Þjóðviljinn - 17.06.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.06.1964, Blaðsíða 5
Mídvikudagur 17. Jdní 1964 ÞJÖÐVILJINN SÍÐA \ JÓN FRÁ PÁLMHOLTI: Undir útvegsbankanum (úr samnefdum Ijóðaflokki) Undlr útvegsbánkanum stíga dansendur samtíðarinnar kjamorkudansinn hljómsveitin spilar fyrir hríngiðunni það glamrar í skiptimynt borgaranna peníngahöllin gnæfir upp úr mannhafinu bergmálar tryllt óráðskennd óp hljóðfæranna og hlátur kvenfólksins undir fótum mannanna lifir jörðin yfir minníngar geinginna kynslóða hafa þeir steypt þykkan múr á torginu við útvegsbánkann dansa ég í nóttinni ég sveitamaðurinn sem elska borgarstúlkuna dansa og horfi á fólkið og húsin snúast í hríngi peníngahöllin speiglast í augu mhennar tmdir útvegsbánkánum stíga dansendur samtíðarinnar þjóðhátíðardansinn graðhestamúsíkin fyllir strætin óráðskenndum saung hláturblómin ánga hér er málað yfir sorgina kynslóðir hvíla gleymdar í mold yfir dansendum hvelfist upplýstur plasthiminn n. Við höldum áfram að dansa á sölutorgínu þeir stíga fram hver eftir annan og bjóða vörur sínar til áölu ' kauphallarmeistarar heildsalar verksmiðjueigendur víxlafalsarar fisksalar og húsgagnakaupmenn hrópa hver í kapp við annan að bjóða okkur nauðsynjar útsala rýmingarsala hrópa þeir einstæð kjör allt á að seljast við höldum áfram að dansa við erum stödd á því torgi þar sem náúnginn er verzlunarvara ekki aðeins þær nauðsynjar er hann þarfnast heldur einnig vinnuafl hans hús hans og hamíngja við enim hér stödd meðal þeirra sem stjórna nýlendum með peníngavaldi þeirra sem feingið hafa nýlendubúum þekkíngarskort í stað gulls menntunarleysi í stað úraníums ólæsi í stað olíu og kristindóm í staðinn fyrir mat og við höldum áfram að dansa það er mikil hátíð á torginu peníngar velta vín flóir um götur ærslin ríkja forystumenn þjóðanna spránga um torgið með svörtu hattana sína einkennisbúníng sjálfkjörinna ættjarðarvina og hræsnara einnig þeir hafa vörur að bjóða herstöðvar kafbátahafnir landhelgi hrópa þeir gerizt þátttakendur í alþjóðagróðanum kaupið almenníngshlutabréf vopnaverksmiðjanna sjálfur forsætisráðherrann stígur fram og segir skoðið fólkið hefur nokkur þjóö annað eins úrval af fólki útsala rýmingarsala einstæð kjör allt á að seljast við höldum áfram að dansa , mússíkin verður æ trylltari hrópin æ hærri og ákafari senn munu hamarshöggin yfirgnæfa allan hávaða og viö höldum áfram að dansa Iiið vinnu Arfurinn Framhald af 5. síðu. að eyða öllum tíma sínum og orku svo mörg ár, að flestir eru gamlir menn og útslitnir, er þeir sjá fram úr þeim fjánhagserfiðleikum sem hafa þjakað þá og þjáð allan þann tíma, er annars ætti að vera bezti tími ævi manna, Þess eru því miður ófá dæmi á Is- landi nú hin síðari ár, að stritið við húsbyggingar hefur beinlinis gengið af ungum mönnum dauðum. Þá er það ekki síður alvarlegt það sál- artjón sem menn bíða af þvi að sjá aldrei fram úr fjár- hagserfiðleikum og því að verða að knékrjúpa fyrir ráðamönnum í þjóðfélaginu hvert sinn sem þeir þurfa að bjarga sér úr aðsteðjandi erf- iðleikum. Þegar svo hefur gengið lengi, er stutt í að menn selji sál sína og sann- færingu, og til þess er kannski leikurinn gerður með því ástandi sem nú er í hús- næðismálum. Af þessu leiðir einnig, að ungir menn eru til þess neyddir að venjast því að hugsa eingöngu um peninga ------------------------ ------•$> >rátt fyrir stórvirV - • -•'tímans, þarf fólk að strita myrkv- anna á miíli tii aö haia fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. og missa sjónar af öllu því sem háleitara er og manninum dýrmætara. Fæstum ungum mönnum er það eðlilegt að lát-a hugann snúast um pen- inga og aftur pendnga, en ef svo heldur áfram sem horfir verður hver alþýðumaður gerður að hugsjónalausum braska'ra. 1 hverju heilbrigðu þjóðfélagi eru húsnæðismálin félagslegt vandamál, sem þjóðir leysir með samihjálp og samhyggju. En í okkar þjóðfélagi er litið á þessi mál sem brask eitt. Það eru þessi mál, sem hvíla eins og þungt farg á ungu fólki í dag. Því fargi verður að létta af ungu fólki með því að færa byggingu íbúða á fé- lagislegan grundvöll og kom-a þannig í veg fyrir að íbúðar- húsnæði verði dýrara en þörf er á, með því að gera bygging- ar hagkvæmari og afnema gróða milliliða og braskara. Og hinsvegar að afla fjár í byggingarsjóð ríkisins, svo að fsert verði að veita hærri byggingarlán með lægri vöxt- um og til lengri tíma, Nýtt þjóðfélag Mjög er nú alið á þeim hugsunarhætti, að æskan eigi ekki að skipta sér af stjórn- málum, og segja má að stjómmálaspillingin á Islandi fæli hana frá slíkum afskipt- um. Hverjum uppvaxandi þjóðfélagsþegn er þó nausyn að móta viðhorf sín ,til um- hverfisins og læra að þekkja skyldur sínar og krefjast réttar sins sem félagsvera. Hagur og velferð æskumanns- ins er óhjákvæmilega háður því sem stjómmálamennirmr ákveða, hvort sem mönnum líkar það betur eða ver. En það er jafnan hagur hinnar ráðandi stéttar, að æskan liugsi ekki um stjómmál og skipti sér ekki af stjórnmál- um. Það er hlutverk æskunnar að skapa nýtt þjóðfélag, hún hefur engan hag af núverandi þjóðfélagsháttum, heldur er það henni f jötur um fót. Unga fólkið á enga sök á göllum þess mannfélags, sem það elzt upp í. Hagur þess er að af- nema hið spillta þjóðfélags- kerfi gróðahyggjunnar. Afnám þessa úrelta og rót- lausa auðvaldsþjóðfélags verður aðeins framkvæmt með sósíalisma. Sósíalisminn er eina lausnin á hinum marg- umræddu vandamálum sem æskan getur sætt sig við. ★ Við lýðveldisstofnunina gaf íslenzka þjóðin sér Þjóðminja- safnshúsið, Sú gjöf er verð- ugur minnisvarði, og hún sýndi fortáð okkar þá ræktar- semi, sem sómi var að. Við sem eigum að erfa þetta land áttum að geta virt fyrir okk- ur lifnaðarháttu og sögu for- feðra okkar. Nú á tuttugu ára afmæli hina endurreista lýðveldis á Islandi ætti þjóðin að færa æskunni þá gjöf sem dýrmæt- ust er: Að hún fái í fyrsta sinn a8 lifa í landi sem ekki er setið erlendum her, lifa sem sjálfstæð þjóð í hlutlausu landi, að hún geti verið stolt af menningu þjóðar sinnar og hefði aðstöðu til heibrigðs og menningarlegs félagslífs. Munnfjöidi ú íslundi árin 1944 og 1963 Tölur þær sem hér eru birtar eru úr skýrslum frá Hag- stofu Islands en tölumar frá 1. des. 1964 eru þó bráða- birgðatölur. Síðan 1944 hafa fimm nýir kaupstaðir verið stofnaðir, og ber að hafa það í. huga, þegar athugaður er mannfjöldinn í þeim sýslum sem þessir staðir töldust þá með, og einnig er litið er á heildartölur um íbúa sýslna og kaupstaða. Keflavík og Kópavogur voru taldir með Gullbringusýslu, Sauðárkrókur með Skagafjarðarsýslu og Húsavík með Þingeyjarsýslum og Ólafsfjörður með Eyja- fjarðarsýslu. Árslolc 1944 1. des. 1963 Fjolgun eða ’fækkun Allt landið - 127791 186525 + 58734 Kaupstaðir .. 23431 50080 + 26649 Sýslur ' „ 60079 60273 + 194 Reykjavík .. 44281 76057 + 31776 Akranes .... 2052 4081 + 2029 ísafjörður „.. 2905 2722 183 Sauðárkrókur _. '(915) 1317 ’(+ 402)' Siglufjörður _. 2873 2574 299 Ólafsfjörður _. (779)" 1030 ’(+ 251 y Akureyri „. 5939 9390 4- 3451 Húsavík 1754 Seyðisfjörður .... 815 785 -r- 30 Neskaupstaður 1177 1441 + 264 Vestmannaeyjar .... 3611 4808 + 1197 Keflavík .... (1616) 4911 + 3295 Hafnarfjörður — .... 4059 7615 + 3556 Kópavogur .... 7652 Gullbr,- og Kjósarsýsla .... 6081 8852 + 2771 Borgarfjarðarsýsla 1237 1465 228 Mýrasýsla 1819 1969 + 150 Snæfellsnessýsla ..... 3372 3870 + 489 Dalasýsla 1387 1167 ~r“ 220 Barðastrandarsýsla 2906 2560 346 Isafjarðarsýslur 4588 3775 -j- 813 Strandasýsla ..... 2083 1526 -f- 557 Húnavatnssýslur 3445 3780 + 335 Skagafjarðarsýsla 3811 2622 -T- 1189 Eyjafjarðarsýsla 5474 3848 -T- 1626 Þingeyjarsýslur 5893 4704 -f- 1189 N-Múlasýsla 2629 2453 176 S-Múlasýsla 4248 4604 + 356 A-Skaftafellssýsla 1147 ‘ 1458 + 311 V-Skaftafellssýsla 1547 1348 -5- 199 Rangárvallasýsla 3253 2984 269 Árnessvsla 5159 7288 + 2129 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.