Þjóðviljinn - 02.04.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.04.1955, Blaðsíða 9
4 LaugardagTir 2. apríl 1955 — 1. árgangnr — 9. tölublað Heilabrot Stafatígull a a á á f f í í k s t f r r r r Raða stöfunum svo að fram komi: 1. gras, 2. í vefnaði, 3. væta, 4. mjólk, — hvort sem lesið er lá- rétt eða lóðrétt (niður). Hvernig skýrirðu þetta? 1. Hrútur gat ekki valdið hausnum fyrir hornum og þó var hann kollóttur. 2. Það var fyrir fiski að þessi garður var ull. Skrítlur Dóra litia, þriggja árá, hafði rifið blað úr síma- skránni, en rétt í því kom pabbi/'hennar. Gerðirðu þetta með vilja?, spurði hann. — Nei, pabbi minn, ég gerði það með fingrun- um. • ---------- •—~ Ég vildi óska, að ég ætti nóga peninga til að kaupa mér fíl. — Til hvers vantar þig fíl? — Ekki til neins. En mig vantar peninga. Ráðningar á þraut- um í síðasta blaði á heilabrotum í síðasta 'blaði. Reikningsþrautin. Siðasti naglinn kostaði 83886 kr. og 8 aura, en alíir '24 kostuðu 1677772 kr. og 15 aura. Gátur 1. Úr eða klukka. 2 VindhE'iar. — 3. Á hnén á sjálfum þér. Að þræða nái á fötu Smáleikur Leikandinn sezt á flösku, sem liggur á gólfinu og snýr botninum frarn. — Hann krossleggur fæt- urna og teygir úr þeim framundan sér og má að- eins annar hællinn nema við gólf. í þessum stell- ingum á hann að leysa þá erfiðu þraut að þræða nál. Orðsendingar Verðlaunin. Þegar sagt var frá úrslitum verð- launasamkeppninnar, láð- ist að geta þess, hver verðlaunin voru. Þeirra var að vísu getið i 2. tölublaði, þegar sam- keppnin var auglýst. 1. verðlaun voru íslenzk barna- eða unglingabók eftir eigin vali. — 2. verðiaun kúlupenni. — 3. verðlaun mappa með 8 landslagskortum. Samkeppninni um greinar og frásagnir lýk- ur um páskana. Næstu viku má því senda efni og kemur það til greina. Ný verðlaunasamkeppni. Á sumardaginn fyrsta hefst ný verðlaunasam- keppni um anríað efni, en hvað það er fáið þið ekki að vita fyrr en í blaðinu, sem kemur um sumarmálin. Skrítlur frá lesendum. Meðal efnis frá lesend- um, sem borizt hefur, eru nokkrar skritlur. Hér er ein: — Óttalega er hann lít- ill hann bróðir þinn. — Já, en hanrí er held- ur ekki nema hálfbróðir ,minn.‘ Guðm. M. „Hringur og maríuerlan“ Dýrasagá ' með þessu nafni kemur í næsta blaði. Hún er frá 12 ára telpu í Suður-Þingeyjar- sýslu. Skrifaði hún blað- inu skemmtilegt og vin- samlegt bréf, sem Óska- stundin þakkar kærlega. Margar sögur og annað efríi frá les- endum bíður næstu blaða. Þóranna, Vestmannaeyj- um. Það hittist svo á, að rit- stjóranum bárust fleiri bréf um samskonar söf*- un, sem þú minntist á. Frá þessu verður sagt í næsta blaði. Stefanía. Þakka þér fyrir huldu- fólkssögurnar og teikn- ingarnar. Þú sérð þetta bráðum í blaðinu okkar. Útgefándi: Þjótviljinn — Ritstjóri: 'GunAár M. Mngnúss — Pósthólf '1063. ÆvintýraskáldiÖ Idag er víða um heim þess minnst hátiðlega, að 150 ár eru liðin frá fæðingu ævintýraskálds- ins danska H. C. Ander- sen. Harín hét fullu nafni Hans Christian Ander- sen og fæddist á Odense — Óðinsvéurrí 1— á Fjóni. Faðir hans var fátækur skósmiður og lézt, þegar drenguririn var 11 ára gamall. Eftir það reyndi móðir hans að hafa óf- an af fyrir þeim mæðg- inum með því að þvo þvotta, en svo' illa tókst til að hún lagðigt í ó- reglu, svo að drengUrinn varð að mestu umhirðu- laus. Snemma hneigðist hug- ur drengsins að skáld- skap og leiklíst. Hann var ekki hneigður fyrir nám eins og það tiðkaðist þá í skólum, en lifði í heimi ævintýra, hjátrúar og draumóra. Hann bjó þegar á barnsaldri til brúðuleikhús, orti vísur, söng og lék og dansaði. Flestum þótti aðfarir hans skringilegar og hlægilegar, enda var hann einkennilegur í útliti, langur og illa limaður og kátlegur í framkomu. — H. C. Andersen * Þegar hann var 14 ára yfirgaf hann æskustöðv- arnar og hélt til höfuð- borgarinnar, Kaupmanna- hafnar, til að leita sér fjár og írama. Hann vildi ákaft verða leikari og fór til leikstjóra til þess að sýna að hann væri ágætt efni í leikara. Harín söng, hoppaði og dansaði, en öll framkoma hans þótti svo skopleg, að honum gekk illa að komast að sem leikari. Þó fékk hann eitthvert aðstoðarmannsstarf hjá konunglega leikhúsinu. Þá tók hann að sémja leikrit, en fékk iitla á- heyrn með þau. Þó fór svo að einn leikhúsmaður taldi að í þessum pilti væri skáldskaparneisti. studdi hann piltinn til náírís, Skólavistin gekk heldur skrykkjótt, skóla- stjórinn var harður, en Andersen illa undirbúinn. Hrökklaðist pilturinn úr skólanum, en las síðan utanskóla og náði stúd- entsprófi 22 ára að aldri. Andersen var nú orð- inn ákveðinn í að verða skáld og rithöfundur. —• Hann ferðaðist til ann- arra landa, skrifaði ferðasögur, skáldsögur og orti Ijóð. Náði hann nú nokkru áliti fyrir skáldskap sinn, eri' þó ekki verulega fyrr en hann hóf að rita æv- I Framhald á 2. síðu, K L I P P I Ð H É R H ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl FRtMANN HELGASÖN Körfuknattleiksmót íslands Eins og áður hefur verið frá skýrt hér lauk körfuknattleiks- móti Islands fyrir skömmu. Körfuknattleikur virðist í stöðugri sókn og vinsældir hans fara sívaxandi. Að þessu sinni voru fjögur fé lög sem kepptu en s.l. ár voru þau þrjú. Sigurvegari að þessu inni varð ÍR eftir mjög jafnan úrslitaleik við Gosa. Yfirburðir ÍR-inga í leikjum mótsins lágu mest í því að þeir áttu betri skyttur. Þeir eru líka í mjög góðri þjálfun, og hafa sjaldan verið sterkari en nú. Liðið er yfirleitt jafnt með þá Helga, Jónsson og Helga Jóhannsson sem beztu menn. I síðasta leikn- um lék Gunnar Bjarnason með liðinu, en hann hefur oft verið liðinu mikill styrkur. ÍR náði miklum yfirburðum í leik sín- um við Háskólann (51:26). Lið Gosa sem varð annað í mótinu hefur jöfnu liði á að skipa en engar „stjörnur". Leik- ur þeirra við I.K.F. var jafn. Gosi hafði til að byrja með yfir í stigum en I.K.F. jafnaði, en Gosi sigraði með tveggja stiga mun. Leikur Gosa við Há- skólann var daufur eins og stig- in ber með sér, Háskólinn náði þó ágætum varnarleik. Leikur Gosa við IR var þezti leikur þeirra í mótinu og þessi leikur var tvímælalaust bezti leikur mótsins. Ólafur Thorlacius og Ágúst Þór voru beztu menn liðsins. Háskólaliðið var sambland af yngri og eldri leikmönnum og má segja að liðið hafi sótt sig í keppnimii. Valgeir Ársæls- son var hinn reyndi og ráð- setti leikmaður og með honum Magnús Sigurðsson af eldri skólanum. Af ungu mönnunum, sem margir lofa góðu, vakti Friðleifur Stefánsson mesta at- hygli. Hann er mjög fljótur að átta sig, léttur og snöggur að grípa inní ef færi gefst. I.F.K.