Þjóðviljinn - 13.03.1955, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 13.03.1955, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 13. marz 1955 Mynd þessi var tekin af fundi stúkunnar s.l. sunnuda[g. í dag kl. 2 heldur stúkan sérstakan afmœlisfund í Góð- templarahúsinu, en annaðkvöld verður afmœlisins minnzt með fjölbreyttri skemmtun. Unglingastúkan Unnur 50 ára 1. desember 1904 var stofn- uð hér í Reykjayík sjómanna- stúkan Víkingur, aðalhvata- maður að stofnun þeirrar stúku var Sigurður heitinn Eiríksson regluboði. Nokkru eftir stofnun Víkings vann stúkan að því ásamt stúkunni Skjaldbreið að stofna ung- lingastúku og var hún stofnuð 1, hiarz 1905 og gefið nafnið Unnur. Stofnendur Unnar voru fyrst og fremst börn þess fólks er voru meðlimir Víkings og Skjaldbreiðar svo og all- mörg börn er þá stunduðu nám í skóla Ásgríms heitins Magn- ússonar, en Ásgrímur heitinn var fyrsti gæzlumaður (for- stöðumaður) stúkunnar. Ýmsum mun finnast lítið til um, þótt barnafélagsskapur sem þessi hafi starfað í 50 ár. Það rná kannski segja að ekki beri mikið á þeim árangri sem af starfinu hefur orðið, en um þann árangur geta þeir bezt dæmt, sem verið hafa með- limir stúkunnar og hafa notið þess starfs er þar hefur verið unnið á hverjum tíma. Starf- semin í Unni þessi 50 ár hef- ur verið margvísleg, en hér verður aðeins fátt eitt nefnt. Börnin hafa æft og leikið mörg leikrit og hefur leikstarfsemin oft verið snar þáttur í starf- . seminni. Æfðir hafa verið upp- ' lestrar og félagarnir siðan . komið fram á fundum og lesið þar upp. Um eitt sinn var starfandi talkór í stúkunni og þótti sú starfsemi takast á- gætlega. Ferðalög fóru félag- arnir á hverju sumri í mörg . ár, en sú starfsemi hefur á seinni árum lagzt niður og er ■ ástæðan fyrst og fremst sú, ■ að nú er meira um það en áður . að börn séu í sveit á sumrin. Margskonar útbreiðslustarf • hefur verið unnið af meðlim- um stúkunnar og má í því ■ sambandi nefna það að fyrir ■ forgöngu unglingastúkunnar . Unnar var stofnuð unglinga- . stúka í Hafnarfirði árið 1922 og nokkru síðar örrnur í . Grindavík. Af framangreindu má sjá að [ starfsemin hefur verið marg- vísleg og er þó í þessari upp- • talningu mörgu sleppt. En það . að þessi starfsemi og önnur . var framkvæmd var sú undir- staða sem meðlimir stúkunn- . ar fengu í félagsstarfinu. í unglingastúkunum byggist ( etarfið fyrst og fremst á því, hvað snertir starf gæzlu- manns, að fá meðlimina, börn- in, til þess að vera virkir þátt- takendur í starfinu. Fundum stúkunnar stjórna börnin sjálf, undir leiðsögn og eftir- liti gæzlumannsins. Á þann hátt skapast hjá baminu sjálfstraust til að koma fram og flytja sitt mál, lesa upp, taka þátt í leikstarfsemi, og þegar meiri þroski og aldur færist yfir að taka þátt í margvislegri félagsstarfsemi. Höfuð tilgangur með starfi unglingastúknanna er sá að vinna gegn neyzlu tóbaks og áfengis, í því sambandi er unnið víðtækt fræðslustarf um skaðsemi þess eiturs, sem felst í tóbaki og áfengi. Það sem sérstaklega hefur einkennt unglingastúkuna Unni er það að þegar farið er yfir meðlimaskrá hennar eft- ir þessi fimmtíu ár, sést að mikill meirihluti meðlimanna hafa verið börn fólks í verka- lýðsstétt. Og þegar maður hefur kornizt að þessuuverður manni ósjálfrátt að íhuga hver muni Vera ástæðan. En hún er- vissulega augljós, þeg- ar þess er gætt að það voru m.a. fyrst og fremst meðlimir stúkunnar Víkings, sjómenn- irnir, sem unnu að stofnun hennar, og meðal stofnenda hennar voru m.a. þrír af for- ustumönnum Bárufélagsins, þeir Ottó N. Þorláksson, Jón Jónsson og Jón Guðriason. Þegar nokkrum árum eftir stofnun stúkunnar tók Jónina heitin Jónatansdóttir að sér gæzlumannsstarfið, en hún var eins og allir vita helzta forustukona verkakvenna hér í Reykjavík. Er Jónína heitin lét af af gæzlumannsstörfum tók við þeim Magnús V. Jó- hannesson, en hann var einn af stofnendum stúkunnar, einnig hann var um nokkurt skeið forustumaður í verka- lýðshreyfingunni og m.a. for- maður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar á árunum 1922 til 1924. Magnús var gæzlumaður Unnar í yfir 30 ár. Hann er því sá maður sem starf stúkunn- ar hefur mest mætt á og veit ég að við sem átt höfum því láni að fagna að starfa með honum í Unni berum til hans þakklæti í huga fyrir þá miklu alúð sem hann alltaf sýndi í öllum störfum sínum fyrir okkur í Unni. Núverandi gæzlumaður er Ágúst Jóhannesson og var hann um mörg ár varagæzlu- maður, en tók við gæzlumanns- starfinu er Magnús lét af því starfi. Nú munu vera um 200 börn í stúkunni og starfið með miklum ágætum, eins og öll þau ár- sem stúkan hefur verið starfandi. Þessar fáu línur um ung- lingastúkuna Unni eru skrif- aðar til þeSs að minna á 50 ára starf þessa félagsskapar, til að minna ekki hvað sízt gamla Unnar-félaga, sem nú eru orðnir fulltíðamenn, á að minnast hinna mörgu ánægju- stunda sem við áttum innan stúkunnar er við vorum börn og þá ánægju og það gagn sem við höfum haft af veru okkar þar, en það þökkum við bezt með því að hvetja okkar börn til þess að gerast félagar í Unni og tryggja á þann hátt að þau gerist félag- ar í góðum og hollum félags- skap. — Að lokum vil ég í nafni gömlu Unnar-félaganna senda stúkunni beztu árnaðar- óskir á þessum tímamótum og þakka okkar ágætu gæzlu- mönnum þeirra starf. Gamail Unnar-félagi. Mál og menning Ný félagsbók Peíer Fretichen: ÆVlNTyRlN HETLU í þýðingu Halldórs Stefánssonar Peter Freuchen hætti ungur læknisnámi og geröist landkönnuöur og landnámsmaöur á Grænlandi. Hann hefur ritað margar bækur um ævintýri sín í noröurheimskautslöndun- um og víðar þar sem hann hefur feröazt. Hann er mikill mannúðarmaöur og eignaðist óteljandi vini meðal Eskimóa sem hann jafnan kom fram viö eins og jafningja sína. Bækur hans eru fullar af fróöleik og skemmtilegum frásögum. Tímarit Máls 1. hefti 1955 g menmngar E F N I Til lesenda: Tímarit Máls og menningar 15 ára Jóhannes úr Kötlum: Davíö Stefánsson frá Fagraskógi Halldór Kiljan Laxness: Minniskompa úr Bæheimi og Slóvakíu Þorsteinn Valdimarsson: í val (kvæöi) Christopher Fry: Ætlar konan aö deyja? Rögnvaldur Finnbogason: Séra Eiríkur Helgason Helgi Hálfdanarson: Ég er að blaða í bók Sverrir Kristjánsson: Tíu ára kalt stríð Félagsmenn vitji békannnar og Tímarifsins sem allra fyrst í bókabúð félagsins að SKðLAVÖRÐUSTÍG 21 Sími 5055. Mál og men Skóiavörðustíg 21 nxng

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.