Þjóðviljinn - 17.10.1961, Blaðsíða 9
Það cr mikil hreyfing í myndinni. Þórður Jónsson er búinn að gefa knettinum gott spark og mark-
maður og varnarleikmaður Keflvíkinga virðast báðir ætla að verja með höoSunum, en knötturinn
ÍA vonn ÍBK 2:1 og leikur
því til úrslita gegn KR
London 15 10 — Brezki hlaup-
arinn Gordon Pirie, sem er
-orðinn atvinnumaður, var
spurður að því í blaðaviðtali
-«>
Undanúrslit Bikarkeppninnar
fóru fram á Melavellinum á
sunnudaginn, en þar áttust
við Akurnesingar og Keflvík-
ingar. Akurnesingar sigruðu
mcð 2 mörkum gegn 1, og
leika þeir því úrslitaleikinn við
KR á sunnudaginn kemur.
Þar sem mikil rigning hefur
verið undanfarna daga, þá var
Melavöllurinn pollóttur og hálf
leiðinlegur til keppni. Ekki
hafði iþó myndazt nein leðja,
eins og oft vill verða þegar
mikil rigning hefur herjað á
völlinn.
Fyrri hálfleikur (1:0)
Keflvíkingar voru meira í
sókn í fyrri hálfleik, en nýttu
illa tækifærin sem þeim tókst
að skapa sér. Samleikur þeirra
var of tilviljanakenndur, og
allt fór í strand þegar þeir
komtibt iriri f vítateiginn hjá
Akurnesingum.
Róm 15/10 — ítalinn Morale
bætti Evrópumetið í 440 jarda
hlaupi og 400 m grindahlaupi
á frjálsíþróttamóti sem haldið
var í Róm í dag. (Vegna trufl-
unar á fjarskiptasendingunni er
ekki hægt að sjá hvaða tíma
hann fékk).
Preussger:
4.
Berlín 15/10 — Manfred Prauss-
ger Austur-Þýzkalandi setti á
laugardag nýtt Evrópumet í
stangarstökki er hann stökk
4.70. Hánh átti sjálfur fyrra
metið — 4.67.
fsruel 4:2
Tel Aviv 15/10 — Italía vann
ísrael með fjórum mörkum
'gegn tvéím (2:0) í undirbún-
ingskepþni fyrir HM. Löndin
keppa aftur I næsta mánuði.
Akurnesingar léku aftur á
móti betur saman, en voru
ekki að sama skapi jafn harðir
af sér og Keflvíkingar. Kefl-
víkingar fengu tvö góð tækifæri
snemma í leiknum, Helgi Dan
bjargaði í fyrra skiptið með
úthlaupi, en í síðara skiptið var
Páll h.úth. einn fyrir innan
og spymti framhjá.
Akurnesingar settu eitt mark
í fyrri hálfleik. Markið kom
þannig að Jóhannes h.úth. sendi
til Þórðar Jónssonar, sem
staddur var inn við vítapunkt
og spyrnti hann viðstöðulaust
neðarlega í horn marksins, 1:0.
Seinni hálfleikur. 1:1
Keflvíkingar jöfnuðu á 10.
mín. síðari hálfleiks og var þar
Hólmbert að verki. Er þeir
höfðu jafnað, fór meiri hluti
liðsins í vörn og misstu þeir
við það undirtökin í leiknum,
því nú fengu Akurnesingarí*
meira svigrúm og var um tíma
allmikil pressa á mark Kefl-
víkinga og greip markvörður i
þeirra oft vel inní.
Langspyrnur Keflvíkinga
fóru aítur í gang og þeir sköp-
uðu sér góð taskifæri, en þau
runnu út í sandinn, flest hjá
miðherjanum Jóni Jóhannes-
syni, sem þrívegis „fraus“ í
dauðafæri á markteignum.
Akurnesingar settu sigur-
mark sitt á 30. mín og var þar
aftur að verki Þórður Jónsson
með gott skot.
Liðin.
Lið Akurnesinga var fremur
lint í þessum leik og að mörgu
leyti heppið að fara með sigur
af hólmi í viðureigninni við
Keflvíkinga, miðað við mark-
tækifæri þeirra. Aftur á móti
er lið þeirra skipað betri ein-
staklingum og sumir þeirra
hafa fjölda landsleikja að baki,
en það hefur mikið að segja
gegn jafn reynslulitlu liði sem
Keflvikingarnir eru. 1 liði Ak-
urnesinga bar mest á Helga
Daníelssyni, Kristni Gunnlaugs-
syni og Þórði Jónssyni.
Sigurhorfur þeirra á sunnu-
daginn, gegn KR í úrslitaleikn-
um, tel ég afar litlar, ef þeir
sýna ekki betri leik en nú. En
ekki er gott að segja hvernig
úrslitaleikurinn fer, ef maður
hefur í huga orð Ríkharðs
Jónssonar frá því í sumar, er
KR og ÍA léku úrslitaleikinn í
fslandsmótinu: „Þessi lið vinna
ekki hvort annað tvisvar í röð“,
en það hafa þau ekki gert s.l.
