Þjóðviljinn - 11.08.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.08.1966, Blaðsíða 5
Mínnzt prestsins sem var svo heit- trúaður að honum tókst með bæn sinni að stöðva eyðandi hraun- strauminn sem ógnaði kirkju hans, en |dó framar öilu mannsins sem aldrei lét hugfallast og var óþreyt- andi við að hjálpa og hughreysta sóknarbörn sín í hörmungum Skaftáreldanna ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■' Legsteinn Jóns prófasts Steingrímssonar og konu lians í kirkjugarðinum á Kirkjubæjarklaustri. Áletrunin er sem hér segir: Hér undir hvílir blundað hold prófasts, þakið foldu, síra Jóns Steingrímssonar. Sendur, boð herrans kenndi. Skaftafellssýslu skartið skæra bar list og æru. Lifir hans minning Ijúfust, látinn l)ó öldin gráti. Fæddur 1728, dag 10. Sept. Varð prestur 1761. Próf. 1774. Deyði 1791, d. 11. Ág. Begr. 18. ed. Samlivílir maka sínnm sóma vafin, með blóma, madame Þórunn þýða, þæg dróttum, Hannesdóttir. Sálirnar lifa í sælu, segja lijá drottni eja, líkömum meður líka, Ijómandi eftir dóminn. ■ í dag, 11. ágúst 1966, eru liðin 175 ár frá audláti séra Jóns Steingrímssonar, prests og prófasts í Skaftafells- þingi á hörmungatímum Skaftáreldanna, en sem ^imnugt er sýndi séra Jgn þá frábært þrek og mikla fórnfýsi við að hjálpa og líkna sveitungum sínum sem bezt hann mátti og telja í þá kjark, er allt vonlaust. *’*» » - - v ....... . ... ■ Jón Steingrímsson fæddist 10. september 1728 að Þverá í Blönduhlíð, sonur Steingríms Jónssonar bónda þar , og konu hans Sigríðar Hjálmarsdóttur frá Keldulandi. Honum var komið til náms í Hólaskóla 1744, varð stúdent 1750 og djákn á Reynistað 1751, stundaði um nokkurra ára skeið búskap og sjómcnnsku, en vígðist síðan og varð prestur Sólheimaþinga 1760. Prófast- ur Vestur-Skaftafellssýslu varð séra Jón 1773 og pró- fastur í öllu Skaftafellsþingi árin 1779—87. Hann fékk Prestsbakka á Síðu 1778 og þjónaði þar til æviloka, 11. ágúst 1791. — Jón var tvíkvæntur og var fyrri kona hans Þórunn Hannesdóttir Schevings og áttu þau saman fjórar dætur. Síðari kona Jóns var Mar- grét Sigurðardóttir frá Stafholti. ■ Séra Jón þótti hinn mcrkasti maður, var preslur góð- ur og heittrúaður og vel að sér í mörgum greinum öðrum, ættfróður, slyngur læknir, dugmikill og skáld- mæltur. Hann var vel ritfær og eru til eftir hann nokkrar ritgerðir m.a. um Kötlugos, Skaftárelda og „Um að ýta og lenda í brimsjó". Hæst ber þó ævi- sögu hans, sem talin er ein ágætasta sjálfsævisaga sem rituð hefur verið á íslenzku fyrr og síðar. Er þar að finna mikinn og margháttaðan fróðleik um Vestur- Skaftafellssýslu og íbiia liennar á ofanverðri 18. öld og reyndar um líf og háttu alls almennings hér á landi á þeim tíma. Einstæð heimild er frásögn -Jóns og lýsing á þeim hörmungum sem yfir .dundu í Skaft- áreldunum og lífi manna þá. Birtist hér á eftir hluti af þeirri frásögn. ■ Ævisöguna tileinkaði Jón Stcingrímsson dætrum sín- um og öðrum afkomendum og virðist hafa skrifað hana öðrum þræði í varnarskyni gegn ýmsum rógi sem um liann hafði gengið og hann tók mjög nærri sér, og gefur liann enda í skyn að ævisagan sé rituð svo að börn hans geti varið minningu foreldra sinna. Ævisagan ber þess 'vott, að Jón hefur þótzt mæðu- maður mikill, þótt flestum muni nú virðast hið gagn- stæða er litið er til baka, og samtiðarmenn hans hafi veitt honum ýmsar viðurkenningar* þegar í lifanda Iífi og mikið ágætisorð færi af honum um allt land. ■ Ævisaga Jóns Steingrímssonar var fyrst gefin út 1913 og síðan aftur af Helgafelli í flokki Skaftfellinga- rita 1945 með inngangsorðum Einars Ólafs Sveins- sonar og formála eftir Guðbrand Jónsson. Svo byrjast upphaf drottins tyftunar og nýrra' hörmunga, er komu yfir mig og aðra, þó fneð stærri biðlund og vægð en verðskuldáð höfðum, sem eftir fýlgir. 