Þjóðviljinn - 11.01.1962, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 11.01.1962, Blaðsíða 12
Síðasta myndin í Tripoli N. k. mánudag, 15. janúar, rennur út frestur sá, sem Tón- listarfélagið heí'ur fengið til þess að rýma úr Tripólíbíói, sem nú á að fara að rífa til grunna, sögðu íorráðamenn Tónlistarfélagsins í viötali við fréttamenn í gœr. Hófust sýn- ingar í gœr á síðustu mynd- inni. sem sýnd verður í Trí- pólíbíói. en það er ameríska stórmyndin Plótti í hlekkjum, sem er heimsfræg verðlauna- mynd. Hlaut hún Oscarverð- launin 1959 fyrir bezta hand- rit og beztu kvikmyndatækni. Ennfremur hlaut leikstjórinn, Stanley Kramer, verðlaun blaðagagnrýnenda í New York fyrir beztu mynd ársins og bezlu leikstjórn- og annar að- aileikarinn, negrinn Sidney Poitier, hlaut „silfurbjörninn" á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir leik sinn í myndinni. Sagan, sem myndin er byggð á. hefur komið sem fram- haldssaga í Vikunni. Fjallar myndin um flóttatilraun 2ja samanhlekkjaöra fanga, negra, er Sidney Poitier leikur, og hvíts manns, sem leikinn er af Tony Curtis. Þar sem svo fáir dagar eru, sem hægt verður að sýna myndina, verður hún sýnd fjórum si um á dag. kl. 5, 7. 9 og 11.15. Trípólíbíó var reist af amer- íska hernum árið ’ 1941 og var aðallega n'otað sem leikhús. 1 stríðslok keypti Tónlistárfélag- ið braggann og hefur nú rek- ið þar kvikmyndahús í tæp 15 ár. 17. júni 1959 hóf fé- lagið byggingu nýs kvik- mynda- og skólahúss að Skip- holti 15 og var ætiunin, að það yrði tilbúið til notkunar, þegar félagið þyrfti að rýma úr Trípólíbíói. Ekki hefur tek- izt að standa við þá áætlun Atriði úr síðustu myndinm í Trípólíbíói og verða a.m.k. um tveir mán- uðir, þar til hægt verður að hel'ja sýningar í nýja húsinu. Gert er ráð fyrir, að Tónlist- arskólinn geti tekið til starfa í nýja húsinu næsta haust. þJÚÐVILIINH Fimmtudagur 11. janúar 1962 — 27. árgangur — 8. tölublað Súkarnö boðar enn hernaðaraögerðir ★ Seine-héraði við París hafa ★ borið fram mótmæli í k húsnæðismálaráðuneyt- ★ inu vegna þess aö skorið hefur verið niður opinbert ★ framlag til húsnæðisbygg'- ★ inga. Ilin nýja tilskipan k stjórnarinnar kemur líka Þegar bótagreiðslur almanna- trygginganna fvrir janúar hófust i gær, kom í Ijós að greiddar voru sömu upnhæðir o^ verið hefur undanfarið, 13,8% uppbót- in sem lögfest hefur verið kom ekki til útborgunar. Brá ýmsum bótaþegum í brún við betta, þar sem þeir bjuggust við að upp- bótin vrði areidd mánaðarlega. Fyjúr siðari hluta ársins 1961 var uppbótin greidd í einu lagi í desember. Sverrir Þorbjörnsson, forstjóri Tryggingastofnunar rikisins sagði Þjóðviljanum, að þessi háttur væri haíður á útborgun- frumsýndur í inni samkvæmf sérstakri heimild sem sett var í lösin i því augna- miði að spara tíma og vinnu. Það er ætlunin að greiða UþP- bótina fyrir fimrn fvrstu mánuði þessa árs i einu lagi í maí. en í júní kemur enn '4% hækkun, og úr þvi verður full greiðsla mánaðarlega. — Við erum ekki að re.vna.að svindta á neinum, sagði Sverrir, en bað kostar óhemju vinnu - og tíma aukalega að greiða út í krónum eða jafnvel aurum, Þetta var gert í. desember. og við tetj- um að Það hafi tafið afgreiðslu urn helming. Eigi útborgun að ganga greitt þurfa venjulegar greiðslur að standa á hundraði eða tug', ellilífeyrir fvrir ein- stakling hefur til dæmis verið 1200 krónur og 2250 fyrir hjón. í júní verður reynt að jafna upphæðir svo að vel standi á til útborgunar. DJAKAKTA 10/1 — Veslur-Gín- eu-málið er búid að valda okkur naegilegum crfiðleikum, að mínu áliti hiifum við ekki um aðra „leið að velja en að beita vopna- valdi, sagði Súkarnó forseti í ræðu á fjöldafundi stúdenta í Djakarta í dag. Súkarnó endurtók að Indónes- 4 afkvæðz munur í Sjómannafélagi Hafnarfjzrðar Stjórnarkosningu