blóði. Á næstu mánuðum fóru refsihersveitir keisarastjórn- arinnar um uppreisnarhéruðin og slökktu elda byltingarinn- ar. I annan stað fékk keisara- stjórnin geysistórt fjárlán á Frakklandi, 2,250 milljpnir gullfranka, og fyrir þetta fé franskra skattgreiðendá og sparif járeigenda gat hún fest sig í sessi og gengið af bylt- ingarhreyfingunni dauðri. Nú voru gálgar reistir um allt Rússland, og beztu synir þess festir upp. Aðrir voru sendir í fanganýlendur til Síþeríu, enn aðrir urðu að flýja land og áttu ekki afturkvæmt fyrr en 12 ár.um síðar. Keisara- stjórnin skipulagði Gyðingaof- sóknir til þess að draga at- hygli fólksins frá lífsvanda- málum sínum. Þá var í Rúss- landi stofnað til fyrstu sam- taka þeirrar tegundar, er bar öll einkenni þess nazisma og fasisma, er síðar átti bjartri framtíð að fagna víða um lönd. Og þegar vestrænt lýð- ræði minnist sögulegra afreka sinna, getur það hrósað sér af að hafa borið kostnaðinn af gálgum og Gyðingaofsókn- um hinnar spilltu og merg- fúnu rússnesku keisarastjórn- ar. Golgataganga verkamanna Pétursborgar til Vetrarhallar- innar 22. janúar 1905, þessi þungu spor mörkuðu heila veraldarsögu. Þeir hrundu af stað hinni fyrstu rússnesku byltingu. Sjálfir biðu þeir lægra lilut, og bylting þeirra var brotin á bak aftur. En í óförunum voru fólgin mikil fyrirheit um sigur, þótt síðar yrði. Svo mikils háttar var byltingin 1905, að án hennar hefði byltingin 1917 aldrei átt sigri að hrósa með þeim hætti, sem raun varð á. Reynsla þessarar byltingar var hinn dýrmæti föðurarfur sigurveg- aranna 1917. í þjóðfélagsbyltingum sög- unnar reynir ekki aðeins á einstaklingana, og kannski ekki á þá fyrst og fremst. Það reynir á stéttir þjóðfélagsins, á orku .þeirra, sögulegt fra'm- tak og getu. í rússnesku bylt- ingunni 1905 birtust allar stéttir: Rússlands í köldu skini kastljósanna. Hver stétt færði sönnur á sitt rétta inn- ræti, birtist eins og hún var samkvæmt sögulegu eðli sínu og þjóðfélagsstöðu. Riissneska byltingin var harður og misk- unnarlaus leikstjóri. Hún • skipaði hverri stétt fram á sviðið, þar sem hún varð að leika sitt hlutverk án fjaðraskrauts og farða. Þótt byltingin væri stórbrotin og ströng í sniðum eins og forn- grískt leikrit, þá ferigu leik- endur hennar ekki að njóta forréttinda hinna forngrísku leikara: þeir urðu að leika grímulausir. Þeir sem tóku þátt í hinum mikla leik. rússnesku bylting- arinnar voru að því leyti verr settir en venjulegir leikarar á. sviði, að þeir urðu að semja leikinn um leið og þeir léku. Þeir voru einnig flestir á einu máli um efni leiksins, en þeir gátu aldrei orðið ásáttir um, hvernig honum skyldi ljúka. Eitt orkaði ekki tvímæíis: rússneska byltingin 1905 var borgaraleg lýðræðisbylting að efni og inntaki. Hlutverk hennar var hið sama og stjórnarbyltingarinnar miklu á Frakklandi 1789: að afnema einveldi keisarans á stjórn- málasviðinu og steypa af stóli efnahagslegu lénsveldi rússneska aðalsins í sveita- byggðunum, gefa milljóna- múg bændanna jarðnæði og létta af þeim byrðum gósseig- endavaldsins. I Vestur-Evrópu hafði þessi bylting farið fram í flestum löndum með ýmsum hætti, og var víðast langt um liðið, Rússaveldi var eina ríki Evrópu, sem hafði staðið af sér þessa borgaralegu bylt- ingu. Öllum kom saman um, að Rússland yrði að varpa af sér þessum drápsklyfjum miðaldanna, ef það átti ekki að fúna lifandi andspænis þeim vandamálum, er nútím- inn lagði fyrir það til úr- lausnar. Lenín og bolsévíkar hans fullvrtu frá upphafi, að rúss- neski keisaradómurinn og þeir þjóðfélagshættir, er hann livíldi á, yrðu ekki að velli lagðir nema með sameiginlegu átaki hinna fjölm. almúga- stétta, sem mest afhroð guldu af keisaravaldinu og efna- hagslegu og pólitísku skipu- lagi þess. Þessar almúgastétt- ir, verkamenn, bændur og snauðir smáborgarar báru þyngsta hlekki allra stét.ta í hinu rússneska tímavillta dýfl- issuríki. Þessar stéttir einar mundu fyrir hagsmuna sakif og fjölmennis megna að lyfta þessu sögulega Grettistaki: að breyta hálfmiðaldalegu keisaraveldi í borgaralegt þjóðfélag nútímans. Stjórnar- far það, er mundi rísa upp úr slíkri byltingu, kallaði Len- ín alræði verkamanna og bænda í byltingarlýðræði. Lenín var frá upphafi sann- færður um að rússneska borg- arastéttin væri þess alls ó- megnug að leysa vandamál sinnar eigin byltingar. Rúss- neska borgarastéttin var síð- borin, veikburða, sleit barn- skónum um það leyti, er heimsborgarastéttin var að því komin að slíta niður úr þeim skóm, er. sagan hafði gert henni á fæturna. Rúss- neska borgarastéttin var f jár- hagslega á framfæri hins al- þjóðlega bankaauðvalds, lifði á snærum keisarádómsins, átti allt sitt líf undir víðáttu þess veldis, er hann ha'fði skapað. Hún var bundin snörr um hagsmunaþáttum við hið keisaralega ríkisvald, fyrr eða síðar hlaut riissneska borgara- stéttin því að sættast við keis- aradóminn, selja sögulegan frumburðarrétt sinn fyrir baunaskál, jafnskjótt og hún tæki að óttast um efnahags- legt vald sitt andspænis kröf- um og baráttu verkalýðsins. Byltingin 1905 staðfesti í reynd þessar hugmyndir Len- íns um þróun Rússlands. Bylt- ingin 1917 kvað upp úrslita- dóminn í þessu efni. Hálf öld er liðin siðan rúss- neskur verkalýður hlaut póli- tíska eldskírn sína fyrir.fram- an múra Vetrarhallarinnar. í dag minnast allir íbúar Ráð- stjórnarríkjanna hinna fals- lausu og umkomulitlu manna, er vættu rússnesku fönnina með blóði sinu þennan kalda janúardag. Sá dagur varð sumarauki þeirrar kynslóðar, er nú byggir Rússland. Til liggnf ielðia KHflKI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.