1783 -þann 8. Junii á hvíta- sunnuhátíð gaus hér eldur upp úr afréttarfjöllum, sem eyði- lagði land, menn og skepnur með sínum verkunum nær og fjær, hvar um eg ei framar skrifa, þar bæði eg og aðrir höfum þar um skrifað á parti. Svo fljótur skaði og töpun kom þá yfir skepnur þær, guð hafði lánað mér, að laugardaginn áður en pestin kom á, var frá kvíum og stekk heim bornar 8 fjórðungsskjólur af mjólk, en næsta laugardag þar eftir 13 merkur. Og eftir því fóru af hold og líf. Sauðfé og lömb foreyddust strax, en kýr mínar og hesta lét ég færa út að Leiðavelli, og fólk til að heyja þar fyrir þeim, þó til lítils kæmi, þvi öll ráð, útréttingar og höndlanir. er menn tóku sér fyrir, urðu að ráðleysu, fordjörfun, mæðu og kostnaði, og flest að aldeilis engu. Frá 12. Aug. 1783 til 24. Junii árið eftir átti eg slétt öngvan mjólkurmat i mínu heimili. Var það einasta að þakka allra stærsta almætti guðs, að eg og mínir skyldum lífi halda. Pestin í loftinu var svo þykk, að eg vogaði aldrei að draga til min. andann til fulls og varla vera úti, þá sól var ei á lofti, allt það ár og það eftirkomandi. Kjötið, sem étið var af skepnunum, var fullt af pest, item vatnið, er menn hlutu nú að drekka, og það fór nú fyrst að svekkja mína krafta, þar svo mikið varð af því að drekka, af því sífellda ónæði, er eg hlaut um allan þann tíma í að vera. Eg fór um haustið vestur í Skálholt til biskupa minna, fékk hjá' þeim 20.rd af fátækra peninga kössum. Þeir gáfu mér ei einn skilding, auk heldur meir, en 7 fjórðunga smjörs seldu þeir mér. Þá eg kvaddi herra Finn, segir hann: „Verið þér nú harður og látið ekkert á yður bíta“. Kom mér þessi upphvatning ' ei síður en lítil gáfa, því þetta átti svo vel við mitt geð sem þá var. Var það og vist, að í öllum þeim býsn- um, sem á gengu, varð eg ei hið allra minnsta hræddur, hvernin sem jörðin og húsin hristust og skulfu, skruggur dunuðu, eldblossarnir flygi um mig, á allar síður myrkrið Ót þreifanlegt. Var eg í mínum guði svo hughraustur, því eg vonaði og trúði, að hann mundi hjálpa mér, bæði í því, og fram úr því öllu, ef eg gengi á hans vegum, og gerði min emb- ættisverk með trú og dyggð, hvað og svo skeði. Á þeirri minni haustferð í Skálholt fann eg marga mína vini, sem nú kenndu í brjóst um mig og gáfu mér smjörfjórðung nokkr- ir, en sumir minna, og þáðu þá ei betaling. En þar eftir sannaðist, að æ veit gjöf til gjalda. Fóru þeir þá að biðja mig um ýmsa hluti, þar til við urðum skildir að öllum skiptum og vináttu, undir eins eftir því sem eg tók efnaminni að verða. Sannaðist enn að margur er vinur, vel þá gengur. víst að nauð, en ekki lengur. Frátakast börn mín og náung- ar og einn vandalaus, sem var Magnús Ólafsson vicelögmaður, sem þá var enn oeconomus í Skálholti. Hann átti hjá mér 4 rd.; þá gaf hann mér upp, og þar til 5 fjórðunga smjörs og hefur þar fyrir engan betal- ing þegið. Hann hefur og langt um fleiri þénustur síðan gert mér í verki, viðgerningum, ráð- um og útréttingum, sem hann hefur að engu reiknað, né vilj- að betaling fyrir, þó eg hafi hann fram boðið. Fundið hef eg og einstöku mann af fátæku bóndafólki, sem ei hafa slitið sína tryggð við mig. Við sjó átti eg, þá eldurinn kom yfir, rúman 1 hundraðshlut, svo nú varð eg allt að kaupa, sem eg með 14 mönnum áttum af að lifa, og ótal, er að kom til og frá, hvað _mig víst kostaði 140 rd., sem eg hefði ei fyrr né annars kunnað trúa, nema reynt hefði. Um haustið sendi eg 2 vinnumenn mína út á Eyrarbakka með 7 hesta undir mat, er eg þar út tók og lagði þar upp í hendur þeirra. Þeir voru 9 vikur á þeirri leið. Eng- inn kom hesturinn lifandi aft- ur af þeim, er þeir með fóru, heldur aðrir til láns eður kaups, hverjir 9 