i Sjómannafé- lagi Hafnarfjarðar lauk á hádegi í gær og voru atkvæði talin þá þegar. A-listi stjórnar og trúnað- arráðs fékk 36 atkvæði en B- listi borinn fram af tilskildum fjölda félagsmanna hlaut 40. At- kvæði greiddu 77, en einn seðill var auður. Stjórn félagsins næsta starfs- fímabil skipa því þessir menn: Formaður Einar Jónsson. vara- formaður Siguröur Pétursson. rit- ari Björn Þorleifsson, gjaldkeri Kristján Sigurðsson. varagjald- 'keri Hannes Guðmundsson og varamenn Grétai' Pálsson og Bjarni Hermundarson. ar myndu þvi aðeins hefja samn- ingaviðræður við Hollendinga, að gengið væri út frá því að Indó- nesar fengju yí'irráð yfir vestur- hluta Nýju-Gíneu. Stúdentar tóku undir þessi orð forsetans með hrifningu, / i Bráðabirgðastjórn Forsetinn upplýsti annars, að komið hefði verið á fót bráða- birgðastjórn fyrir vesturhluta Nýju-Gíneu, sem ennþá er hol- lenzk nýlenda. Stjórnin situr í Macassar á Celebes. Súkarnó sagði að þessi stjórn væri til- búin að taka að sér stjórn yfir vesturhluta Nýju-Gíneu )>egar er veldi Hollendinga hefði verið steypt. Haldið er áfram að efla land- her. flugher og flota Indónesíu á hinum austlægari eyjum landsins. Nokkrir af nánustu samstarfsmönnum Súkarnós hafa verið sendir þangað til að vera með í ráðum um undirbúning hugsanlegrar innrásar Indónesa í vesturhluta Nýju-Gíneu. 19' manns hafa verið handtekn- ir vegna banatilræðisins við Súkarnó s.l. sunnudag. Krústjoff heíur meðal annars sent Súkarnó heillaóskaskeyti vecna þess að hann slapp ómeiddur írá tilræð- inu. ★ í veg fyrir það að kjörnir ★ l'ulltrúar bæjarfélaga fái ★ nokkru ráðið um þessa ★ hluti. Myndin er tckin ★ þcgar borgarstjórarnir af- ★ hcntu húsnæðismálaráð- ★ herranum mótmæli sín ★ gegn þessari lýðræðis- ★ skerðingu. í kvöld er frumsýning' í Þjóð- leikhúsinu; sýnt verður leikrit- ið „Húsvörðurihn“ (The Care- taker) cftir brezka skáldið Har- old Pinter. Leikstjóri er Benedikt Árna- son, en leikendur aðeins þrír: Valur Gíslason, Bessi Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson. Næsta sýning á „Húsverðin- um‘' verður n.k. sunpudagskvöld. Smiði síldarverksmiju á Reyðarfirði undirbúin AUSTUULAiyD, blað sósíalista á Austfjörðum, hefur skýrt frá því að langt muni nú komið undir- búningi félagsstofnunar á Keyð- arfirði í því skyni að hrinda í framkvæmd byggingu síldarverk- smiðju þar í þorpinu. Stofnendur munu vera kaup- félagið þar og útgerðarmenn og ætlunin er að byggja litla verk- smiðju. er geti unnið 500—Í000 mál síldar á sólarhring. Myndi bæta aöstööuna Það hefur lengi vérið áhuga- mál Reyðfirðinga að síldarverk- smiðja yrði reist þar í þorpinu. I Síðustu sumur hefur nokkur síldarsöltun verið á Reyðarfirði, en það er mjög bagalegt, að þar hei'ur ekki verið aðstaða til að I bræða úrgang og slatta, en sölt- un veröur naumast rekin án þess slík aðstaða sé fyrir hendi. Síld- arverksmiðja á Reyðarfirði yrði kannski þýðingarmest fyrir sölt- unina. auk þess sem hún getur unnið úrgang frá frystihúsinu, en á Reyöarfirði er engin íiski- mjölsverksmiðja. iunar á hita veituæð 1 Mikið ólag hcfur verið á hita- | | veitunni að undanförnu, og ( I hefur það í flestum tilfellum . arðið mönnum til óþæginda. En líklcga hafa ncmendur í Gagnfræðaskólanum við Von-| arstræti hugsað hlýlega til | itofnunarinnar, því skólanum . var lokað í gær vegna bilun- ir á hitaveituæðinni í Lækj- irgötu og sennilega einnig i I I íag. Seint í fyrrinótt var lok- | ið við viðgcrðina á æðinni hjá i k skólanum, en þegar vatnið var . , sett á aftur sprakk æðin á ' uðrum stað, rétt við húsið I hans séra Bjarna. Fimm bil- I | anir hafa oröið á æðinni í | | Lækjargötu, sem er orðin , I mjög tærð af völdum sjávar- seltu, þar sem sjór hefur kom- ' 1 izt inn í stokkinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.