10 ár. En allt getur skeð í
knattspyrnu og hver veit nema
KR vinni nú ÍA í annað sinn
í röð „því allt getur skeð í
knattspyrnu".
Lið Keflvíkinga var fullt af
baráttuhug og var það nærri
búið að færa þeim sigur í leikn-
um. Annars fóru þeir illa með
tækifærin sem þeir fengu og
samleikur þeirra og leikni er
langt frá því að vera eins og
bezt gerist hjá okkur. Framlín-
an var bitlaus, og ekki skerpt-
ist hún við að Páll Jónsson
h.úth. yfirgaf völlinn seint í
fyrri hálfleik. Bezti maður liðs-
ins var innh. Hólmbert, sem
var sívinnandi og hafði jákvætt
auga fyrir samleik.
Dómari var Magnús V. Pét-
ursson, og dæmdi hann vel. H.
e- •
• ••
Finnland
Kaupmannahöfn 15/10 — í dag
sigraði HTtffimörk Finnland með
níu mörkum gegn einu á A-
landsleik í knattspyrnu. Leik-
ui'inn fór fram í Kaupmanna-
höfn að vistöddum 35.600 á-
horfendum.
Dönsku blöðin sögðu að
finnska liðið hefði verið mjög
veikt. Danmörk vann einnig
unglingalandsleikinn 5:0.
Þai var
í 4. lotu
Vín 15/10 — 1 dag sigraði ung-
verski millivigtarhnefaleikar-
inn Laslo Papp þýzka hnefa-
leikarann Peter Mueller á KO í
fjórðu lotu. Keppnin átti að
vera 10 lotur. Papp er olym-
pískur meistari í millivigt.
Þessi mynd var tckin þegar Mathews hélt upp á 45 ára afmæli
sitt 1. febrúar 1960. I»á var hann varamaður Blackpoolsliðsins,
sem hann er nú að kveðja.
Mathews ætlar að hressa
uppá sitt gamla félag
London 16/10 — Sir Stanley
Mathews, hinn 46 ára gamli
knattspyrnumaður, ætlar að
koma aftur til síns gamla fé-
lags Stoke, en hjá því byrjaði
hann sinn ævintýralega feril
sem knattspyrnumaður fyrir
30 árum. Mathews fer
frá Blackkpool til Stoke og
væntir Stoke þess að Mathews
muni draga til sín áhorfendur,
en Stoke er í 2. deild og fjár-
hagurinn mjög slæmur.
í dag hvort sú staðhæfing værl
rétt að Vladimir Kuts hefðL
verið undii' áhrifum örvandi
lyíja er hann hljóp hið fræga
5000 m hlaup á OL í Melbourne
1956. Pirie sagði að það væri
staðreynd að slík örvandi lyf
væru notuð af frjálsíþrótta-
mönnum í dag, en það væri
skoðun sín að Kuts hafi ekkL
notað slík lyf, a.m.k. ekki í
þessu hlaupi.
Eins og kunnugt er var Piris-
i öðru sæti í þessu umrædda
hlaupi, og Kuts sló þarna.
heimsmet Piries.
10 þjéðir hafa til
kynnt þátttöku
í HM á skíðum
Varsjá 16/10 — Nú þegar hafa,
10 þjóðir tilkynnt þátttöku
í heimsmeistarakeppni skíða-
manna er fram fer í Zakopane.
Svíar hafa tilkynnt 24 þátttak-
endur, Japan 10, Kanada 8*
Júgóslavía 15, Finnland 34*
Italía 15, Sovét 25, Tékkó-
slóvakía 17, V-Þýzkaland 26 og.
Rúmenía 8.
oii slökun"
Benedikt Jakobsson, íþrótta-
kennari, ætlar að halda nám-
skeið fyrir húsmæður í „stæl-
ing og slökun“ og hefst það í
dag. Kennslan fer fram tvisv-
ar í viku. Kenndar verða 20
stundir.
Á námskeiðinu verður fjall-
að um: Likamann og starfs-
hætti hans — Hagkvæmar og
óhagkvæmar stöður og stell-
ingar — Skófatnað — Um
næringarþörf og efnaskipti
likamans í hvíld og við störf.
— Að hreyfa sig rétt — Um
hvíld.
Kenndar verða ýmsar æf-
ingar, sem miða að því að
auka á starfshæfni hinna
ýmsu líffæra og líkamans í
heild. Hver þátttakandi fær
sérstakar leiðbeinngar við
hæfi. Námskeiðið er ætlað
fyrir konur á ýmsum aldri og
einkum þær, sem finna til
þreytu og óþæginda í fótum.
baki og öxlumf/°úí'ti “þtgyttar
og í þyngra lagi.
Allar nánari upplýsingar
um námskeiðið eru gefnar í
síma 1039Q kl. 10—12 f.h. dag-
lega.
Ríkharðssöfnunin.
Frá nokkrum vinnufélögum í
vöruskemmu hjá Ríkisskip kr.
600.00.
ritstjóri: Frímann Helgason
Þriðjúdagur 17. október 1961 — ÞJÖÐVILJINN — (Q: