Þjóðviljinn - 12.10.1969, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.10.1969, Blaðsíða 1
Unnið við malbikun tengivega austan brúnna yfir Nýbýlav. Myndin tekin í gærmorgun. (Bm. Þjv. A.K.). HafnarfjarSarvegurinn um Kápavog: Brýn nauðsyn að fé fáist til að halda verkinu áfram DIDBVUUIN Sunnudagur 12. október 1969 — 34. árgangur — 223. tölublað Framkvæmdum við Hafnarfjarðarveginn 1 gegn um j Kópavog miðar vel áfram og er fyrsti áfangi langt kominn. Fyrir skömmu var opnaður vegurinn undir brýrnar og í j gær var verið að malbika tengiveginn austan við brýrnar inn á Nýbýlaveg. Eftir helgi verða malbikaðir tengivegirn- ir austan við brýrnar inn á Kársnesbraut. Síðari brúin verður svo tekin í notkun um 20. þ.m. en aðeins er eftir að setja malbiksiag ofan á hana og malbika veginn að henni. Framangreindar upplýsin'gar fékk Þjóðviljinn í gær hjá Birni Einarssyni framikvæmdastjóra byggingarnefndar Hafnarfjarðar- vegarins. Þá sagði Björn og, að í næstu viku yrði tekinn í notkun nýr tengivagn sem lagður heíur verið frá Kópavogsbraut að Há- braut vestan gaimla Hafnar- fjarðarvegarins yfir háhálsinn- Liggur þessi vegur vestan við biðskýlið á hálsinum og benz- ínstöðina sem þar hefur verid. Er búið að reisa nýtt s'kýli við hann fyrir benzínstöðina en ör- lög biðskýiisins ipunu óráðin enn. Saigði Björn, að þetta vasri bráðabirgðavegur sem iagður er vegna væntanleigs framhailds við annan áfanga vegafram- kvæmdanna, en þá verður að loka gamila Hafnarfjarðai'vegin- um vegna hættu af sprengingum. Þjóðviljinn innti Björn eftir því, hvort búið væri að taka a- kvörðun um það, hvort ráðizt yrði í næsta áfanga Hafnar- fjarðarv'egarins nú strax 1 á- framíhaldi af fyrsta áíanga. Sagöi Björn, að enn heíði ekfci verið gefið leyfi til þess en samning- ar stæðu yfir við vegamálastjórn og samgöngumélaráðuneyti um það mál. Náuðsynlegt væri að byg'gja strax án þess að hlé verði á, brúna, sem á að koma yfir Hafnarfjarðarveginn m.illi Digranesvegar og Borgarholts- brautar, til þess að full notverði af lagningu fyi-sta áfanga vega.r- ins- Minna gerði til þótt að því loknu yrði einhver dráttur á að ljú'ka lagningu vegarins þaðau, þ. e. frá Digranesvegi, að Kópa- vogslæk. Væri hægt að fara að hefja undirbúning við Digranes- vegarbrúna strax og fé og leyíi til þeirra framkvæmida íengist. Fjaðrafok í útvarpinu: ? Leiklistargagnrýnandd Morg- unblaðsins, Jóhann Hjálmars- son, var, eins og biaðalesend- ur vita, mjög hrifinn af ledk- riti Matthíasar Johannessens, Fjaðraifoki. Því miður voru aðrir gagmrýnendur það ekiki. S. 1- sunnudag tugtar Jó- hann svo gagnrýnendur Vísis og Alþýðubilaðsins, Ólaf Jóns- son og Sigurð A. Magnússon íyrir hrifningarskort þeirra á leikritinu, og telur réttast að slíkir niðurrifsmenn menning- arinnar verði látnir víkja úr sessi á sínum þlöðum. Bink- um þykdr honum menning sönn og hrein i hættu, ef Ól- afur Jónsson fói að koma ná- lægt ísienzka útvarpinu til að vinna að þvií, að „gera menn- ingarlíf borgarinnar tortryggi- legt í eyrum hlustenda“. Flestir imenn hefðu nú yppt ' öxlum og sagt sem svo: Þaö er aldeilis fjaðrafok út af einni ómelettu. En því mun þvá mdður ekki að heiilsa: vinir Matthíasar leikskálds í útvai-psráði ganga nú um sali mjög þungbúnir og smíða a- ætlanir^um að koma í veg fyrir, að nokkru sinni verði hatlað á vin þeirra og meist- ara X menningunni á öldum ljósvafcans. Þeir hafa mestan áhuga á því ad afhenda * Jóhanni Hjálmarssyni einhverskonar mcnningarþátt í útvarpinu. Það verdur sannarlega. gam- an að sjá vetrardags'krána. Fiskveiðisjóður tilkynnir: Lán veitt til smíði á fiski- skipum þótt þau séu óseld Þjóðviljanum barst í gær fréttaitilkynnin-g frá Fiskveiði- sjóði þar sem segir, að stjórn sjóðsins hafi ákveðið að veita skipasmíðastöðvum, fyrst um sinn a.m.k. og eftir því sem geta sjóðsins leyfir, lán til srníði fiskiskipa, eftir sett- um reglum, enda þótt ekki liggi fyrir samninigar um sölu þeirra. f fréttatilkyniningu sjþðsins seg- ir, að í athugun hafi verið hjá stjórn hans að undanlförnu, hvaða ráðstafanir væru tiltækar í því skyni að greiða fyrir smíði fiskiskipa innanlands, svo að nýta mætti betur en nú aflkasitagetu skipasmíðastöðvanna og bæta jafnfraimt úr atvinnuástandi í járniðnaðinuim. Er jafnframt vitn- að til tilkynningar atvinnumála- nefndar ríkisins frá 1. júlí í sumar um að í’áðstafað yrði 50 miij. kr- erlendu lánsfé til að veita ÍO°/o viðbótarlán vegna fiskiskipa smíð- aðra innanlands éftir sl. áramót. Um afgreiðslu lánanna segir að þau verði veitt í þessari röð: 1- Bráðabirgðalán þar til kaupandi fæst að skipinu, fyrir þeim hluta kostnaðarverðs eða jafngildi, sem verður framiag kaupenda. 2- Lán Fiskveiðasjóðs allt að 75% aí kostnaðar- eða matsverði því er lægra reynist og greiðist út eftir því sem smíði s'kipsins miðar á- fram. 3. Viðbótarláin 10%. Þá segir, að auk þessa muni At- vinnujöi'nunarsjóður eins og áður veita óákveðna lánsupphæð miðað við stærð skipa, ekki þó meira en 5% af mats- eða kostnaðarverði því, sem lægra reynist, allt að kr- 800 þús- á skip, upp í framlag kaupenda. Að lokum segir svo í fréttatil- kynningunni: Lán samkvæmt 1. og 3. lið verða veitt af Atvinnumálanefnd ríkis- ins á grundvelli tillagna Fisk- veiðasjóðs og verða þau afgreidd af Atvinnujöfnunarsjódi. Bíllinn hafnaði úti í skurði Kl. 6 í gærmorgun ók íólks- bíll út af ReykjanesbraU'tinni á móts við Sléftuveg og hafnaði bíllinn. þar úti í skurði- Hafði bíllinn lent á Ijósastaur og reif hurðiir af bílnum. Grunur leikur á ölvun hjá bifreiðarstjóranum, og lá hann með heilahristing á Slysavarðstofunni í gær. Brotizt inn á þrem stöðum Brotizt var inn í fyrrinótt hjá Snorra P. Arnar á Grundarstíg 12. Þá var brotizt inn í Fram- heimilið í Skipholti og hjá O. Johnson & Kaaber í Sætúni. Þar var stolið kr. 400,00 úr skrif- borði verkstjóra. — annarsstað- ar hafðist ekki mikið úr krafs- inu. Sú til'högun lánveitinga Fisk- veiðasjóðs, sem nú hefur verið á- kveðin, gi'ldir að sjálfsögðu einnig um skip, sem smíðuð eru fyrir á- kveðinn kaupanda- 80 sóttu — einn fékk Það verður sííellt erfið- . ara fyrir únigt fólk aðkom-. ast í hvers konar nám. Ein námsbraiutin af annarri lok- ast og þrengist, og þá sjald- an nýjar námsbrautir opn- asit er venjulega hroðvirkn- isilega að því staðið. Hefur heftiplás'trapólitik Gylfa Þ- Gíslasonar í sfcólamálum skapað fleári vandaimól og erfiðleika en hún hefur leyst. Einna ei'fiðast er þó ad komast í ýmiss konar iðn- náim, en þar er atvinnuleysi og samidráttur, sem ræður meiru en þönf þjóðfélagsins eða áhugi viðkomandi æsku- manna. Þannig var nýverið auglýst eftir einum hár- greiðslunema. 