Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Žjóšviljinn

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Žjóšviljinn

						Sunnudagur 24. septcmbcr 1972

Almennar upplýsingar um

læknaþjónustu borgarinnar

eru gefnar i simsvara

Læknafélags Reykjavíkur,

simi 18888.

Nætur- og helgidagavarzla

vikuna 23. sept. til 29. sept. er

i Vesturbæjarapóteki og Háa

leitisapóteki. A sunnudag er

varzla aðeins i Háaleitisapó-

teki.

Slysavarðstofa

Borgarspitalans er opin all-

an sólarhringinn. Simi 81212.

Kvöld-, nætur- og helgidaga-

vakt á heilsuvernarstöðinni.

Simi 21230.

Banaslys

á Akranesi

Siðastliðinn miðvikudag hras-

aði maður i tröppum við hús sitt á

Akranesi. Höfuðkúpubrotnaði

maðurinn við fallið. Var hann

þegar fluttur á sjúkrahús á Akra-

nesi og þaðan suður á Borgarspft-

alann. Maður þessi lézt i gær-

morgun á Borgarspitalanum af

völdum meiðsla sinna. Hét hann

Haukur Ólafsson til heimilis að

Jaðarsbraut 19 á Akranesi. Hafði

hann verið sjómaður um árabil og

var nær sextugur að aldri.

Ketilsprenging

í Kópavogi

Sprenging varð i miðstöðvar-

katli að Nýbýlavegi 46b i fyrra-

kvöld. Veggir sprungu i

miðstöðvarherberginu.og steypu-

molar þeyttust i næsta hús.

Vatnsinntakið eyðilagðist við

sprenginguna og flæddi vatn um

klefann, en ekki kviknaði eldur af

þessum sökum.

Hvellurinn af sprengingu þess-

ari varð eins og af fallbyssuskoti.

Sýningu

Magnúsar A,

lýkur í dag

Sýning Magnúsar A Arnasonar

i Félagsheimili Kópavogs hefur

nú staðið i hálfan máuð.

A sýningunni eru 19 málverk og

2 höggmyndir.

Sýningunni lýkur i dag, og er

hún opin til kl. 5.30.

Sýningu lýkur

Sýningu Sigurðar Orlygssonar

og Magnúsar Kjartanssonar, sem

staðið hefur yfir að undanförnu i

Norræna húsinu, lýkur kl. 22 i

kvöld. Um fimm hundruð manns

hafa þegar séð sýninguna og sjö

myndir hafa selzt. M.a. hefur

Reykjavikurborg keypt eina

mynd af hvorum.

Gaf sædýr

Asgrimur Agústsson, Ijós-

myndari á Akureyri, gaf

Nátturugripasafninu á Akureyri

nýlega mikið safn sa-dýra af

djúpmiðum   umhverfis   landið.

Ásgrimur safnaði dýrunum er

hann var háseti á Akureyrar-

togurunum.

Litið verður hægt að sýna af

dýrunum fyrr en úr nrtisl með

húsna'ðismál safnsins.

Blaðberar

óskast

Þjóöviljinn óskar að

ráða blaðbera í eftirtalin

hverfi:

Hjarðarhaga

Skjól

Háskólahverfi

Háteigsveg

Breiðholt

Fossvogshverfi 2

Ásgarð

Miðbæ

Hverfisgötu

Þjóðviljinn

sími 17500

¦K   ^T

Kvrópa cr býsna fátæk að orkulindum, og enginn vafi leikur á          ofurkapp á að sölsa norskar oliulindir undir sig, ef stjórn Bratte-

þvi, að stóriðjuhringar auðvaldsbandalagsins EBE munu leggja           l>s tckst að teyma norsku þjóðina inn í bandalagið.

Orkumálastjóri Efnahagsbandalagsins:

Norskar olíulindir

tilheyra EBE

Harðar umrœður í norska sjónvarpinu

Ósló 22/9. Harð-

vitugar orðahnipp-

ingar urðu i umræðu-

þætti norska sjón-

varpsins i gær milli

þeirra Helge Seip,

þingmanns Vinstri-

flokksins, og Finn

Gustavsen, íormanns

SF-flokksins, um olíu-

lindir á botni Norður-

sjávar, út af strönd

Noregs. Tilefni um-

ræðnanna voru þau

ummæli orkumála-

stjóra E B E

Ferdinands Spaaks,

að lita bæri á norsku

oliulindirnar sem um-

ráðasvæði   Efnahags-

bandalagslandanna.

Gustavsen fór svo

ómildum orðum um

græðgi og yfirgang

EBE, að stjórnanda

þáttarins þótti ástæða

til að stöðva um-

ræðurnar     andartak.

Seip reyndi hvað hann gat,

til að draga úr þýðingu um-

mæla Spaaks, og kvað orku-

málastjórann naumast hafa

umboð til að ákveða slikt mál

upp á eigin spýtur, en

Gustavsen .benti á, að sem

orkumálastjóri EBE hlyti

Spaak að mæla fyrir munn

bandalagsins.

Þeir Bratteli, forsætisráð-

herra, og Borten, þingmaður,

deildu og um oliuréttindin i

sama þætti. Bratteli kvað

stjórn sína ekki hafa samið

um rétt til nýtingu oliulinda

við EBE. Borten sagði hins

vegar, að það hlyti að liggja i

augum uppi, að hin stóru

aðildarriki EBE renndu hýru

auga til norsku olfulindanna,

og þótt þeim tækist ef til vill

ekki beinlinis að sölsa þær

undir sig, kynnu þau að beita

þrýstingi, til að fá Norðmenn

til að nýta oliulindirnar hraðar

og fyrr, en æskilegt gæti talizt.

Neyðarástand

á Filippseyjum

MANILA 23/9.  Neyðar-   hafði   verið   sýnt   mis-

ástandi var lýst yfir á   heppnað banatilræði, og

Filippseyjum   i   gær-   þrálátur    kvittur    gaus

kveldi, eftir að varnar-   upp,   um   að   stjórnar-

málaráðherra    landsins   bylting væri í aðsigi.

Uganda:

Enn er

barizt á

landamærun

um

Kampala 2:i/í). — Harðir bar-

dagar geisa nú milli Ugandahers

og sveita Tanzaniuhers og skæru-

liða, að sögn herstjórriarinnar i

Kampala. Vigvöllurinn er á

tanzanisku landsvæði, rétt við

landamæri Uganda. Jafnframt

var frá þvi skýrt i morgun, að

einn þeirra er teknir voru

höndum i átökunum við borgina

Mutukula fyrr i vikunni, sé John

Wakholi, fyrrum ráðherra og

stuðningsmaður Obotes, fyrrver-

andi forseta Uganda, Wakholi

kvað hafa særzt i átökunum, og

tatemaður herstjórnarinnar taldi

óvist að hann myndi lifa af flutn-

ingana til Kampala.

Að minnsta kosti tuttugu manns

höfðu verið teknir höndum i Man-

ila i gærkvöldi þeirra á meðal

leiðtogar stjórnarandstöðunnar.

Yfirhershöfðingi höfuðborgarum-

dæmisins skýrði frá þvi, að

Marcos forseti myndi gefa út

yfirlýsingu um ástandið i dag.

Rikisstjórnin ver ákvörðun sina

Marcos forseti Eilippseyja.

um neyðarástand þeim rökum að

kommúnistar vaði uppi með

skæruhernað i afskekktum hér-

uðum á Filippseyjum. Skæru-

liðar, sem sagðir eru maóistar,

hafi náð ýmsum héruðum á -sitt

vald, og neyðarástandið eigi að

nýta til að vinna bug á þeim.

MERKJASÖLUDAGUR

SJÁLFSBJARGAR

Reyk-

sprengjur

á Saigon-

þingi

Saigon 23/9 Tuttugu og tveir

þingmenn stjOrnarandstöðunnar i

Suður-Vietnam greiddu atkvæði á

þingi i dag, til að nema úr.gildi

bráðabirgðalög þau er Thieu

„forseti" setti til að tryggja stöðu

sina i júnimánuði, i þann mund er

Þjóðfrelsissveitirnar hófu stór-

sókn sina. Ekki likaði öllum jafn

vel, að Thieu skyldi sviptur laga-

legu gerræði sinu, og i þann mund

er þingmenn gengu til atkvæða

var reyksprengju varpað af

áheyrendapöllum niður i salinn.

Þingmennirnir urðu að halda

vasaklútum fyrir vitin, meðan

þeir greiddu atkvæðin, en

lokasamþykktin var á þá leið, að

bráðabirgðalögin skyldu numin

úr gildi.

Merkja- og blaðsöludagur

Sjálfsbjargar, er i dag.

Auk ínerkjanna er tímaritið

Sjálfsbjörg selt,en það kemur út

cinu siiiui á ári.

Af efni blaðsins má geta

greinar Oddu Báru Sigfúsdóttur

um almannatryggingar. Þar er

einnig að finna grein um athyglis-

verða fræðslustarfsemi i Noregi,

en samtök fatlaðra þar i landi

hafa um nokkurra ára skeið hald-

ið námskeið fyrir foreldra fatl-

aðra barna, þar sem tekin eru til

meðferðar hin margvislegu

vandamál sem þeir þurfa að eiga

við. Ennfremur er fróðleg grein

eftir Unni Guttormsdóttur um

sundkennsluaðferð, sem hentar

vel fötluðum.

Blöð og merki Sjálfsbjargar

verða seld viða um land i dag.

Kostar blaðið kr. 60,- og merkið

kr. 30,- öllum ágóða er varið til

byggingar Sjaálfsbjargarhússins.

Flýgur SAS

til Kina?

Kaupmannahöfn 23/9 Undir-

búningi flugsamgangna milli

Norðurlanda og Kina hefur nú

miðað talsvert áfram, en i gær

lauk Norðurlandaheimsókn kin-

verskrar sendinefndar, sem

fjallar um þessi mál. Að sögn for-

vigismanna SAS, voru viðræður

við Kinverjana árangursrikar, og

i þeim voru lögð drög að flugsam-

göngum i framtíðinni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
8-9
8-9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16