Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 6
B) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 30. janúar 1955 *r, *• ' þlÓOVIUINN Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjón3son, Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, MagnÚ3 Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Áakrlftarverð kr. 20 & mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lau3asöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. 1 Óttaslegnir smáborgarar Aðstandendur Frjálsrar þjóðar halda áfram að ham- ast í blaði sínu gegn væntanlegum kjarabótakröfum verkamanna og annars vinnandi fólks sem nú hefur sagt upp samningum sínum og er einráðið í því að fá kaup sitt hækkaö og kjör sín bætt. Ekki þarf lengi að leita orsakanna til þessarar afstöðu Frjálsrar þjóðar. Helztu ráðamenn flokksbrotsins sem að útgáfu þess stendur eni rótlausir og reikulir smáborgar- ar sem einskis trausts njóta 1 verkalýðshreyfingunni enda með öllu ókunnugii* starfi hennar, baráttu og stefnu. Enda reyndist hugrekkið ekki meira en svo, þegar forsætisráðherra auðmannastjómarinnar og gengislækk- unarsérfræðingur hans báru fram hótanir sínar um nýja gengislækkun til þess að ræna verkalýðinn væntanleg- um kjarabótum, þá ruku þessir piltar upp gjörsam- lega mglaðir og hjálparvana. Létu þeir blað sitt flytja þá furðulegu ritsmíð sem gerð var að umtalsefni hér í blaðinu s.l. sunnudag, þar sem það var talin hin mesta goðgá af verkalýðnum að fara fram á kauphækk- un eftir að auðmannastéttin hafði hótað gagnráðstöfun- um! Skoraði blaðið á fylgjendur sína í verkalýðshreyf- ingunni að beita sér öfluglega gegn öllum kröfum um kauphækkun! Samkvæmnin hjá Þjóövamarmönnum var hins vegar ekki upp á marga fiska. Fulltrúar þeirra á þingi höfðu greitt atkvæöi með launahækkun til opinberra starfs- manna, þar á meðal til hæst launuðu embættismanna ríkisins. Engin aðvörun heyrðist þá frá fulltrúum flokks- ins um að slík launahækkun leiddi til „glundroða" og , upplausnar". Það uppgötvuðu ÞjóÖvarnarmenn fyrst þegar kom aö verkalýðnum en þó raunar ekki fyrr en Ólafur og Benjamín höfðu birt hótanir sínai’. Það er rétt að þessir hjálparmenn ríkisstjórnarinnar og afturhaldsins í komandi launabaráttu geri sér það ljóst að verkalýðurinn á íslandi er upp úr því vaxinn að láta gífuryrði og hótanir stéttarandstæðingsins segja sér fyr- ir verkum eða móta stefnu sína í hagsmunamálunum. .Ef svo hefði verið á undanförnum árum væri verkalýðs-, hreyfingin illa á vegi stödd og kjör verkalýðsins bágborinj íslenzkur verkalýður hefur vanist því að meta sjálfur ástandið á hverjum tíma og taka ákvaröanir sínar að vel yfirveguðu ráði og fylgja þeim síðan eftir með afli sam- takanna. Þetta hefur gefið verkalýðnum góða raun, gætt hann auknu öryggi og sjálfstrausti, eflt samtökin sjálf og fært þeim margan mikilsverðan sigur. Væri áreiðan- lega öðmvísi umhorfs í verkalýðshreyfingunni í dag hefði hún látið stjórnast af óttanum við andstæöingana og hót- anir þeirra, því sannarlega hefur aldrei á slíku staðið, af hálfu þeirra þjóöfélagsafla sem verkalýðsstéttin