80 sóttu um að komast í námið. — Og hliðstæða sögu er að segja frá Landssimanum, sem ný- lega lýsti eftir símvirkja- nemum: Ætlunin var að ráða 20 cn talsvert á annað hundr- að gáfu sig fram. Sovézka hafrannsóknarskipið Kúrtsjatof í höfn Verða íslemkir vísindamenn boðnir með í næsta ieiðangur? Á föstudag lagðist að bryggju í Sundahöfn sovézkt hafrann- góknaskip, Akademik Kúrtsjatof. Á blaðamannafundi um borð í skipinu í gær sagði leiðangurs- stjórinn, Gléb Cdintséf, að til- gangur heimsóknarinnar væri að koma á betri samskiptum við ís- lcnzka vísindamenn, en skipsmenn fást nú einkum við rannsóknir á Mið-Atlanzhryggnum isem fsland stendur á. Údintséf sagði að leiðangurinn væri hluti alþjóðlegra rannsóikna á efri lögum jarðskorpunnar — við rannsökum „vöðva“ jarðar, til að hafa betri vitneskju um „húð“ hennar- Við höfum þegar hitt að máli íslenzka vísindamenn ' og rætt við þá um samvinmiu, skipti á upplýsingum o. fl. og líklegt er að við bjóðum þcim að starfa um borð hjá okkur í leiðöngrum fram- tíöarinnar. Við höfum líka áhuga á þeim upplýisimigum sem safnað er á Islamd'i, sem er oifan á At- lanzhrygignuim, til að bera þær saman við það sem við söfnuim um hrygg þenman á hafsbotni. Við létum úr heimahöfn, í Kal- íníngrad, 18. júlí og verðum 105 daga í leiðangrinum- Við komum við í Sou.thafnpton í Em.gilandi og Dakar í Senegal og tókum um borð ensika og bamdaríska vís- indamenm sem unnu með okkur á svæðum fyrir vestan Afríku, síð- an fikruðum við okfcur lengra vestur og norður — og skiluðum kollegum okkar á land í Boston- Frá Islandi höldum.við til Brest í Frafcklandi og tökum þar framska vjsindamenn um borð og vinnum með beim og franska skipimu .Tean Charcot í Biscayflóa. ★ Ég vii taka undir þau omimæli, sem sögð voru á vísindamanna- þingi fýrir nokkru, að áður að- skildu höfin þjóðir, em nú sam- eina þau þær- Og það er einstak- lega ámægjulegt þegar vísinda- menn frá ýmsum, þjóðúim vinna saman í leiðangi'i sem þessum, andrúmslof't er allt skemtilegra en á opinberum þingum. • Údintséf taldi sig vita sönnur á því, að sú kenning væri rétt, að meginlöndin sitt h.vorum megin Atlamzhafs væru á leið burt frá hvert öðru. En: ekki taldi hann að núvérandi strendur þeirra hefðu verið samías'tar í eina tíð eða svo gott sem, heldur hefðu allmiklar spildur þeirra sofckið í sæ — hefðu Kúrtsjatofmenm safn- að ýmsum sýnisihornumn, sem bemitu til þess, að þau hefðu orðið til ofan sjávar fyrir margt löngu- Rannsóknir okkar á hafsbotni, sagði Údíntséf, hafa mikila fræði- lega þýðingu. En menn vilja líka fá eit.thvað hagnýtt í hendur — og við fáumst einmitt við við- fangsefni sem er þess eðlis: rann- sökum hve reglubundin dreifing dýrmætra jarðefma er. Auðvitað er erfitt að ná slíkum efinum eða málmum af hafsbotni, en hinsveg- ar er auðveldara að kanna slíka reglulbundna dreifimgu á hafsbotni en í lítt aðgengilegum jarðlögum meginlandanna, og því geta vXs- bendingar okkar orðið að nokkru gagni við málmieit á landi uppi. Skip okkar, Akademik Kúrtsja- tof, er þriggja ára gamalt, en fór í fyrstu ferð síma 1967. Það er 6000 smál- og hefur 150 manna áhöfn, þar af eru helmingurinn vísinda- menn, sem skiptast í eina 15 starfshópa- Áhöfnin er ogþjálfuð til ýmissa hjálparstarfa við vis- indarannsóknir. Sovétríkin eiga nú meira en tiu meiriháttar haf- rannsóknarskip, og um þessar mundir ■ eru skip frá Englandi, Frakklandi og Bandaríkjunum að störfum í Atlanzhafi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.