Þjóðviljinn - 31.05.1964, Blaðsíða 8
MÓÐVXLnNK
8 8lÐA ---------
Þið
stúdentsárin
æskugíöð
EFTIR HANS SCHERFIG
— Nei. en við förum í kirkju.
>ú kemur heim klukkan níu eins
og ég hef sagt. Á þessu heimili
fara börnin í rúmið á skikkan-
legum tima.
Það er orðið dimmt klukkan
fjögur síðdegis. Og það er næst-
um komin nótt, þegar Mogensen
fer út, vafinn regnslá sinni. Ljós-
in speglast i votu malbikinu á
Austurbrúgötu. Og ljósaauglýs-
ingamar speglast í Svarta-
dammsvatni.
Mogensen stikar af stað í
regnslái sínu eins og dulbúinn
riddari í skikkju sinni. En hann
fer alls ekki til Amsteds.
Enda er Amsted ekki heima
heldur. Hann var einmitt að
segja foreldrum sínum að hann
setli að fara yfir lexíur sínar
með Mogensen. Og hann hefur
fengið leyfi til þess. vegna þess
að Mikael Mogensen er svo
stilltur og prúður drengur.
Amsted hefur ekki farið oft í
bió heldur. Og aðeins á fræð-
andi myndir. Það er ekki vegna
trúarbragðanna, en kvikmyndir
eru ekki skemmtanir fyrir börn.
Þær aesa aðeins ímyndunaraflið.
©g Teó hefur alltof auðugt í
myndunarafl nú þegar. Og frú
Amstad finnst það gróf skemrQt-
an að fara í bíó.
— En vertu nú ekki og lengi
hjá Mpgensen. Þú átt að fara
f rúmið klukkan tíu í síðasta
lagi. Sæll Teó.
Teódór á engan dolk. sem
hann getur stungið í beltið. En
hann er með litla byssu í vas-
anum og öskju af hvellhettum.
Það er ekki gott að fara óvopn-
aður út á næturbeli.
Hann fer ekki í áttina að
Willemoesgötu, þar sem Mogen-
sen á heima. Hann laumast eft-
ir skuggalegri Stokkhólmsgöt-
HÁRGREIÐSLAN
Hárgrefðslu og
snyrtistofa STFIND og OÖDÖ
Laneaveei I* m h. (lyfta)
SIMTI 34B1B.
P E R IVI A Garðsenda 81
SfMI 83968. Hárgreiðslu- oe
snyrtistofa
nömur’ Hárgreiðsla <n!9
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
TJarnargötu 10 VonarstrætSs*
megin - SfMI 14662
HARGRETOSI.USTOFA
AUSTURBÆJAR
(Maria Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13 — SÍMi 14656.
— Nuddstofa á sama stað —
unni, meðfram girðingunni að
Austurgarði.
Og hann stanzar og svipast
um eftir því hvort nokkur horfi
á eftir honum eða elti hann.
En gatan er alveg mannauð. Og
Amsted klifrar yfir girðinguna
og inn í koldimman garðinn.
Þar er allt þrungið óhugnaði.
Vindurinn þýtur í trjám og
runnum. Og enginn veit hvað
kann að liggja í leyni í myrkr-
inu. Hann heldur fast um byss-
una í vasanum. Að vísu er engin
hvellhetta í henni. en þó kann
hún að vera betri en ekki, ef
einhver skyldi ráðast á hann.
Það er svo hljótt og maður
heyrir sitt eigið fótatak í möl-
inni og það er eins og einhver
17
sé á hælunum á honum. En hann
verður að halda áfram. Niður
stíginn að lítilli brú, þar sem
vötnin tvö renna saman. Fyrir
neðan Birkihæðina eða Sjálfs-
morðshæðina, eins og hún er
kölluð líka. Það var þar sem
maður hengdi sig fyrir nokkru.
Það er erfitt að rata í myrkr-
inu. En niður_ við, vatnið er ögn
bjartara og það er hægt að sjá
ljós í húsunum fyrir utan garð-
inn. Við litlu brúna stanzar hann
og hlustar. Ekkert heyrist ann-
að en þyturinn í trjánum.
Svo stappar hann harkalega í
brúna þrisvar sinnum.
— Hver er þar? spyr hrjúf rödd
neðan úr myrkrinu undir brúnni.
— Einn úr bræðralaginu! segir
Teódór djarflega.
— Vígorðið?
— Blomme skal falla!
— Gott. Komdu hingað niður.
Renndu þér niður bakkann, en
hafðu hljótt!
Hann skreiðist hljóðlega niður
brekkuna og undir brúna. Og í
myrkrinu rekst hann á Rold og
Hernild.
— Hvar er Mogensen? Kemur
hann ekki?
— Jú, áreiðanlega. En hann
kemur kannski seint. Hann
stendur alltaf í stríði við fjöl-
skylduna þegar hann þarf að
fara út. Við verðum að bíða dá-
litla stund eftir honum.
Og þeir sitja hljóðir í myrkr-
inu undir litlu brúnni og eru
fegnir því að vera nokkrir sam-
an.
— Það er gott að ég kom með
byssuna. segir Amsted. Það er
ekki hægt að vera óvopnaður á
þessum tímum.
— Ég held að rýtingurinn
minn sé heppilegri, segir Rold
Hann gerir engan hávaða.
Andartaki síðar heyra þeir
fótatak á brúnni og spörkin þrjú.
Og hið óhugnanlega vígorð er
kallað: Blomme skal falla. Og
svo þreifar Mogensen sig áfram
niður til hinna.
— Þú kemur seint.
— Rex í gamla fólkinuu.
Komst næstum því ekki af stað.
Og svo er ég náttblinduur. Ég sé
ekki glóru. Mogensen fægir
gleraugun en það gagnar lítið.
— Ertu með skjölin?
— Auðvitað. Mogensen tekur
stflabók ndan regnsláinu.
— Það er hægt að sjá til að
lesa.
— Ég er með eldspýtur, segir
Hemild.
— Nei. heyrðu nú, það er ekki
hægt. Það er ekki hægt að
kveikja ljós héma.
— Ég held líka að ég kunni
þetta utanbókar, segir Mogensen.
Og svo getum við skrifað undir
seinna, þegar við sjáum til.
— Allt í lagi. Byrjaðu þá á
lögunum!
— Nafn Bræðralagsins er:
Svarta höndin. Tilgangur þess og
tilvera er stranglega leynileg.
Og sá sem ljóstrar upp leyndar-
málum Handarinnar, hlýtur
dauðarefsingu. Hinn dauði ljóstr-
ar engu upp.
— Hvemig skrifaðirðu þetta?
Þú hefur vonandi notað leyni-
letrið?
— Auðvitað. Þetta er skrifað
með talnamálinu. Við verðum
allir að læra það utanað. A er
5, B er 2, C er 4, en ég man
þetta ekki allt. Það stendur aft-
ast í bókinni.
— Það er ágætt. Haltu áfram!
— Svarta Höndin ætlar að
berjast gegn mannkyninu. Fyrst
og fremst gegn kennurum og
garðvörðum. Meginfjandmenn
hennar em Apinn og Blomme og
Langleggur. En líka Hans gamli
í Kóngsgarðinum og Flóðhestur-
inn og Heyálfurinn í Grasgarðin-
um.
— Hvemig getum við barizt
gegn þeim?
— Það er ekki hægt að skrifa
nákvæmlega. Það er svona al-
mennt. Á allan hátt og með öll-
um aðferðum.
— Það er e.t.v. hægt að senda
þeim nafhlaus bréf, segir Hem-
ild.
— Já. nafnlaus bréf eru ágæt.
Við þurfum að nota þau mikið.
— 'Er meira í lögunum?
— Já. Um stjómina. Svarta
höndin lýtur forustu fjögurra
manna yfirstjóm. sem allir í
bræðralaginu eiga að sýna tak-
markalausa hlýðni og blint
traust.
— Ágætt. Það verðum við fjór-
ir.
— Ég legg til að við kjósum
formann.
— Rold væri ágætur, segir
Hemild.
— Ef enginn annar vill það,
segir Rold hógvær.
— En þá á Mogensen að vera
ritari, segir Amsted.
Það er allt í lagi.
— Ég legg til að Hemild verði
varaformaður, segir formaðurinn.
— Og Amsted gjaldkeri, leggur
D§ogensen til.
"Allt er þetta samþykkt sam-
hljóða.
— Við verðum að borga félags-
gjald. segir gjaldkerinn. Ég sting
upp á 5 aurum á viku. Er það
of mikið?
— Því miður er það ómögulegt
fyrir mig, segir Mogensen. Hann
fær aldrei vasapeninga.
— En Mogensen gæti kannski
orðið heiðursfélagi, af því að
hann átti hugmyndina.
— Heyr! Heyr!
Þetta er dálítið óþægilegt fyrir
Mogensen, en það er ekkert við
því að gera. Hann fær ekki föð-
ur sinn til að punda út með
peninga til Svörtu handarinnar.
— Og svo þarf að undirrita
þetta. En hér sjáum við ekki
glóru. Við verðum að gera það
á götunni undir götuljósi.
— Helzt þyrfti að undirrita
þetta með þlóði.
— Það var líka þess vegna sem
ég tók með mér dolkinn, segir
Rold.
— En maður getur fengið
blóðeitrun af því að skera sig
með drullugum dolk. Það er
stórhættulegt! segir Hemild. Og
þess vegna tók ég með mér
smábyttu með rauðu bleki. Það
er alveg eins gott.
— Bravó.
— Við skulum þá vinna eið-
inn! segir Mogensen. Við sverj-
um að Ijóstra aldrei upp leynd-
armálum Svörtu Handarinnar og
hlýða hinum heilögu lögum
hennar að eilífu. Og mættum
við rotna lifandi ef við rjúfum
þennan eið.
Eiðurinn er unninn með þrjá
fingur á stflabókinni. Svo sitja
fóstbræðumir fjórir þöglir í
myrkrinu undir brúnni og hugsa
um alvöru og mikilvægi þessar-
ar stundar.
— Við ættu sjálfsagt að fara
héðan hver fyrir sig og hver í
sína áttina, ef einhver hefur
veitt okkur eftirför, segir Mog-
ensen og vefur að sér regnsláinu.
— Getum við ekki alveg eins
orðið samferða? Það er skemmti-
Iegra. Það liggur enginn í lejmi.
Og samsærismennimir fylgj-
ast að gegnum koldimman Aust-
urgarð. Þeir ganga framhjá
Sjálfsmorðshæðinni með hvítum
birkistofnunum. Framhjá bekkn-
um þar sem maðurinn hengdi
sig. Héma var það, hvíslar Am-
sted. Já. það var héma.
Og þeir klifrast yfir girðing-
una og koma út á Austurbrú-
götu. Og á bekk undirrita þeir
leynibók Svörtu Handarinnar
með eldspýtu sem dýft er í
rauða blekið hans Hemilds. Og
það er samþykkt að samrit af
skjalinu skuli lagt f innsiglað
skrín, sem grafið verði undir
litlu brúnni í Austurgarði.
Mogensen er afhent stflabókin.
En hann á bara dálítið erfitt
með að geyma hana. Það hefur
verið nógu slæmt þessa síðustu
daga. Hann hefur ekkert afdrep
fyrir sig. Þau eru svo mörg í
heimili. Og allir eru með nefið
niðri í öllu.
— Væri ekki hægt að útnefna
skjalavörð sem geymdi skjöl
Svörtu Handarinnar? Væri
það ekki staða fyrir Hernild,
sem er bara varaformaður?
Jú. Hemild vill gjaman vera
Gjafir til Menn-
ingar og minning-
arsjóðs kvenna
Á þessu ári hafa borizt eftir-
taldar gjafir:
Til minningar um Guðrúnu
Jónsdóttur, Þrándarstöðum kr.
1.500,— frá dóttur hennar, til
minningar um Guðrúnu Sigurð-
ardóttur, Stokkseyri kr. 2.500,—
frá eiginmanni hennar og dætr-
um, til minningar um Jóhönnu
K. Kr. Briem kr. 10.000,— frá
börnum hennar, til minningar
um Guðríði Tómasdóttur og Sig-
ríði Benediktsdóttur kr. 10.000,—
frá Gunnari Stefánssyni, stór-
kaupmanni. Auk þess hefur bor-
izt til viðbótar við fyrri minn-
ingargjafir: til minningar um
Kristínu Stefánsdóttur, Ásum
kr. 1.000,— frá Guðrúnu Guð-
jónsdóttur, til minningar um
Elinu R. Briem Jónsson kr.
10.000,— frá nokkrum systkina-
barnabörnum hennar.
F.h. stjórnar M. M. K.
Svava Þorleifsdóttir.
Sunnudagur 31. mai 1964
SKOTTA
Það er sem ég segi, þú hefur bezta sumarstarfið af öllum sem ég
þekki.
# I. DEILD
ÍSLANDSMÓTIÐ
Laugardalsvöllur sunnudag kl. 20,30.
VALUR — F R A M
Keflavík
Njarðvíkurvöllur sunnudag kl. 6.
I. B. K — I. A.
Mótanefnd.
Vöruflutningar með bílum
vestur — norður — austur
Vöruflutningabílar frá Vöruflutningamiðstöðinni
annast ódýrustu, skjótustu og beztu flutningana
fyrir ykkur, hvort heldur um er að ræða heila
farma eða einstakar sendingar, til fyrirtæk'ja og
einstaklinga. — Bílar okkar fara nær daglega
til flest allra kaupstaða og kuptúna á Vesturlandi,
Norðurlandi og á Austfjörðum, allt austur til
Hornafjarðar. Allar nánari upplýsingar í afgreiðsl-
unni frá kl. 8—18 alla daga nema laugardaga til kl.
12 á hádegi.
Traustir bílar — Örugg þjónusta.
Vöruflutningamiðstöðin
Borgartúni 21 — Símar 15113 -12678.
ORÐSENDING
til félagsmanna Bandalags
íslenzkra listamanna.
Ókeypis aðgöngumiðar að setningarathöfn Lista-
hátíðar bandalagsins í samkomuhúsi Háskólans,
sunnudaginn 7. júní, verða afhentir félagsmönnum
bandalagsins í dag og á moorgun, kl. 2 — 8, á
skrifstofu Tónlistarfélagsins, Garðastræti 17. Af-
gangsmiðar verða seldir á þriðjudag.
Stjórnin.
*
*