hef- ur átt í höggi við. Það er furðulegt ofmat á eigin styrk og veröleikum haldi hinir óttaslegnu smáborgarar í kringum Frjálsa þjóð að það sé á þeirra valdi að gefa verkalýðshreyfi’ng- unni einhverja „formúlu" um hvernig komandi kjara- þarátta skuli háð. Verkalýðshreyfingin hefur komizt af án þeirra hingað til og svo mun einnig verða í framtíð- inni, enda eru þeir meö öllu fylgislausir í verkalýössam- tökunum. Hins vegar hafa þeir félagar skipað sér svo augljóslega við hlið ríkisstjórnarinnar og atvinnurekenda með framkomu sinni nú að ekki verður um villzt. Þjóð- varnarflokkurinn hefur gerst handbendi þess afturhalds sem aldrei þolir að sjá laun verkamanna hækka eða kjör þeirra batna. Þessi staðreynd verður ekki falin með óljósu og marklausu hjali um einhverjar þokukenndar verö- lækkanir sem eigi aö koma í stað launahækkana. Það er ekki hollt fyrir þá, sem enga þekkingu hafa á verkalýðsmálum að ætla sér leiðsögn í kjarabaráttu vinnandi fólks. Sízt af öllu er þetta verkefni við hæfi rótlausra og huglítilla smáborgara, sem skjálfa eins og strá í vindi fyrir minnsta andblæ frá auðstétt og aftur- haldi. Þessa ætti Frjáls þjóð að minnast áður en hún lætur komandi kaupgjaldsbaráttu frekar til sín taka en orðið er. SKÁK Ritstjórijs Guðmundur Arnlaugsson Innlend skákmót Nú er skáþing Reykjavíkur að hefjast með góðri þátttöku og myndarlega auglýst. Verð- launin eru ekki skorin við nögi: þúsund krónur eru fyrstu verð- laun, fimm hundruð þau næstu. Þetta er óvenju mikil rausn, en þó er spuming hvort forráða- menn samtakanna eru þarna á réttri leið. Skáksamtökin hafa að vísu fyrir löngu lagt niður skiptinguna í áhugamenn og at- vinnumenn, og allar þær túlk- anir og teygingar er henni fylgja; þau skipa skákmönnum einungis í flokka eftir því hve, snjallir þeir eru, en ekki hinu hvort þeir reyna að nýta skák- ina sér til tekna eða ekki, og er það vel. Skákin er skemmtileg- ur leikur en hverful atvinna. Það er ekki á færi annarra en afburðaskákmanna á heims- mælikvarða að framfleyta sér á tafli, og þeir munu áreiðan- lega flestir geta gert það þægi- legar á annan hátt. 1 huga venjulegs skákmanns ættu verðlaunin ekki að vera annað en skemmtilegur aukabiti, á- nægjulegar minningar frá mót- um sem hann hefur staðið sig vel á. En peningar eru fljótir að hverfa án þess að láta eftir sig nokkur spor, jafnvel þús- und krónur. Þessvegna hygg ég að réttast væri að halda sig að þeirri venju, að verðlaunin séu eigulegir munir með áletrun, þegar mikið er við haft, ann- ars áritaðar skákbækur til dæmis. Reykvíkingar tefldu við Hafnfirðinga á sunnudaginn og báru sigur af hólmi eins og vænta mátti. En ýmsar sveifl- ur urðu áður en lokasigurinn vannst og ekki mátti miklu muna að á annan veg lyki á sumum borðum, eins og skák- inni sem hér fer á eftir sýnir. SIKILEYJARLEEKUR JÓN KRIST J ÁNSS. BIRGIR SIGURÐSS. 