Þjóðviljinn - 23.11.1971, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.11.1971, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 23. nóvember 1971 — 36. árgangur — 267. tölublað. Tvö stjórnarfrumvörp: 40 stunda vinnuvika og lenging orlofs í gær voru lögð fram á Alþingi tvö stjómar- Þingfulltrúar við atkvæðagreiðslu frumvörp. Var annað frumvarp til laga um 40 stunda vinnuviku, en hitt fmimvarp til laga um orlof. Eins og fram kom í ræðu fé- lagsmálaráðherra fyrir skömmu, var það eitt af fyrstu verkum stjórnarinnar, að skipa nefnd til að vinna að orlofs. og vinnu- tímamálum í samræmi við mál- esfnasamninginn. Hins vegar var það í samráði við aðila vinnu- markaðarins, að ekki voru lögð fram frumvörp um málið strax, heldur þótti asskilegt. að reyna að láta breytingar á vinnudma og orlofi falla sem mest inn i samningana að öðru leyti. Nú hefur stjórnin hins vegar lagt frumvörp þessi fram, og gera þau ráð fyrir 40 stunda vinnuviku fyrir flesta launþega í landinu og nokkurri lengingu orlofs. Verður nánar sagt frá þessum frumvörpum síðar. Landsfundurínn efídi Alþýðubanda- lagið að þrótti og baráttuhæfni Ragnar Arnalds einróma endurkjörinn formaður flokksins, Adda Bára varaformaður og Jón Snorri Þorleifsson ritari ★ Landstundur Alþýðubanda- lagsins var haldinn um helgina á Hótel Loftleiðum — í aðal- bækistöðvum auðvaidsins, eins og einn fundarmanna orðaði það — og tókst fundurinn hið bezta. Fundinum lauk á sunnudags- kvöld. Það sem setti svip sinn á Iandsfundinn var framar öðru hreinskilin umræða ungra manna sem ekki hafa áður í jafnríkum mæli tekið þátt í tlokksstarfi Al- þýðubandalagsins. Einhugur ríkti meðal fundarmanna um öii meg- inmál fundarins og þrátt fyrir snarpa deilu um lagagreinar kcmur Alþýðubindalagið sterk- ara frá þessum landsfundi en það var við upphaf hans. Og það er ekki lítill árangur fyrír stjómmálafiokk. Ferja sekkur Tvö hundruð skólanemend- ur fórust á s unnu d agskvöld er ferju hvolfdi út af strönd Filippseyja og aðeins einn farþeganna hefur fundizt lífs. Ferjan var ofhlaðin. og í ó- löglegum fólksflutningum. Ragnair Amalds, alþingismað- uir, var endurkjörinn foianaöur Al'þýðuhandalagsins með l'ófataki, en uppstillingamefnd gerði ein- róma tillögu um Ragnar til foir- maninssitarlls áfram. Einmig varð varaformaður, Adda Bára Sig- fúsdóttir endurkjörin með lófa- taki. Guðjón Jónsson sem venð hefiur ritari Alþýðubandaiaigsim frá landsfiundinium 1968 baðst eindregið undan endurkjöri. Guð- jóni voru þölkikuð góð störf í þágu flokksins, er hann gegndi ritarastarf'iinu. Nú var kosdnin í ritarastarfið Jón Snorri ÞorleiiEs- son, formaður Trésmiðafélags Reykjavikur og var hanm ein- róma kosinn tdl þess stainfis. Miðstjóm var kjörin. á sumniu- daig; máðstjómin er 30 manna, 27 mamns auk formanns, varafor- mianns og ritara. Á imnsíðuim blaðsins er bdrtur listi yfir menn í mdðstjóm og varastjóm ásamt atkivæðatölum hvers og edns. "Þá eru birtar ályktanir um stjóm- miálaásitandið, um utamríkisimá.'l, um húsnæðdsmál. verðlagsmál, og fleira efini er frá landsfumdinium í Þjóðviljanum í dag. Landsfundurinm um síðustu helgi varð til þess að efla Al- þýðubandalagið enn að þrótti og baráttuihæifini. Sjá síður 5, 6 og 7 og forustu- gredn á siðu 4. Stöðugir sáttafundir um helgina Yfirvinnubann hjá bókagerðar- mönnum sett um miðja viku Getraunamet: 222með 12 rétta—1581 með 11 rétta Algert met var sett í get- raunastarfseminni um síð- ustu helgi Þetta met var margþætt. í fyrsta lagi voru 222 manns með 12 rétta en mest höfðu áður verið 14 með 12 rétta. Þá var 1581 seðill með ll réttum en mest höfðu áður borizt rúmlega 200 seðlar með 11 réttum, en það var í fyrravetur í sama skipti og 14 seðlar bárnst með 12 rétt- um. Þeir seðlar, sem að þessu sinni komu með 10 réttum, skiptu þúsundum. en oftar en ekki hafa 10 réttir dugað til vinnings. Þrátt fyrir að potturinn i væri nú stærri en nokkru' sinni fyrr, eða 650 þúsund krónur, koma aðeins 2500 kr. í hlut hvers er hafði 12 rétta og hefur áreiðanlega margur orðið fyrir vonbigðum er hann frétti það. eftir að hafa hoppað i loft upp í stofunni heima hjá sér með 12 rétta á laugardaginn. Að þessu sinni var um sölumet að ræða hjá Getraunum því að nú seldust 4000 seðlum meira en þegar síðasta met var sett. en það var síðustu vikuna í ensku knattspyrnunni sl. vor. — S.dór. Stöðugir fundir voru með sáttanefnd um helg- ina um gerð