Þjóðviljinn - 30.06.1970, Blaðsíða 2
2 SlÐA — ÞJOÐVXLJINN — ÞffKttudagiur 30. júní 1970.
Þið munið hann Jörund, leikur Jónasar Árnasonar, hefur verið sýndur við meiri aðsókn í Iðnó en dæmi eru til áður um ísleuzkt
ieikrit síðan Leikfélag Keykjavíkur sýndi Hart í bak eftir Jökul Jakobsson um árið.
AAetár hjá Leikfélagi Reykjavíkur:
39.114 sýningargestir sáu
rúmar 200 sýningar í Iðnó
Leikári Leikfélags Reykja-
víkur lauk um fyrri helgi og
urðu á árinu 216 leiksýningar
á vegum félagsins, þar af 207
kvöldsýningar og er það í
fyrsta sánn að þaer eru fleiri
en 200 á einu leikári. Sýnd
voru í vetur 8 leikrit í Iðnó og
var helmingur þeima íslenzk-
ur, en eitt af leikritunum var
tekið upp frá fynra ári, og
annað, Kristnihald undir Jökli,
-------------------------------«>
Guðmundur Sigruði Addison
Guðmundur Sigurjónsson er
með Zlh vinning og biðskák eft-
ir 7 umferðir á aJþjóðlega skák-
mótinu í Caracas í Venezuela.
í 6. umferð vann Guðaminöur
Addison frá Bandaríkjunuim sem
var efistur í rmótinu fyrir þá utm-
ferð. f 7. umferð tefldi Guðmund-
ur við stórmeistairann Banno frá
Argmtínu og fór slkáikin í báð, en
Guðmundur hefur heddur lafcari
stöðu. í 8. umfeirð tefldi Guð-
mundur við 'Bisquier frá Banda-
ríkjunuim.’
Korpof frá Sovétríkjunum er
efstur í mótinu með 6 vinninga
og Kavalek frá TéMeóslóvakíu
í 2. sæti með 5‘A vinning.
Framimistaða Guðmundar í
mótinu hefur verið með mikilium
ágætum, og á hann eftir að tefla
við alíla lökustu mennina að ætia
má.
tilheyrir í rauninnj naesta leik-
ári og verður hin eiginlega
frumsýning í haust.
Tala sýningargesta var
39.114 og hafði aukizt um 13
þúsund frá fyrra leikári, en
þá var hagur félagsins mjög
eríiður. Um 30 leikarar störf-
uðu í Iðnó eins og undanfa-rin
ár. en aðeins 9 þeirra eru fast-
ráðnir. Ledkstjórar voru 6, en
leikmyndateiknarar 3. Annað
starfsfólk leikhússins er um 20
manns.
Hæsta sýningartala á árinu
var á Iðnó-revíunni, 64 sýn-
ingar, en Tobacoo Road var
sýnt 50 sinnum og Þið munið
hann Jörund, 45 sinnum, ávallt
fyrir fullu húsá og mun ekki
hafa verið Önnur eins aðsókn
að íslenzku leikriti, síðan Hart
í bak var á fjölunum í Iðnó.
Jörundur verður sýndur að
nýju í haust, en um þessar
mundir er verið að leggja upp
í leikför um landið með Tob-
acco Road.
I>á sýndi félagið í vetur
fyrsta gríska harmleikinn, sem
fluttur hefux verið á íslenzku
leiksvdði, Antígónu, og ung-
verskan samtímaleik, sem um
þessar mundir vekur mikla at-
hygli víða um heim, í>að er
kominn gestur. Ótaldar eru þá
sýning-ar á Sá. sem stelur fæti
er heppinn ; ástum. eftir Dario
Fo, og bamaieikritinu Einu
sdnnl á jólanótt, sem sýnt var
nokkrum sinnum um jólin.
Auk Jörundar verður Það
er kominn gestur sýnt aftur í
haust, en sýningar á Kristni-
baldi undir Jökli hef jast í
september, og í októ-ber verður
svo frumsýning á hinu fræga
írska leikriti Séan O’Caseys
Plógur og stjörnur. en leik-
stjóri verður gamall góðkunn-
ingi íslenzkra leikhúsgesta,
Thomas MacAnna.
Aðalfundur Leikfél. Reykja-
víkur var nýlega halddnn. For-
maður er Steindór Hjörleifsson,
framkvæmdastjóri Guðmund-
ur Pálsson, en leikhússtjóri
Sveinn Einarsson.
Skreyta veggfíísar
með íslenzku grjóti
Þrír ungir menn hafa sett á
stofn nýtt fyrirtæki að Digra-
nesvegi í Kópavogi, Flísagerð-
ina s.f. Framleiðslan, sem er
flísar til skreytinga bæði utan
húss og innan, var kynnt á
sýningunni Heimilið — veröld
innan veggja.
Hráefnið sem notað er til
framleiðslunnar er innlent, að
undanteknum steinlitum sem
notaðiT eru í grunnflöt flís-
anna, en þeir eru frá Bayers-
verksmiðjunum í Þýzkalandi.,
Flísamar eru skreyttar á mis-
munandi hátt ýmsum mynstr-
um og er fellt í þær íslenzkt
grjót í ýmsum komastærðum,
t.d. er notað til skreytingar
hrafntinna, silfurberg. rauð-
grýti, liparit og kvars, svo
nokkrar tegundir séu nefndar.
Getur fólk valið um 5 gerðir
og 9 liti. Enn sem komið er
eru flísarnar handunnar, en í
athugun er að smíða vélar til
framleiðslunnar.
Eigendur fyrirtækisins eru
Gunnar Kristjánsson, múrara-
nemi, sem er upphafsmaður
þessarar flísagerðar, Garðar
Arnkelsson og Gísli Skúlason.
Sagði Gunnar blaðamönnum að
bann hefði hafið tilraunir með
flísagerðina fyrir 8 mánuðum
en fyrirtækið tók til starfa
fyrir mánuði og hefur þennan
tíma afgTeitt pantanir sem bár-
ust á sýningunni í Laugardal.
Hann kvaðst bafa sótt um
einkaleyfi á uppfinningu sinni
og hefur lagt umsókn þar að
lútandi inn hjá iðnaðarmála-
ráðuneytinu. Harin ságði einn-
ig að nú þegar væri fengin
reynsla fyrir því að flísarnar
þola mjög vel veðrun utanhúss;
eru það niðurstöður ’-annsókna
sem framkvæmdar voru hjá
Rannsóknasrtofnun byggingar-
iðnaðarins. Innanhúss eru flis-
arnar ætlaðar til sknauts í for-
stofum, upp með stigagöngum,
á innskotsveggi á stofum, kring
um arinelda og fleira. Hver
fermetrj af flisunum kositar
rúmlega 500 krónur og verða
þær til í nokkrum byggingar-
vöruverzlunum.
ðtsvör á Akranesi
nema W/z milj.
Á Akranesi var alls jafnað
niður útsvörum að upphæð kr.
34.467.700 á 1242 einstaklinga og
44 félög.
Útsvör einstaklinga voru kr.
33 489.7000,00 og útsvör féflaga kr.
978.000,00.
Aðstöðugjöld að upphæð kr.
6.594.800,00 voru löigð á 132 ein-
staklinga og 73 félög. Aðstöðu-
gjöld einstaklinga voru alls kr.
1.247.400,00 og aðstöðugjöld fé-
laga kr. 5.347.400,00.
Hæstu samatnlögð útsvör og
aðstöðugjöld bera a£ einstakling-
um Fríða Proppé lyfsalli krénur
245.000, Viðar Karlsson skipstjóri
kr. 182.200 og Guðmundur Magn-
ússon hiúsasmíðaimeistairi krónur
173.000 og af féíögum Haraldur
Böðvarsson og Co 1.677.700, Þor-
geir og Ellert hf. kr. 552.300 og
Sfldar og fiskimjölsverksmiðjan
hf. tor. 500.100.
Umferðarslys urðu í Ölfusi,
Flóa og Reykjavík um helgína
Nokkuð var um umferðarslys
í Reykjavík og á vegum úti á
landi um helgina. Tveir piltar
siösuðust alvarlega í bílveltu á
þjóðvcginum við Ferstiklu á
sunnudagsmorguninn, 2 stúlkur
voru fluttar á sjúkrahús á Sel-
fossi eftir árékstur og minni-
háttar árekstrar urðu á nokkr-
um stöðuna.
Lögregllunni á Akranesi var
tilkynnt að bflS frá Reykjavík
hefði oltið á vegiruum við Fer-
stitóu kl. 10 ó sunnudag. I bfln-
um voru fjórir ungir menn, all-
ir ölvaðir nema ökiumaðurinn.
Slapp hann og einn farþegi með
lítiilsiháttar meiðsli en hinirtveir
siösuðust. Var annar þedrra
fluttur með filugvél til Reykja-
vikur eftir hádegið á sunnudag,
og lagður hér á sjúkrahús. Hinn
liglgur ennþá á sjúkrahúsinu á
Akranesi.
Inn-
ræting
Prestastefna Islands var
haldin í Reykjavík í síðustu
viku, og hún sendi frá sér
einkar fróðlega álitsgerð. Þar
eru bomar fram mjög ein-
dregnar kröfur um það að
áróður í þágu evangelísk-lút-
erska trúflokksins verði magn-
aður í öllum skólum landsins.
Á fræðsluskyldualdri verði sú
námsgrein kennd „allan vet-
urinn. öll skóiaárin'1. en jafn-
framt verði hliðstæður áróður
tekinn upp á öllum stigum
skódakerfiisins, í Kennarskól-
anum, Fóstruskólanum, Hús-
mæðrakennaraskólamim, verk-
námsskólum og öðrum sér-
skólum, ennfremur í Hásikóla
Islands; og er talið aðkallandi
í þessu sambandi að stofna
emibætti námsstjóra sem
vinni að þessum verk-
efnum. Hér er ekiki átt við
almenna fræðslu um trúar-
brögðin og sögu þeirra, heldur
einhliða áióður utn ágæti
evangelísk-lúterskra kenninga;
hér er farið fram á þaar at-
hafnir sem á nútfmamáli
nefnast inmæting eða hedla-
þvottur.
Gegn
stjórnarskránni
Samkvæmt stjómarskránni
á að vera trúfreilsi á Islandi.
I 63ju og 64ðu grein hennar
er komizt svo að orði:
„Landsmenn eiga rétt á að
stofna félög til að þjóna guði
með þeim hætti, sem bezt á
við sannfæringu hvens og
eins; þó má ekki kenna eða
fremja neitt, sem er gagn-
stætt góöu siðferði og alls-
herjarreglu, Enginn má neins
í missa a£ borgaralegum og
þjóðlegum réttindum fyrir
sakir trúarbragða sinna, né
heldur má nokkur fyrir þá
sök skerast undan abnennri
félagsskyldu, Enginn er sikyld-
ur til að inna af hendi per-
sónuleg gjöld til neinnar
annarrar guðsdýrkunar ' en
þeirrar, ér hann sjálfur að-
hyllist.'' Þessi mannréttinda-
ákvæði eru alveg skýlaus, en
stjórnarskráin er ekki sjálfri
sér samkvæm í þessu efrii.
Þar er einnig kveðið svo á
að hin evangelíska lúterska
kirkja sktfll vera þjóðkirkja
á tslandi. Hins vegar er tekið
fram að þessu ákvæði im
þjóðkirkju megi breyta með
lögum, svo að það er engan
veginn talið jafn rétfihátt og
hin almennu trúfrelsisákvæði.
Af því leiðir hins vegar að
þjóðkirkjan mé ekki aðhafast
neitt það sem skerðir frelsi
manna til þess að velja sér
trúarbrögð eða hafna þeim.
