Þjóðviljinn - 27.04.1963, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.04.1963, Blaðsíða 4
/ 4 SlÐA ÞJðÐVILJINN (Jtgefandi: Sameimngarflokkur aibýðu — Sósíaiistaflokk urinn. — Ritsrtjórar: fvar H. Jónsson. Magnús Kjartansson. Sigurð- ur Guðmundsson <áb) Fréttaritstjórar: Jón Bjarnason. Sigurður V Friðþjófsson. ftitstjó’-’-' r—atiplýsingar. prentsmiðia: Skólavörðust. 19 Simi 17-500 (5 línur) Á.skriftarverð kr 65 á mánuði Hræsni í . CJtjómmálaályk'tun Framsóknarþingsins var les- ^ in í útvarp í fyrrakvöld. Um hernámsmálin var komizt að orði eitthvað á þá leið að hið er- lenda lið skyldi hverfa af landi brott svo fljótt sem auðið er. Stefnuyfirlýsing af þessu tagi sýn- ir Framsóknarforustuna nákvæmlega eins og hún er, því í henni felst engin stefna. Se'tn- ingunni um hernámsmálin er ætlað að skír- skota jafnt 'til þess yfirgnæfandi meirihluta Framsóknarkjósenda sem vill að herinn fari taf- arlaust sem þeirra hermangara sem vilja að hann dveljist hér um ófyrirsjáanlega framtíð, þannig að hægt verði að plægja hernámsgróð- ann inn í fyrirtæki Framsóknarflokksins, eins og áróðursmenn hans hafa komizt að orði. í hernámsmálinu er barizt um það hvort „auðið“ sé að herinn fari tafarlaust eða ekki; ef leiðtog- ar ~ - msóknarflokksins hefðu verið heiðarleg- i þeir borið upp þá spurningu við flokks- þin6 oitt og látið það svara henni. En í staðinn forðast þeir að láta þingið taka ákvörðun um stefnu í þessu máli, aðferð þeirra er hræsnin og yfirdrepsskapurinn, stefnuyfirlýsing þeirra er loðin gæra til þess að dylja raunverulegar fyrirætlanir leiðtoganna. . I HJiJ -fSi I b I Y'-i 'J r'. ¥?ngir ruenn bera jafn flekkaðan skjöld í her- námsmálinu og leiðtogar Framsóknarflokks- ins, og er þá mikið sagf — einmitt vegna þess að þeir hafa reynt að dylja svik sín við sjálf- stæði þjóðarinnar með kaldrifjuðum fláttskap. Það er einhver ósæmilegasti verknaður í stjórn- málasögu íslendinga þegar þingflokkur Fram- sóknarflokksins skipti sér nákvæmlega í tvennt um afstöðuna til Keflavíkursamningsins 1946 — og það var dregið um það í hvorum hópnum menn skyldu lenda. Síðan hefur Framsóknar- flokkurinn í framkvæmd staðið að öllum óþurft- arverkum sem unnin hafa verið í hernámsmál- um, fyrirtæki hans hafa verið stórtækari og ósvífnari í gróðabralli og lögbrotum á Keflavík- urflugvelli en nokkur önnur, en í orði hafa leið- togarnir einat’t þótzt heyja harða baráttu gegn sínum eigin verkum. Bandaríkjamaður sem fyr- ir nokkrum árum skrifaði doktorsritgerð um sögu hernámsmálsins á íslandi rakti þar eink- ar skilmerkilega hvernig Framsóknarflokkur- inn hefur hegðað sér. í hvert skip'ti sem Fram- sóknarflokkurinn hefur tapað fylgi í kosning- um hafa leiðtogar hans magnazt í andstöðu sinni við hernámið — í orði. Hafi flokkurinn hins vegar bætt við sig fylgi, hefur fylgisaukningin verið notuð til þess að festa hernámið í sessi. Rrsesnin er ógeðfelldasta einkenni íslenzkr- ar stjórnmálabaráttu, því henni er ætlað að tryggja það að kjósendur þafi ekki hugmynd um hvaða örlög þeir eru að velja sér. Þá hræsni hafs forustumenn Framsóknarflokksins gert að sérgrein sinni. — m. Vígsla Sú&avíkurkirkju Leiörétting. Hr. ritstjóri! Vegna greinar í blaði yðar i gær, er ber nafnið „Dýr kirkju- vígsla" og „Gamall sjómaður að vestan“ undirritar, þykir rétt að taka þetta fram: Það er misihermt í greininni, að kirkja sú, sem riu- er á Súðavík, hafi verið óður í Grunnavík. Súðavíkurkirkja er gerð upp úr þeim viðum, sem nothæfir reyndust í kirkjunni á Hesteyri, er var ofan tekin og flutt til Súðavíkur. Kirkja sú, sem þar er nú og vigð var ó páskadag, má teljast nýtt hús sakir viöauka og endumýj- unar. Vígslan var ákveðin alllöngu fyrirfram, eins og öllum hlýtur að vera skiljanlegt, og átti hún að fara fram á skírdag. Var sá dagur valinn m.a. með tilliti tii þess, að biskup gæti notað á- ætlaða