nýrra kjara- samninga. Þannig voru samningafundir á laug- ardag og sunnudag og í gær hófst samningafund- ur að Hótel Loftleiðum kl. 14 og stóð fram á kvöld. FÁRVIÐRI í EVRÓPU Mannskaðar og stórhríð suður. eftir allri álfu Vetur konungur kvaddi harka- lcga dyra hjá Evrópubúum um helgina. Norðanvindar blésu köldu suður eftir aliri álfu og hríðarbylir og frost ollu stór- töfum á samgöngum á iáði og legi. f flestum héruðum Frakk- lands var allt á kafi í snjó, og það fennti meira að scgja á eynni Korsíku, í ylvolgu Mið- jarðarhafinu. Fólk á Palíu, sem ætlaði í helgarferð í góða veðr- inu, varð heldur hvumsa við er á skall blindhríð, og komust menn í hann krappan af þeim sökum suður eftir skaganum, allt tU Appcnínafjalla. Víða í Vestur-Þýzkalandi varð að loka hraðbrautum vegna íannfergis, og lögreglan telur veðrið hafa valdið að minnsta kosti tuttuigu banaslysum í um- ferðinni. Lögregluyfirvöld í Dan- mörku telja þrettán manns hafa látið lífið þar af sömu orsökum. Vindihraðinn í Skandinavíu komst upp í 90 kílómetra á klukku- stund, og aiftaka veður var á Norðursjónum. Þar fórst vestur- þýzikt flutningaskip með sex manna áhöfn, og óttast er að fjögurra manna áhöfn dansks vélbáts hafi hreppt sömu örlög, en hanis er salknað síðan á laug- Björgunarsveit brauzt á mánu- daginn gegnum stórhríð í skozka hálendinu, til að koma sjö skóla- nemendum til hjálpar en þegar að kom, var aðeins einn á lífi, hinir sex höfðu orðið úti, aðeins nokikur hundnað metra frá næsta bæ. Unglinigarnir, sem voru frá Edinborg, fundust í skafli í hlíð- um Cairngiromfjalia ámiðhálendi Skotlands. Þau höfðu ætlað fót- gangandi til sæluhúss nokkurs, en stórhríðin yfirbugað þau áður en á leiðarenda kom. Það voru fjórar stúlkur og tveir piltar sem úti urðu, þau voru íimmtán og sextán ára gömui. Það hefur ekki sitaðið á við- brögðum stéttarfélaga í land- inu við þeim tilmælum 40 manna ráðstefnu A.S.Í. að boða verk- föH 2. desember. Þannig viar samþykkt í gærkvöid á trúnað- anm ann a ráðsiundi Iðju, félags verksmi'ðjufólks í Reykjavik að boða verkfall 2. desember. Þá hefur verkalýðsféiagið í Nes- kaupsitað samþykkt að boða verkfall 2. desember Bókagerðarmenn ætla að til- kynna yfirvinnubann í dag frá miðnætti miðvikud um óákveð- inn tíma. Er ekki vitað betur en prentmyndasmiðir, prentarar, offsettprentarar og bókbindarar tilkynni viðkomandi atvinnurek- endum um þetita yfirvinnubann bréflega í daig. Nær það til landsins alls. í>á hefur Byggiragiariðnaðair- mannafélagið í Hafnarfirði boð- að verkfiaH 2. desember og Bátasölur Þrír bátar seldu erlendis um helgina fyrir 3,6 miljónir króna. Steinunn seldi 34 lestir í Huil og fékk 38,30 k/ á kiló Sæunn seldi í Bremerbaven 33 lestir og fékk 38,10 kr. á k'íló og Faxi 34 lestir og fékk 30 krónur á kátó. Prentmyndasmiðafélag íslands. Ennfremur hefur Iðja í Hafnarf. og Verkalýðsfélagið Rangæingur gefið heimild til vinnustöðvunar. í gærkvöld voru haldnir trún- aðarráðsfundir í mörgum félög- um er fjölluðu um verkfailsboð- un 2. desember. DAUÐASL YS f HRÍSEY Féll fyrir borð og drukknaði Það slys varð í Hrísey s. L sunnudag að Þorbjöm Jónsson, starfsmaður kaupfélagins í Hrís- ey, féil fyrir borð af litlium báti og dnukknaði. Gerðist þetta laust eftir hádegið rétt fyrir norðan eyjuna. Þorbjöm var þama á fuigla- veiðum og vissi enginn neitt fyrr en menn á nálægum bátum 3u allt í einu bát Þorbjöms tma um mannlausan. Þorbjöm var einn í bátnum og sá því enginn með hvaða hætti siysið varð. Siysið gerðist rétt fyrir norðan eyjuna, en þrátt fyrir miMa ledt faranst líltið ekfci. Þorbjöm Jónsson var kvæntur og 5 bama faðir. — S.dór. Ók á fjárhóp Það slys varð rétt fyrir ofan Akranes að bifreið ók á fjár- hóp og drápust við það 5 kind- ur. Þetta gerðist um kl. 17.30 sl. laugardag. Ekki drápust ali- ar kindurnar við áreksturinn, en sumar voru það illa slasaðar að lóga varð þeim á staðnum. Sjómannafélag Reykjavíkur Listi starfandi sjómanna kominn Framundan eru kosningar í Sjómannafélasi Reykjavík- ur og hefur komið fram nýr listi — listi starfandi sjó- manna. Formannsefni er Pétur Ólafsson, en varaformanns- efni Jón Tímóteusson. Heyrzt hefur að efsti maður á Iista stjórnarinnar verði Hilmar Jónsson, núverandi fram- kvæmdastjóri, en Jón Sigurðsson muni nú draga sig í hlé sem formaður félagsins; hann mun starta áfram í Sjó- mannasambandinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.