Hugmyndin um að neyða
skuli upp á ungt fólk evan-
gelísk-lúterskum áróðri á
öllum stigum skólakerfisins
gengur því ekki aðeins í ber-
högg við nútímalegar hug-
myodir um frelsi einstak-
lingsins heldur brýtur hún í
bága við sjálfa stjómarskrána.
Að
þyrma biblíunni
Prestastefnan vísar til þess
að í firæðslulögum og náms-
skrá sé gert ráð fyrir kennslu
af slíku tagi á skyldustiginu,
og það er rétt. Þar er um
að ræða leifar frá fomum
þjóðfélagsaðstæðum, þegar
hlutverk kirkjunnar var allt
annað en nú, En um leið
og skólanám varð almennur
réttur og skylda var tíma-
bært að skilja á milli kennslu
og trúaráróðurs. Þróunin hef-
ur einnig orðið sú, ekki aðeins
hér á landi heldur og í ná-
grannalöndum okkar, þar sem
skoðanafrelsi er talið til
grundvallarréttinda. Því væri
það eðlileg hugmynd að fella
öll þvílík ákvæði niður úr
fræöslulögum og námsskrá,
en samþykktir Prestastefn-
unnar eru afturhvarf til mið-
alda eða áhritf frá einstefnu-
þjóðfélögum okkar tíma Með
þessu er engan veginn sagt
að draga eigi úr kynningu í
skólum á biblíunni, skáldskap
hennar og lffsspeki, svo ná-
komin sem hún hefur verið
íslenzkri menningarsögu; öllu
heldur er lögð áherzla á að
því öndvegisriti verði þyrmt.
svo að það verði lifandi bók-
menntir en ekki dauð kredda.
— Austrl.
Um níuleytið á sunnudags-
kvöld valt bifl hjá Alviðru í
ölfiusi. 1 bflnum voru 7 manns
og slösuðust tvær stúlkur, þó
ekki álvarlega. Á laugardaiginn
kl. 5 ók bíll á brúarstöpul aust-
an við Þingborg í Flóa. Var
þetta Volkswagen og í honum
þrir amerikanar. Einn þeirra
slasaðist og var fluttur á Land-
spítalann. Lögreglan á Selfossi
fór á tvo síðastnefndu slysstað-
ina, en hún var einnig beðin
um að fjarlægja sauðdrukkinn
mann sem reið hesti sínum um
bæinn með þvilfkum látum að
vegfarendur töldu sig vera í
hættu. Reiðför hans endaði með
því að hann féfl af baki á Að-
algötu.
Mikfl uimferð var á „rúntiu-
um“ svokailaða í Reykjavik á
sunnudagsikvöld og stöðvaði
lögregfian umferð í Kirkjustræti
um tfma. Einn ökuimannanna
þar fór nokkuð greitt af stað
aftur og lenti bífl hans á manni
sern var á gangi á Kirkjutorgi.
Var maðurinn filuttur á Slysa-
varðstofiuna og reyndist illa
marinn á læri, en óbrotinn.
Bæjarmyndír úr
stóru safni Harð-
ar Agnstssonar
Vegna frétta sem birzt hafa
hér í blaðinu um sýningu A.rki-
tektafélaigs íslands í anddyri
Háskólabíós, helgaða islenzka
torfbænum, skal það tekið fram
að langflestar myndanna á sýn-
ingunni eru úr safni Harðar
Ágústssonar. skólastjóra _ Mynd-
lista- og handíðasikóla íslands,
en Hörður er sem kunnugt er
manna fróðastur hér á landi um
húsakost og híbýlj landsmanna
fyrr og nú og hefur á undan-
fömum árum viðað að sér geysi-
miklum fróðleik um íslenzka
byggingarlist, m.a. safnað þús-
undum mynda og uppdrátta af
húsum og byggingum. Eru mynd-
irnar á sýningunni í Háskóla-
bíój úr því mikla siafni.