1. e2—e4 c7—c5 2. g2—g3 Rb8—c6 Skeleggasta svarið við hinum óvenjulega leik hvíts er 2. — d5, og getur hvítur þá ef hon- um sýnist svo, breytt b>Tjun- Skákdæmi dagsins B. Nazaroff, Sovétríkin. rr.yí-M ..W%. m ABCDEFGH Hvitur á að máta í 6. leik. Ekki er beinlínis hægt að segja að taflstaðan í skákdæmi dags- ins sé sennileg, en menn skyldu ekki láta það fæla sig frá að reyna við það, og ekki heldur leikjafjöldann. Dæmið er ein- falt, ef menn koma auga á hug- myndina, aðeins eitt afbrigði. Lausn á 2. síðu. inni í bragð: 2.—d5 3.Bg2 dxe 4.Rc3 f5. 3. Bfl—g2 g7—gG 4. Rgl—ei Bf8—g7 5. 0—0 Rg8—f6 6. Í2—f4 d7—d6 7. c2—c3 0—0 8. h2—h3 Rf6—e8 Baráttan stendur um d4. Síð- asti leikur hvíts átti að undir- búa d2—d4 (kemur í veg fyrir Bg4), leikur svarts undirbýr þrýsting á d4! 9. d4 cxd4 10. cxd4 Db6, en sennilega hefði hvítur átt að kæra sig koll- óttan og fóma b-peðifiu ef svo bar undir. 9. Rbl—a3 f7—f5 10 e4xf5 Bc8xf5? f7—fð var vafasamur leikur, en biskupsleikurinn er fingur- brjótur sem kostar peð að minnsta kosti. 11. Ddl—b3t Kg8—h8? Svarti finnst hann ekki komast hjá manntapi. Bezti leikurinn var 11.—d5!. Ef 11. Bxd5f Kh8 12. Dxb7 þá Dxd5! 13. Dxa8 Bxh3 14. Hf2 Rf6 15. Db7 Rg4 með sterkri sókn. Annar möguleiki er 13.—Bd3 14. Hf2 Rd6 og vinnur drottninguna. Hvitur getur unnið peðið með 12. DxdSf Kh8, en jafnvel þá á svartur ýmis færi (Bd3), svo að auðunnin er skákin ekki. 12. Db3xb7 Ha8—b8 13. Ðb7xc6 Re8—c7 14. Dc6—a4? Betra var Df3 og síðan d3. 14. . . . Bf5—d3! Með þessum leik lokar svartur hrók og biskup inni, drottning- arriddari hvíts er fjarri aðal- vígstöðvunum en liinn riddar- inn patt, svo að taflið er erfitt hvernig sem hann fer að. 15. Da4—dl e7—e5 16. Ra3—c2 Ekki hagnast hvítur mikið á kaupunum 16. fxe Bxe5 17. Hxf8f Dxf8 18. Dfl Dh6 og Hf8. 16. . . . Rc7—e6 17. Rc2—el Herðir tökin! e5—e4! ABCDEFGH Eins og sést á myndinni er hvítur ekki öfundsverður af taflstöðunni! 18. Kgl—h2 h7—h5! Nýr fleygur er sendur af stað; Hvítur ætti nú að leika h4 en leikur í staðinn 19. Relxd3? e4xd3 20. Re2—gl h5—h4 21. Ddl—g4 h4xg3f 22. Dg4xg3 Re6xf4! Riddarinn er vitaskuld ódræp- ur. 23. Kh2—hl Bg7—e5 Svartur hótar nú Rf4—e2—g3f Einsætt virðist að leika Dg4 og er taflið þá alltvísýnt, en í staðinn leikur hvítur af sér; 24. Hflxf4 Hf8xf4 25. Dg3xg6 Dd8—h4 26. Dg6xd3 Hb8—g8 Um seinan losnaði hvitur við fleyginn á d3, því að nú standa á honum öll spjót. Svartur hót- ar Hxg2, Kxg2, Hf2f og Hh2 mát. 27. Dd3—d5 Hf4—f2 Fljótlegra var Dg3 með mát- hótunum sem eigi verður varizt. 28. d2—d4 Hf2xg2 29. Db5xg2 Hg8xg2 30. Khlxg2 Dh4—g3f 31. Kg2—fl c5xd4 32. Rgl—e2 Dg3xh3t 33. Kfl—el d4—d3 og hvitur gafst upp. Tilþrifamikil skák og skemmtileg þrátt fyrir afleik- ina. Skýringarnar eru að mestu leyti frá Birgi. Skemmtun verður haldin í Ungmennafélagshúsinu í Keflavík í kvöld kl. 9. 1. Avarp: Hörður Bergmann. 2. Frásögn frá A-Þýzkalandi; Bjarni Benediktsson. 3. Gamanþáttur: Karl Guðmundsson. 4. Sjónhverfingar: Óskar Valgarðsson. 5. Ávarp: Ilaraldur Jóhannsson. | 6. D A N S. ■ ■ ■ Hljómsveit Guömundar Norödahls. ■ ■ ■ [ Aðgöngumiðar seldir við innganginn. Æskulýðsíylkingin ■. ■ ■ Þjéðviljann vanfar unglinga til að bera blaðið til kaupenda við LAUGATEIG og i V 0 G U N U M. Talið við aígreiðsluna strax. Sími 7500

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.