-liðið var nokkuð gott, en þó tæpast í eins góðri æf- ingu og undanfarið. Leikur þeirra við Gosa var ágætur og eins móti Í.R. Þeir hafa mikla keppnisreynslu sem kemur þeim oft að góðu haldi. Leikur- inn við I.R. var jafriari en stig- in gefa til kynna því að þeir voru óheppnir með skotin. Ingi Gunnarsson fyrirliði liðsins er stjórnandi þess og skipuleggj- andi og tvímælalaust bezti mað- Framhald á 11. síðu. Úrslit í dag í badmintonmótimi I dag kl. 5.40 hefjast úr- slitaleikir í badmintonmóti Reykjavíkur. Er nú lokið keppni í tvíliða- leik karla sem ekki varð lokið s.l. laugardag. Fóru leikar svo að til úrslita komust þeir Hauk- ur Gunnarsson og Lárus Guð- mundsson eftir að hafa sigrað, fyrst þá Lárus Guðmundsson og Karl Maack og siðan í mjög skemmtilegum og nokkuð jöfn- um leik þá Þoryald Ásgeirsson og Albert Guðmundsson (15:4 10;15 og 15:9). Mæta þeir nú Vagner Valbom og Einari Jónssyni í úrslitum sem um langt skeið hafa verið ósigrandi. Þeir sem fara í úrslit í öðrum greinum eru: Einliðaleikur karla: Vagner Valbom og Lárus Guðmunds- son. Einliðaleikur kvenna: Juliana Isebarn og Jónína Niijóníus- dóttir. Tvíliðaleikur kvenna: Júlíana. Isebarn og María Þorleifsdóttir gegn Huldu Guðmundsdóttur og Rannveigu Magnúsdóttur. Tvenndarkeppni: Ellen Mog- ensen og Vagner Valbom gegn Júlíönu Isebam og Einari Jóns- syni. ----- Laugardagur 2. apríl 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (9 Gunnar M. Magnúss: | Börnin frá Víðigerði Karlmennirnir í Víðigerði voru röskari við kveðjurnar. Þeir gengu mann frá manni, kysstu og kysstu, þangað til þeir voru búnir með flesta, nema helztu virktavinina, sem þeir höfðu beðið að bíða eftir sér. Svo viku þeir með þeim afsíðis. Eldri krakkarnir höfðu verið einir sér mikinn hluta dagsins. Eftir að kveðjurnar og kossarnir byrjuðu, hentust þeir um allar trissur, byrjuðu að stökkva yfir bæjarlækinn, þar sem hann var breiðastur, hendast á stöng milli þúfna og loks fóru þau í útilegumannáleik kringum bæinn. Nokkrir aðrir krakkar slæddust í hópinn og leikurinn gekk um stund með prýði, ánægju og viðeigandi hávaða. En smátt og smátt fóru börnin að tínast heim 'til sín, öll nema Víðigerðisbörnin. Þau hættu aftur að leika sér og athuguðu hvað kveðjunum var langt komið. En þegar þau sáu, hvað margir voru eftir, leiddist þeim að standa' og norpa lengi í næðingnum, stukku því út fyrir, túngarð og settust þar í hóp í skjólinu. Þar var Stjáni langi, Geiri, Árni, Daddi, Gerða og Gutti. Stjáni langi stakk nú upp á því, að þau tækju sína hesta og þeystu heim, því að þessi næð* ingur rnyndi nísta úr þeim líftóruna, sagði hann' En hin börnin þorðu ekki. í því bili reið einn hópur af ferðafólkinu úf traðirnar, gegnum túngarðshliðið, skammt frá þeim.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.