Þjóðviljinn - 23.05.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.05.1962, Blaðsíða 3
Múrsteinaflug í Engólfsstrœti Framsókn vill verða hjól undir vagni ihaldsins Það vekur athygli að Tím- inn birtir daglegar árásargrein- ar vegna l>ess að Einar Olgeirs- son náði iögmætri kosningu í Sogsvirkjunarstjórn — þótt í- haldið reyndi síðan að rifta þeirri kosningu með ofbeldi. Aliir vita að eina ráðið til að hamla gegn yfirgangi ihaldsins er að v'nstri menn standi sam- an. Þess vegna höfðu Alþýðu- bandaiagið og Framsókn sam- vinnu um nefndakjör eftir síð- ustu bæjarstjórnarkosningar og naut Þórður Björnsson bess m. a. En nú er svo komið eftir sókn hins „skipulagða liðs“ stjórnar- flokkanna innan Framsóknar, að Framsókn þorði ekki að taka þátt í vinstrisamstöðu af ótta við íhaldið. Þess Vegna neitaði Framsókn samv'nnu um kosn- ingu í Sogsvirkjunarstjórn og bar fram sérstakan lista. Eini tilgangurinn með þvi var að tryggja íhaldinu sseti — ihalds- maður'nn Tómas Jónsson var hinn raunverulegi frambjóðandi Framsóknarflokksins. Áhuga- mál Framsóknar var bað að sjá um að Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meir.'hluta í Sogs- virkjunarstjórn, þriá fulltrúa, væntanlega í þakklætisskyni Þessi mynd er EKKI tekin í Berlín á stríðsárunum, hún er EKKI frá jarðskjálftunum í Agadír og þetta eru EKKI verksummerki OAS-sprengju- tilræð.'s. heldur er þetta horn- ið á Sænska frystihúsinu, það sem snýr að Ingólfsstræti og Sölvhóisgötu. Sannle.kurinn er sá að þetta hús er að hrynja og uppmeð einum veggnu.m hefur verið tyllt hrófatildri úr fúnu spýtna- rusli; mun bað eiga að styðja við hús.'ð og varna grjót- flugi. Greinilegt er aí mynd.nni, að lífshætta er að koma ná- lægt þessari. byggingu og furðulegt að eigepdunum . ákuli:'háldást uppi að hafa hættusvæðið svo umbúnaðar- laust sem raun ber vitn:'. En það er auðvitað eftir öðru réttlæti borgarstjóans, eða er það ekki heldur ótrúlegt að ég eða þú, lesandi góður, fengjum óáreittir að fylla gangstéttina ef múrsteinnm. sem þar að auki geta komið fljúgandi úr háalofti þegar mínnst varir? Nei, það eru aðeins vö!d- ustu gæð.'ngar íhaldsins sem fá að haga sér svona — og þetta er aðeins eitt dæmj af mörgum. (Ljósm. G.O.). fyrir bað að rikisstjórnin skip- ar opinskátt Framsóknarmann- inn Sigtrygg Klemenzson í Sogs- virkjunarstjórn af sinni hálfu. Þessi framkoma Framsóknar er mjög lærdómsrík. Hún sýnir að þess er enginn kostur að treysta Framsóknarfiokknum; hann verður hjól undir vagni ihaldsins þegar á þarf að halda. Og það er ömurlegur endir á ferli Þórðar Björnssonar að einhver borgarfulltrúi stjórnar- flokkanna sk.vldi í leynilegri kosningu reynast meiri mann- dðmsmaður en Framsóknarfull- trúinn. Samstarf vinstrimanna Munið eftir kosningasjóðnum Framhald af 16. síðu. hann ætlar að stíga, þann vinstri eða hægri. Það er ísland sem máli skiptir Mismunandi afstaða til þess sem er að gerast í sósíalísku löndunum er oft nefnd sem rök gegn samstarfi vinstrimannri sagði Ragnar ennfremur. Sá á- greiningur er vissulega til, en flestum hugsandi mönnum mun vera ljóst að þau mál skipta ekki miklu hér á Islandi. Við stönd- um frammi fyrir öðrum vanda- málum. Það er hættan af íhalds- stefnu og bandarískum áhrifum sem ógnar okkur. Sú hætta staf- ar úr vestri. Það er hættan á að einn góðan veðurdag verði þjóð- in endanlega innlimuð sem lítill hreþpur í vestrænt stórveldi. Við höfum örlög íslands í hendi okk- okkar, en við munum engu fá breytt um stjórnarfar í Austur- Þýzkalandi, hvort sem okkur lík- ar betur eða verr. Einmitt þess- vegna er það hrópleg skammsýni á örlagaríkum tímum að kljúfa raðir vinstrisinnaðra manna vegna ágreinings um fjarlæg og óviðkomandi efni. Atkvæði greidd Al- þýðubandalaginu er mótmæli gegn inn- göngu í Efnahagsbanda- lagið Nú er ríkisstjórn íslands að undirbúa inngöngu landsins í Efnahagsbandalag Evrópu, sagði Ragnar í lok máls síns. Ráðherr- arnir eru að vísu loðmæltir og segjast skuli fara að öllu með gát, en við getum verið viss um, að fari Danir og Norðmenn í bandalagið verður engin varúð viðhöfð af hálfu íslenzkra ráða- manna. Það verður reynt að þröngva íslendingum í bandalag- ið, nauðugum viljugum. Því cr full ástæða til að minna á, að á sunnudaginn er ekki að- cins' kosið um bæjarstjórnarmái. Kjörseðillinn er um ieið vopn manna í baráttunni gegn stefnu íhaldsins, í þessu máli sem öðr- um. Sérhvert atkvæði greitt stjórnarfíokkunum styður að inngöngu íslands í Efnahags- bandalagið. Framsóknarfiokkur- inn er eins og oftar tvistígandl og engu að treysta í afstöðu hans til þessa máls. Stuðningur við Alþýðubandalagið á kjördcgi er eina rökrétta svarið sem vinstri- menn geta gefið til að mótmæla öllum áformum um aðild íslands að Efnahagsbandalaginu. Drengur slasast við Trípolíbíó Um kl. hálf sex í gærdag varð það slys við Trípólí bíó, að vegg- ur, sem verið var að brjóta nið- ur féll á ungan dreng, Stefán Snævarr Aragötu 8 og slasaðisfc hann nokkuð á fæti. Hann var fluttur í Slysvarðstofuna og það- an í Landspítalann og var líðan hans eftir vonum í gærkvöldi. Ekki er blaðinu kunnugt um hve alvarleg meiðsli Stefáns voru. Kennarar ó ftalíu fara verkfall RÓM 22,5 — 340.000 ítalskir kennarar fóru snemma í dag í fjögra daga verkfall og hafði þó stjórnin á elleftu stundu að nokkru látið undan launakröfum þeirra. Kennararnir gerðu áður verk- fall 10. til 14. apríl; en þetta verkfall, sem nær til alls lands- (ins, er taiið hafa alvarlegri af- leiðingar. ekki sízt vegna þess að nú er aðeins mánuður til skóla- slita á ítaííu. K.ennararnir krefjast 600.000 milljón króna viðbótarframlags á ári, en stjórnin hefur gert þeirn tilboð um 120.000 króna lægri aukningu. • Vilja ekki fleiri stúdenta Samkvæmt tilkynningu fi~á þýzka sendiráðinu í Reykja- vík eru nú mikil þrengsli við háskólann í Múnchen, og er því þeim tilmælum beint til stúdenta. sem hyggja á nám í Þýzkalandi, að þeir leiti ekki til þess háskóla um sinn. Mis- jafn áhugi Hernámsblöðin birtu um það stórar fyrirsagnir í gær að tékkneskum manni hafi verið vísað úr landi fyrir að reyna að fá Sigurð Ólafsson flugmann til að safna vitn- eskju um flugvélakost her- námsliðsins á Keflavíkur- flugvelli, að sögn þess síðar- nefnda. Áhugi hernámsblaðanna á þessu máli er næsta ólíkur sinnuléysi þeirra