Þjóðviljinn - 07.10.1969, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVTLJI-NN — Þriðjuda©ur 7. október 1969.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Utgefandl: Otgáfufólag Þ|óðvll|ans.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (ób.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttarltstjórl: Sigurður V. Friðþjófsson.
AuglýslngastJ.: Olafur Jónsson.
Framkv.stjórl: Eiður Bergmann.
Ritst|órn, afgrelðsla, euglýsingar, prentsmlðja: SkólavörðusL 19. Siml 17500
(5 llnur). — Askrlftarverð kr. 150,00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10,00.
/ sóknarhug
J'lokksráðsfundur Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri varð ótvíræð staðfesting þess að það ætl-
unarverk hefur tekizt að fullu að endurskipuleggja
samtökin sem sósíalískan baráttuflokk og að nú eru
fullir möguleikar á stórsókn. Fundinh sóttu nær
hundrað fulltrúar úr öllum kjördæmum landsins
og fjölluðu um stjómmálaástandið og starfsemi
flokksins, atvinnumál og efnahagsmál, félagsmál
og sjálfstæðismál, væntanlegar sveitarstjómar-
kosningar; umræður vom fjörugar og alger ein-
hugur um helztu stefnumið. Fundinuim lauk með
mjög glæsilegri og eftirminnilegri samkomu í
Borgarbíói á Akureyri. í Þjóðviljanum í dag og
næstu daga verður skýrt frá flokksráðsfundinum
og helztu niðurstöðum hans, en sameiginlegt mat
fundarmanna var það að reynslan hefði þegar stað-
fest að Alþýðúbandalagið væri eini flokkur ís-
lenzkrar alþýðu, baráttutæki sem nú væri unnt að
beita með miklum og vaxandi árangri.
Tímahært
Eftir síðustu heimsstyrjöld va-r stofnað nýtt ríki
j Evrópu — Þýzka alþýðuveldið, D.D.R., en það
á 20 ára afmæli í dag. Ekki spáðu allir fögru við
vöggu þess; landið var gereytt af völdum styrj-
aldar og því var gert að standa að fullu undir
stríðsskaðabótuim. En efnáhagsþróun þessa ríkis
hefur orðið með ólíkindum; það er nú í hópi öflug-
ustu iðnaðarvelda heims og hefur náð mjög lær-
dómsríkum árangri á ýmsum sviðum tækni og vís-
inda, kennslumála og félagsmála. Það er niður-
staða þeirra sem til þekkja að hið raunverulega
„þýzka undur“ hafi gerzt í D.D.R.; sú þróun öll er
staðfesting á yfirburðum áætlunarbúskapar. Auð-
vitað felst ekki í því mati nein yfirlýsing um það
að D.D.R. sé eitthvert fyrirmyndarþjóðfélag;
hvorki þar né annarstaðar verður veruleikinn
dreginn upp einvörðungu með hvítum lit og svört-
um. Til að mynda hljóta sósíalistar að gagnrýna
mjög afstöðu D.D.R. til lýðræðis, málfrelsis og rit-
frelsis, og þátttakan í innrásinni í Tékkóslóvakíu
er ófagur flekkur á skildi hins unga ríkis.
jslendingar hafa frá upphafi haft mikil og góð
efnahagssamskipti við D.D.R. Hins vegar hafa
íslenzk stjómarvöld neitað að viðurkenna Austur-
Þýzkaland, og er þar um að ræða algert einsdæmi
í utanríkiss’tefnu okkar. Sú afstaða er ekki íslenzk,
heldur fyrirmæli frá Nató og vesturþýzkum stjóm-
arvöldum. Tilgangur þeirra var sá að reyna að ein-
angra Austur-Þýzkaland og grafa undan tilveru
þess/Sá tilgangur hefur nú mistekizt með öllu;
meira að segja vesturþýzk stjómarvöld eru smátt
og smátt að viðurkenna þá staðreynd að þýzku rík-
in í Evrópu eru tvö og verða tvö um ófyrirsjáan-
lega framtíð. Því er fyrir löngu orðið tímabært að
ríkisstjórn íslands hætti að hlýða erlendum fyrir-
(mælum um þetta efni og taki upp stjómmálasam-
band við Austur-Þýzkaland í samræmi við við-
skiptahagsmuni okkar og almenna reglu í stjórn
utanríkisfuála. _ m. • . *
ÍBA hélt sér uppi
— Sigruðu Breiðablik 3:2
KR SIGRAÐI
FH-h 4:0
Þrátt fyrir bað freklega órétt-
Iæti, að láta úrslitaleikinn um
áttunda sætið í 1. deild næsta
sumar, fara fram á hcimavelli
Akureyringa þá varð sigur þeirra
yfir hinu unga og efnilega
Breiðabliks-liði ekki nema 3:2
eftir að Breiðablik hafði haft
yfir í leikhléi 2:1.
