Þjóðviljinn - 30.05.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.05.1962, Blaðsíða 3
f \ \ \ HELGI TÓMASSON Á FRAMABRAUT VESTRA Þær fréttir hafa nú borizt frá Bandaríkjunum að Helsa Tómassyni balletdansara hafi verið boðití þátttaka í list- dansflokki er sýnir á heims- sýningunni í Seattle. í flokkn- um eru 24 valdir dansarar og er Helgi einn af fjórum sóló- dónsurum flokksins. ★ ★ ★ Eins og mörgum mun kunnugt hóf Helgi balletnám hér barn að aldri og naut handleiðslu Bidsteds í dans- skóla Þjóðleikhússins til 14 ára aldurs. I yrir áeggjan Bidsteds fór Helgi til frek- ara náms í Kaupmannahöfn og dansaði jafnframt í Tivólí við stöðugt vaxandi vinsæld- ir. Hann dansaði t.d. í My Fair Lady, kom oft fram í sjónvarpi. ★ ★ ★ Haustið 1959 kom hingað liirin heimsfrægi dansflokkur Jerome Robbins og sýndi hér í Þjóðleikhúsinu- Þá komst Robbins í kynni við Helga og sá liann dansa á æfingu. Af því leiddi 'aðl Robbins Heigi Tómasson bauð Ilelga að koma vestur og dvelja. ókeypis við nám í skóla sínum „School of Ame- rican Ballet". Helgi þáði boð- ið og tók miklum framförum þar vestra. Sumarið eftir fór hann aftur til Kaupmaitna- hafnar. en næsta vetur hélt hann aftur til Robbins og nú naut hann lrandleiðslu sam- starfsmanns Robbins, Robert Joffrey, og hóf Helgi æfingar hjá honum í desember sl. Joffrey er einn kunnasti balletstjórnandi vestra. Ilann hélt með flokk sinn í 10 vikna ferðalag um Bandaríkin í fyrravetur og var Helga boð- ið að dansa með flokknum. Ilelgi dansaði í fyrstu aðal- lilutverk í .tveim balletum, en er ferðinni lauk dansaði hann í 6. Flokkurinin lrlaut ágæta dóma. og eftir þetta ferða- lag var Joffrey boðið að setja upp ballet á heimssýningunni í Seattle. Joffrey taldi að í Seattle væru ekki nógu góðir dansarar og valdi hann því 8 úr sínum hópi, þar á með- al Helga, til að fylla upp í flokkinn, sem telur 24 menn. Joffrey sér um dansa í sam- bandi við óperuna Aida, sem liefur verið færð uPP í Seat- tle. Helgi dveiur í Seattle um óákveðinn tírna, én ekki er vitað hvað tekur jvið hjá honum að þessu starfi loknu. Helgi, isem er 19 ára, er sonur Tómasar Snorrasonar og Dagmar Helgadóttur. SKÓLABÁTUR verður gerður út í sumar frá 12. júní. — Piltar á aldrinum 13—15 ára verða ráðnir til 3ja mán- aða starfs, ýmist á skólabátnum eða í landi. Þeir piltar, sem tekið hafa þátt í sjóvinnunám- skeiðunum, sitja fyrir. Umsóknir sendist skrifstofu Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Lindargötu 50, opið 2—4 e.li., alla virka daga fyrir 8. júní n.k. — Símil 5937. SJÓVINNUNEFND Launa- og kjaramál rædd á þingi barnakennara Þau mái kennárastéttarinnar, sem nú er efst á baugi, verða rædd á fulltrúaþingi Sambands íslenzkra barnakennara, sem hefst hér í Reykjavík um næstu helgi. Þingið verður sett í Mela- skólanum n.k. sunnudag, 3. júní. Rædd verða launa- oh kjaramál kennara og bau viðhorf sem þar haía skapazt, barnabók- menntir, námsbækur, fræðslut: myndir og fleira. Dr. Símon Jóh. Ágústssori pró- fessor mun flytja erindi á þing-. inu um barnabókmenntir og í sambandi við það verður efnt til sýningar á íslenzkum barna- bókmenntum. Þróttur vann Breiðablik 3:1 í fremur tilbrifalitlum leik Fremur var það tilþrifalítill - leikur, sem þessi lið sýndu í frábærlega góðu veðri á mánu- dagskvöld á Mélavellintim. — Þróttur sýndi meiri knatt- spyrnu- en Breiðablik, en það var eins og það vantaði vilja til að nota kunnáttu sína. Þeir voru lengi að því sem þeir ætl- uðu að gera og það vantaði eitthvað sem ræki endahnút- inn á verkið. Flestir piltanna kunna meira en þetta og geta sýnt meira. Vera má .að þeir hafi vanmetið Breiðablik, og þá er verra við að eiga þegar komið er útí leik. Breiðabliks- menn höfðu fullan vilja og börðust allan tímann og þeir virðast hafa úthalld. Knattmeð- ferð þeirra margra er á byrjun- arstigi og sama er að segja um tilraunir til samleiks. Þetta eru atriði sem hægt er að æfa ef vilji og elja eru í það lögð, og leggi þeir sig eins í líma við þær æfingar og þeir börðust í iþessum leik þurfa þeir ekki að kvíða. Gangur Ieiksins. Þróttur átti frá byrjun «meira í leikmimy.M en-i.