hestar allir aftur drápust um veturinn. Miklu höfðu strákar þeir eytt af matnum, og það heim komst var skemmt og fordjarfað. Svo varð þá allt að óhamingju og mannsins heimamenn þeir verstu. Eg tók þræla þessa aft- ur í sátt, þó þanninn léki mig út, hvað aldrei skyldi þó verið hafa gerði þá til sjós, en sagði þeim að vista sig eftirleiðis annars staðar, hvað þeir gerðu, þó ei yrði til langgæðrar lukku, sem ei varð von. Þeir dóu í hungri og vesöld síðast. Madame Málmfríður Brynjólfsdóttir, ekkja prófasts síra Jóns Bergs- sonar, míns forna vinar, kom upp á mig þetta haust, og sál- aðist hjá mér um Jónsmessu- leytið árið eftir. Rægðu öf- undsjúkir mig og bræður henn- ar saman um eigur þær og fatnað, sem hún hefði til mín flutt, en urðu að renna niður þeirri lygi, þá skilagreinin á öllu var með órækum vitnum og bevísingum sýnd. Umferð fólksins var svo mikil, að aldrei kom sú nótt, að ei væri aðkomandi 7 menn og þar yf- ir. Það var stór kraftur guðs, að eg skyldi við hús og búskap haldast. Svo var matvælum niðurraðað, að 1 mörk smjörs skyldi vera handa hverjum manni í viku, sem nægði, þá af öðru var nóg. Ef við feng- um af mjólk, þá létum við 4, kona mín, Málmfríður, Helga dóttir mín og eg okkur mörk- ina nægja í 4 mál saman við tevatnið, er við hlutum að drekka. Svo komst vani á að drekka vatnið, að það fannst sem sætur drukkur. En það leiddi þó meiri ólyfjan eftir sig en eg frá vilji segja. Eg heyjaði um sumarið hér af tún- inu hér um 3a hesta, sem eg ætlaði einni kú, en hún drapst út frá því. En einum hesti, er eg að keypti um haustið, hélt eg við á því. Var hey þetta svo vónt, að væri því kastað á eld, var líkt reykur og logi af því svo sem af sjálf- um brennisteininum. Þó lifði þessi hestur á því, því hann var sá eini hestur, sem hér á Síðunni var lifandi eftir og í burðum að bera lík til kirkj- unnar. Níels Hjaltalín og Þórunn Jónsdóttir kona hans buðu mér að taka af mér Katrínu dótt- ur mína, hvað eg þáði. Vel- nefnd Þórunn hafði verið hjá mér til lækninga áður. Svo fór, að Jórunn dóttir mín varð og á þeim sama bæ, hvar þau bjuggu, sem var í Hlíðarhúsum á Seltjarnarnesi. Hafði þar hvor skemmtun af annarri á þeirri sorglegu tíð. Áður áminnzt sumar, haust og vetur, sem eldsins ógn mest yfir geisaði, gekk hér svoddan umbreyting á í öllu, að eg get þar ef orðum að komið. Hér var flótti fólks til og frá. Þar einn þorði ei vera óhultur vegna eldsyfirgangsins, þangað flýði hinn annar, og svo burt hingað og þangað, allt vest- ur um Gullbringusýslu. Mátti eg vakinn og sofinn vera að hjálpa þeim með ýmislegt, gefa þeim attest, geyma fyrir þá etc., en allra helzt telja þeim trú og hughreysta þá, og þá aðrir prestarnir flýðu, beiddu margir mig í guðs nafni að skilja ei við sig, því þeir hefðu þá trú, að ef eg væri hér kjur, biðjandi guð fyrir þeim, þá mundi hér eldurinn engum bæ né manni granda, og það skeði svo. Eg fór svipsinnis vestur í Mýrdal. Á meðan tók eldurinn einn bæ af sókn minni og for- djarfaði mikið hinn annan. En helzta orsök mun þó hafa ver- ið sundurlyndiseldur er framar var áður og undir það á þeim bæjum en öðrum í minni sókn. Þá tók eldurinn að færa sig fram eftir árfarveginn, að ei sá annað fyrir en hann ætlaði kirkjuna og svo að eyðileggja. En þar hann var á fullri fram- rás í afhallandi farveg, stefndi á klaustrið og kirkjuna, sér- deilis-einn sunnudag, þ.e. þann 4. eftir trinitatis, embættaði eg í kirkjunnás sem öll var í hristingu og skjálfta af ógn- um þeim, er að ofan komu. En svo var eg óskelfdur, og eg ætla allir þeir, eð í kirkjunni voru, að vér vorum ljúfir og reiðubúnir að taka á móti því, sem guð vildi. Var þá guð heitt og í alvöru ákallaður, Framhald á 7. síðu. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.