Fyrri leik þessara liða um
þetta 1. deildarsæti lauk eins og
kunnugt er með jafntafli ogvarð
því að leika að nýju og þá
leyfði mótanefnd sér þá ósvinnu,
að setja leikinn á heimavöll ann-
ars aðilans, og mun það vera
algert einsdæmi að svona nokk-
uð sé gert. Úrslitaleikir eiga
að fara fram á hlutlausum velli
ágætt lið og þeir hafa, Valur
sigraði síðan Ármamn 18:9 og
hefur Vajur því tekið forustu
í mótinu með 6 stig og hafa þeir
engum leik tapað-
Næsta leikkvöld í Reykjavík-
urmótinu verður n.k- miðviku-
dag og leika þá saman Ár-
mann-KR, Valur-ÍR og Fram-
Víkingur og hefst keppnin kl-
20.15. Sá leikur sem einkum er
undir smásjánni verður leikur
Vals og IR því óneitanlega er
IR sterkasta liðið sem Valur
hefur mætt í mótinu til þessa-
Allavega má gera ráð fyrir að
allir leikimir verði jaifnir og
skemimtilegir. S.dór.
Með þessum sigri sínum yfir
Rreiðabl. hefur ÍBA tryggt sér
áframhaldandi setu í' 1. deild
næsta sumar. Það gegnir furðu,
hvað Akureyringunum hefur
gen,gið illa í 1. deildarkeppn-
inni í sumar og sýna leikir
þeirra gegn Breiðabliki, að lið-
ið þarf stórátak til að eiga er-
indi í 1. deildina næsta sumar.
Breiðabliks-liðið er eins Og
áður segir ungt og efnilegt, en
þó myndi ég segja að sem stend-
ur ætti það ekki annað erindi
í 1. deild, en að falla aftur
niður, en þeirra tími kemur og
haldi liðið saman þá líða ekki
nema 2-3 ár þar til það verður
með beztu liðum 1. deildar. —
Valur hefur forustuí
Reykjavíkurmótinu
Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik var haldið áfram sl.
laugardagskvöld og leiknir 3
leikir. Fram sigraði Þrótt með
miklum m,un eða 24:9 eftir að
háfa haft yfir í leikhléi 13:2.
Þá sigraði KR Víking 14:12 og
er merkilegt hve Víkingunum
Frá leik IBA og Breiðabliks á s unnudaginn
Bikarkeppni KSÍ: !A~Fram 3-0
$i§ur
Framarar voru ekki nein hindr-
un fyrir Skagamenn í Bikar-
kcppninni er þessi lið mætt-
ust sl. sunnudag. I tyrri hálf-
leik iéku Skagamenn á vöm
Fram hvað eftir annað og skor-
uðu þá öll 3 mörkín, en eins
og vant er, þá áttu Framarar
ekki minna í leiknum, en fram-
Ilina þeirra er bitlaus og þrátt
fyrir nokkra sókn í fyrri hálf-
-----------------------------$>
Gróffa sigr-
oð/ Hauka
1 gær höfst í íþróttahúsinu
á Seltjamamesi Reykjanesmót
í handknattleik og voru lejkn-
ir tveir leikir- FH vann IBK
með 50 mörkum gegn 18 og
Grótta vann Hauka með 24
mörkum gégn 23.
ÚrslitSn i stiðari leiknum
komu algerlega á óvart, því
Haukar hafa undanfarin ár
verið mcð beztu liðum hér á
landi í handknattlcik cn hins
vegar er þctta fyrsti leikur
Gróttu I opinbcru móti. Gefur
þessi fyrsti leikur þeirra vissu-
iega góð fyrirheit. Grótta hafði
forustu allan leikinn og náðu
Haukar aldrci að jafna- Brciða-
blik sat hjá.
Næstu leikir í Reykjanes-
mótinu veðra háðir n k. laugar-
dag á sama stað og hefst fyrri
leikurinn kl. 5 síðdegis. Þá
leika Haukar við IBK og FH
við Breiðablik. Grótta situr
hjá.