- .tókst ekki að skapa -sér veru- leg tækifæri fyrr en ó 18. mín- útu að Haukur skaut í stöng. Áttu þeir á þessum tíma við og við svolitlar tilraunir til sam- leiks. Breiðablik á einnig sókn- arlotur, þótt þær væru ekki hættúlegar nema á 31. mínútu að þeir eiga opið tækifæri en skotið lendir á markmanni Þróttar. Á 38. mínútu er Hauk- ur kominn innfyrir en mark- maður kemur út og lokar. Tveim mínútum síðar skorar Haukur með góðu skoti. Tveim mínútum síðar fær Breiðablik aukaspyrnu langt úti á velli og spyrnir Júlíus Júlí- usson að marki Þróttar. Hinn kviki miðherji Breiðabliks er þar fyrir og skallar laglega yf- ir Grétar, markmann Þróttar, sem hafði komið of langt út úr markinu, 1:1, og þannig lauk leiknum. Þróttur hafði farið illa með tækifærin og missti leik- inn meira út úr höndunum er á leið. Síðari hálfleikur var jafnari en sá fyrri en heldur minni knattspyrna í honum. Þróttur á meiri tækifæri og er Helgi ■'^thvgá sem.-á-raðí-nota -þau en- alltaf einum of seinn. Á 23. mínútu fær Þróttur vítaspyrnu fyrir það að Axel er brugðið. Haukur skorar ör- ugglega úr því. Nokkru síðai' á Jens skot á mark en bakvörður Breiðabliks stýrir honum í markið fram- hjá markmanninum sem ann- ars var vel staðsettur. i SendibíU IXt- Stotiwibill 1202 FHJCIA SporlbíII OKTAVIA Fólksbill Shodh ® ‘TRAUST BODYSTAL - ORKUMIKLAR OS VIÐURKENNDAR VÉLAR- HENTUGAR ISLENZKUM AÐSTÆÐUM - LÁGT VERO PÓSTSENDUM UPPLÝSINGAR 7ÉKKNESKA BIFREIDAUMBODIO lAUGAVEOl 17«• SÍMi37881 Akureyringar keppa á Laugar- dalsvelli og á Akranesi Sökum þess hve völlurinn á Akureyri er slæmur verða þær breytingar á leikjaskránni að Akranes og Akureyri munu keppa á Akranesi á fimmtu- daginn (uppstigningardag) kl. 5.30. Þá munu Akureyringar keppa við Val á Laugardals- vellinum kl. 4.30 á sunnudag- T e 1 p a 11 ára telpa vill gæta barns, helzt í Laugar- neshverfi eða nágrenni. Uppl. 5 síma 33586. Á 40. mínútu er miðherji Breiðabliks, Reynir, kominn innfyrir ‘vörn Þróttar og skaut en Grétar varði naumlega í horn. Á 44. mínútu á Haukur Þor- valdsson hörkuskot í stöng af löngu færi. Breiðablik átti við og við sóknarlotur en þeim tókst ekki að ógna verulega marki Þróttar. Lið Breiðabliks: Ragnar Magnússon, Sigurjón Hrólfss., Friðbjörn Guðmunds- son, Guðmundur Jónsson, Júlí- us Júlíusson, Sigmundur Eiríks- son, Grétar Kristjánsson, Jón Ingi Ragnarsson, Reynir Jóns- son, Daði Jónsson og Guð- mundur Torfason. Þeir sem maður veitti helzt athygli var miðherjinn Grétar, sem kunni vel listina að ein- leika og var frískur og fljótur en gerði of mikið að því að leika einn. Júlíus Júlíusson miðframvörður átti góðan leik. Markmaðurin greip knöttinn sig og slapp vel frá leiknum. Leikni og aftur leikni, hugsun og aftur hugsun, er það sem Breiðablik þarf að gjöra að kjörorði sínu. Þróttarar verða að taka sig betur á ef þeir hugsa sér að vinna deildina og komast uppí fyrstu deild. Knattspyrna • er leikur þar sem menn verða að berjast 'og mætti það vei'ðá kjörorð Þróttar. Grétar Guð- mundsson lék í marki og slapp vel frá því. Annars er liðið jafnt, enginn sem skarar fram- úr, sem sagt efniviður. Tíminn sker úr um það hvort þeir leggja á sig þá baráttu sem þarf til þess að ná því fram sem í þeim býr, Dómari var Þorlákur Þórðar- son. — Áhorfendur voru fáir. Frímann. ÍBH - Þróttur í kvöld, Vnlur og KR annað kvöld í kvöld kl. 20.30 keppa Þrótt- ur og IBH í Hafnarfirði í 2. deild og í Reykjavíkurmótinu keppa Þróttur og Valur í 2. fl. A og Valur og Þróttur í 3. fl. A,' 'Þeir ' leikiT " eí’U á ' Háskóla- vellinum. Annað kvöld kl. 20.30 keppa Valur og KR á Laugardalsvelli í 1. deild og fjöidi leikja í R- víkurmótinu fer fram á Há- skólavéllinum þann dag. Nýtízku liusgögn Fjölbreytt úrval. Póstsendum. ^ Trúlofanarhringrir, steinhring Ir, hálsmen, 14 o* 18 karata Axel Eyjólfsson. Bkipholti 7. Sími 10117. % ' r| Miðvikuqlagur 30. maí iWa — ÞJÓÐVILJINN -a

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.