gagnvart þeim stórfelldu njósnum sem hér eru stundaðar dag hvern. Þau hafa t.d. naumast getið um það að nýlega var til- kynnt opinberlega að banda- ríski flotinn myndi hefja um- íangsmiklar njósnir hér við !and í vor og mæla sérstak- lega kafbátaslóðir i Faxaflóa, til þess að njósnakafbátar Bandaríkjanná gætu at- hafnað sig þar. Ekki þótti hernámsblöðunum það heldur neinu skipta. þótt bandaríski flugherinn hafi árum saman mælt landið til afnota fyrir njósnadeildir sínar. Ekki sjá blöðin heldur neitt við það að athuga Þótt bandaríska sendiráðið hafi aðgang að öll- um trúnaðarplöggum íslenzku ríkisstjórnarinnar um efna- hagsmál o.g stjórnmál, og þótt sambandsmaður þess, Guð- mundur J. Guðmundsson ut- anríkisráðherra, sé einnig for- maður fjármálastjórnar Al- þýðublaðsins. Og hernáms- flokkarnir allir hafa lagt s:g niður við það að aðstoða bandaríska sendiráðið við að safna vitneskju um þegna ís- lenzka ríkisjns, þannig að þar mun nú svo til hver einasti landsmaður vera kominn á spjaldskrá. Annars er það einkennilegt að hernámsblöðin skuli ekki geta um stjórnmálaskoðanii Sigurðar Ólafssonar flug- manns; slíkt tíðkast ævinlega erlendis þegar njósnamál skjóta upp kollinum skömmu fyrir kosningar. Kannski er ástæðan sú að Sigurður er tryggur og áhugasamur Sjálfstæðisflokksmaður. Áhyggju- laus borgarstjóri Ólafur Thors á í gær við- tal við Morgunblaðið í því skyni að hlaða lofi á Gejr Hallgrímsson borgarstjóra, og vonandi á Geir einhvern tima eftir að iauna Ólafi viðvikið á sama hátt. Sérstaklega finnst Ólafi fráleitt að það sé gagnrýnt, að Geir Hall- grímsson stundar umfangs- míkjnn einkarekstur jafn- hliða borgarátjórastarfinu og notar aðstöðu sína tif ábata fyrir gróðafélög sín. Ólafur segir; „í þessu sambandi minni ég aðeins á, að í hin- um frj.álsa heimi þykir það kostur, en ekkj ágalli, að valdamaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af brauðstriti. Forseti Bandaríkjanna og rík- isstjóri New York-fylkis eru þannjg t.d. báðir vellauðug- ir. . . Það er ágætt að borgar- stjórinn þurfi ekki að segja sig til sveitar, og lika gott, að við skulum með góðri sam- vizku geta beðið hann að gegna æðsta embætti höfuð- borgarinnar, f.d. næstu 20— 30 árin, án þess að þurfa að greiða honum annað o.g meira fyrjr en það brot af háseta- launum á síldveiðum, sem Reykvíkingar hafa fram að þessu goldið borgarstjóra sin- um.“ Valdhafarnir eiga þannig ekki að hafa áhyggjur af brauðstriti; það á aðeins að vera hlutskipti hinna ó- breyttu borgara. Og kostur- inn við Geir Hallgrímsson er sá að borgarstjóralaunin — sem nema a.m.k. þreföldu verkamannskaupi — getur- hann notað sem smávegis aukagetu eða vasapeninga til þess að drýgja þær raun- verulegu tekjur sem hann hefur frá auðfyrirtæk'u-n sínum. En þótt Ólafur Thors líti smáum augum á bor'm-- stjóralaunin, er það einmitt borgarstjórnin sem tr.v«-’ir gróðafélögum Geirs t?ki- ur að hann er talinn y-»- + ''n- legur jafnoki Kennedv^ ,,-r- seta og Rockefellers ríkis- stjóra í auðsöfnun. — Austri. \ 1» I' \ 1» I' (> (» <> (> \ (' \ \ (> $ \ T Miðvikudagur 23. maí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.