ferð strandferðaskipsins Heklu til Isafjarðar. Brottför hennar frá Reykjavík seinkaði hinsvegar nokkuð. Um flugferð- ir var ekki að ræða sakir veð- urfars. Það er jafnan óþægilegt fyrir það fólk, sem i hlut á. ef raska verður áætlunum um slíkar athafnir sem þá, sem hér var áfonnuð, því að viðbúnað- ur er nokkur og ýmsar ráð- stafanir óhjákvæmilegar. Ferm- ing var og ákveðin fýrir sóknina í hinni nýju kirkju á annan þáskadag og var mönnum að sjálfsögðu hugleikið. að hún yrði vígð í tæka tíð fyrir þá athöfn. Þegar sýnt var, að eng- ir möguleikar gótu verið á þvi, að biskup kæmist á vettvang á settum degi, kom landhelgis- gæzlan ' góðfúslega til aðstoðar, en hins vegar er það rang- hermt, að varðskipið Öðinn hafi verið sent gagngert með biskup vestur. Skipið hafði fleiri erindum að gegna í þeirri för. Var aldrei gert ráð fyrir, að það færi lengra en til ísa- fjarðar, en þó svo hefði verið, var ófært að lenda í Súðavik, þegar vestur kom. Veður ollu þvi, að seinka varð vígslunni, þrátt fyrir allt, en ekki virð- ist ástæða fyrir greinarhöfund að hafa áhyggjur af þessu móli. 26. april 1963 (Frá skrifstofu biskups). GermanÍB í dag I dag laugardag, verður kvik- myridasýning í Nýja Bíó á veg- um félagsins Germanía, og verð- ur það næstsfðasta sýningin á þessu vorL Verður sýnt hið vin- sæla ævintýri um Mjallhvítu og dvergaþa.sj’ö. er bæði ungir og gamlir' kahnast við. Á undan myndinni verða sýndar nýjar fréttamyndir frá Þýzkaladi, Knattspyrna Framhald af 5. síðu. afsSon, Grétar Guðmundsson. Eysteinn Guðmundsson, Þor- varður Bjömsson, Jón Björg- vinsson. Eyjólfur Magnússon. Ómar Magnússon, Ólafur Brynjólfsson, Haukur Þorvaids- son, Jens Karlsson, Axel Ax- elsson. Lið Fram: Geir Kristjánsson, Sigurður Friðriksson, Amór Sveinsson. Birgir Lúðvíksson, Halldór Lúðvíksson, Ragnar Jóhannes- son, Hinrik Einarsson, Baldur Scheving, Ásgeir Sigurðsson, Þorgeir Lúðvíksson, Hallgrímur Scheving. Lið Þróttar kom skemmti- lega á óvart með þessum mikla krafti sínum í fyrri hálfleik en leikur þeirra var öft á tíðum skemmtilega útfærður. Virðist iið þeirra einhvemveginn heil- steyptara en áður og er búizt við góðum árangri þeirra í sumat. Flestir liðsménn áttu góðan leik, en einn bar þó af og var það Axel Axelsson sem átti mjög góðan l.eik og virðist hann vera heili liðsins. Ekki er hægt að dæma getu Fram eftir þessum leik þar sem ýmis kunn andlit vom fjarver- andi svo sem Hrannar. Guðión og Guðm. Ósk. Hinsvegar var lið það sem Fram tefldi fram að þessu sinni ekki tilbúið til ótaka og virtist í lítilli æfingu. Leikmenn voru seinir á knött- inn og höfðu of lítið auga tvr- ir samleik. Ennfremur var vömin oft á tíðum illa á verði. Sem sagt það verður að reikna með Fram-liðinu sterkara en það var í þessum leik. Dómari var Ólafur Hannes- son og dæmdi hann vel enda var leikurinn prúðmannlega leikinn yfirleitt. — H. 1 ! ! I \ \ I \ Knattsp fyrr og nú á morgun, sunnudag kl 4 á Melavellinum — 2 leikir — 4 lið Meistararnir 1 dag Fratn og K.R. Komið og sjáið jaxlana bítast á Sjón er sögu rikarl, komiS fimanlega fil aS forSasf þrengsli KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ FRAM FRAM. — Laugardagur 27. apríl 1963 Bandarísk hjón halda tónleika Hingað eru komin á vegum félagsins Musica nova bandarísk hjón, Roger Drinkall sellóleikari og kona hans Deny Deane, fiðlu- leikari. Roger kennir við Queen’s College í Carolina og er förin hingað gerð með verulegum styrk frá þeirri stofnun. Þau hjón halda hér eina tón- leika á morgun í Hótel Sögu og hefjast þeir kl. 3.30. Nánar verður frá þeim sagt í blaðinu á morgun. I \ i \ I t k Í I I I I I ! I ! * I Meistararnir 1947 Fram og Valur Þeir gerðu garðinn frægan meistararnir 1947. usamband Islands ósi \ar allrí alþýðu gh iði/egs sumars • ' T : , . ■ ; . v. ' h ■ V -jfi •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.