Ieik áttu þeár ekki nema eitt
markskot.
Það var Haraldur Sturlauigs-
son sem skoraði fyrsta mark ÍA
með glæsilegu sköti af 30 metra
færi beint úr aukaspyrnu og
skeði þetta strax á fynstu mín-
útu leiksins- Næst var þaðBjörn
Lárusson sem skoraði eftir að
Sigurbergi Sigsteinssyni mis-
tókst að spyrna frá marld og
hrölík boltinn til Bjöms sem
síðan lék á Þorberg markvörð
og skoraði 2:0- Síðasta markið
skoraði svo Teitur Þórðarson,
eftir að Matitihías hiafði vippað
boltanum yifir Þorberg sem kom
út á móti Matthíasi og Teitur
átti auðvelt með að sikora.
í síðari hálfleik datt leikurinn
nokkuð niður t>g virtist áhuga-
leysið alls ráðandi hjá lA en
vonleysi hjá Fram, sem aldrei
náði að skapa sér veruleg mark-
tækifæri utan einu sinni er þeir
áttu stangarskot af stuttu færi.
Þettsv er mjög alvarlegt ástand
hjá Fram, áð liðið Skuli nær
alltaf eiga til jafns við and-
stæðingaliðin, en ekki ná að
skora mörk og raunar hefur þetta
verið svona hjá Fram um nokk-
ura ára skeið, en sjaldan jafn
slæmt eins og í sumar.
LIÐIN.
Beztu menn lA-liðsins voru
þeir Haraldnr Sturlaugsson og
Þröstur Stefánsson, sem er orð-
inn einn allra besti miðvörður
okkar- Haraldur hefur þegar
leikið landsleik og mér segir
svo hugur að hann missi ekki
sæti sitt í landsliðinu í bráð- Þá
átti Teitur Þórðarson sinn bezta
leik á sumrinu. Matthías, Bjöm
og Guðjón áttu allir mjög góð-
an leik í fyrri hálfleik, en virt-
ust áhugalitlir i þeim síðari.
Hjá Fram var það Jóhannes
Atlason sem bar af eins og oft-
ast áður. Þá varði Þorbergur
mjög vel. Aðrir áttu varla um-
taisverðan ledk, nema þá helzt
Erlendur Magnússon- Dórnari var
Ragnar Magnússon og dæmdi
mjög vel- S.dór.
Leikur KR-a og FH-b, í Bik-
arkeppninmi verð eins og búast
mátti við, Icikur kattarins að
músinni og hefði alveg eins get-
að endað 10:0 eins og 4:0 og var
stundum furðulegt að 'sjá hvéfn-v'
ig KR-ingamir komnst hjá því
að skora. Mörk KR skoruðn
Baldvin Baldvinsson tvö, bæði
í fyrri hálflcik en í þeim síð-
ari skoruðu þeir Bjöm Áma-
son eg Ársæll Kjartansson sitt
markið hvor. Meðan á leiknum
stóð rigndi svo mikið, að engu
var líkara en að um syndaflóð
væri að ræða og er engu lík-
ara en að vcðurguðirnir hafi
andúð á íslenzkri knattspymu,
því ég man ekki eftir einum
einasta Ieik þar sem 1. deildar-
lið hefur Ieikið i SKirw að ekki
hafi rignt meira eða minna
meðan á leiknum stóð og sann-
'arlega var engin undantekvlng
frá þessu s.l. sunnudag. S.dór.
Kvöltinámskeið
fyrir framreiðslustúlkur hefst mármd. 13. okt. í
Matsveina- og veitingaþjónaskólamim.
Kennt verður 3 kvöld í viku.
Innritun og nánari upplýsingar í sdma 19675 kl.
13,30 —.15,00.
Skólastjóri.
THkynning
um notkun brunahana í Reykjavík.
Að gefnu tilefni skal athygli vakin á því, að notk-
un þrunahana til annarra nota en brunavaima, er
óheimil án leyfis Vatnsveitu Reykjavíkur.
Þeir aðilar, sem óska eftir að fá leyfi til notkun-
ar á brunahönum til vatnstöku, skulu snúa sér til
eftirlitsimanns með brunahönum að Austurhlíð, við
Reykjaveg sími 35122.
.Vatnsveita Reykjavíkur.